Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1984, Qupperneq 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR1984.
SAMMNGUR ASÍ OG VSÍ
UNDIRRITAÐUR í GÆR
fram ef þær verðbólguforsendur sem
samningurinn byggir á standast
ekki.
Samningurinn var borinn upp á
formannafundi ASI í gær og sam-
þykktur með 5 mótatkvæðum. Þegar
ljóst var að samningur ASI og VSI
var i burðarliðnum samþykkti ríkis-
stjórnin á ríkisstjómarfundi aö gera
ýmsar ráðstafanir til að bæta af-
komu lágtekjufólks gegnum skatta-
og tryggingakerfi og var sú sam-
þykkt send inn á samningafundinn
um hádegisbiL Skömmu eftir há-
degið var samningurinn siðan undir-
ritaður.
Hér á eftir er greint frá megin-
atriðum í samningi ASI og VSI,
aðgerðum ríkisstjórnarinnar ásamt
áliti forystumanna þriggja verka-
lýðsfélaga.
OEF
Kjarasamningur milli Alþýðusam-
bands Islands og Vinnuveitendasam-
bands Islands var undirritaður í gær
fyrir hönd aðildarsambanda þessara
samtaka með fyrirvara um sam-
þykkt félagsfunda aðildarsamtaka
Alþýðusambandsins. Þá var einnig
undirritaður samhljóða samningur
milii Vinnumátasambands sam-
vinnufélaganna og Vinnuveitenda-
sambandsins.
Meginatriði samningsins er að
gert er ráð fyrir að kaupmáttur síð-
asta ársf jórðungs ársins 1983 hakiist
óbreyttur út samningstimann miðaö
við aö verðbólga á yfirstandandi ári
veröi á bilinu 10 til 11%. Samnings-
tíminn er til 15. apríl 1985 en samn-
ingsaðQum er heimUt aö segja upp
launaliðum samningsins með
mánaðar fyrirvara þannig að þeir
verði lausir 1. september 1984 eða 1.
janúar 1985 og er það ákvæði sett til
að tryggja að endurskoðun geti farið
Samninganefndir Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins að lok-
inni undirskrift samninganna í gær. Talið frá vinstri, fulltrúar Alþýðusam-
bandsins: Ragnar Bergmann, Björn Þórhallsson, Asmundur Stefánsson, og
fulltrúarVinnuveitendasambandsins: Magnús Gunnarsson, Hjalti Einarsson,
Davíð Scheving Thorsteinsson og Kristján Ragnarsson.
DV-mynd EO.
Samningur ASÍ og VSÍ:
Laun hækka um 5%
ríð undirrítun
Kauptaxtar og viðmiðunartölur
Iauna munu hækka um 5% frá og
með deginum í gær hjá þeim félögum
sem samþykkja samning Alþýðu-
sambandsins og Vinnuveitendasam-
bandsins sem undirritaður var í gær
með fyrirvara um samþykV i félags-
funda.
Samningurinn kveður á um að
kauptaxtar og viðmiðunartölur skuli
síðan hækka um 2% þann 1. júni, um
3% þann 1. september og um 3%
þann 1. janúar á næsta ári hafi
launaliðum samningsins ekki verið
sagt upp fyrir þann tíma.
Þá kveður samningurinn á um að
lágmarkstekjur fyrir fulla dagvinnu
skuli vera 11.509 krónur fyrir starfs-
fólk á aldrinum 16 til 18 ára og 12.660
krónur fyrir starfsfólk 18 ára og
eldra sem starfað hefur minnst 6
mánuði i starfsgrein. Sömu lág-
markslaun skulu gilda fyrir iðnnema
á síðustu sex tQ tólf mánuöum náms-
eða þjálfunartimans. Samkvæmt
áður gUdandi kjarasamningi voru
lágmarkslaun fyrir alla þessa hópa
10.961 króna á mánuöi. Þær lág-
markstekjur sem nú er samið um
munu siðan taka sömu áfangahækk-
anir og önnur laun. Þegar metið er
hvort starfsfólk á rétt á lágmarks-
launum samkvæmt þessu ákvæði
samningsins skal telja með dag-
vinnutekjum allar launagreiöslur
aðrar en greiðslur vegna yfirvinnu,
vaktavinnu eða kostnaðargreiðslna.
Þannig á sá sem fer yfir þetta tekju-
mark aö meðtöldum bónusgreiöslum
ekki rétt á að fá þessar lágmarks-
tekjur.
Samningurinn gQdir til 15. april á
næsta ári en samningsaðilum er
heimQt að segja honum upp með
mánaðar fyrirvara, þannig að samn-
ingar verði lausir 1. september eða 1.
janúar 1985. Þá er í samningnum
ákvæði um að samningsaðilar vinni
að endurskoðun samningsákvæða
um launagreiöslur í veQcinda- og
slysaforföllum með það að markmiði
— lágmarkstekjur
hækka
í12.660 krónur
að gera veikindaréttarákvæði trygg-
ingatæk. Samningsaðilar ætla á
samningstímanum að beita sér fyrir
aögerðum sem tQ þess eru fallnar að
auka framleiöni og verðmætasköpun
á öllum sviðum íslensks atvinnulífs.
Einn þáttur þessa á að vera endur-
skoðun afkastahvetjandi launakerfa.
Athuga á launakerfin og tryggja að
þau leiði tQ aukinnar framleiðni og
gefi eðlilegt endurgjald fyrir vinnu-
framlag, segir í samningnum.
Þá er einnig ákvæði þess efnist að
ASI og VSI muni beita sér fyrir því
að samningur um vinnu við
virkjunarframkvæmdir verði gerður
fyrir 1. apríl næstkomandi. OEF.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar:
Ahersla á bætt kjör
foreldra og aldraðra
I aðgerðum þeim sem ríkisstjómin
kynnti I gær er miðað við að bæta
kjör einstæðra foreldra og bam-
margra fjölskyldna sérstaklega
ásamtelli-og örorkulífeyrisþegum.
Aætlað er að í heild kosti þessar að-
gerðir rikisstjórnarinnar allt að 330
milljónum króna en ekki hefur verið
ákveðið með hvaöa hætti það verður
fjármagnað. I samþykkt sinni í gær
segist ríkisstjórnin vera tQbúin tQ
viðræðna um sérstakar tQfærslur
fjármuna innan ramma fjárlaga í
þvi skyni að bæta afkomu Iágtekju-
fólks.
1 tQlögum þeim sem ríkisstjómin
lagði fyrir ASI og VSI í gær er lagt tfi
að sérstakur bamabótaauki verði
tekinn upp. FuDur barnabótaauki
verður 12 þúsund krónur sem lækkar
eftir hærri tekjum. Einstæðir for-
eldrar meö eitt bam með aUt aö 150
þúsund krónur í árstekjur á árinu
1983 fá fullan bamabótaauka, 12
þúsund krónur. En upphæðin lækkar
síðan um 6,67% fyrir hver 10 þúsund
í árstekjur sem eru umfram 150 þús-
und krónur þannig að það einstætt
foreldri sem var með yfir 300 þúsund
fær engan bamabótaauka. Hjón eða
sambúðarfóUc með eitt barn og með
aUt að 220 þúsund í árstekjur árið
1983 fær fullan bamabótaauka en
upphæöin lækkar síðan eftir sömu
reglu og hverfur við hámarkstekjur
370 þúsund.
Bamalífeyrir hækkar úr 1.615
krónum á mánuði í 2.015 krónur og
meðlagsgreiðslur hækka að sama
skapi. Þá leggur ríkisstjómin tQ að
mæðra- og feðralaun hækki um 750
krónur á mánuði fyrir hvert barn,
þannig að foreldri með eitt bam
fengi nú 1.263 krónur á mánuði,
foreldri með tvö böm 3.309 krónur og
foreldri með þrjú börn 5.869 krónur á
mánuði.
Lagt er tQ að þær breytingar verði
gerðar á greiðslum almannatrygg-
inga að tekjutrygging fyrir einstakl-
— heildarkostnaðurinn
áætlaður um 330
milljónirkróna
ing hækki í hámarksupphæð 4.247
krónur úr 3.861 krónur og er það 10%
hækkun. Tekjutrygging fyrir hjón
hækki úr 6.527 krónur í 7.180 krónur á
mánuöi. Fritekjumark skal hækka
um 10% þannig aö það verði 29.084
krónur fyrir einstakling og 40.711
krónur fyrir hjón og er þá miðað viö
tekjur ársins 1982.
HeimQisuppbót hækkar um 10%
þannig að hún verður nú 1.422 krónur
á mánuði fyrir einstakUng. Vasapen-
ingar hækka um 500 krónur þannig
að þeir verða 1.750 krónur á mánuði
fyrir þá sem eru á sjúkradeildum og
1.989 krónur hjá öðrum.
OEF
Benedikt Davíðsson,
formaður Sambands
byggingamanna:
Ekkifull-
nægjandi
fyrirbygg-
ingamenn
„Þetta uppkast er ekki
fuUnægjandi fyrir byggingamenn
vegna þeirrar sérstöku kjaraskerð-
ingar sem varð hjá þeim og fram-
kvæmd var með lagasetningu frá al-
þingi í haust. Meðan það fæst ekki
leiðrétt getum við ekki staöiö að
samþykkt þessara samninga. Þó vQ
ég ekki mótmæla þeim og á þann hátt
leggja stein í götu þeirra sem vQja
þessa samninga og mun því sitja
hjá.” HÞ
GuðmundurÞ.
formaður
Landssambands
iðnverkafólks:
Kjaraskerð-
ingin verður
stöðvuð
,j£g fyrir mitt leyti mæli með því
að þessir samningar verði sam-
þykktir. Það sem mest er um vert
hér er að kjaraskerðingin verði
stöðvuð. Með þessum samningum
verða verulegar kjarabætur hjá
þeim verst settu. Því treysti ég mér
til að mæla með þessum samningum
sem fela í.sér lágmarkstekjutrygg-
ingu fyrir þá sem búa við versta af-
komu.” HÞ
Guðjón Jónsson,
formaður málm-
ogskipasmiða:
Mun lélegri
en
vænst
,jEg hafði ekki gert mér mQdar
vonir um hagstæða samninga og
þessi drög eru mun lélegri en ég
hafði vænst. Hækkanir eru ekki
nægar og sanmingstíminn er
óeðlQega langur, eða til 15. apríl
1985. Eg er mjög óánægður með að
áfangahækkanir og uppsagnar-
heimQd skuli bera upp á sama tíma,
þannig að ef samningum er sagt upp
faUa áfangahækkanir niður. Því
treysti ég mér ekki til annars en að
sitja hjá.” HÞ