Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1984, Blaðsíða 12
P.I 12 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoðarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverð á mánuði 250 kr. Verð í lausasölu 22 kr. Helgarblað25 kr. Samið um fríð Samningar hafa verið undirritaðir. Kjaradeilunni er vonandi lokið. Aðilar eru sáttir að kalla og þungu fargi er létt af þjóðinni. Full ástæða er til að fagna þeirri niðurstöðu sem fékkst. Samið er um launahækkanir í áföngum sem verða að teljast innan þeirra marka sem efnahagsstefna ríkis- stjórnarinnar þolir. Engin stökk eru tekin sem valda koll- hnísum í efnahagsmálum eða rekstri atvinnuveganna, en leitast er engu aö síður við að viðhalda þeim kaupmætti sem nú er. Sérstakar kjarabætur koma í hlut hinna lægst launuðu og yfirlýsing ríkisstjórnarinnar í tengslum við sam- komulagið miðar og að fjármagnstilfærslum sem koma hinum verst settu sérstaklega til góða. Fullyrt er að fyrir einstæða foreldra meö eitt til tvö börn á framfæri þýði kjarasamningurinn 30 til 40% kaup- hækkun. Þetta er veruleg búbót fyrir aöþrengd heimili og að því leyti hefur samningsaðilum tekist í þetta skipti að semja til verulegra hagsbóta fyrir láglaunafólk, án þess að það eigi að hafa áhrif upp allan launastigann. Sá þáttur samninganna markar algjör tímamót og er lofsamleg viðleitni vinnuveitenda jafnt sem verkalýðs- hreyfingar og ríkisstjórnar að framfylgja þeirri megin- kröfu að draga úr sárustu neyð og fátækt fólks. Aldrei var um það að ræða að ná fram stórauknum grunnkaups- hækkunum fyrir allan hinn breiða fjölda launþega. Samningaviðræður gátu aldrei snúist um það og gerðu það ekki heldur. Raunsætt mat verkalýðsforystunnar og ábyrgð í þeim efnum er þakkarverð afstaða. Aherslan var greinilega lögð á lægstu hópana og árangurinn er ótvíræður. Þessir kjarasamningar eru og miðaðir við að halda verðbólgunni í skefjum. Reiknað er út að afleiðingar þeirra í verðbólgu mælt verði 10% í mesta lagi. Við það getur ríkisstjórnin vel unað. Samningarnir eru ótvíræður sigur fyrir hana og gefur henni möguleika til að fylgja verðbólguviðnáminu eftir á öðrum sviðum. Nú þegar verkalýðshreyfingin hefur rétt fram höndina meö hófsemd í kaupgjaldskröfum verða stjórnvöld að bretta upp sínar eigin ermar og heyja verðbólguviðnám sitt á öðrum vígstöövum. Nú má ekki láta deigan síga og gefa eftir með aðhaldsaðgerðum á öðrum sviðum, í vaxta- og peningamálum, útgjöldum hins opinbera, gengismálum og almennu jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Vel má vera að stjórnarandstaðan og einstök verka- lýðsfélög haldi uppi gagnrýni á þessa samninga. Enn eru sjálfsagt einhverjir sem vilja grafa undan skynsamlegri efnahagsstefnu með skæruhernaði á vinnumarkaðnum. Vel má og vera að hægt sé með réttu að finna veika bletti á samkomulaginu. Sú meginstaðreynd blasir þó við, þegar á heildina er litið, að báðir aðilar hafa teygt sig eins langt og staðan leyfir. Þeir sem kunna að hlaupast undan merkjum eru að flýja undan ábyrgð. Þeir dæma sig úr leik. Undir þeim kringumstæðum sem nú ríkja í þjóð- félaginu, efnahagsþrengingum, aflasamdrætti og at- vinnuleysi, er mikill léttir fyrir alla að samkomulag hefur tekist án átaka og illinda. Samningsaöilar hafa tekist í hendur og samið frið. Nú getur öll þjóðin íekiö höndum saman og nýtt sér þann frið til bættra lífskjara og betri framtíðar. -ebs. .{■Bor fiAuaaa'7! ss; HuoAauxjyyjM va DV. MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR1984. ,,Þvímiður virðist iítii von til þess að reynt verði að fullnægja dagvistarþörf barna i Reykjavik á næstunni afhátfu borgaryfirva/da." Uppvaxtarskilyrði bama undir skólaaldri Hvatinn aö þessum skrifum eru hinar undarlegu umræöur um Islandssögunóm í skólum, er veriö hafa í brennidepli undanfariö, ásamt umræöunni um sérkennslu afburöa- greindra bama. I umræðum hefur forsenda þess- arar kennslu algjörlega gleymst og sætir furöu aö engin umfjöllun varöandi þroska- og uppvaxtar- skilyröi bama fram aö skólaskyldu- aldri viröist hafa átt sér stað nýlega. Eða nánar tiltekið, dagvist barna í Reykjavík. Því máli er þannig fariö aö for- eldrar, sem búa í hefðbundinni sam- búö, sækja ekki einu sinni um bama- heimibspláss fyrir böm sín. Ástæðan er sú aö barnaheimilisplássin em af svo skomum skammti aö þau anna ekki eftirspurn bama svokallaðra sérhópa — þ.e.a.s. einstæöra for- eldra, námsmanna og annarra er eiga viö félagsleg vandamál aö etja. Hvaö er til ráöa fyrir foreldra, sem búa saman og vinna bæði utan heimilis? Jú, flestir þekkja leik- skólana og dagmæöur. Leikskólar Ef við víkjum fyrst að leikskólun- um, sem flestir halda uppi fjögurra stunda gæslu fyrir börn, nokkrir fimm stunda gæslu og örfáir sex stunda gæslu. Þaö liggur í augum uppi aö fjögurra stunda leikskóli kemur ekki að neinu gagni fyrir úti- vinnandi foreldra, þó aö konan vinni „bara hálfan daginn”, því aö hún þarf væntanlega aö komast til og frá vinnustaö. Hins vegar má hér eflaust finna skýringuna á því hvers vegna fjöldinn allur af konum vinnur úti aöeins hálfan daginn. Fjöldi bama á leikskólum í Reyicjavík í október ’83 var 2120, og fjöldi bama á biölista í desemberlok ’82 var 1315. Talið er aö þessi tala hafi alls ekki minnkað. Hádegisböm á leikskólum í nóvember ’83 vom 314 og hefur þessi hópur fariö sívaxandi en biölistatölur em ekki fyrir hendi nú. Böm á dagheimilum í nóvember ’83 vom 1342 og biðlistafjöldinn í desember ’82 var 509 böm. En eins og getiö var aö ofan varpa þessar tölur alls ekki ljósi á hina raunvemlegu þörf, þar sem fólk sækir hreinlega ekki um dagheimilis- vist fyrir böm sín. Slíkt er algjörlega tilgangslaust. Lausnin hjá flestum foreldrum er því að leita á náðir dagmæðra, og fjöldinn aliur af börnum dvelur hálf- an daginn á leikskóla og hinn helm- inginn af deginum hjá dagmömmu. Oft em þetta þó aöeins skammtíma lausnir, enda störf dagmömmu oft vanmetin. Kjör kvenna sem bera á- byrgð á yngstu kynslóð borgarbúa Kaup fóstramenntaörar dagmóöur fyrir átta stunda gæslu bams á Kjallarinn LILJA AGUSTA GUÐMUNDSDÓTTIR HÚSMÓOIR REYKJAVÍK mánuöi er 3082 krónur og er henni heimilt að gæta í mesta lagi fjögurra bama þar með talin hennar eigin. Foreldrar greiöa auk þess fæöis- kostnaö bamsins. Fyrir þetta kaup á dagmamman aö útvega húsnæði og aöra aðstöðu, sem þörf er á, ábyrgjast og gæta barnanna, elda mat og þrífa húsnæðiö, auk þess sem henni ber að stuðla að alhæfum þroska og uppeldi barnanna. Er hægt aö krefjast þessa af konu sem ekki einu sinni getur tekið sér kaffihlé í vinnu sinni? Breytt þjóðfélag Flestum er ljóst hve gríðarlegum breytingum íslenskt þjóðfélag hefur tekið undanfarin tuttugu ár. Skýring- in er alls ekki eingöngu sú, eins og Gísli Sigurösson virðist álíta í Les- bókarrabbi sínu síðastliöinn laugar- dag, (Morgunblaðiö, 18.2 ’84), aö „húsmæöur bættu á sig vinnu utan heimilis til að endar næðu saman”, heldur einnig aö almenn menntun og starfsmenntun fólks hefur aukist aö því marki aö grandvallarþarfir heimilanna hafa breyst. Þörfin fyrir dagvist barna er eitt áþreifanleg- asta dæmið. Fyrir áöeins tuttugu árum var yfirleitt hægt aö leysa dag- vistarvandann innan fjölskyld- unnar. Þaö er útilokaö í dag. I þessu sambandi ber aö leggja á það áherslu að forsenda aUs jafnrétt- is milli kynjanna er viöunandi dag- vistaraðstaða bama. Enda er þaö harla ósennilegt að hálfur starfs- kraftur fái sömu stööu á vinnustað og sá sem er í fullri vinnu. Og hversu margar konur kannast ekki viö rök- semdafærsluna: „Eftir sex mán- uði”, „Þegar Nonni byrjar í skólan- um” eöa „Þegar bömin em orðin stærri, þá ætla ég aö byrja aö vinna útiallandaginn.” Dagvist Með dagvistun er hér alls ekki átt viö geymslu bama á dagvistar- stofnun, þannig að foreldrar geti unnið til aö eiga til hnífs og skeiðar, né þá öfugþróun aö draga saman í einn dilk börn úr svokölluöum sér- hópum. Meö dagvist er átt viö dvöl bama á staö þar sem þeim em veitt skilyrði til aö vaxa og þroskast í umsjá þar til menntaös fólks er kosiö hefur sér aö vinna meö börn- um. Þegar þessi aöstaða hefur verið sköpuö börnum þannig aö þau þurfi ekki lengur aö flengjast á miUi mis- jafnra geymslustaða fram að skóla- skyldualdri, getum við fyrst fariö aö ræöa um innihald og form Islands- sögunáms og sérkennslu afburöa- greindra bama. Því spyrja má aö hvaöa gagni kennsla komi því bami sem ekki hefur hlotiö tilfinningalegt og félagslegt öryggi fyrstu uppvaxt- arárin. Hvers vegna fjölmiðlunar- fyrirtæki en ekki barna- heimili? Því miður virðist lítil von til þess aö reynt verði aö fullnægja dagvist- arþörf bama í Reykjavík á næstunni af hálfu borgaryfirvalda. Spurst hefur að eingöngu verði haldiö áfram viö þær framkvæmdir, sem byrjað hefur verið á, en aö ööm leyti dregið úr allri frekari uppbyggingu til bættrar dagvist- araöstööu bama í höfuðborginni. Þess vegna hafa vaknað hjá al- menningi efasemdir um siöferðilegt réttmæti þeirra forgangsverkefna, sem fjárveitingar eru veittar til, svo sem til fjölmiðlunarfyrirtækis o. fl. — ekki síst meö hliðsjón af þeim krepputíma sem okkur er tjáö að viö séum aö ganga í gegnum. Aö lokum vU ég beina þeirri fyrir- spurn til borgaryfirvalda, hvort þeirra stefna sé sú að uppeldi og uppvaxtarskilyrði bama fram aö skólaskyldualdri, er búa hjá báðum foreldrum, séu algert einkamál for- eldranna? $ „í þessu sambandi ber að leggja á það á- herslu að forsenda alls jafnréttis milli kynja er viðunandi dagvistaraðstaða barna.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.