Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1984, Side 40
I
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-
78S8. Fyrir hvert fróttaskot, sem birtist eða er notað iDV, greiðast
1.000krónur og3.000krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku.
Futirar nafnieyndar ergætt. Við tökum við fróttaskotum allan sóiar-
hringinn.
ÆPffb "fO fTQ SÍMINN SEM
QO^/O^VO ALDREISEFUR
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL1984.
Tæplegaþrítug
íslenskkona:
járn-
umtil
lands-
ins
Tæplega þrítug, íslensk kona kom í
morgun til landsins í járnum trá
Bandaríkjunum. Var hún framseld
af dómstólum þar í landi vegna fíkni-
efnamáls.
Forsaga málsins er sú aö áriö 1977
flæktist hún inn í fíkniefnamál hér á
landi, sem snýst um innflutning og
dreifingu á nokkrum kilóum af hassi.
Sex manns komu við sögu þessa
máls, meöal annars sambýlismaður
konunnar, sem sakfelldi hana þegar
hann greindi frá sínum þætti. Var
kveðinn upp handtökuskipun yfir
konunni í júlí ’79. Flúði hún þá til
Kalifomíu áöur en til handtökunnar
kom. Hinir fimm hafa afplánað sinn
dóm, sem fólst í nokkurra mánaöa
f angelsun og sektum.
Konan kæröi handtökuskipunina til
hæstaréttar en þar var hún staðfest.
Þegar hún kom til Kalifomíu fór hún
með málið fyrir bandaríska dóm-
stóla og þar hefur styrinn staðið um
hvort framselja ætti hana eða ekki
eftir að íslenska fíkniefiialögreglan
krafðist þess að hún yrði framseld.
Þar féll svo dómur henni í óhag og á
föstudaginn var var hún handtekin á
heimili sínu í Kalifomíu snenuna
morguns. Hún var síðan í haldi ytra
þar til i morgun er hún kom til
landsins.
Að sögn fíkniefnalögreglunnar er
veriðaöyfirheyrakonunanúna. -k>
LUKKUDAGAR k
25. aprfl
NR. 5005, }
REIÐHJÓL FRÁ FÁLKANUM i
AÐ VERÐMÆTI KR. 10.000.
Vinningshafar hringi í síma 20068 H
LOKIi
Ritstjóri NT segir að
nafnið megi hver skiija á
sinn hátt. Hvað um Nei
Takk?
Frekar meiri lán og minni skatta, segir fjármálaráðherra:
Átta hundruð
milljóna lán í gatvð
— niðurskurður 800 milljónir, ný skattheimta 400 milljónir
„Ég tel það stórárangur ef okkur
tekst að skera niöur 800 milljóna út-
gjöld ofan á fyrri niðurskurð upp í
f járlagagatið. Raunar nærri milljarð
ef viö reiknum meö áætlaöa lækkun
niöurgreiðslna á búvörar. Það er
siðan persónuleg skoðun mín að sem
mest af því sem á vantar eigi að taka
að láni nú,” segir Albert Guðmunds-
son f jármálaráðherra.
Stjómarflokkamir era að loka
fjárlagagatinu eftir margra vikna
stapp. Samstaða er nú líkleg um
sparnað og tiifærslur sem lækka f jár-
lagaútgjöld um 800 milljónir. Einnig
um lækkun niðurgreiðslna um 150—
200 milljónir. Og loks um að taka upp
söluskatt á þjónustu lögfræðinga,
endurskoðenda, verkfræðinga og
arkitekta og ná þannig og meö hertri
innheimtu almennt 200 milljónum í
nýjartekjur.
Þama er kominn hlemmur á rúm-
lega hálft gatið, kannski 1.200
milljónir af 2.000. Hugmyndir um
annaðhvort bensíngjald, tvær krónur
á iitra, eða veggjald, krónu á kíló í
ökutæki, sem gæfi 140 milljónir, hafa
mætt harörí andstöðu, einkum hjá
sjálfstæðismönnum. Og fjármála-
ráðherra berst gegn frekari skatt-
heimtu. „£g hef verið að lækka
skatta og tolla og finnst ég verða að
beygja mig langt til þess að fallast á
það sem þegar er kornið í niður-
greiðslum og söluskattL ”
, 3g hef margsagt að þennan f yrir-
séða vanda eigi að leysa að hluta til á
Iengri tíma. Sumt á næsta árí og
sumt á kjörtímabilinu öllu. Það er
ekkert athugavert við þau vinnu-
brögð, nema siöur sé. Og þau raska
ekki þvi marki aö halda eriendum
lánum innan við 60% af þjóðarfram-
leiðslu ársins,” segir Albert
Guðmundsson.
-HERB.
Vörubiisijóri missti pallinn af bíi sínum undir brú á Ártúnshöfða i gœr. Hann hafði veriö að losa efni af
paiiinum skammtþar frá en gleymdi að setja hann niður þegar hann ók afstað. Ók hann á fullri ferð undir
brúna með pallinn uppi og sviptist hann afbílnum þegar hann skall á henni. Þessi mynd er tekin þegar
verið varað takapallinn af götunnien tilþessþurftikranabíl. DV-myndS.
Ammoníakleiðsla
sprakk í verbúð
— hefði getað orðið mannskaði, segir slökkviliðsstjórinn í Grindavík
Mikil hætta skapaðist er
ammoníakleiðsla sprakk í tækjasal
Hraðfrystihúss Grindavíkur í fyrra-
kvöld. Tækjasalurinn er á neðstu
hæð í þrílyftu húsi og er verbúð á efri
hæöunum þar sem um 40 manns hafa
aðsetur. Lekans varð vart um
klukkan 22 um kvöldið og tókst að
koma öllu fólkinu út án þess að
nokkur slasaðist.
„Hefði þetta gerst að nóttu til er
ekki aö vita hvaö hefði getað gerst.
Það hefði þá getað orðið mikill
mannskaði þvi þetta var það mikið
sem lak út og ekkert viðvörunarkerfi
i húsinu,” sagði Magnús Ingólfsson,
slökkviliðsstjóri í Grindavík, í sam-
taliviðDV.
Að sögn Magnúsar var lekinn svo
mikill að húsið fylltist allt af
ammoníaki og ekki var verandi þar
inni nema með reykköfunartæki.
Slökkviliðsmenn fóra inn í húsið og
tókst að gera við slönguna. Húsið var
síðan loftræst með blásurum fram
undir hádegi í gær og var þá fýrst
taliö óhætt aö hleypa fólki aftur þar
inn.
Ammoníak er baneitraö og sagði
Magnús Ingólfsson slökkviliðsstjóri
að mjög varasamt væri að hafa
tækjasal frystihúss og verbúðir í
sama húsinu þar sem opið væri á
milli og ekkert viðvörunarkerfi á
staðnum. Ef þessar leiðslur hefðu
sprungið um nóttina hefði lekinn get-
aö staðið alla nóttina án þess að
nokkur yrði þess var fyrr en um
seinan. -ÖEF.
Síminnsem
aldreisefur
— stöðugt samband
viðlesendurDV
Enn heldur fréttaskot DV áfram
við góðar undirtektir lesenda.
Allt frá því að DV hóf þessa
nýbreytni í íslenskri fréttamennsku
hafa stöðugar ábendingar borist
blaðinu og margar hverjar leitt til
athy glisverðra frétta.
Ahugasamir lesendur geta eins og
kunnugt er hringt í símann sem
aldrei sefur, 68-78-58, allan sólar-
hringinn og skotið að okkur fréttum.
Verðlaunað er fyrir hverja á-
bendingu sem leiðir til fréttar með
eitt þúsund krónum en jafnframt er
verðlaunað fyrir besta fréttaskot
hverrar viku með þrjú þúsund krón-
um. DV gætir þess vandlega aö full-
komin nafnleynd ríki um þá sem
starfa með blaðinu á þennan hátt.
-óm.
Ábyrgðimarfallaá
Ríkisábyrgðasjóð
og ríkið:
Rauðartölurupp
á 200 milljónir
Af 202.5 milljóna króna vanskilum
á ríkislánum og lánum með ríkis-
ábyrgð er innheimta á um 130 millj-
ónum talin vafasöm. Og ennfremur
vafasamt að 50,2 milljóna verðbréf í
eigu Ríkisábyrgðasjóðs fáist greidd.
Við þessar vafasömu 180 miUjónir
má síðan bæta vöxtum, dráttar-
vöxtum og kostnaði. I ársreikningi
Rfldsábyrgðasjóðs, sem er í vörslu
Seðlabankans, er ekki gerð nánari
grein fyrir verðbréfaeigninni. En
þess getið að 130 milljónirnar standi
einkum vegna Herjólfs hf., Skipaút-
gerðar rfkisins og olíusjóös fiski-
skipa.
I ársreikningnum er einnig að
finna athugasemdir þær sem byggt
er á hér um að tilteknar vanskila-
skuldir kunni aö falla á rflrið. Þar er
viðhaft varfærið orðalag um skuld-
imar eins og „líklegt er að sumar
þeirra muni ekki innheimtast”.
-HERB.