Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1984, Side 10
íí
10
•í'BSI IAM 0C JlUDACHJHIVaiM .Vö:
DV. MIÐVIKUDAGUR 30. MAI1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Fimm fyrrverandi þjóövaröliðar í
E1 Salvador voru í síðustu viku
fundnir sekir um moröin á banda-
rísku nunnunum í desember 1980
sem ollu hvaö mestri úlfúð í Banda-
ríkjunum og urðu til þess aö Carter-
stjórnin á sínum tíma tók fyrir alla
hernaðaraöstoö viö stjóm E1 Salva-
dor gegn skæruliðum vinstrimanna.
Naumast hafði úrskuröurinn um
sök mannanna fyrr verið lagöur
fram en Bandaríkjaþing samþykkti
tillögu Reagans forseta um aukna
aöstoö við E1 Salvador, enda má bú-
ast við því að tengsl landanna aukist
eftir að moröingjar nunnanna hafa
veriö látnir svara til saka og eins eft-
ir að frambjóöandi hófsamari afl-
anna í E1 Salvador náði kjöri sem
forseti.
Moröin á þessum fjórum kirkjunn-
ar konum vöktu almennan hrylling í
Bandarikjunum og töfin á dómsmeö-
ferö málsins hefur spillt fyrir sam-
búö ríkjanna. Þaö var 2. desember
1980, aö þær Ita Ford, Maura Clark
og Dorothy Kazel, allar nunnur, voru
myrtar og meö þeim sjálfboðaliöinn
Jean Donovan en þær höföu allar
starfaö aö trúboöi í E1 Salvador og
líknarmálum. Akæruvaldiö segir aö
þjóövaröliöamir fimm hafi tekiö
konumar til fanga þar sem þær voru
á leið til höfuðborgarinnar frá
alþjóðaflugvelli landsins. Einhvern
veginn fengu þeir þá flugu aö þær
væm á snærum skæruliöa og drápu
þær.
Líkin fundust sundurskotin tveim
dögum síöar í gmnnt teknum gröfum
nærri bænum Zacateluca í miöju
landinu þar sem réttarhöldin hafa
fariðfram.
Þótt átta Bandaríkjamenn hafi
veriö myrtir í borgarastríðinu i E1
Salvador og þúsundir landsmanna
pyndaöir og myrtir af „dauðasveit-
um” hægri öfgaaflanna, þá hefur
ekkert óhæfuverkiö haft jafnmikil
áhrif á almenning í Bandarikjunum
og drápin á varnarlausum trúboöun-
um, sem á engan hátt haföi veriö
hægt aö bendla viö pólitíkina. — Auk
þess höföu líkin boriö merki kyn-
ferðislegra misþyrminga.
Hinir fjórir Bandaríkjamennimir
sem myrtir voru höföu þó á einhvem
máta veriö tengdir pólitíkinni. Tveir
vora verkalýðsmálaerindrekar sem;
Umsjón:
Gunnlaugur A. lónsson
og
Guðmundur Pétursson
systram, nunnureglu sem aðalaöset-
ur hefur í Bandaríkjunum. Reglan
lýsti því fljótt yfir eftir morðin aö allt
benti til þess að nunnumar hefðu
veriö myrtar af ráönum hug af þjóð-
varöliðinu eöa stjórnarhernum. —
Þegar úrskurðurinn lá fyrir á
fimmtudag lýsti áheyrnarfulltrúi
reglunnar, systir Helena O’Sullivan,
því yfir aö þetta væri aðeins fyrsti
áfanginn. Þær mundu fylgja málinu
eftir og krefjast rannsóknar á til-
buröum til yfirhylmingar og hlut-
deild háttsettra foringja í málinu.
Foringjar í hernum, sem oft hafa
verið oröaöir viö dauðasveitimar ill-
ræmdu, hafa sjaldan veriö ákæröir
fyrir hlutdeild í morðum og enn
sjaldnar dæmdir.
Hinn nýkjörni forseti E1 Salvador,
Jose Napoleon Duarte, hefur heitið
því aö hefta uppivöðslu dauðasveit-
anna, og hafa málalokin út af nunnu-
moröunum og sú yfirlýsing auöveld-
aö Reaganstjóminni að fá samþykkt
áform sin um aukna aðstoö viö stjórn
E1 Salvador. Duarte, sem tekur við
embætti núna í vikunni, hefur þegar
mælst til þess viö æðstráðendur
hersins að þeir foringjar öryggislög-
reglunnar sem hvað verst orð hefur
fariö af og tíðast verið nefndir í sam-
bandi viö dauðasveitirnar verði
fluttir á milli embætta.
Erindrekar frá alríkislögreglu
Bandaríkjanna hafa haft hönd í
bagga með yfirvöldum E1 Salvador
viö rannsókn nunnumoröanna en hún;
hefur staöið í þrjú ár. Tafimar á
meöferö málsins mæltust illa fyrir í|
Bandarikjunum og þóttu bera vitni.
tregðu yfirvalda í E1 Salvador til
þess að upplýsa málið. —
Sakborningar hafa borið þaö í viö-
tölum við fréttamenn aö þeir hafi
veriö pyndaöir til játninga og ýmist
hótað illu eða heitið mútum. Ekki.
hefur verið lagöur mikill trúnaður á
þaö. — Þeir eiga yfir höfði sér allt að
30 ára fangelsi.
-GP*
Ólympíuleikarnir í Los Angeles í sumar:
Margra íþróttastjama
verður sárlega saknað
Ueberroth, framkvæmdastjóri
bandarísku ólympíunefndarinnar,
lýsti því yfir í síöustu viku aö ólym-
píuleikamir í Los Angeles yrðu hinir
fjölmennustu í sögunni þrátt fyrir aö
Sovétríkin og flest bandalagsríki
þeirra hafi ákveðið að taka ekki þátt
í leikunum. En ljóst er þó aö fjarvera
Austur-Evrópuþjóöanna breytir
gifurlega miklu því síðast þegar full-
trúar bæöi austurs og vesturs mættu
til leiks á ólympíuleikum í Montreal
1976 unnu Austur-Evrópuþjóöimar
meir en helming allra verölauna.
Sovétríkin og Austur-Þýskaland
heföu orðið aöalkeppinautar Banda-
ríkjanna á þessum leikum ef þau
heföu mætt til leiks. A því er tæpast
nokkurvafi.
Fengu 114 af 198
guliverðlaunum
Á ólympíuleikunum 1976 fengu þær
þjóöir sem nú hafa ákveðið að mæta
ekki til leiks 114 af 198 gullverölaun-
um sem veitt voru í leikunum.
Af 21 íþróttagrein sem keppt er í á
ólympíuleikunum er Ijóst að fjarvera
Austur-Evrópuþjóöanna hefur alls
staðar mikil áhrif. Hér veröa rakin
nokkur dæmi til að sýna fram á það.
Svo fyrst sé nefnd sú íþróttagrein
sem Islendinga varðar mest, þ.e.
handknattleikurinn, þá er þaö aö
segja aö þar hafa Austur-Evrópu-
þjóðirnar haft talsveröa yfirburði
um árabil. Sovétríkin eru viður-
kennd sem sterkasta handknattleiks-
þjóö heimsins. En hættulegustu
keppinautar þeirra taka hins vegar
þátt í leikunum þar sem eru
Rúmenar og Júgóslavar og Vestur-
Þjóöverjar hafa ætíö veriö í hópi
sterkustu þjóöa heims í þeirri
íþróttagrein. Einnig Norðurlanda-
þjóðirnar, einkum þó Danir.
Frjálsar íþróttir draga ætíö til sín
mesta athygli allra íþróttagreina á
ólympíuleikum. Þar hefur fjarvera
sósíalísku þjóöanna mjög mikil
áhrif. Sem dæmi má nefna að á
heimsleikunum í Helsinki í fyrra
hlaut austurblokkin 22 af 41 gull-
verölaunum. Þaöan minnast menn
Jarmilu Kratochilovu, tékknesku
hlaupakonunnar vöðvastæltu, sem
vann yfirburöasigur bæði í 400 og 800
metra hlaupum. Svo karlmannleg
þótti hún aö ýmsir fóru aö tala um
„þriöja kynið” á leikunum. Austur-
þýsku stúlkurnar reyndust ósigrandi
í spretthlaupunum og voru þar
fremstar í flokki þær Marita Koch og
Marlies Goehr.Þeirra verður saknaö
á ólympíuleikunum í Los Angeles.
Hefðu ekki veitt
Carl Lewis keppni
I spretthlaupum og millivega-
lengdum í karlagreinum verður f jar-
vera Austur-Evrópuþjóöanna ekki
eins áberandi því snilhngurinn Carl
Lewis er yfirburöamaöur í sprett-
hlaupum og langstökki og helstu
keppinautar hans eru landar hans. I
millivegalengdum er breska tríóið
Sergei Bubká og Sergei Litvinov
sigraöu í hástökki, stangarstökki og
sleggjukasti í Helsinki og veröa illa
fjarri góöu gamni í Los Angeles. Pól-
verjarnir Edward Sarul og Zdzislaw
Hoffman sigruöu í kúluvarpi og
þrístökki. Tékkinn Imrich Bugar
sigraði í kringlukasti og Austur-
Þjóðverjinn Detlef Michel í spjót-
kasti. Sú grein veröur sérstaklega
spennandi fyrir okkur Islendinga þar
sem tveir af okkar mönnum hafa
tryggt sér rétt tU þátttöku í þeirri
grein, þeir Siguröur Einarsson og
iHMHk
Bandariskí spretthlauparinn og langstökkvarinn Cari Lewis verður án efa
talinn verðugur sigurvegari, sigri hann á ólympíuleikunum i Los Angeles
þvi hættulegustu keppinautar Lewis um þessar mundir eru landar hans.
Margir spá því að Lewis takist að endurtaka hið ótrúlega afrek Jesse
Owens frá ólympíuleikunum i Berlin 1936 er hann hlaut gullverðlaun i fjór-
um greinum þ.e. 100 og 200 metra spretthlaupum, langstökki og 4x100
metra boðhlaupi.
Steve Cram, Sebastian Coe og Steve
Ovett líklegast til að skipa sér í
fremstu röð.
Rússamir Gennadi Awdejenko,
Einar Vilhjálmsson, og raunar hef-
ur Einar bestan árangur í ár af þeim
keppendum sem mæta í Los Angeles.
En heimsmeistarinn Petranoff er
bandarískur og verður ekki
auösigraöur, hvorki fyrir Einar né
aöra keppendur.
I körfuknattleik hafa Sovétmenn
ætíö verið í fremstu röö og kvennaliö
þeirra hefði a.m.k. mjög líklega farið
meösiguraf hólmi.
I hnefaleikum veröur fjarvera
Kúbumanna mjög áþreifanleg því á
ólympíuleikunum í Moskvu unnu
þeir sex af ellefu titlum.
Sovésku stúlknanna
saknað í fimleikum
I fimleikum verður sovésku
stúlknanna saknað því aö á síðustu
32 árum hafa þær aöeins tvisvar
misst af sigri í liðakeppninni en mikil
bót er aö rúmensku stúlkurnar veröa
með því þær hafa ekki gefið þeim
sovésku mikið eftir. I karlaflokki
hafa Kínverjar leyst Sovétmenn af
hólmi sem forystuþjóö og þeir mæta
til leiks í Los Angeles eins og kunn-
ugt er.
I júdó hefðu Austur-Evrópumenn
verið líklegir sigurvegarar í þremur
þyngdarflokkum af átta og í róöri
hafa Sovétmenn og Austur-
Þjóöverjar barist um sigur-
verölaunin ó alþjóðamótum undan-
farin ár.
Svipaöa sögu-*-er aö segja af
sundinu. Þar verður einkum fjar-
vera Sovétmanna og A-Þjóðverja til-
finnanleg. Vladimir Salnikov hefur
veriö yfirburöamaöur í lengri vega-
lengdum skriösundsins undanfarin
sjö ár og í heimsmeistarakeppninni í
Ecuador 1982 unnu a-þýsku stúlk-
umar 11 af 14 gullverðlaunum. En
keppnin nú hefði staöið milli þessara
þjóöa og Bandaríkjanna.
Þannig mætti lengi telja. Ljóst er
aö þó hugsanlegt sé að fjöldi þátt-
tckuþjóða á þessum ólympíuleikum
veröi meiri en nokkru sinni áöur þá
er ljóst aö í fjölmörgum greinum
veröa þaö ekki bestu íþróttamenn
heimsins sem fara meö sigur af
hólmi í viðkomandi greinum.
-GAJ
Þrjár bandariskar nunnur krjúpa á bæn yfir likurn myrtra systra sinna iE! Salvador.
Málalok nunnumorð-
anna bæta sambúð
El Salvador við USA
skotnir voru í kaffiteríu hótels síns. látinn svara til saka fyrir hin morðin Pearlman, og Jose Rodolfo Viera
Einn var flotamálaráögjafi og annar á bandarísku verkalýöserindrekun- semþeirstóöuíviöræðumviö.
blaöamaöur. — Enginn hefur verið um, Michael Hammer og Mark Trúboðamir tilheyröu Maryknoll-