Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1984, Síða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. APRIL1984.
3
NYTT GAT UPP A
RÚMAN MILUARÐ
—f járskorturinn þegar f arínn að koma niður á húsbyggjendum
Fjármögnunar-
leiðirtil
Húsnæðisstofnun
arreynast
götóttar:
Nú rétt í þann mund sem verið er
að loka fjárlagagatinu margfræga
upp á liðlega 1,8 milljarða, er nýtt gat
upp á liðlega milljarð að koma i ljós.
Við blasir að byggingasjóði ríkisins
(Húsnæðisstofnun) og Byggingasjóð
verkamanna muni vanta einn til 1,3
milljarða til að geta staðiö við skuld-
bindingar sínar í ár og er þessi fjár-
skortur þegar farinn að koma niður á
húsbyggjendum.
Skv. ábyggilegum heimildum DV
telur Húsnæðisstofnun sig vanta 269
milljónir þótt svo að allar fyrirhug-
aðar fjármögnunarleiðir stæðust.
Tala Verkamannabústaða af sama
toga er 149 milljónir. I fjáröflunar-
áætlunum félagsmálaráðherra er
m.a. gert ráö fyrir að Atvinnuleysis-
tryggingasjóöur kaupi skuldabréf af
Húsnæðisstofnun fyrir 115 milljónir.
En nú hefur sjóðurinn tilkynnt
stofnuninni aö hann hafi ekki
bolmagn til aö kaupa neitt. Þaö gerði
hann reyndar ekki í fyrra heldur.
Ut úr skylduspamaöi átti
Húsnæðisstofnun aö fá 45 milljónir
skv. áætlun ráðherra, en sú tala
verður stofnuninni líklega neikvæð
um 45 milljónir þannig að fjárvöntun
af þeim sökum verður 90 milljónir.
Þá gerði ráöherra ráð fyrir 200
milljónum til stofnunarinnar með
sölu á sérstökum skuldabréfum, sem
gefin voru út sl. haust, en sala þeirra
hef ur gengið'mjög treglega.
Gert er ráð fyrir að lífeyris-
sjóöirnir leggi stofnuninni og verka-
mannabústöðum til samtals 690
milljónir, sem er 96 prósent hækkun
frá í fyrra, á meðan ráöstöfunarfé
sjóöanna hefur aðeins vaxið um 36
prósent og ávöxtunarkjör þeirra
hafa einnig breyst. Er áætlað að 200
milljónir muni vanta upp á þeirra
framlag.
Húsnæðisstofnun á lögum
samkvæmt að fá árlega framlag úr
ríkissjóði skv. fjárlögum upp á 40
prósent af samþykktri útlánaáætlun
og ætti skv. því að fá 467 milljónir.
En upphæðin er skorin niður í 200
milljónir svo að þar vantar 267
milljónir.
Loks eiga Verkamannabústaöir
svo aö fá eitt prósentustig af launa-
skatti, sem gerir 270 milljónir, en
f járlög skera þar einnig 70 milljónir
8lJf.
Niðurstaðan er því fjárskortur til
húsbyggjenda upp á röskan 1,1
milljarð. Þá er ekki tekið tillit til
hversu mikiö eða litiö hefur selst af
áöurnefndum sérstökum skulda-
bréfum upp á 200 milljónir. Ekki
heldur til þeirra vilyröa sem
Byggingasamvinnufélagið Búseti
telur ráðherra hafa gefiö sér um
verulega fyrirgreiðslu til sinna
framkvæmda. Umræðan um fjár-
lagagatið verður því vart hljóðnuð
þegar umræðan um húsnæðisgatið
tekur við í sölum Alþingis.
-GS.
Tölvuborð
stöðluö eöa sérsmíöuö
aö óskum kaupanda
^' ' ,
... —Jrn&s-
•*'. f
Eins og kom fram iblaðinu igær hefur orðið mikið tjón iAkraneshöfn
vegna oliumengunar. í rúmar tvær vikur hefur verið unnið að hreins-
un hafnarinnar, á bátum og bryggjum. Engin skýring hefur enn fund-
ist á hvaðan olían kemur og vinnur rannsóknarlögreglan á Akranesi
að málinu. Á þessari mynder unnið að hreinsun bryggjunnar.
-KÞ/D V-m ynd Dúi Landmark
Númerakerfi heimilislækna lagt niður að hálfu:
Vinnuhvetjandi
kerfí í staöinn
„Það má segja að númerakerfið sé
lagt niður aö hálfu leyti og að kerfiö nú
sé millistig á milli þess og heilsugæslu-
stöðvakerfisins,” sagði Leifur Dungal'
læknir í samtali við DV en hann er
stjórnarmaður i Félagi íslenskra
heimilislækna. „Læknar munu halda
áfram að fá borgað fyrir hvert númer
en það er minna en áður, auk þess að
sett hefur verið þak á númerin og fá
læknar nú þannig ekkert borgað
fram yfir 1750 manns. I stað þessa
kemur launahvetjandi kerfi þannig að
heimilislæknir fær borgað fyrir hvert
læknisverk eins og tiðkast á heilsu-
gæslustöðvum,” sagði Leifur.
Hann taldi að nýja fyrirkomulagið
ætti að koma fólki til góöa, læknar yröu
nú að leggja fram meiri vinnu til að
halda sömu launum.
„Þetta kerfi er ekki varanlegt heldur
er stefnt að því að allir heimilislæknar
verði á sama kerfi og
heilsugæslustöðvalæknar,” sagði
hann. „I raun þýðir þetta breytta fyrir-
komulag að þeir númeralæknar, sem
unnið hafa mikið og hægt hefur verið
að ná ávallt í, halda sínu en þeir sem
lítið hafa verið við og erfitt hefur verið
að ná í en hafa samt fengið borgað sína
ákveðnu upphæð eftir númerakerfinu
veröa nú aö halda á spööunum til aö
halda sömu launum eftir sem áöur.
„Megingalli á heimilislæknakerfinu í
Reykjavík hingað til hefur verið að það
er vinnuletjandi, menn hafa fengið
borgað eftir því hvort sem þeir hafa
unnið eða ekki. Sérfræðingakerfiö
aftur á móti hefur verið vinnuhvetj-
andi;, méúp' hafúiféójgið borgað fyrir
hvert verk. Því hefur heimilislæknir í
mörgum tilfellum sent sjúklinga sína
til sérfræðings. Nú reiknum við hins-
vegar með að meiri samkeppni verði
þama á milli,” sagði Leifur.
-FRI.
Spítalar
semja við
Bæjarleiðir
Nýlega var undirritaður samningur
um leigubilaakstur miili Rikisspítala
og leigubilastöðvarinnar Bæjarleiöa til
eins árs samkvæmt útboði Innkaupa-
stofnunar ríkisins.
Samningurinn kveður á um að Ríkis-
spítalar skipta nú eingöngu við Bæjar-
leiðir um fólksflutninga meö leigu-
bílum. Hér er einkum um að ræða
samningsbundinn akstur á starfsfólki
vegna útkalla og vinnu utan áætlunar-
tíma strætisvagna, einnig flutning á
sjúklingum milli stofnana. Bilastöðin
Bæjarleiðir gefur magnafslátt af
viöskiptunum. Einnig munu þessir
aðiiar í sameiningu skipuleggja
flutningana og nýta betur akstur leigu-
bíla en verið hefur, að því er segir í
fréttfrá Ríkisspítölunum.
Reikna Ríkisspitalar með að
spamaöur af samningi þessum verði
um 1 til 1,5 milljónir króna á þessu ári.
STÁLHÚSGAGNAGERD
STEINARS HF.
SKEIFUNNI 6,SÍMAR: 33590,35110, 39555