Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Side 7
DV. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTOBER1984. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Aó gifta sig meó pompi og praktþar sem ekki er spurt um kostnað. BruÓkaup Karis Bretaprms og Dionu prinsessu. að innan og er bíllinn sambærilegur við þann bíl sem Reagan notar. I bílnum er bar, sjónvarp, videó, sími og Sharp og Pioneer stereo-græjur,” sagði Gylfi. Gylfi sagði ennfremur að öllum þessum tækjum hefði verið stolið úr bilnum fyrir mánuði síðan er hann var í geymslu í bílskúr einum hér í bæ og er það tjón sem metið er á 170.000 krónur, en verið er að rannsaka málið . Gylfi sagði að kostnaður við leigu á bílnum væri um 2500, þar af færu 1000 krónur í blómaskreytingu, 1000 krónur færu í að bóna bílinn og 500 kr. færu i bensin. Starfsmenn veitingahússins Potts- ins og pönnunnar hafa einnig gert nokkuð að þvi að aka brúðhjónum um bæinn á gömlum breskum leigubíl sem veitingahúsið keypti fyrir nokkru. Þeir sögðust gera þetta endurgjaldslaust á meðan þeir hefðu tíma og ánægju af þessu en þessi rekstur væri ekkert „planaður”. Hins vegar þurfa brúðhjónin að greiöa fyrir blóma- skreytingu á bílnum ef þau vilja en hún kostar um 1200 krónur. Nú getur fólk í giftingarhugleiðing- um fariö að leggja saman, og ef endar ná ekki saman þá er bara að banka upp á hjá borgardómara á gallabuxum og slitnum strigaskóm og drífa þetta af í einum grænum fyrir aðeins 265 krónur. Pappírsvinna Verðandi hjón þurfa að fylla út könnunarvottorð og fá tvo svaramenn á svokallað svaramannavottorð en svaramenn þurfa ekki að vera við- staddir borgardómarahjónavígslu. Einnig þarf að afhenda læknisvottorð og fæðingarvottorð. Hjá borgardóm- ara pantar fólk yfirleitt tíma fyrst. Síðan skilar það vottorðum sem til þarf a.m.k. deginum áður en vígsla fer fram. Ef annar hvor aöilinn hefur verið giftur áður þarf að sýna fram á að skilnaður hafi farið fram. Og ef annar aðilinn hefur verið giftur áður en maki er látinn verður að leggja fram vottorð skiptaréttar um að skiptum sé lokið. Þá er ekkert eftir nema standa sam- an í blíðu og striðu viö hlið hvors ann- arsumókominár... Eru leikföngin peninganna virði? I leikfangaverslunum eru til leik- föng sem kosta mikinn pening. En eru þessi leikföng peninganna virði? Þessari spumingu er ekki auðvelt að svara. Leikföng, sem barn á ár eftir ár og yngri systkini geta erft, eru að sjálfsögðu peninganna virði þó svo að þau hafi verið dýr í upphafi. En því miður eru ekki öll leikföng sem skila sér, miöað við andvirði pening- anna. örlög sumra leikfanga eru stundum aö standa óhreyfð árum saman og gegna því eina hlutverki að safna á sig ryki og minna foreldrana á að þeir hafa líklega ekki gert góð kaup. Margir hafa sjálfsagt velt því fyrir sér hvort betra er að kaupa einn dýran bíl eöa marga ódýra. Böm em ákaflega mismunandi og leikfang, sem passar mjög vel einum aldurshópi, passar alls ekki öðrum. Einn stór eða margir litlir? Það em margir sem veigra sér við því að leggja út í kaup á dýmm leikföngum. Raunin verður oftast sú að keyptir em margir ódýrir hlutir, sem seinna kemur í ljós að eru léleg leikföng og hrynja sundur eftir skamma stund öllum til mikilla von- brigða. Og það er fljótt að koma þegar einn lítill bíll er keyptur í tíma og ótíma. Þess vegna getur verið hag- stætt að kaupa nytsama, og dýrari hluti sem endast í langa tíma. Verð- gildi leikfanga er hægt að hugsa í leiktímum því lengur sem legið er meðþau þvíódýrarieruþau. En vert er að hafa í huga að mörg leikföng sem eru mjög dýr vekja áhuga barnsins bara stutta stund. Svo er annað s jónarmið sem getur ráðið kaupunum. Stærö þeirra ætti kannski að vera nokkurn veginn sú sama þannig að hægt sé að nota þau öll i sama leik. Bíllinn verður aö passa í bílskúrinn svo að eitthvað sé nefnt. Þegar bamið er komabarn er ekki eins þýðingarmikiö aö dúkkumar passi í dúkkuhúsiö. Hins vegar verður það mjög þýðingarmikið atriði þegar það er orðið sex, sjö ára. Draumar Þaö eru mörg dýr leikföng sem tengjast leyndum draumum og fela í sér ákveðið stöðutákn, Hver hefur ekki óskað þess að eiga fótstiginn bíl eða rafmagnslest? Þetta er mjög notaleg tilfinning sem flestir muna sjálfsagt að hafa haft eða hafa enn þann dag í dag þó aö fullvaxnir séu. Kaup á þessum leikföngum er stundum hægt að leysa með því að fleiri en ein fjölskylda ráöast í að kaupa viökomandi leikfang og nota það á víxl. En þetta hér að framan voru smá- hugleiðingar um leikföng sem við kaupum í leikfangabúöinni en þvi má ekki gleyma aö margt annað getur verið gullsígildi í augum barnsins. Það getur verið gömul, ónýt klukka eða notuö saumavél. Og vert er að hafa í huga að börn verða einnig að eiga leikföng sem þau geta föndrað með, eins og liti, pappír, hamar, nagla.leirogskæri. Þýtt VINSAMLEGAST LESTU ÞESSA AUGLÝSINGU ÞVÍ AÐ HÚN GETUR: FÆRT ÞÉR VINNING! | þessari auglýsingu (sjá hér til hliðar) og tveimur næstu auglýs- ingum frá PFAFF er að finna upplýsingar sem spurt verður um í lokaauglýsingu sem við nefnum 1x2 Getraunaauglýsingu. Sú auglýsing birtist hér á sama stað nk. laugardag og mun geyma fjórar spurningar sem þið finnið svar við í þessari auglýsingu, auglýsingunni í blaðinu í gær og auglýsingum í tveimur næstu tölublöðum, þ.e. fimmtudag og föstudag. í Getraunaauglýsingunni verður svar- seðill sem lesendur DV geta sent til verslunarinnar PFAFF, Borgartúni 20. Lesendur keppa um 20 verðlaun og mun auglýsingadeild DV annast drátt- inn. Verðlaunin verða fimm BRAUN vekjaraklukkur sem svara kalli, fimm BRAUN vasarakvélar, fimm Braun gaskrullujárn og fimm BRAUN kaffi- könnur. Verðmæti vinninga er samtals kr. 32.000.- GEYMIÐ ÞESSA AUGLÝSINGU ÞAR TILÁ LAUGARDAG. BRAUN VASA- RAKVÉLIN Einkenni hinna hrööu tækni- framfara er að öll tæki veröa fyrirferðarminni. Að sjálfsögðu tekur BRAUN þátt í þessari þróun. Við sjáum hér minnstu BRAUN rakvélina, sem kölluð er „vasarakvélin”, og kom á markaðinn fyrir skömmu. Hún er minni en sígarettupakki og gengur fyrir tveimur venjulegum rafhlöðum sem endast í ca 70 mínútur miðað við stöðuga notkun. Þetta er tilvalin rakvél í ferðalagið, til að hafa í hanska- hólfinu, skrifborðsskúffunni, sumarbústaðnum eða í skyrtuvasanum! Verðið er aðeins kr. 1.340,00. Verslunin PFAFF Borgartúni 20 MARGAR ÓVÆNTAR NÝJUNGAR FRÁ BRAUN í ÁR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.