Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Page 10
10 DV. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTOBER1984. „Krakarar" segja lögreglunni stríð á hendur: I óeiröunum ríla „krakarar” upp götusteinana til að grýta lögregluna Lögreglan í Amsterdam fékk það verkefni að rgma „krak” húsnœðið Singelgracht 114 sem er í miðbœnum, í 6. sinn. Þetta húsnœði var fyrst „krakað” 1976 og hefur gengið kaupum og sölum síðan. Hver nýr eigandi hefur látið rýma húsnœðið á þeirri forsendu að gera œtti það upp. Það hefur hinsvegar ýmist staðið autt eða verið krakað að nýju. Síð- asta rýming á húsnœðinu var dœmd ólögleg af dómstólum. Útburðarmálið fór svo aftur fyrir dómstólana sem úrskurð- uðu 31. ágúst síðastliðinn að húsnœðið skyldi rýmt. Lögreglan ákvað síðan að rýma húsið síðastliðinn þriðju- dagsmorgun og yfirmaður dómsmála sendi íbúum húsa í nágrenni Singelgracht aðvörunarbréf á mánudaginn þar sem bifreiðaeigendur voru beðnir um að fœra bíla sína úr götunni og vera viðbúnir hugsanlegum skemmdum á rúðum og verslunum. Sigrún Harðardóttir f Amsterdam Um morguninn útvarpaöi svo ólög- leg útvarpsstöð krakara „aö nú segöu krakarar lögreglunni stríð á hendur.” Snemma morguns voru eigendur verslana í nágrenninu í óöaönn að negla timburfleka fyrir gluggana á verslunum sínum. Einn og einn íbúðar- eigandi fór aö ráðum þeirra og byrgöi glugga á fyrstu og annarri hæð. Ráðist á sporvagna Um kl. 9.00 haföi talsverður hópur fólks safnast saman fyrir utan Singel 114 og á sama tíma hófust aðgerðir krakara í nærliggjandi götu þar sem þeir kveiktu í bifreiö. Sporvagn kom þar aö og tókst vagnstjóranum með snarræöi að afstýra slysi með því að taka í neyðarhemlana. Sporvagninn var síðan grýttur og stórskemmdur og stöðvaöist öll umferð um þessa línu fram eftir degi. I smáhópum fóru krak- arar um miðbæinn með skæruaðgerð- ir, strengdu stálkapla yfir götur og komu upp brennandi vegartálmum úr hjólbörðum, tjöru og ýmsu tilfallandi. Eldar loguðu víðsvegar um miðbæinn en voru fljótlega slökktir. Lögreglan kom upp vegartálmum í nærliggjandi götum við Singelgracht 114 og við vegartálma í Spuistraat og urðu allhörð átök milli krakara og lög- reglu. Voru 11 manns handteknir. Bíl- ar óeirðalögreglunnar voru grýttir og varð einn bíllinn fyrir eldbombu en það hafði ekki alvarlegar afleiðingar í för með sér. Buslugangur Um kl. 10 fór um 200 manna hópur óeiröalögregiu að Singel 114 ásamt 12 bifreiðum útbúnum fyrir óeirðir, bryn- bíl með háþrýstivatnsbyssu, vatns- dælubíl, vélskófla og tvær sveitir borg- arlögreglunnar tóku sér stöðu við hús- ið. Lögregian lokaði fljótlega öllum leiðum að húsinu og einangraði fremur fámennan hóp krakara. Oeirðalögregl- an dreifði sér um miðbæinn en borgar- lögreglan átti í nokkrum stimpingum við hópinn fyrir utan húsið. Nokkur ungmenni tóku að rífa grjót úr götunni og henda í hrúgu sem gegndi engum sjáanlegum tilgangi. Krakarar við húsnæðið Singel 114 tóku á móti Iög- reglu í þéttri keðju arm í arm og lög- reglan myndaði einnig slíka keðju og reyndi að mjaka krökurunum úr stað án árangurs. Það var ekki fyrr en brynbíllinn kom á vettvang og spraut- aði vatni á fólkið að tókst að rýma svæðið fyrir utan húsið. Krakaramir í húsinu helltu tjöru niður á götuna og á tröppur hússins og gerðu síðan tilraun til að kveikja í og til að vama lögregl- unni inngang í húsið neðan frá. En eld- urinn dó fljótt út og náði ekki að valda neinum skaöa. Hinum megin síkisins söfnuðust saman þúsundir áhorfenda sem höfðu mikla samúð með aðgerðum krakaranna. Sagaði sór leið í gegnum þakið Stuttu fyrir kl. 11 réðst óeiröalög- reglan að húsnæðinu ofan frá. Komst hún upp á þak frá nærliggjandi skrif- stofuhúsnæði og söguðu þeir gat á þak- ið með vélsög. Krakararnir í húsinu svöruðu með reyksprengju. Lögreglan varð að saga sér leiö á milli hæða því að krakarar lokuðu á eftir sér hverri hæðinni af annarri svo þaö leið þó nokkur tími þar til lögreglan hafði náð að taka efstu 3. hæðirnar. Er lögreglan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.