Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Blaðsíða 13
DV\ LAUGARDAGURll: FEBRUAR1984.
13
Texti og inyndir:
Jén lSaldvin
Halldórsson
Hver skyldi nú morðinginn vera?
Það er Guðbjörn Arngrimsson sem
hefur það vandasama hlutverk að
leysa morðgátuna. Hann situr
þarna og mænir á hina grunuðu.
Þau eru Þura Sigmundsdóttir,
Gunnar Arngrímsson, Fjóla Jóseps-
dóttir, Guðrún Víglundsdóttir,
Hannes Ö. Blandon, Sigríður Guð-
mundsdóttir og Sveinn Stefánsson.
Hún er að verða nokkurs konar hirðleikstjóri Ólafsfirðinga — Auður
Jónsdóttir leikstjóri.
Besta stykki
Agöthu
— Hvaðan er leikstjórinn?
, ,Hún kemur úr Kópavogi. ’ ’
— Oghvererhún?
„Eg lék nú í nokkur ár með Leikfé-
lagi Kópavogs. Síðan hef ég verið á
ýmsum námskeiðum í leiklist, fyrst
hjá Lárusi Pálssyni og síðan mörg-
um öörum. Eg hef mikið starfaö hjá
Bandalagi íslenskra leikfélaga við
leikstjóm og tekiö þátt í mörgum
námskeiðum hjá því, síðast var ég þó
á leikstjóranámskeiði hjá Leiklistar-
skóla Islands.”
— Hvenær byrjaðir þú að leik-
stýra?
„Ætli séu ekki komin ein 7 ár síðan
það var. Eg hef verið víða um landiö
í þeim erindagjörðum. I fyrra setti
ég til dæmis upp Gullna hliðiö á
Seyöisfirði. Þar áður var þaö Sjóleið-
in til Bagdad hjá Leikflokknum sunn-
an Skarösheiöar.”
— Þú virðist hafa tekið miklu ást-
fóstri við Olafsfjörð?
„Já, þetta er þriðji veturinn sem
ég leikstýri hér. Eg var líka meö leik-
listamámskeið hérna. Það var mjög
vel sótt og tókst vel. Mér finnst aö
fólk hér geti verið hreykið af því. Við
lögðum mesta áherslu á framsögn
enda er hún númer eitt. Það er sama
hvað leikarar leika vel ef enginn
heyrir það sem þeir segja. Svo eru
afslöppunaræfingar alveg nauðsyn-
legur liður í leiklistarkennslu.”
— Það er sagt að þú komir hingaö
mest vegna sundlaugarinnar. . .
(hlær) „Eg fer í sund daglega.
Annars líkar mér mjög vel að vinna í
Olafsfirði. Hér er eitthvert besta fólk
sem ég hef haft. Þetta er eins og að
komaheimtilsín.”
— Er ekki erfitt að leikstýra hjá
áhugafólki í leiklistinni?
„Það erfiöasta er aö víöa hættir
fólkið þegar búiö er að ná góðum
kjama og þá kemur nýtt sem þarf að
þjálfa. Þess vegna finnst mér
nauösynlegt að hafa leiklistarnám-
skeið. En það verður aldrei neinn
fullkominn í leiklist. Reynslan og
þroskinn kemur ekki nema vinna
stanslaust og enginn verður góður
leikari nema fá þroskann. Þaö verð-
ur aö kryfja persónumar og skilja
þær. Persónumar veröa að koma
innan frá, erns og Láms Pálsson
sagði. Þetta er fólk farið að skilja
sem er búið aö vera dálítinn tíma.”
— Segðu mér eitthvaö um Músa-
gildruna.
„Músagildran er álitið besta
stykki Agöthu Christie enda gengur
það enn í London. Persónumar era
mjög sterkar og það er engin leiö að
láta sér detta í hug hver morðinginn
er. Hún skrifaði margar bækur sem
hafa veriö kvikmyndaðar en þetta
skrifaöi Agatha sem leikrit og bygg-
ingin er því mun heilsteyptari. ”
— Hverersvomorðinginn?
(Auður rak upp stór augu.) „Það
má aldrei segja. Eg get aðeins sagt
að það er komið fram í lok hvers leik-
kvölds og áhorfendurnir beðnir að
halda því leyndu hver morðinginn
er.”
— Ergamanaðþessu?
„Músagildran er spennuleikur og
spennan myndast í því að þó persón-
umar séu aðeins 8 era þær oft allar á
sviðinu í einu. Og í mestu alvörunni
kemur Agatha oftmeðkímnina.”
— Svararþú játandiverðiþérboð-
ið einu sinni enn að sviðsetja fyrir
Leikfélag Olafsfjarðar?
„Hiklaust.”
— Attu þér draumaleikrit að setja
upp hérna í Tjamarborg?
„Eg hef svo sem ekkert sérstakt í
huga en þau langar til að setja upp
söngleik. Ef maður er beðinn um álit
þá gefur maöur það. Annars set ég
bara upp þaö sem ég er beöin um aö
setja upp.”
VOLVO 244 DL ÁRG. 1982,
ekinn 23 þús., beinsk. Verð
kr. 380.000.
VOLVO 245 DL ÁRG. 1982,
ekinn 11 þús., beinsk. Verð
kr. 420.000.
VOLVO 244 GL ÁRG. 1981,
ekinn 25 þús., beinsk. Verð
kr. 370.000.
VOLVO 245 GL ÁRG. 1981,
ekinn 30 þús., beinsk. Verð
kr. 400.000.
VOLVO 244 DL ÁRG. 1979,
ekinn 61 þús., beinsk. Verð
kr. 260.000.
VOLVO 244 DL ÁRG. 1978,
ekinn 90 þús., sjálfsk.
aflstýri. Verð kr. 240.000.
VOLVO 244 GL ÁRG. 1979,
ekinn 64 þús., sjálfsk.
Verð 270.000.
VOLVO 244 DL ÁRG. 1978,
ekinn 69 þús., beinsk.,
vökvast. Verð 225.000.
OPIÐÍ DAG KL. 13-17.
VOLVOSALJURINN
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
L3V7JHÍV
Á ÚLLUM BLAÐSÖLUSTÖÐUM
AFMÆLISGETRAUN
AFMÆLISGETRAUN II
heldur áfram.
SJÓR
OG SAðJDUR
SÓL
OG SALT
VIKAN veitý tesmitl
um sinum tarfdfani trf
aö hvílast i þtjáf vikur
I Iwfitgri kýiTÁ I Mid
jaröartwfi.
ÁSKRIFTARSÍMINIM ER 27022