Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1984, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1984, Blaðsíða 18
18 DV. MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR1984. /M, Wjk Flugvélin skömmu eftir óhappið. Arnarflugsvélin sem brotlenti á Stykkishólmsf lugvelli: KOM SKÖKKINN TIL LENDINGAR — hreinsun flugbrautarinnar varáfátt Orsök brotlendingar Arnarflugsvél- ar í Stykkishólmi 29. desember síöastliöinn var ekki einvöröungu sú að hreinsun brautarinnar væri áfátt. Flugmaðurinn á ekki minni sök á óhappinu því hann flaug vélinni skakkt inn til lendingar. Þessar upplýsingar má lesa í skýrslu loftferöaeftirlits Flugmálastjórnar um óhappið. Skúli Jón Siguröarson, rannsóknarmaður flugslysa, gerði skýrsluna. Flugvélin var í áætlunarflugi frá Reykjavík til Rifs og Stykkishólms. Flugvélin kom frá Rifi til lendingar í Stykkishólmi. Um borö voru fimm farþegar og einn flugmaöur. Engin slys uröu á mönnum en flugvélin skemmdist töluvert. Hjólaleggur brotnaði undan meö þeim afleiöingum aö vinstri vængendi og loftskrúfa rákust niöur og skemmdust. Ennfremur kom gat á eldsneytisgeymi svoúrflæddi. „I Stykkishólmi gekk á meö dimmum éljum en á milli var sæmi- lega bjart. Slíku éli var aö linna er TF—VIjO nálgaöist Stykkishólm,” segirískýrslunni. Flogið í krappri beygju til lendingar „Á aö giska 4—5 mínútum síðar hafði flugmaðurinn aftur samband viö flug- vallarvöröinn. Var TF-VLO þá í 1.200 feta hæð austan viö flugvöllinn og flug- maöurinn sá ekki brautarljósin eöa flugvöllinn. Aðeins síðar kvaöst hann sjá brautarljósin og samkvæmt fram- buröi vitna, þá var flugvélinni flogiö í fremur krappri beygju til lendingar. Sjónarvottar sáu ekki sjálfa lending- una fyrir snjóf júkinu, en heyrðu dynki og skruöninga. Flugvélin lenti klukkan 17.13 og nam staðar á brautinni eftir lendingarbruniö.” I skýrslunni segir aö daginn áöur hafi flugbrautin veriö hreinsuð þannig aö bifreiö með ýtutönn ruddi 21—22 metra breiöa rennu eftir henni. Ruðningurinn hafi veriö 60—80 sentí- metra hár. Hann hafi náö út fyrir brautarljósin, þannig að þau voru flest undir snjó eða í snjónum og sáust ilia eöa ekki úr höfuöhæö flugmanns, eftir að á brautina var komiö, þótt bau sæjust úr lofti og í aðfluginu sjálfu. I handbók flugvallarvaröa eru stööluö orðtök sem þeim ber aö nota um ástand flugvallar. „Brautin er auð” ber þeim aö segja þegar engar hindranir eru á flugbraut. Óheppilegt og villandi orðalag „Flugmaður TF-VLO kvartaöi und- an því aö flugvallarvörðurinn í Stykkishólmi heföi sagt sér aö „braut- in væri auö”. Ekki er unnt aö álíta þetta orsakavald þar sem þetta orða- lag er algengt og flugmenn því vanir. Engu aö síöur verður að álíta þetta óheppilégt og villandi fyrir óvana,” segir í skýrslunni. I samantekt segir aö rannsókn á hjólaegg hafi leitt í ljós aö hljólið hafi rekist harkalega í fyrirstööu meöan hún var enn fljúgandi. Komi þetta heim og saman viö far í snjóruðningi. „Alíta veröur aö heföi flugvélin rekist svo harkalega utan í ruöninginn í lendingarbruninu að hjólaleggurinn heföi brotnaö, þá hlyti flugvélin aö hafa snúist út í hann og jafnvel farið út af flugbrautinni. Þá væri líka óskýrt hvers vegna leggurinn er útdreginn þegar hann brotnar. Augljóst að flugvélin kom skökk inn Virðist því augljóst aö flugvélin kemur nokkuö skakkt inn til lending- ar, kemur inn yfir flugbrautina ská- hallt vinstra megin, enda vindur frá hægri og flugvélin nýbúin að fara hring til hægri. Hún snerti síðan inni á brautinni þannig að vinstra aöal- hjólið tók niðri í snjóruðningi og vinstri vængur rakst í háan snjó- hrauk, sem svipti stykki af endanum. Viö þetta snerist flugvélin nokkuö til vinstri og rann um 350 metra eftir brautinni, þar til hún nam staöar.” „1 niöurstööiun segir svo um or- sakaþætti: „Djúpt far í frosinn snjóruöning inni á flugbrautinni viröist vera fyrsta snerting flugvélarinnar, sem þá kom skökk inn til lendingar. Hreinsun brautarinnar var áfátt, en hún var ekki hreinsuð í fulla breidd sem brautarljósið afmörkuöu, en þau sáust vel úr lofti og í aðflugi en illa í lendingarbruninu. Hjólaleggur brotnaði meöan flug- vélrn var enn á lofti, eða áöur en þungi hennar lagðist á hjólin. Hjóla- leggurinn hefur rekist harkalega í fyrirstöðu.” -KMU. TF-VL0 Vinstra aðalhjól Far í snjóruóningi Á Líkleg / stefna fiugvélar / Þessi afstöðumynd er gerð efti korti sem er i skýrslu loftferða eftirlitsins um óhappið. Sjá máhva flugvélin kom skökk inn á brautina hvar hún rakst i snjóruðning, hva, vinstra aðalhjól fannst og hvar húi loks stöðvaðist. HVENÆR MEGA BORN SJÁ KVIKMYNDIR? Talsverö umræöa hefur verið um Kvikmyndaeftirlit ríkisins aö undanförnu, m.a. vegna þess að börnum innan tólf ára aldurs hefur veriö bannaður aögangur aö kvik- mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur. Vegna þessa hefur Kvikmyndaeftirlitið sent frá sér frétt þar sem m.a. er birtur út- dráttur úr þeim lögum sem eftirlitið vinnur eftir. Þar segir m.a.: „Engá kvikmynd má sýna börnum innan 16 ára aldurs, nema að undangenginni athugun, sem framkvæmd sé af þar til hæfum mönnum. Ráöherra tilnefnir aö fengnum tillögum bamaverndar- ráös, sérstaklega þar til hæfa menn til fimm ára í senn til aö annast skoöun kvikmynda. Skoðunarmenn skulu meta hvort mynd geti haft skaösamleg áhrif á siðferði og sálarh'f bama eöa á ann- an hátt. Skulu þeir hverju sinni ákveða, hvort mynd sé óhæf til sýningar börnum innan 16 ára eða á tilteknum aldursskeiöum innan þess aldurs. Ekki aflar þaö bami innan ákveð- ins aldurs heimildar til aögangs aö kvikmyndahúsi, þar sem sýnd er mynd, sem bönnuö er börnum á þess aldri, aö þaö sé í fylgd meö fullorðnum eöa þeim, sem heimild hafa til aö sjá viðkomandi kvik- mynd. Nú hefur kvikmynd, önnur opin- ber sýning eða skemmtun veriö bönnuö bömum innan tiltekins aldurs og bera þá dyraveröir og eftirlitsmenn samkomustaöar ásamt hlutaöeigandi forstöðumanni ábyrgö á framkvæmd bannsins. Þegar slík sýning hefur veriö bönnuð bömum, eru dyraverðir og eftirlitsmenn viðkomandi skemmtistaöar skyldir að láta þau böm, sem eftir útliti og vexti gætu veriö yngri en tilskiliö er, sanna aldur sinn meö framvísun nafnskír- teinis, þá er þau æskja aögangs að sýningunni. Bamaverndarnefndir á viðkom- andi stöðum skulu hafa eftirlit meö aö aöeins séu þar sýndar bömum kvikmyndir, sem Kvikmyndaeftir- litiöhefur leyft.” Aö gefnu tilefni vill Kvikmynda- eftirlitiö benda á aö skv. breytingu á ofangreindum lögum sem gerö var á Alþingi sl. vor skal miða aldur bama viö fæöingarár, en ekki fæöingardag, þegar um er aö ræöa aögang aö opinberum skemmtunum þ.m.t. kvikmyndasýningum. Þá vill Kvikmyndaeftirlitiö einnig taka þaö fram aö þaö hefur ekki I meö aö gera skoöun kvikmynda I fyrir sjónvarpiö. -HRÞ/SPS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.