Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1984, Side 32
32 DV. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTOBER1984. Sigríður Guðjónsdóttir lést 25. nóvember sl. Hún var fædd 25. nóvember 1903. Foreldrar hennar voru hjónin Engilbertína Hafiiðadóttir og Guðjón Guömundsson. Eftirlifandi eiginmaöur Sigríðar er Sigurkarl Stef- ánsson. Þau hjónin eignuðust sex börn. Utför Sigríöar verður gerð frá Hali- grímskirkju í dag kl. 13.30. Krlstján Kristjánsson lést 22. október sl. Hann fæddist i Meðaldal 18. mars 1897. Foreldrar hans voru hjónin Kristján Andrésson og Helga Ingibjörg Bergsdóttir. Kristján kvæntist Hlíf Magnúsdóttur en hún lést árið 1967. Þau hjónin eignuðust fjögur börn. Ut- för Kristjáns verður gerð frá Dóm- kirkjunni i dag kl. 13.30. Einar Ágústsson andaðist á heimili sínu, Hólagötu 26 Vestmannaeyjum, 18. september sl. Hann var fæddur í Vestmannaeyjum 13. apríl 1927, sonur hjónanna Guðnýjar Pálsdóttur og Ágústs Þ. Guðmundssonar. Eftirlif- andi eiginkona Einars er Erla Har- aidsdóttir. Otför hans var gerð frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, 29. september sl. Guðmundur Brynjólfsson, elliheimil- inu Garðvangi Garði, áður Klapparstíg 16 Njarðvík, andaðist í sjúkrahúsi Keflavíkur 28. október. Jarðarförin fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 3. nóvember kl. 14. Charles W. J. Magnússon, Lambeyrar- braut 10 Eskifiröi, andaðist föstudaginn 26. október. Jaröarförin fer fram frá Eskif jaröarkirkju laugar- daginn 3. nóvember kl. 14. Haraldur Sveinbjörnsson kaupmaður, Snorrabraut 22, lést á Borgarspítal- anum 24. október sl. Otför hans verður gerö frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 1. nóvember kl. 13.30. Jarðsett verður í Garöakirkjugarði. Steinunn Þorgllsdóttlr, Breiðabóls- stað, Fellsströnd Dalasýslu, andaðist 4. október sl. Hún var fædd í Knarrar- höfn í Hvammssveit 12. júní 1892, dótt- ir hjónanna Halldóru Sigmundsdóttur og Þorgils Friðrikssonar, bónda og kennara. Steinunn lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 1914. Hún stundaði barnakennslu í f jöl- mörg ár auk ýmissa annarra félags- starfa. Hinn 23. júní 1918 giftist hún Þórði Kristjánssyni, bónda og hrepp- stjóra á Breiöabólsstað, hann andaðist árið 1967. Þórunn Ámadóttlr, Drápuhlíð 18, verður jarðsett frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1. nóvember kl. 13.30. Þóra Sigfúsdóttir kaupmaður, Gils- bakkavegi 9 Ákureyri, andaöist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 28. október. Minningarathöfn verður í Akureyrarkirkju föstudaginn 2. nóvember kl. 13.30. Jaröað verður frá Stærri-Arskógskirkju laugardaginn 3. nóvember kl. 14. Svanhvít Sveinsdóttir, Vík í Mýrdal, lést á Vifilsstaðaspítala sunnudaginn 28. október. Ari Jónsson, fyrrverandi yfirfiskmats- maöur, Lindargötu 3 Sauðárkróki, lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 23. október. Jarðarförin fer fram frá Sauöárkrókskirkju laugardaginn 3. nóvemberkl. 14. Jónas Karlsson, sem andaðist 10. september sl., var jarðsunginn frá Dómkirkjunni 18. sama mánaðar. Ragnar Jóhannesson, fyrrverandi for- stjóri, Laugateigi 23 Reykjavík, and- aðist á Borgarspítalanum 29. október sl. Otförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 5. nóvember kl. 13.30. Sýningar Jakob Jónsson í listasafni ASÍ Sýningin framlengd til 4. nóv. Jakob Jónsson er fæddur á Bíldudal 1936. Hann hóf myndlistamám 1965 á Ny Carlsberg Glyptotek og að því loknu stundaöi hann nám í Listaháskólanum hjá prófessor S. Hjort Nielsen, en þar lauk hann námi árið 1971. Jakob hefur áður haldið tvær einkasýning- ar, í Bogasal Þjóðminjasafnsins áriö 1976 og í Listasafni ASl árið 1981. A sýningunni eru 48 olíumálverk og 5 teikn- ingar. Sýningin er nú framlengd til sunnudagsins 4. nóv. og er opin daglega kl. 14.—22. Aðalfundir Samband veitinga- og gistihúsa Aðalfundur verður haldinn í Skíöaskáianum Hveradölum, 1. nóvember nk. Rútuferð verður frá Hótel Esju kl. 11. Þátttaka óskast tilkynnt í símum 27410 eða 621410 Aðalfundur UBK Aðalfundur knattspyrnudeildar UBK verður haldinn i félagsheimilinu laugardaginn 3. nóvemberkl. 13. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Aðalfundur pöntunarfélags Náttúru- lækningafélags Reykjavikur verður haidinn miðvikudaginn 7. nóvember kl. 20.30 , að Laugavegi 25. Venjuleg fundarstörf. Stjórnin. Fundir Landsfundur Samtaka um Kvennalista verður haldinn dagana 3. og 4. nóv. 1984 að Hótel Loftleiðum, Kristalssal. Dagskrá fundarins hefst kl. 9 árdegis. Konur, vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu Kvennalistans í Kvennahúsinu, sími 13725. Landsfundarnefnd. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur fund á Hallveigarstöðum fimmtudag- inn 1. nóvember kl. 20.30. Kvenfélag Hallgrfmskirkju Fundurinn sem átti að vera 1. nóvember nk. fellur niður vegna kirkjuþings. Næsti fundur félagsins, sem er jólafundurinn, verður 6. desember. Basarinn verður 17.nóvember. Basar í safnaðarheimili Langholtskirkju Basar verður í Safnaðarheimili Langholts- kirkju laugardaginn 3. nóvember kl. 14. Orval handunnina muna, heimabakaðar kök- ur, happdrætti. Allur ágóði rennur í byggingarsjóð Langholts- kirkjuíReykjavík. Móttaka á munum kl. 17—22 föstudag og kl. 10—12 laugardag. Kvenfélag Langholtssóknar. Verkakvennafólagið Framsókn minnir á hinn árlega basar sinn á Hallveigar- stöðum 17. nóvember nk. Byrjað er að safna basarmunum og væntir stjórn féiagsins að félagsmenn og velunnarar komi munum á basarinn í skrifstofu félagsins, Hverfisgötu 8—10 (Alþýðuhúsið), á venjulegum skrifstofu- tíma. Kvenfélag Kópavogs Félagskonur, tekið verður á móti basarmun- um i félagsheimiiinu föstudagskvöldið 2. nóv. frá kl. 20—22, laugardaginn 3. nóv. frá kl. 14— 18 og sunnudagsmorgun tii hádegis. Golfskóli Þorvaldar Golfskóli Þorvaldar tekur aftur til starfa nú í byrjun nóvember. Kennsla er bæði fyrir byrj- endur og lengra komna í íþróttinni og öllum opin. Kennslan fer fram innanhúss og verðurí íþróttahúsinu Asgarði í Garðabæ. Allar nánari upplýsingar eru gefnar i síma 34390. Fundur hjá Vísindafélagi ís- lendinga Fyrsti fundur Vísindafélags Islendinga á þessum vetri verður haldinn í Norræna hús- inu miðvikudaginn 31. október 1964 og hefst kl. 20.30. A fundinum mun Alfrún Gunnlaugs- dóttir dósent flytja fyrirlestur um franskt miðaldakvæði sem var ort um Jórsalaferð Karlamagnúsar keisara, iíklega á 12. öld, og þýðingu á því kvæði sem talið er að hafi verið gerð í Noregi á 13. öld. Þýðingin er í óbundnu máli. Leiklist Frumsýning hjá íslensku óperunni Föstudaginn 2. nóvember frumsýnir Islenska óperan Carmen eftir Bizet. Hljómsveitar-1 stjóri er Marc Tardue. Leikstjóri Þórhildur I Þorleifsdóttir. Leikmynd og búninga gerði Una Collins og lýsingu annast David Walters. I aðalhlutverkum eru Sigríður Ella Magnús- dóttir, Garðar Cortes, Olöf Kolbrún Harðar-I dóttir og Simon Vaughan. Miðasala er opin frá kl. 15—19, nema sýningardaga til kl. 20. Happdrætti Dregið hefur verið í happdrætti knatt- spymudeildar Víkings. Vinningsnúmer eru sem hér segir: 2039, 502,7193,7186, 1659. Knattspyrnudeild Víkings þakkar veittan stuðning. Tilkynningar Nóvemberfagnaður MÍR Félagið MIR, Menningartengsl Islands og Ráðstjórnarríkjanna, minnist 67 ára a&nælis Októberbyltingarinnar í Rússlandi á síðdegis- samkomu að Hótel Hofi við Rauðarárstíg sunnudaginn 4. nóv. kl. 15. Ávörp flytja: Evgeníj A. Kosarév, sendiherra Sovétríkj- anna á Isiandi og Jón Múli Arnason útvarps- maöur. Reynir Jónasson leikur á harmóníku og efnt verður til happdrættis. Kaffiveitingar milli dagskráratriða. Allir velkomnir. Ljósmyndasýning verður opnuð í húsnæði MlR að Vatnsstig 10 laugardaginn 3. nóvember kl. 16. Á sýning- unni eru myndir frá Sovétríkjunum, úr ýms- um áttum, m.a. frá Voigu, íþróttum, viðburð- um á liðnu sumri o.fl. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Eiðfaxi, 9. tbl., er kominn út Þar er að finna ýmsar greinar um hesta og hestamennsku. Fjallað er um færeyska hesta- menn i heimsókn á fslandi, spjallað við Ingvar Hallgrímsson úr Keflavík og Möðru- dalshjónin. Vemharð VUhjálmsson og önnu Birnu Snæþórsdóttur. Leifur Sveinsson skrif- ar um ferð yfir Skeiðarársand sumarið 1935 og skrifað er um Islandsmót í hestaíþróttum áriö 1984. Knúið er dyra hjá Sigfúsi Þorsteins- syni á Skálateigi og fjallað um stórmótið á Hellu, hestaþing á Melgerðismelum og hesta- mót Skagfirðinga. Auk þess eru ýmsar smá- fréttir i biaðinu. Tvœr íslenskar listakonur sýna í Svíþjóð Tveim íslenskum listakonum, þeim Ástríði Andersen og Sigrúnu Jónsdóttur, hefur verið boðið að halda sýningu á verkum sínum í Gavle Slott þar sem eru sýningarsalir en um leið er þar bústaður landshöfðingjans i Gavle. Gavle Slott er byggt á 16. öld og kemur mikið við sögu Svíþjóðar. Uppsala er hálfa vegu milli Stokkhólms og Gavle og íbúar í Gávie eru ea. 300.000 manns. Sýningin mun standa í tvær vikur og hyggjast listakonumar sýna þar töluvert af verkum sínum. Ástríður sýnir þar um 35 málverk og Sigrún 40—50 verk, kirkjulega listmuni, ofnar veggmyndir, batik og fleira. Landshöfðinginn opnaði sýninguna ásamt sendiherra Islands í Svíþjóð, Benedikt Gröndal, þann 27. október að viðstaddri lands- höfðingjafrú og sendiherrafrú. Minntust þeir Islands og samskipta landanna gegnum aldirnar. Tapað -fundið Lœða í óskilum Þessi læða er í óskilum í Einholti 11. Hún er svört, hvít og brún, með brúnt trýni og fannst hún fyrir mánuði. Upplýsingar í síma 15893. Norðmennirnir sigruðu okkur á élympíumótinu Basarar Húsmæðrafélag Reykjavíkur Basarinn og flóamarkaðurinn veröur að Hall- veigarstöðum sunnudaginn 4. nóvember kl. 14. Mikið úrval verður af handavinnu, ullar- vörum, s.s. peysum, vettlingum og hosum, fallegar svuntur, lukkupokar og margt fleira. Þeir sem ætla að gef a okkur eru beðnir að iáta vita í símum 81759 og 14617. Islenska bridgesveitin á ólympíu- mótinu í Seattle vann Antilópueyjar, 20—10, í sjöundu umferð í gær en mætti í áttundu umferö norsku sveitinni og tapaöi fyrir henni, 5—25. Er hún þá komin með 143 stig og er í 6. sæti í riölinum. — Leiörétt höföu ver- iö úrslitin við Spán úr 23—7 i 24—6 Is- landi í vil. I kvöld munu Islendingamir spila viö Kína, Filippseyjar og Pakistan. -GP.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.