Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1984, Blaðsíða 32
32
DV. MIÐVKUDAGUR 25. APRIL1984.
Andlát
Dr. Einar Olafur Sveinsson prófessor
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 26. apríl kl.
15.00.
Ásrún Sigurjónsdóttir hjúkrunarkona,
Víðimel 19, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju'
fimmtudaginn 26. þ.m. kl. 10.30.
Elínborg Geirsdóttir, Smáratúni 1,
Svalbaröseyri, sem lést 17. þ.m.
verður jarðsungin frá Svalbarös-
strandarkirkju 25. apríl kl. 14.00.
Guðmundur Þorkelsson húsgagna-
smíðameistari, Nýlendugötu 13,
Reykjavík, sem andaðist 14. apríl sl.,
veröur jarðsunginn frá Fossvogs-,
kirkju fimmtudaginn 26. apríl kl. 13.30.
Sigríður Lilja Jónsdóttir, Skipholti 26,
sem lést 18. apríl, veröur jarðsungin
frá kirkju Oháöa safnaðarins við Há-
teigsveg föstudaginn 27. apríl kl. 13.30.
SIOAN
'32
QGENN
AFULUJ
I/INNUFÖT
VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS,
REYKJAVÍK.SÍMI: 16666
Sæmundur Pálsson múrari, Byggöar-
enda 16, veröur jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudag-
inn26. aprilkl. 13.30.
Guðrún Björnsdóttir verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag
miövikudaginn 25. þ.m. kl. 13.30.
Eiríkur Ágústsson kaupmaður,
Bólstaöarhlíö 12, verður jarösunginn
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 25.,
apríl kl. 15.00.
Guðbjörg (Stella) Stefánsdóttir, fyrr-
verandi matráðskona Sjúkrahússins á
Patreksfirði, verður jarösungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 26.
apríl kl. 15.00. Jarðsett verður í Gufu-
neskirkjugarði.
Þór Hólmkelsson, Klapparstíg 5,
Keflavík, varð bráökvaddur að morgni
mánudagsins 23. apríl.
Guðný Sigriður Kjartansdóttir, Víði-
hvammi 24, Kópavogi, lést að morgni
skírdags. Jarðsett veröur frá Foss-
vogskapellu föstudaginn 27. apríl kl.
16.30.
Ragnar Kristjánsson vörubifreiðar-
stjóri andaöist 21. apríl.
Laufey Bryndís Jóhannesdóttir,
Garðastræti 43, andaöist þann 20.
apríl.
Gene Du Pont, andaðist á heimili sínu
Oakland, Kaliforniu 18. þ.m.
Berge Bildsoe-Hansen, Sporðagrunni
6, lést í Landspítalanum á páskadag.
Sálumessa fer fram frá Kristskirkju,
Landakoti, föstudaginn 27. apríl kl.
13.30.
Halldór Gunnlaugsson, fv. hreppstjóri
og bóndi á Kiðjabergi, lést i Land-
spítalanum í gærmorgun, 24. apríl.
Dr. Halldór Pálsson, fv. búnaðarmála-
stjóri, lést 12. apríl sl. Hann var fæddur
26. apríl 1911. Halldór stundaði nám í
búvisindum við Háskólann í Edinborg
og lauk þaðan kandidatsprófi 1936.
Hann stundaði framhaldsnám í Eng-
landi og lauk doktorsprófi 1938. Hann
var ráöinn sauðfjárræktarráðunautur
Búnaðarfélags Islands árið 1937 og
gegndi hann því starfi þar til hann var
ráðinn búnaðarmálastjóri 1963. Eftir-
lifandi eiginkona hahs er Sigríður
Klemensdóttir. Utför Halldórs var
gerð frá Dómkirkjunni í morgun kl.
10.30.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Skriðustekk 19, tal. eign Andrésar Sighvatssonar,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri
föstudaginn 27. april 1984 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Arnarbakka 2, þingl. eign Guðmundar H.
Sigmundssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík,
Axels Kristjánssonar hrl., Óiafs Gústafssonar hdl. og Gísla Baldurs
Garðarssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 27. apríl 1984 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
VAIMTAR BLAÐBERA
í KEFLAVÍK.
Upplýsingar gefur Ágústa Randrup í
s. 92- 3466.
Um helgina
Um helgina
Snákurinn snákaðist
og brást algjörlega
Snákurinn, nýi ítalski sakamála-
þátturinn sem hóf göngu sína í
sjónvarpinu í gærkvöldi, var lélegur.
Hann missti marks á allan hátt. Lé-
legur leikur, léleg kvikmyndun og
ófrumleg saga einkenna þáttinn.
Við gláparar sem hrifumst jafnan
af breskum og bandariskum
sjónvarpsþáttum og hömpum þeim
jafnan í umræðum, segjum nú
aöeins; Meira af sjónvarpsefni frá
þessum löndum, takk.
Þessi krafa er réttlætanleg. I
gegnum árin hefur sjónvarpsefni frá
þessum löndum veriö með því skásta
í íslenska sjónvarpinu. Þó hafa
komið góðir þættir frá Þýskalandi og
Frakklandi. Derrick var þar
fremstur í flokki.
En hvers vegna stóðst Snákurinn
ekki prófið? Einfaldlega vegna þess
að þátturinn er ekki vandaður. Til
þess að maöur hafi gaman af saka-
málaþætti þarf hann að vera
spennandi. Það er Snákurinn ekki.
Hann ,,snákaðist” samt áfram í
tæpa klukkustund. Varia biöa
margir eftir næsta þætti. Og þó, ég
hef frétt um einn sjónvarpsglápara
sem var hrifinn af þættinum. Hann
mun vera hrifinn af öllu ítölsku
sjónvarpsefni.
Með von um að Snákurinn efli
kröfur okkar um skemmtilega saka-
málaþætti í sjónvarpinu. Þætti sem
gera þriöjudagskvöldin aftur að
þriðjudagskvöldum fyrir framan
kassann.
Jón G. Hauksson.
Tilkynningar
Digranesprestakall
Kirkjufélagsfundurinn verður i Safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg fimmtudaginn 26.
apríl kl. 20.30. Þátttakendur í námskeiði um
safnaðarstarf greina frá ýmsu er þar bar á
góma. Kaffiveitingar.
Hallgrímskirkja
Starf aldraðra. Farið verður í Norræna húsið
á morgun, fimmtudaginn 26. apríl. Bifreið fer
frá kirkjunni kl. 14.30. Sýnd verður kvikmynd
frá Færeyjum og húsið skoðað. Kaffiterían
verður opin. Þátttaka tiUcynnist í síma 39965 í
dag, miðvikudag . Safnaðarsystir.
HÁLMSTRÁIÐ
Út er komið Hálmstráið 1.—
2. tbl. 1984
timarit AA samtakanna á Islandi. I blaðinu er
30 ára afmælis AA-samtakanna á Islandi. I
blaðinu er 30 ára afmælis AA-samtakanna á
Islandi minnst.
Fréttabréf Eðlisfræðifélags
íslands
nr. 5 er nýútkomið. 1 ritinu eru fjölmargar
greinar. M.a. skrifar dr. Guðni Sigurðsson um
f jölþjóðarannsóknarstof una CERN í Sviss þar
sem margar merkar uppgötvanir síðustu ára
í háorkueðlisfræði hafa verið gerðar. Garðar
Mýrdal og Gísli Georgsson, geislaeðlis-
fræðingar á Landspitalanum, fjaUa um notk-
un línuhraðla tU lækninga en hagnýting eðhs-
fræðinnar í lækningaskyni á þessu sviði fer
ört vaxandi. Tvær fræðilegar greinar eru i
ritinu: Dr. Jakob Yngvason skrifar um
skammtasviðsfræði og dr. Þorsteinn I. Sigfús-
son skrifar grein um lífræna ofurleiðara. Fjöl-
margt annað efni er í ritmu sem er 60 bls. að
stærð. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur er dr. Þor-
steinnl.Sigfússon.
Aðalfundur Nemenda-
sambands Menntaskólans á
Akureyri
„NEMA”, var haldinn í Torfunni þriðjudag-
inn 21. febr. sl. Þetta var 10. aðalfundur sam-
bandsins, sem var stofnað 6. júní 1974, en
markmið þess eru m.a. að skapa aukin tengsl
miUi fyrrverandi nemenda MA og stuðla að
sambandi þeirra við núverandi nemendur og
kennara skólans.
I stjórn nemendasambandsins voru kjörin:
Sjöfn Sigurbjörnsd. formaður, Ingibjörg
Bragadóttir, fulltrúi 10 ára stúdenta, Þyri
Laxdal, f ulltrúi 25 ára stúdenta, Eggert Stein-
sen, fulltrúi 40 ára stúdenta og Pétur Guð-
mundsson.
I varastjórn: Iðunn Steinsdóttir, Auður
Hrólfsdóttir, Vilhjálmur Skúlason og Héðinn
Finnbogason.
Endurskoðendur: Þórður Olafsson og Þor-
steinn Marinósson.
Vorfagnaður ncmendasambandsins verður
haldinn að Hótel Sögu föstudaginn 1. júni nk.
og vcrður hann nánar auglýstur síðar.
Skógræktarfélag Reykja-
vfkur
heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 26. apríl
kl. 20.30 í Félagsheimili Rafveitunnar við
Elliðaár.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Jón
Gunnar Ottóson skordýrafræðingur flytja
erindi um meindýr í görðum. Boðið verður
upp á kaffiveitingar og er þess vænst að
félagarfjölmenni.
Sumarbúðir þjóðkirkjunnar,
Laugargerðisskóla
1 sumar verða starfræktar sumarbúðir þjóö-
kirkjunnar í Laugargerðisskóla á Snæfells-
nesi.
Þar verða 12 daga flokkar, fyrir telpur og
drengi samtímis, og hefst hinn fyrsti 18. júní
og verður hann fyrir 7—9 ára börn en hins
vegar verða hinir flokkamir fyrir 10—12 ára
börn.
Við Laugargerðisskóla er sundlaug og góð
aðstaða til leikja en í sumarbúðunum verða
einnig helgistundir og uppfræðsla í kristinni
trú. Lögð verður áhersla á að hvert barn njóti
sín og þroskist í öruggu umhverfi.
I sumarbúðunum starfa vanir sumarbúðar-
stjórar ásamt unglingum sem aðstoða þá.
Innritun í búðirnar hefst fimmtudaginn 26.
april og fer hún fram hjá æskulýðsfulltrúa
þjóðkirkjunnar, Klapparstíg 27, þar sem allar
frekari upplýsingar eru veittar. Sími þar er
12445.
Fundur í fulltrúa-
ráði Framsóknarfélaganna
í Vestmannaeyjum, haldinn miðvikudaginn 4.
apríl 1984 ályktar eftirfarandi:
Eftir að núverandi ríkisstjórn var mynduð
undir forsæti Steingríms Hermannssonar
hefur náöst verulegur árangur í baráttunni
við verðbólguna.
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í
Vestmannaeyjum hvetur ríkisstjórnina, til að
hvika hvergi frá þeirri baráttu. Nú hefur hins
vegar komið illilega í ljós að einn af aðalhom-
steinum stjómarsamstarfsins, fjárlagagerðin
fýrir árið 1984 sem sjálfstæðismenn hafa haft
ráö og forystu um, er það óábyrg, aö marklítil
er. Þess vegna höfum við miklar áhyggjur af
áframhaldandi árangri af baráttunni við
veröbólguna.
Fjármálaráðherrann, sjálfstæðismaðurinn
Albert Guömundsson, ber höfuðábyrgð á
marklitlum fjárlögum fyrir árið 1984.
Hækkun skatta og á allri opinberri þjónustu
ríkisins, þvert ofan í fyrri yfirlýsingar fjár-
málaráðherrans Alberts Guðmundssonar
um aö hækka ekki álögur á almenning eru að
öðm leyti á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins, og
teljum við slík vinnubrögö fjármála-
ráðherrans við gerð f járlaganna vítaverð.
Hvetjum við því eindregið ráðherra og al-
þingismenn Framsóknarflokksins til að hvika
hvergi frá settu marki og berjast með öllum
ráðum við frekari hækkunarstefnu Sjálf-
stæðisflokksins.
Ferðalög
Útivistarferðir
Myndakvöld Útivistar
verður fimmtudaginn 26. apríl kl. 20.30 að
Borgartúni 18 (Sparisj. vélstj.) 1. Gústav
Gústavsson og Gústav Sveinsson sýna góðar
myndir víða að, m.a. úr Otivistarferðum.
2. Hornstrandakynning. Otivist skipuleggur 8
ferðir á Hornstrandir í sumar. Þessar ferðir
verða kynntar sérstaklega og sýndar myndir
af þeim leiðum sem famar veröa. AJlir eru
velkomnir, jafnt félagsmenn sem aðrirrKaffi-
veitingar í hléi. Sjáumst.
Otivist, ferðafélag.
Fró aðalfundi
Ferðafélags íslands
Aðalf undur Ferðafélags lslands var haldinn á
Hótel Hofi 13. mars sl. Fundarstjóri var Ey-
þór Einarsson, formaður Náttúruverndar-
ráös.
Davíð Olafsson, forseti félagsins, setti
fundinn og minntist tveggja látinna félaga:
Helgu Teitsdóttur og Jóhannesar Asgeirs-
sonar. Þau voru bæði kjörfélagar í Ferða-
félagi Islands. Helga Teitsdóttir starfaði á
skrifstofu Ferðafélagsins í 37 ár, frá árinu
1937.
I skýrslu stjórnar kom fram að Ferða-
félagið hefði verið aö byggja sæluhús fram
á síðustu ár, þó ekkert byggt á árinu 1983. Og
enn koma fram tillögur og óskir um byggingu
húsa á nýjum stöðum. Sæluhúsin eru nú orðin
16 og á öllum aldri, þaö elsta í Hvítárnesi, frá
1930. Mikill og vaxandi kostnaður fylgir því að
halda við sæluhúsunum og fyrirsjánlegt aö
allvemlegum f jármunum af tekjum félagsins
verður varið í viðhald húsanna. Ymsar endur-
bætur eru fyrirhugaöar til að koma til móts
við breyttar kröfur um slík hús.
Nýbreytni í félagsstarfinu er útgáfa
, Fréttabréfs”, sem hófst á síðasta ári og hafa
þegar komið út tvö tbl.
Þórunn Lárusdóttir, framkvæmdastjóri
félagsins, las upp endurskoðaða reikning
fyrir árið 1983 og skýrði þá. Fundarmenn
samþykktu þá einum rómi. Að þessum
hefðbundnu aðalfundarstörfum loknum hóf-
ust umræður um lagabreytingar, en var svo
visað til nefndar sem á að undirbúa laga-
breytingar fyrir næsta aðalf und.
Tónleikar
Tónleikar í Norræna húsinu
Fimmtudaginn 26. apríl kl. 20.30 heldur gítar-
leikarinn Pierre Laniau tónleika í Norræna
húsinu.
Pierre Laniau fæddist í París árið 1955.
Hann stundaði tónlistamám viö
Conservatoire de Poissy og síðan við Ecole
Normale de Musique de Paris, þar sem hann
sótti tíma hjá Alberto Ponce. Hann hóf að
leika á tíu strengja gítar árið 1972, sama ár og
hann hélt fyrstu einleikstónleika sína og 1975
hélt hann áfram námi undir handleiðslu
Narciso Yepes. Síðan hefur Pierre Laniau oft
komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Hann
hefur einnig leikið á mörgum listahátíðum,
s.s. Parísarsumarhátíðinni í Hotel de SuIIy
1975, listahátíðinni í Marais 1977, Satiehá-
tíöinni i Róm 1981, Parísarhátíðinni í Marais
1977, Satiehátíðinni í Róm 1981, Parísarhá-
tíðinni í Conciergerie 1982. Auk þess hefur
hann haldið tónleika í flestum löndum Evrópu
og í Mið-Ameríku og leikið inn á hljómplötu
helgaðri Erik Satie, sem kom út hjá Pathé-
Marconi útgáfunni (C 069-73127). (Hljómplat-
an veröur til sölu á franska bókasafninu).
Miðaverð á tónleikana er 200 kr. Meðlimir
A.F.: 150 kr.
Vortónleikar
Karlakórsins Stefnis
Karlakórinn Stefnir í Mosfellssveit heldur
sina árlegu tónleika í Hlégarði miövikudaginn
25. apríl kl. 21.00 og sunnudaginn 29. apríl kl.
15.00.
I Félagsgarði í Kjós föstudaginn 27. apríl kl.
21.00 og í Fólkvangi á Kjalamesi mánudaginn
30. apríl kl. 21.00. Kórinn flytur fjölbreytta
efnisskrá undir stjórn Helga R. Einarssonar.
Tónleikar Karlakórsins Fóst-
bræðra
Karlakórinn Fóstbræður heldur árlega
tónleika fyrir styrktarfélaga sína í Háskóla-
bíói fimmtudaginn 26. apríl kl. 19.00 og
laugardaginn 28. sama mánaðar kl. 15.00.
Söngstjóri kórsins er Ragnar Bjömsson.
Píanóundirleikari er Jónas Ingimundarson.
Einsöngvarar með kórnum eru Kristinn
Sigmundsson óperusöngvari og Bjöm Emils-
son,einnkórfélaga.
A tónleikunu koma fram í boði kórsins og
syngja einsöng nokkrir nemendur sem stunda
söngnám við tónlistarskóla i Reykjavik, en
þeireru:
Frá Tónlistarskólanum í Reykjavík:
Anders Torsten Josepsson.
Frá Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar: JóhannaSveinsdóttir.
Frá Nýja tónlistarskólanum í Reykjavík:
Bjöm Bjömsson og Sigríður Elliðadóttir.
A efnisskrá tónleikanna er tónlist frá
Bandarikjunum, Islandi, Englandi,
Frakklandi, Þýskalandi, Ongverjalandi og
Sovétríkjunum. Mörg þessara laga eru vel
þekkt og hafa notið mikilla vinsælda. Meðal
verka á efnisskrá má nefna Bolero eftir
Ravel, Rimnalög eftir Ragnar Björnsson,
rússnesk þjóðlög þ.á m. Stenka Rasin o. fl.
Potturinn
gleymdist á
eldavélinni
Slökkviliðið í Reykjavík var kallað
að húsi í Norðurmýrinni í gær en þar
haföi kviknað í potti á eldavél.
Húsmóðirin hafði aðeins brugöiö sér
frá og gleymt að slökkva undir pott-
inum. Böm sem voru á heimilinu uröu
vör við eldinn og hlupu í næsta hús og
báöu um hjálp. Var hringt þaðan á
slökkviliöið sem réð niðurlögum
eldsins á skömmum tíma.
-klp-