Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Síða 18
DV. MIÐVKUDAGUR 31. OKTÖBER1984.
18
RASTVÖ
09.45
10.00
Viö leggjum leið okkar upp í nýja Ut-
varpshús á miðvikudegi í rigningu og
slagviöri í þeim tilgangi að fylgjast
með á rás tvö einn dag. Tilefnið; að
nýr meölimur hefur bæst við í útvarps-
fjölskylduna og forvitnilegt að sjá
hvernig afkvæminu vegnar.
Fyrir utan er heldur hráslagalegt
um að litast. Jaröýtur og vörubílar
spóla fram og til baka í moldarflaginu
á bílastæðinu og erfitt aö ímynda sér
að fagrir tónar frá rás tvö eigi upptök
sín á svona stað.
Þegar við komum inn er okkur strax
fylgt inn í kaffistofu þar sem þeir
morgunþáttarmenn, Jón Olafsson og
Kristján Sigurjónsson, eru að leggja
síðustu hönd á handritin sín.
„Þetta verður algjör íþróttaþáttur,”
segir Jón okkur.
Landsleikurinn milli Islands og
Wales á að fara fram þetta kvöld og
búiö aö boða sex íþróttamenn í viðtöl.
„Fyrst ætlum viö að spjalla viö Guð-
ríði Guðjónsdóttur knattspyrnukonu
og Víði Sigurösson íþróttafréttamann.
Síðan koma Marteinn Geirsson og Við-
ar Halldórsson sem báðir spiluöu á
móti Wales fyrir þremur árum. Og loks
rúsínan í pylsuendanum þeir AtU Eð-
valdsson og Janus Guölaugsson sem
báðir verða með í kvöld,” bætir Krist-
ján við.
Þegar klukkan er farin aö nálgast tíu
ískyggilega er ég farin að iða í sætinu.
Hvernig geta mennirnir verið svona
afslappaðir? Ertu aldrei nervös, spyr
ég Jón.
„Eg er ailtaf taugaspenntur fyrst, en
svo líður mér betur þegar ég er búinn
að vera 15—20 mínútur í þættinum. A
meðan á þættinum stendur drekk ég
ómælt vatn því ég verð alltaf þurr í
kverkunum hvort sem það er taug-
unum að kenna eða ekki.”
10.15
10.30
Morgunþáttarmenn leggja siöustu hönd á handrítin.
Við komum okkur fyrir í stúdíóinu
ásamt Guðlaugi tæknimanni og Krist-
jáni sem ætlar aö byrja þáttinn. Við
erum öll með heyrnartól og þegar Jón
Múli mælir neðan af Skúlagötu: „Ut-
varp Reykjavík, klukkan er tíu,” fer
Kristján að dingla löppunum. Það er
komið að honum aö taka við héðan af
rás tvö. Síðan heyrist stefiö góðkunna.
Utsendingin er hafin.
Þaö er afslappaö andrúmsloft i
stúdíóinu. Dauf birta og vel hljóðein-
angraö. Það gerir heldur ekkert til þó
rápað sé inn og út meöan á útsendingu
stendur því hurðimar lokast hljóð-
laust. Það var haft á orði að meðan
byggingaframkvæmdir stóðu sem
hæst voru boruð göt í þakið á stærð við
bifreið og þó menn væru að ærast
alls staöar í húsinu, heyrðist ekkert inn
í stúdíóið.
út. Annars er það undantekning ef það
verða einhver vandræði.”
I þann mund hljómar fyrsta auglýs-
ing dagsins.
10.45
Gestaplötusnúðurinn, sem er fastur
liður á miðvikudögum, er mættur á
svæðið. Að þessu sinni er það Sverrir
(Olafsson) Stormsker, ljóðskáld með
meiru, sem fær að velja og kynna
nokkur lög í þættinum. Hann fær ritvél
til umráða og undirbýr sig af miklu
kappi. A meðan setjumst við að nýju
inn í stúdíóið ásamt Marteini og Viðari
og spáum í úrslit kvöldsins.
11.00
Jón stormar inn í stúdíóið ásamt
fyrstu gestunum, þeim Guðríði og Víði,
sem ætla að vera meö bollaleggingar
um leikinn.
Marteinn og Viðar eru mættir
frammi í kaffistofu og fara yfir spum-
ingar.
„Menn setjast gjarnan hér og fá sér
kaffi og ég reyni að róa þá niður,” út-
skýrir Jón.
Hefur þú aldrei lent í vandræðum
með að fólk frjósi í viðtali?
„Nei, það er örsjaldan. Eg man eftir
einum sem fór alveg í kerfi rétt áður en
ég byrjaði viðtalið. Hann baðaöi út
öllum öngum, tók um magann og vildi
11.30
Marteinn Geirsson og Viðar Halldórsson róuðu taugarnar yfir kaffíbolla
fyrir viðtalið.
Sverrir er tilbúinn. Honum er boðið
upp á tyggjó til að liðka kjálkana, en
ráölagt að taka það út úr sér þegar
hann byr jar aö kynna.
Hvar ætlar þú að setja tyggjóið?
„En sú spurning. Eg er með stóra
holu í tönninni. Kem heilli nautasteik
ef því er fyrir að fara, og þar set ég
tyggjóið. Hafðu engar áhyggjur.”
Var ekki erfitt að velja lög í þáttinn?
„Nei, það var ekkert mál, því ég á
bara eina plötu — safnplötu — svo ég
valdi bara fjögur lög af henni sem hafa
hitt mig í hjartastað. Annars er ég
mikill músíkmaður. Spila á vatnsorgel
á Aski.
Vatnsorgel, hvað er nú það?
„Einn gestanna sagði eitt sinn aö
þetta væri nú hálfgerður vatnsgrautur
sem ég spilaði og síðan hefur þetta
nafn fest við orgelið,” segir Sverrir og
vindur sér síðan í fyrstu kynninguna.
Eg heyri ekki betur en hann smjatti
enn á tyggjóinu.
svo þurfum við að semja spumingar í
viðtölin.”
„I dag verð ég héma til fimm til að
undirbúa þáttinn í fyrramálið en Jón
fær að fara heim núna klukkan tólf,”
bætir Kristján við.
12.00
Rás eitt hefur tekið við að nýju en á
rás tvö er engu að síöur haldið áfram
venjulegu skrifstofustarfi. Síminn er
opinn fyrir auglýsendur og þá sem
vilja koma að skilaboöum eöa kvarta.
Að þessu sinni er lítið um kvartanir,
nema hvað einn er óánægöur með að
ekki sé sagt nægilega oft hvaö klukkan
14.00
Rás tvö er aftur komin í gang, og við
taka klukkustundarlangir þema-þættir
það sem eftir er dagsins.
Fyrst er Ut um hvippinn og hvapp-
inn með Inger A. Aikmann við stjóm-
völinn.
„Eg spila frekar rólegri músík en
reyni að vera með blandað lagaval,”
segir Inger.
Inger er ein af fáum konum á rás
tvö. Hún starfar sem stendur sem
skrifstofustúlka en langar í fjölmiðla-
fræði.
„Eg sló til og sótti um héma á rás-
inni og hef veriö með þátt einu sinni í
viku síðan í júlí. Þetta hefur síður en
svo dregið úr áhuganum á fjölmiðl-
um.”
Inger fær sér vatnssopa, ræskir sig
og kynnir næstu plötu. Eg læt fara lítið
fyrir mér á meöan. Hef meira að segja
svolitlar áhyggjur af því aö nærvera
min trufli hana, hún er svo nýbyrjuð.
„Eigum við aö spila mikið af Stevie
Wonder laginu,” skýtur Pálína tækni-
maður inn í.
Inger A. Aikmann brosir sinu bliðasta, hún er augljóslega ánægð með
starfið.
Nú eru aðeins sex tímar þangað til
flautað verður til leiks á Laugardals-
velli. Atli og Janus eru mættir í við-
talið. Þeir eru á mikilli hraðferð, mæta
á æfingagallanum og láta leigubílinn
bíða fyrir utan á meöan.
Þegar fótboltahetjumar eru farnar
fer heldur að hægjast um hjá þeim Jóni
og Kristjáni.
„Nú spilum við bara og kynnum
fram tiltólf. Algjörrútína.”
Eg nota tækifærið til að hlýða þeim
yfir.
„Þetta krefst allt mikils undirbún-
ings. Fólk heldur aö við bullum allt upp
úr okkur en við höfum allt skrifaö
niður sem við segjum,” segir Jón. „Við
þurfum að tímamæla og merkja lögin
inn á handritið fyrir tæknimanninn og
Þeir fólagar, Janus Guðlaugsson og Atli Eðvaldsson, mættu á æfingagall-
anum.