Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1984, Side 10
10
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. ÁPRIL1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Atkvæðagreiðs/a iÆðsta ráðinu (þinginu), en
fremstur i vinstra horninu er hinn nýkjörni for-
seti, Konstantin Tsjernenko. Að baki honum
eru miðstjórnarmennirnir (frá vinstri ta/ið)
Mikhaii Solomentsev, Vitalji Vorotnikov,
Viktor Grisjin og loks Mikhail Gorbatsjoff,
sem tekið hefur stöðu Suslovs heitins.
VAR ARFTAKINN VAUNN
UMLEIÐOG TSIERNENKO
FÉKK FORSETAEMBÆTTH)?
um Æösta ráösins. Þvi embætti
gegndi Tsjernenko sjálfur þegar
Brezhnev hampaöi honum sem mest
og þótti þar með viöurkenndur sem
hugmyndafræðingur flokksins því aö
á undan honum haföi gegnt því
embæti mjög lengi sjálfur Suslov.
Suslov var viöurkenndur hugmynda-
fræöingur flokksins um langa hríð og
óopinberlega álitinn næstvaldamesti
maður í Kremlbákninu.
Tekið tillit til
ungu mannanna
Ut úr kjöri Gorbastjoffs í þetta
embætti má lesa hvernig Tsjern-
enko hefur friömælst viö ungu menn-
ina til þess aö tryggja sjálfan sig í
sessi. Hann hefur friöaö þá meö því
aö taka foringja þeirra inn í innsta
valdahringinn eins og til skólunar
hjá eldri mönnunum til þess að taka
við leiötogastarfinu þegar tími þykir
til kominn. Það hefur aldrei gerst
fyrr hjá Kremlverjum aö þeir hafi
svo augljóslega sýnt strax viö eigin
valdatöku hvem þeir telja heppileg-
an arftaka sinn. Sagan hefur raunar
kennt einvöldum að þaö er ekki góö
stjómkænska, ef völdin eru þá ekki
arfborin að segja, aö setja í slíka
aöstööu mann, sem siöar gæti misst
þolinmæðina í biöinni eftir aöalsæt-
inu.
Tsjernenko ekki
eins orðhittinn
En af ræðunum, sem fluttar voru á
miðstjómarfundinum í síöustu viku
og síðan þingi Æösta ráösins, var
ekki unnt aö marka aö menn teldu
Tsjemenko sestan í valdasætiö til
skamms tíma. Enda er persónu-
dýrkunin, sem speglast hefur á
Tsjemenko síöustu tvo mánuðina,
mjög í anda Brezhnevstímans, þótt
hún hafi ekki náö eins langt. Þó veit
hver Sovétborgari í dag aö Konstan-
tín Ustinovitsj var hraustur her-
maður í landamærasveitunum á
fjóröa áratugnum og markhæfin.n
handsprengjukastari.
Hann hittir kannski ekki jafnvel í
mark i ræöum sínum í dag, sem
þykja ekki sérstaklega skörulegar
hvorki í oröum né í flutningi, en
boðskapurinn, sem hann flytur í
„viötölum” í Pravda, aöalmálgagni
flokksins, og endurvarpað er af
APN-fréttaþjónustunni annars stað-
ar, kemst vel til skila. Enda berg-
mála aðrir Kremlverjar sama er-
indið hvarsemþeirfara.
Horft í gegnum
gömlu gleraugun
Eldri mennirnir, sem hafa greini-
lega enn föst tök á öllum valda-
taumunum, hafa allir veriö meö viö
að reisa sovéska stórveldið frá
grunni. Þaö ævistarf ætla þeir ekki
að láta neinn ungæðing rífa niöur og
enn síður Ronald Reagan eða ein-
hvern annan Bandaríkjaforseta. Því
er þaö þvert „njet” viö öllum tilmæl-
um um að taka aftur upp viðræður
um takmarkanir á vígbúnaöarkapp-
hlaupinu, sem slitnuöu í Genf þegar
Sovétmenn gengu frá samningaborö-
inu, þótt þeir í dag kenni Bandaríkja-
mönnum þar um.
Sú túlkun er kannski að vonum hjá
mönnum sem horfa á atburöina í
gegnum sömu gleraugun og
Alexander Koldunov marskálkur
þegar hann á degi flughersins vék aö
því aö suöur-kóresk farþegaþota
meö 269 manns innanborðs var skot-
in niöur fyrir aö villast inn í lofthelgi
Sovétríkjanna. Þaö kallaöi hann að
„1. september 1983 heföu verið
stöðvaðar ögranir sem leyniþjónusta
Bandaríkjanna haföi í frammi og
notaðist viö suöur-kóreska flug-
vél”. — Þar var sett jafnaöarmerki á
milli 270 manna farþegaþotu og U-2
njósnaflugvélarinnar sem Sovét-
menn skutu niður 1960.
Brezhnev lognmollan
I ræðu sem Tsjernenko flutti á miö-
stjómarfundinum, þar sem Gorba-
stjoff stakk upp á honum sem for-
seta, hét hann því að fylgja áfram
þeirri umbótastefnu sem mörkuö
hafði veriö. Skildist mönnum aö
áfram skyldi haldiö hreinsunum á
spilltum embættismönnum. Síöari
fréttir bera þó hinu meira merki að
hjól sögunnar hefur snúist aftur til
loönari tíma Brezhnevsstjórnar-
innar. Nýrrar stefnu er naumast aö
vænta í innanríkismálum. Þar
veröur sjálfsagt haldið áfram þeim
tilraunum í efnahagslífinu sem hóf-
ust á fyrstu stjórnarmánuðum
Andropovs og naumast verður öðru-
vísi tekið á andóf smönnum.
I utanríkismálum má búast viö
jafnóskýrri stefnu og í tíö Brezhnevs.
Margur valdamaöurinn á Vestur-
löndum gæti öfundaö Konstantin
Ustinovitsj Tsjernenko af einu.
Hann þurfti ekki aö flengjast um
fimmtán lýöveldi Sovétríkjanna
þver og endilöng til aö safna fylgi né
heldur hrista hendur þúsunda eöa
kyssa smábörn. Og ekki þurfti hann
að troða upp í sjónvarpi til orða-
skylminga viö keppinauta. Samt er
hann oröinn forseti Sovétríkjanna.
Virðingarstaða meir
en valdaembætti
Að vísu er forsetaembættið í Sovét-
ríkjunum, eöa réttara sagt for-
mannsembættiö í forsætisnefnd
Æðsta ráösins, ekki eins valdamikiö
og til dæmis forsetaembættið í
Bandaríkjunum. Þegar 1500 nýkjöm-
ir fulltrúar þingsins réttu allir sem
einn upp hönd í síöustu viku til þess
aö velja Tsjemenko var þaö í raun-
inni ekkert annaö en opinber staö-
festing á völdum hans sem hann
haföi þegar á hendi þegar hann fyrir
tveim mánuöum var valinn eftir-
maöur Andropovs sem aöalritari eöa
framkvæmdastjóri sovéska komm-
únistaflokksins.
Leiötogar Sovétrík janna hafa fæst-
ir gegnt forsetaembættinu. Forset-
inn hefur jafnan horfiö í skuggann af
aðalritaranum, sem hefur hin
raunvemlegu völd á hendi. En í tíö
Brezhnevs varö sú nýbreytni að aöal-
ritarinn var einnig gerður aö forseta.
Þaö þótti hentugt í „prótókol” dipló-
matsins, svo að aðalritaranum yröu
tryggöar móttökur erlendis sem
sæmdi þjóöhöfðingja, og gæti fyrir
þá sök setið viö sama borð og aðrir
þjóöarleiötogar, jafnfætis til dæmis
leiötoga Bandarikjanna, sem er for-
setinn. — Eftir aö Andropov haföi
tekið viö af Brezhnev látnum var
sami hátturinn haföur á en ekki eins
fljótt og núna í tilfelli Tsjernenkos.
Löng og ströng
barátta
En þótt lítið hafi borið á opinberu
kosningabrölti í baráttu Tsjemenkos
fyrir tveim æöstu embættum Sovét-
ríkjanna, valdaembættinu og
viröingarembættinu, þýöir þaö ekki
endilega aö þaö hafi gengið allt
átakalaust fyrir sig. Forsetakjörið
staöfestir aö Tsjemenko hefur
treyst sig í sessi og var ekki valinn í
aöalritarastarfiö til málamiðlunar
einvöröungu eöa bráöabirgöa. Til
þess hefur hann þurft að heyja
stranga baráttu og iengri en til
dæmis framboðsefni Demókrata-
flokksins í forkosningunum sem
mjög hefur boriö á í fréttunum aö
undanförnu. Sigurinn hlaut hann
eftir aö hafa þraukaö lengi og getur
aö miklu leyti þakkaö hann því aö
vamarmálaráöherra, Andrei
Gromyko (74ára) utanríkisráöherra
og Nikolaj Tíkhonof (78 ár) for-
sætisráöherra.
Gorbastjoff rís upp
Af öllum sólarmerkjum aö dæma
hefur nú bæst inn í þennan innsta
valdakjama einn af yngri mönnun-
um, eins og þeir em kallaðir. Þaö er
Hinn „hrausti hermaður" Tsjernenko, sem hór er merktur með ör á
þessari gömlu mynd frá þvi að hann var i landamærasveitunum iAsiu á
fjórða áratugnum, hefur færst á löngum tíma úr öftustu röð og í þá
fremstu.
Juri Andropov naut ekki valdanna
nema skamma hríö áður en hann
varö tekinn af alvarlegum sjúkdómi
sem um leiö lamaði hann póiitískt.
Deilir völdum með öðrum
Á ýmsan máta þykir Tsjemenko
heppilegur sameiginlegur leiötogi
valdaklíkunnar og til þess að vera
andlit hennar út á við og til þess
hefur hún ætlast þegar hann var val-
inn. I öllu lofinu, sem yfir hann hefur
veriö ausið síðustu tvo mánuöi, dylst
þó ekki aö Tsjernenko veröur aö
deila völdunum með þrem öðrum úr
eldri manna hópi valdaklíkunnar.
Þeir em Dmitri Ustinov (76 ára)
hinn 53 ára gamli Mikhail
Gorbastjoff sem sté í pontu á
miðstjórnarfundinum áöur en Æðsta
ráðið kom saman (Sovétþingiö) og
stakk upp á Tsjernenko sem forseta.
— Gorbastjoff er landbúnaðarsér-
f ræöingur og þykir af ar hæfur maður
en hann hefur verið fremstur í hópi
yngri mannanna í Kreml. A meöan
Andropov lá banaleguna haföi mikiö
veriö velt vöngum yfir því á Vestur-
löndum hvort Gorbastjoff kæmi til
greina sem eftirmaður hans. — A
sama þingi æösta ráösins, sem kaus
Tsjernenko forseta, var Gorbastjoff
valinn formaöur annarrar af
viröingarmeiri utanrikismálanefnd-