Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1984, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR11. MAl 1984. 3 MEIRIHLUH FYRIR AFNÁMITEKJUSKATTS — búist er við að þingsályktunartillaga þess efnis verði samþykkt fyrir þinglok Allt bendir til aö þingsályktunar- tillaga nokkurra þingmanna Sjálf- stæðisflokksins um afnám tekju- skatts af almennum launatekjum muni ná fram að ganga á þessu þingi. I þingsályktunartillögunni er f jár- málaráöherra falið að skipa nefnd til þess að gera tillögur um á hvern hátt megi hagræða og spara í rekstri ríkisins og ríkisstofnana með tilliti til þess að tekjuskattur verði afnuminn í áföngum af almennum iaunatekj- um. Tillögur nefndarinnar skulu lagðar fyrir Alþingi í upphafi næsta þings. I framsöguræðu sinni fyrir tillögunni í gær sagði Gunnar G. Schram að ekki færi milli mála að tekjuskatturinn væri ranglátasti skatturinn sem lagður væri á hér á landi. Það væri vegna þess að hann væri fyrst og fremst skattur á laun- þega og þá sér í lagi á starfsmenn ríkis og sveitarfélaga. Jafnframt væri það alkunna að ýmsir aörir hópar í þjóðfélaginu borguöu minni tekjuskatt en þeim bæri og sumir raunarallsengan. Gunnar benti á að hugtakiö almennar launatekjur væri óskil- greint hugtak en ef miðaö væri við áætlaðar meöaltekjur á árinu 1983, sem taldar væru um 270 til 300 þúsund, þá heföu um 80% skattgreið- enda verið tekjuskattslausir á þessu ári. Þetta sýndi glöggt hversu mikil- vægt mál væri hér á ferðinni fyrir þorra landsmanna. * Gunnar benti ennfremur á að tekjuskatturinn næmi aðeins um 10% af tekjiun ríkissjóðs og væri áætlaður 1,8 milljarðar króna á fjár- lögum þessa árs. Þessum tekjumissi mætti mæta með sparnaði og nýjum tekjustofnum. I þvi sambandi nefndi hann að hvert söluskattsstig gæfi rikissjóði rúmlega 300 milljónir króna í tekjur. Þá nefndi hann aö það væru augljós rök fyrir afnámi tekju- skattsins að við það myndu ráð- stöfunartekjur alls almennings aukast og hlyti það að hafa bein áhrif á samninga um kaup og kjör. Þá nefndi Gunnar G. Sehram að mikilvægt væri að ríkisstjómin framfylgdi því atriði stjómarsátt- mála að jafna tekjur hjóna fyrir skattlagningu. Sem dæmi um órétt- lætið í þessum málum tók hann barn- laus hjón sem höföu 550 þúsund í árstekjur á síöasta ári. Ef annað þeirra aflar teknanna verður tekju- skattur þeirra og sjúkratryggmgagjald á þessu ári 110 þúsund krónur. En et annað hefði haft 300 þúsund í tekjur og hitt 250 þúsund væm skattar þeirra aðeins 70 þúsund krónur eða 40 þúsund krónum lægri en í fyrra til- fellinu. Þess má geta að þingmenn Alþýðu- flokksins hafa borið fram sambæri- lega tillögu um afnám tekjuskatts. Meirihluti virðist vera fyrir málinu á Alþingi og er búist við að það verði afgreitt fyrir þinglok. Concorde til Kef lavíkur: KAMPAVÍNSFLUG YFIR NORDURPÓL Islendingum gefst kostur á að fljúga heimskautsbaug á leið sinni hingað til með Concorde þotunni hljóðfráu yfir' lands. Verður gerður stuttur stans, norðurpólinn í ágústmánuði og þiggja farþegum boðið í útsýnisflug svo og kampavínsveitingar á meðan. Miða- rútuferð um landið og á meðan gefst verð verður ekki undir 12.000 krónum. Islendingum kostur á pólarflugi með Concorde þotan er væntanleg til kapmavínsveitingum. Flugið tekur Keflavíkur 18. ágústnk. meðlOOferða- aöeins 84 mínútur og á meðan flýtur langa frá Lundúnum sem fljúga yfir kampaviniðómælt. -EIR. Þingsályktunartillaga: Þjóðarátak í trjárækt Sex þingmenn úr öllum f lokkum hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartil- lögu þar sem lagt er til að ríkisstjómin hlutist tU um aö 40 ára afmælis lýðveldisstofnunar á Islandi verði minnst með þjóöarátaki í trjárækt í þéttbýli og dreifbýli. I greinargerðinni segir aö gert sé ráð fyrir að rikisstjórnin skipi 10 manna framkvæmdanefnd sem í ættu sæti þingmenn ásamt fulltrúum frá Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélagi Islands og Sambandi íslenskra sveitar- félaga. Nefndin legði fram fram- kvæmdaáætlun í stórum dráttum en síðan kæmi tU kasta sveitarstjórna víðs vegar um land aö ákveða hvernig heppilegast væri að standa að fram- kvæmdum. Þáttur ríkisvaldsins yrði fyrst og fremst að leggja eitthvað af mörkum tU kynningar og fræðslu varðandi átakiö. Fyrsti flutningsmaður tUlögunnar er Gunnar G. Schram en meðflytjendur Eiður Guðnason, Guðmundur Einars- son, PáU Pétursson, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og Svavai- Gestsson. OEF EV-SALURINN í FIATHÚSINU 1929 notadir bílar í eigu umbodssins 1984 - ALLT Á SAMA STAÐ EGILL , -VILHJALMSSON HF YFIR HALFA 0LD. Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944— 79775

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.