Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Síða 9
DV. LAUG’ARBAGDR M: FEBRUAR1984. 9 Eitthvað um tiundi hver maður hefur ekki nóg fyrir brýnustu nauðsynjum. OV nynd: Einar Oiason. Lágstéttin: Söhudólgurmr bæti furír brotin sín Eftir síðustu kannanir sjá menn það svart á hvítu: Stór hópur ís- lenzkra fjölskyldna hefur ekki nóg fyrir brýnustu útgjöldum. Nú er nauðsyn að bæta úr skák. Sökudólgarnir veröa að viöurkenna mistök sín og greiöa fyrir. Við sjáum, að margir eru í botn- lausri hít. A Islandi er orðiö til þjóðfé- lag, sem við höfum betur kynnzt er- lendis, þjóðfélag, þar sem stór hópur býrvið örbirgð. Hverjum er það aö kenna? Kannski við hugum fyrst aö söku- dólgunum. Karp um fortíðina má þó ekki villa um fýrir okkur. Það er nútíðin, sem skiptir máli, — aðgerðir tii að breyta þjóðfélaginu til batn- aðar. Ekki raunveru/egt vel- ferðarþjóðfélag Aðalskýringin á, hvernig komið er, finnst hjá valdhöfum undanfarinna ára. Við höfum ekki byggt upp raun- verulegt velferðarþjóðfélag. Við stærum okkur af velferð, en hún er byggð á sandi. Við höfum ekki þjóðartekjur til að standa undir raunverulegu velferðarþjóöfélagi. Of miklu af þjóðartekjum hefur verið varið í lítt arðbærar eða óarðbærar greinar. Við sullum fjármunum í landbúnaö og til skipakaupa, sem auka aðeins halla í útgerð. Við höfum sýnt lítið vit á undanfömum árum, og því er svo komiö sem komið er. Kannanirnar sýna, að alltof stór hópur hefur ekki heimilistekjur fyrir ofan neyöarmörk. Þetta er óþolandi, en hvernig má breyta því? Líklega getur enginn okkar, hvar svo í flokki, sem við stöndum, sam- þykkt svona kerfi. Launakannarnirnar sýna, aö gífurlegur munur er á lífskjörum fólks, meiri munur en flestum okkar mun þykja réttlætanlegur. Hinir lægstlaunuðu hafa orðið svo langt á eftir, að fæstir aörir munu hafa til þess hugsaö. Við getum einfaldlega ekki boðið þeim, sem minnstar tekjur hafa, upp á þetta þjóöfélag. I mörgum tilvikum væri hentugra fyrir þetta fólk að sækja um „fátækrastyrk” og láta hið opinbera sjá fyrir sér. Það gæfi meiri tekjur. Tölur um tekjur láglaunafólksins hafa nú verið þuldar y fir öllum okkar daglega. Sennilega mun flestum okkar finnast, að of langt hafi verið gengið í þeirri kjaraskerðingu, sem hæfir þetta fólk. Ríkisstjómin hefur réttilega ráðizt gegn verðbólgunni. Hún hefur komiö hraða verðbólgunnar úr 130% niður í 10%. Þetta hefur eingöngu gerzt með því að skerða launakjör fólks. Stórir hópar á vonarvöl Þetta hefur auðvitað gerst á löngum tíma. Munurinn er sá, að nú reynir á. Kaupiö hefur veriö skert um 25 prósent síöan 1982. Núverandi ríkisstjórn sullaöi kaupinu niður og virtist ekki skilja, að með því yrðu stórir hópar á vonarvöl. Við sjáum nú, að kjaraskerðing ríkisstjórnarinnar var of mikil gagn- vart þessu lágstéttarfólki. Lágstéttin hefur ekki í mörg hús að venda. Hún er minnihlutahópur, jafnvel í sínu eigin verkalýðsfélagi. Núverandi rikisstjórn skapaði ekki þetta vandamál. Það hefur oröiö til á löngum tíma. Lágstéttin, sem við vitum nú meira um en áður, hefur orðið til í kjarasamningum í ár og Laiigarilags* pistillinn Haukur Helgason adstodarritstjóri áraraðir. Viö sjáum þetta bara betur nú, þegar að sverfur. Láglaunafólkið getur síður en aðrir haldiö lífs- kjörum sínum uppi. Tveggja her- bergja íbúðir þess falla undir ham- arinn eöa annað. Sök samningamanna Mikla sök á þessu eiga samninga- menn Alþýðusambands Islands. I samningunum hefur lágtekju- fólkinu alltaf verið fómað, vænt- anlega í þeirri trú, að verðbætur mundu sjá til bess, að það skrimti. Auövitaö hafa samningamenn ASI á undanförnum árum ekki séð fyrir, að til kæmi ríkisstjórn, sem kcyröi allt niöur. Þeir eru ekki svo spá- mannlega vaxnir. Iðnaðarmenn og uppmælingaaðail hafa að miklu ráöið kröfusmíð Alþýðusambandsins. Líklega þekkja aiiir núorðiö, hvernig hátekjumennirnir í ASI hafa ráðiö feröinni. Mikið hefur verið skrifað, ár eftir ár, um það, hvernig lágtekjufólkinu hefur verið fórnað i samningum. Þegar viö sjáum nú, að stór hluti fólks er undir þeim tekjumörkum, sem viöundandi eru, spyrjum við enn: Af hverju? Menn hafa ekki samið um, að þetta fólki héldi nægu kaupi. Svarið síðasta árið er líka hjá ríkisstjórninni. Ríkisstjórnin réðst í að „stytta” kaupið um 25 prósent. Hverjir þoldu það? Augljóslega ekki lágtekjufólkið. Þetta þýddi, aö það komst á vonar- völ, og hefði ríkisstjórnin raunar átt að vita um það fyrir löngu. Ríkisstjórnin hefur ráðizt gegn verðbólgu og viöskiptahalla með beim hætti, að nú sjáum við fyrst, hversu illa lágstéttin er komin. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru rökréttar. Viö gátum ekki þolað 130% verðbólgu og háan viðskiptahalla. Við höfðum þá þegar slegið meira en nóg í erlendum lánum. Skuldabyrðin var að verða óþolandi okkur og af- komendum okkar. Ríkisstjórnin greip því til þess ráðs, en nokkuð blindandi, aö keyra kjörin niöur. Þetta gátu margir þol- að, en flestir við illan leik. Þetta gat láglaunafólkiö ekki þolað, ef „heimilistekjur” þess voru til dæmis undir 20—25 þúsundum. Og f jölmarg- ir hafa mikluminni tekjuren þetta. Rikisstjórnin hefur nú vei'iö þátt- takandi í könnun á kjörum láglauna- fólks. Hún ætti að láta sér segjast. Ófrjálsir samningar Nú þýðir ríkisstjórninni ekki aö skjóta sér bak viö „frjálsa samninga”. Hún gerði samninga ófrjálsa, og það er hennar, í samráði við ASI og BSRB, aö sjá til þess, að almenningur i gósenlandinu Islandi hafi betri kjör. Við þurfum því ekki lengi að leita aö sökudólgum. Þaö er rökrétt, að þeir viðurkenni nú syndir sínar og geri iðrun og yfirbót. Það geta þeir gert með því í fyrsta lagi, að megin- hækkunin nú gangi til að bæta kjör hinna lægstlaunuðu, plús aögerðir ríkisvaldsins til aö bæta kjör hinna tekjulægstu. Vissulega er hallarekstur á ríkis- sjóði. En nokkuð langt má komast með því að láta niðurgreiðslufé ganga til hinna lægstlaunuöu í stað- inn. Síðan ætti einhver halli á ríkis- sjóði ekki að vera okkur um megn, nú þegar verðbólguhraðinn er kominn niður i um 10% á ársgrund- velli. Einhverju verður að fórna. Tekjuskiptingin nú nær engri átt í is- lenzku þjóðfélagi. Hallarekstur á ríkissjóði er verð- bólguvaldur. Það veldur einnig meiri verðbólgu, ef farið verður út fyrir 4% „ramma” ríkisstjórnarinnar. Ráðamenn mega við núverandi aðstæður ekki einblína á slíka hluti. Viö megum ekki láta þjóðfélagið drabbast niður meira en orðið er. Haukur Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.