Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1984, Qupperneq 37
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. APRlL 1984.
Dæmalaus Veröld
37
Dæmalaus Veröld Dæmalaus Veröld
Breytingar í Bretlandi:
Nauðganir í
heimahúsum
Réttur breskra kvenna sem
veröa fyrir barðinu á of-
beldismönnum verður bet-
ur tryggður en fyrr ef nýj-
ar hugmyndir ná fram að
ganga.
Laga- og endurskoðunarnefnd
breska þingsins hefur setið á rökstól-
um að undanfömu og árangurinn er nú
að komaíljós:
Nefndin leggur til aö nú verði hægt
að ákæra eiginmenn fyrir nauðgun
beiti þeir húsfreyjur sínar ofbeldi utan
heimilisins, þ.e.a.s. ef hjónakornin búa
ekki í sömu íbúð. Núverandi lög gera
ráö fyrir að eiginmaðurinn sé alltaf í
rétti hvar og hvenær sem er. Ef ofbeld-
iö á sér aftur á móti stað innan veggja
sameiginlegs heimilis hjóna þá er lítið
að gera.
Nefndin leggur jafnframt til að
samfarir systkina varði ekki við lög
séu þau eldri en 21 árs. Þetta er mikil
nýlunda því gildandi lög gera ekki ráð
fyrir undantekningum þegar blóð-
skömm er annars vegar.
Þá leggur nefndin til að nauðgarar
njóti ekki lengur nafnleyndar frekar en
aðrir afbrotamenn.
Drengir undir 14 ára aldri verða í
framtíðinni dregnir fyrir rétt í nauðg-
unarmálum ef ráðum nefndarinnar
verður fylgt og er það einnig nýlunda.
Hommar mega nú ganga i eina sæng
saman við 18 ára aldur á móti 21 áður
og ekki verður lengur brotlegt aö hafa
samfarir við 16 ára stúlkur ef það er
gert með þeirra samþykki.
Þá er lagt til að hámarksrefsing í
nauögunarmálum verði æviiangt fang-
elsi í stað 9 ára eins og nú er.
Tillögur laga- og endurskoðunar-
nefndarinnar eru nú til umfjöllunar í
breska þinginu sem síðar mun greiða
um þær atkvæði.
Ein fárra mynda sem til eru af
Paui með trompetið sitt.
Myndin er 15 ára gömui.
Linda Gray býr með trompetleikara
DæVe birtir fyrst hérlendra blaða mynd af
núverandi sambýlismanni Lindu Gray, Sue Ellen
úr Dallas, en sá er 32 ára eöa 10 árum yngri en
Southf ork-kroppurinn.
Hann hefur ekki veriö mikið fyrir að láta taka
myndir af sér með kærustunni en þau skötuhjú
munu viðhafa miklar varúðarráðstafanir þegar
þau fara út að skemmta sér. Kemur Linda þá yfir-
leitt í fylgd annars manns og svo skýst kærastinn
inn um bakdyrnar þegar fer að hægjast um. Hann
heitir Paul og er trompetleikari aö atvinnu.
Myndin sem hér birtist er 15 ára gömul en nú mun
Paul vera komin með alskegg.
Hneyksliá
Southfork
Þið getið rétt ímyndað ykkur hvem-
ig Miss Elly varð við þegar J.R. birtist
á Southfork einn góöan veðurdag, ný-
kominn frá rakaranum og svona útlít-
andi. Pamela hló, Bobby roðnaði og
Sue Ellen sagðist skilja við hann þar til
hárið væri komið í samt lag.
Að vísu er þetta allt lygi en svona liti
J.R. út ef hann færi til rakara og léti
klippa sig svona.
HEIMSLJÓS
J.R. reykir
ekki
Larry Hagman, J.R., er j
bindlndismaður á tóbak. J
Reyndar er hann einn aðal-
hvatamaður að herferð sem
beinist gegn tóbaksreykingum
og fer nú sem eldur i sinu um J
Bandaríkin. Þá er hann einnig
virkur i sænsku samtökunuml
,Reyklaus þjóð” en þá hug-j
mynd á nú að flytja yfir hafiðj
tii Bandaríkjanna.
25ára
Akihito keisaraerfingi i j
Japan og Michiko, eiginkona
hans, héidu nýverið upp á 25
ára brúðkaupsafmæli sitt.j
Akihito er fimmtugur, Michiko j
f jörutiu og níu.
Hlafengiðfé
Móðir Theresa sem þekkt er I
jfyrir hjálparstarf sitt íj
jKalkútta og víðar hefur kærtj
agsskap i Bandaríkjunum I
[sem safnað hefur fé í hennarj
nafni án þess að hafa til þessj
uokkurt leyf i.
Who
oghundur
Alison Entwhistle, fyrrum|
J eiginkona John Enthwistle gít-
í arleikara í hljómsveitinni Who, I
hefur unnið skaðabótamál sem I
! hún höfðaði á hendur gítarleik-j
| aranum vegna þess að hannl
1 kallaði hana hund í sjónvarps-j
i viðtali.
TVEIR
AF PULSU-
PÓSTINUM
Ekki vitum við nákvæmlega hvaö
þessir þéttu jálkar, Bragi Sigurösson
og Indriði G. Þorsteinsson, eru að ræða
saman um nema þeir séu aö bera sam-
an bækur sínar um greinar þær sem
þeir skrifuðu í Pulsupóstinn svokall-
aöa, bíaðið sem gefið er út en ekki aug-
lýst og fæst hvorki í áskrift né lausa-
sölu en að því stendur Asgeir Hannes
Eiríksson, hver annar?
Blaðinu mun aðeins vera dreift
meðal valdra hópa í bænum en áhuga-
samir menn, sem vilja ná sér í eintak,
geta vomað yfir kaffiborðunum á Hótel
Borg í þeirri von að einhver af fasta-
gestunum líti augnablik af blaöinu. , ,
bV-mynd É'.ó.
þinga
Fyrsta alþjóðaþing eigenda
i vélmenna er haldið þessa
I dagana í Albuquerque í New |
i Mexico-fylki í Bandaríkjunum.
Þátttakendur eru viðsvegar að.
ÍÞótt skipuleggjendur ráðstefn-J
| unnar viðurkenni að vélmenni |
til nota við heimilisstörf og
| annað innanhúss séu enn ekki'
fjölmenn stétt þá teija þeír að I
þeim eigi eftir að fjölga veru- ]
1 iega á næstu árum.