Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1984, Side 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 30. MAI1984.
hh^hmsk i
V
Sl
Það voru Steingrimur Hermannsson. Aibert Guðmundsson, Magnús Torfason, Ármann Snævarr, Eirikur Pálsson, Kjartan Guðjónsson, Halldór E. Sigurðsson og Jón Aðaisteinn Jónas-
son sem báru kistuna úr kirkju. Næst kistunni er frú Dóra Guðbjartsdóttir ásamt Dóru Ólafsdóttur. Fyrír aftan þær er Kristin Ólafsdóttir ásamt eiginmanni sinum, Einari G. Péturssyni.
D V-myndir G VA.
Utför Olafs Jóhannessonar, fyrrum
forsætisráðherra, var gerö frá Dóm-
kirkjunni í gær. Var athöfnin virðuleg
og látlaus og kirk jan þéttsetin.
Það var séra Þórir Stephensen sem
jarösöng. Lagði hann út af kvæði eftir
Einar Benediktsson þar sem segir:
Táp var þitt eðli/trúr til góðs þinn
vilji/stofnsettur varstu á traustri rót.
Þórir rakti feril Olafs og líkti honum
við bjarg sem aldrei brást. Hann sagði
foringja fallinn sem heföi veriö með
fingurna á slagæð þjóöarinnar. Olafur
heföi verið þeim eiginleikum búinn aö
vera hafinn yfir alla flokkadrætti,
harður málafylgjumaður og trúr hug-
sjónumsínum.
„Hann var maður sem lét framtíð-
arhag þjóðarinnar ráöa en ekki ein-
staklingsins. Hann var glöggur á menn
og málefni enda ungum falin ábyrgð-
arstörf. Hann sá ekki bara syndarann í
manninum heldur manninn í syndar-
anum.”
Við athöfnina söng Dómkórinn,
Marteinn Hunger Friðriksson lék á
orgel og Gunnar Kvaran lék einleik á
selló.
Það voru félagar Olafs og vinir
gegnum tíðina sem báru kistuna úr
kirk ju. Það voru Albert Guðmundsson,
Steingrímur Hermannsson, Magnús
Torfason, Armann Snævarr, Eirikur
Pálsson, Kjartan Guðjónsson, Jón
Aðalsteinn Jónasson og Halldór E. Sig-
urðsson. Fyrir utan kirkjuna hafði
safnast hópur fólks sem vildi meö því
votta hinum látna virðingu sína en lög-
reglan stóö heiðursvörö.
Olafur Jóhannesson var jarðsettur í
Fossvogskirkjugaröi en þar báru ætt-
menn hans kistuna síðasta spölinn.
-KÞ
Fjölmenni var við útförina. Á myndinni má sjá meðal annarra Vigdisi Finnbogadóttur for-
seta, Þorvald Garðar Kristjánsson, forseta sameinaðs þings. Halldór Reynisson forseta-
ritara, Alfreð Guðmundsson, forstöðumann Kjarvalsstaða, Guðmund Einarsson, forstjóra'
Skipaútgerðar rikisins, og Guðmund Benediktsson, ráðuneytisstjóra i forsætisráðuneyti.
Séra Þórir Stephensen jarðsöng.