Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1984, Page 17
DV. MIDVIKl/DAGUR 25. APRiL 1981' VO
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Um gerð og gjörvileika
Gunnars á Hlíðarenda
Gunnar skrifar:
Eg hef verið að velta því fyrir mér
hvemig maður nafni minn á Hliðar-
enda til foma hafi eiginlega verið.
Hversu sönn skyldi blessuð sagan um
Brennu-Njál og félaga vera? Eg hef
komist að því eftir nær þrotlausar
hugsanir (engar rannsóknir) að hann
hafi verið tæplega meðalmaður á hæð,
boginn í baki, eins og títt var um bænd-
ur til forna, og alls ekki getað stokkið
meira en 68 cm með hjálp springdýnu.
Þetta byggi ég á þeirri staðreynd að
þótt almannarómur ljúgi sjaldan þá á
hann það til að margfalda.
KRAKKAR ÞAKKA
FYRIR SIG
Krakkamir í Álfakoti á Iðuborg
skrifa:
Þú sem gafst okkur sleikjó þegar
við vorum alveg að krókna úr kulda
á biðstöðinni á Lækjartorgi á þriðju-
dagsmorguninn var. Þakka þér kær-
lega fyrir.
Móttökustjórinn í Miklagarði.
Takk fyrir að fá að skoöa litlu ung-
ana og stóra páskaeggið. En hvað
ætlarðu aö gera við eggið?
Hjá Nóa, Hreini og Sírius fengust
þær upplýsingar að þetta egg væri
eingöngu gert í auglýsingaskyni og
yrði að öllum líkindum brætt eftir
páska.
Guðmundur Gíslason skrifar:
Eg vil fyrir mína hönd og nokkurra
vinnufélaga minna mótmæla því sem
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Ut-
sýnar, reit í ferðablað Utsýnar er
fylgdi með Morgunblaöinu nú ekki
alls fyrir löngu.
Þar segir hann aö á Islandi sé ekki
mikil sól og þaö sé ekki gott að eyöa
sumarfríinuhér.
Þetta er að minum dómi og minna
félaga alrangt. Hvað er eins gott og
að eyða sumarleyfi sínu í hinni fall-
,egu og friðsælu náttúru Islands?
Landsmenn eru vanir að flykkjast á Þingvelli i góða veðrinu.
Sumarfrí á Islandi
L5VIK41¥
A NÆSTA BLAÐSOLUSTAÐ
AFMÆLISGETRAUN III
Á FULLU.
VINNINGUR:
með þriggja
Fjölskylduferð til Hollands
vikna dvöl í sæluhúsi
Getraunaseðill er í blaðinu