Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1984, Page 35
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. APRIL1984.
35
Mezzoforte í Mozart-sal Gömlu óperunnar í Frankfurt.
Tónleikar Mezzoforte í Þýskalandi:
Allt á iði í salnum
Frá Hans Sætran, fréttaritara DV í
Frankfurt:
Mezzoforte, sem aö undanförnu
hefur verið á hljómieikaferöalagi í
Þýskalandi, lék í Mozart-sal Gömlu
óperunnar í Frankfurt 26. mars sl,
Áheyrendur voru um 350 manns og
voru í daufara lagi framan af en svo
kviknaði neistinn og hrifning gagntók
viðstadda; fólk klappaöi, stappaði og
dillaði sér við tóntaktinn — bara allt á
iði í salnum.
Tónlist Mezzoforte féll í ágætan far-
veg í Frankfurt, um þaö voru allir
sammála. T.d. sagði einn á miðjum
aldri: — Þegar hlustirnar höfðu jafnað
sig eftir fjrstu tvö lögin heyrði maður
að þeir piltar kunnu sitt fag — en
hjálpi mér, hávaðinn, og ekki var
hljómsveitinni sleppt fyrr en eftir
nokkuraukalög.
Reyndar er Mezzoforte ekki ýkja
kunn í umhverfi Frankfurt; helst hafa
útvarpsstöðvar í S-Þýskalandi leikiö
tónlist hennar en hver veit nema tón-
leikarnir hafi áhrif til hins betra?
Piltarnir sjálfir sögðu Þýskalands-
yfirreiðina hafa annars tekist hið
besta, reyndar aðeins miðlungs í
Frankfurt en í Hamborg og Berlín
hefði það veriö alveg frábært.
Frá Frankfurt fóru þeir til Ziirich i
Sviss en svo var haldið áfram í Þýska-
landi, samtals 20 tónleikar á jafn-
mörgumdögum.
Annars er nóg um að vera hjá þeim
drengjum, t.d. jass-hátíðin í Sviss en
þangaö er nú ekki boðið neinum milli-
stærðum.
Piltarnir sögðu Þýskalandsferðina hafa tekist vel.
Kristinn og Friðrik í léttri sveiflu.
Kennarafélag Idnskólans í Reykjavík varö 40 ára 20.
mars sl. og var l því tilefni efnt til fagnadar í Borgartúni
6.
Við þad tœkifœri var Óli Vestmann Einarsson yfir-
kennari heiðradur fyrir langt og frábœrt starfí kennara-
félaginu um leið og hann var gerður að heiðursfélaga
þess.
Á myndinni er Sigurður Guðnason að fara nokkrum
lofsamlegum orðum um Óla áður en hann afhendir
honum heiðursskjal. SigA
Staðgreiðslukerf i skatta tekið
uppíFæreyjum:
SNIÐIÐ AÐ
DANSKRI
FYRIRMYND
Frá Eðvarði T. Jónssynl, frétta-
ritara DV í Færeyjum:
Staðgreiðslukerfi skatta hefur
veriö tekiö upp í Færeyjum. Kerfið
er að nokkru leyti sniðið að danskri
fyrirmynd en gerir þó atvinnurek-
endum léttara fyrir en danska
kerfið.
Fram til þessa hafa Færeyingar
fengið kaup sitt óskert og séö sjálfir
um aö greiöa sína skatta til gjald-
heimtunnar með gíróseðlum. Menn
hafa staðið misjafnlega í skilum og
er talið að í Þórshöfn einni nemi
skattaeftirstöðvar undanfarinna ára
um 200 milljónum ísl. kr.
Framvegis verða öll laun lögð inn
á reikning í banka eða peningastofn-
un sem sér um að draga tilskilda
upphæð af laununum og senda síðan
launþegum afganginn.
Nýja kerfiö er „kumulatift”,
þ.e.a.s. sú upphæð sem dregin er af
laununum kann að breytast frá
einum útborgunardegi til annars í
samræmi við tekjur viðkomandi og
er þetta gert til þess að innheimtan
samsvari sem næst raunverulegum
skatti sem reiknaður er út í desem-
ber hvert ár.
Ljóst er að kaupmáttur einstakl-
inga mun minnka verulega með
þessari skipan mála og eru kaup-
menn og ferðaskrifstofur uggandi
vegnaþess.
Það misrétti sem ríkt hefur i
færeyskri skattheimtu hefur ekki
verið leiörétt meö nýja kerfinu og
láglaunafólk mun eftir sem áður
bera þyngstu byrðarnar.
Skattaprósenta getur aldrei farið
yfir 50% hjá einstaklingum og
félögum en lágtekjufólk og fólk með
meðaltekjur borgar á bilinu 40—45%
af launum sínum.
-FRI.
Trausti Bergsson, t. v., ásamt aðstoðarmanni sinum i nýju bón- og *-""
stöðinni fyrir bila i Kolaportinu.
Hvegið og öónao
í Kolaportinu
Opnuð hefur verið bílaþvottastöð í
Kolaportinu — bílageymslunni nýju í
Seðlabankahúsinu við Kalkofnsveg.
Eigandi hennar er Trausti Bergsson.
Þv.9^§tö$ÍR er.ppiíi
alla virka daga. Þar geta bíleigendur
fengið vagna sína þrifna að utan og
innan fyrir mjög vægt gjald. Geta þeir
skilið þá eftir þar á meðan þeir fara í
vinnu eða versla í miðbænum og sótt
t^feaa&að(^pr 4ðpr..MiR,dagjr»nÆr
glansandi fina bæði að utan og innan.
Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra afhenti nýlega Þjóðminjasafni Islands brjóstmyndina af dr.
Kristjáni Eldjárn. Ljósm. Gunnar Vigfússon.
Brjóstmyndir af KHstjáni
Eldjárn, forseta íslands
I tilefni af sextugsafmæli dr. Geröar hafa veriö þrjár afsteypur í hina Þjóöminjasafni Islands, þar
Kristjáns Eldjárns, forseta Islands, brons eftir brjóstmyndinni. sem dr. Kristján heitinn var
ákvað þáverandi rikisstjóm að láta Steingrímur Hermannsson forsætis- þjóðminjavöröur.
gera af honum brjóstmynd. Myndina ráöherra hefur fyrir hönd ríkis- Þriðjaafsteypanveröurvarðveittí
gerði Sigurjón heitinn Olafsson stjómarlslandsafhenttværafsteyp- Stjórnarráðshúsinu.
-myndhöggvari. anna, pöra frú HaUdórji.Eldjárn óg , ,