Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1984, Page 40
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og rfreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984.
Um nýju samningana:
Beiskur
- kaleikur
fráBSRB
— segir Páll Sigurjóns-
son, formaðurVSÍ
„Þessir samningar eru ekki jafn-
góðir fyrir þjóðina og þeir samningar
sem viö gátum gert fyrir skömmu. Eg
vona að þeir reynist þjóðinni ekki of
dýrkeyptir,” sagði Páll Sigurjónsson,
formaður Vinnuveitendasambandsins.
Þeir samningar sem Páll vísar hér
til er svonefnd skattaleið. En hvaða
mistök komu í veg f yrir að slíkir samn-
ingar yröu geröir þar sem báðir aöilar
voru sammála um að það væri betri
■Þ-kostur?
„Þetta var ný leið. Það þarf tíma til
aö menn geri sér grein fyrir að samn-
ingar um háar prósentutölur þýöa ekki
miklar k jarabætur.
Það er einnig ljóst að eftir samninga
BSRB var settur rammi um samning-
ana. Það er ekki hægt að hafa tvö
skattalög í landinu. Þessi beiski kaleik-
ur sem við verðum nú að kneyfa af er
réttur til okkar frá BSRB. Eg vona að
þetta verði ekki þjóöinni of dýr lexía,”
sagðiPállSigurjónsson. ÖEF
Óvarin
fyrir verð-
hækkunum
— segir Guömundur
Þ. Jónsson
„Það má líta á þennan samning frá
tveimur hliöum,” sagði Guðmundur Þ.
Jónsson, formaður Landssambands
iðnverkafólks, að lokinni undirskrift
samningsins í gær.
„Hann felur í sér töluverðar kaup-
hækkanir og við náðum út tvöfalda
..kerfinu. Það má líka benda á að okkar
eldri félagar fá starfsaldurshækkanir
ogkomabeturút.
En stóri gallinn er að í þessum
samningi eru ekki neinar tryggingar.
Við erum óvarin fyrir verðhækkunum
og gengisfellingum þannig aö ég óttast
aö það veröi litið eftir þegar upp er
staöið. Það er að vísu ákvæði um end-
urskoðun en það tryggir okkur ekki
fyrir þessu. Að þessu leyti tel ég þetta
slæman samning,” sagði Guðmundur
Þ. Jónsson. ÖEF
— sjá bls. 3
V/SA
Um veröld alla.
LOKI
Reeekann/
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í DV-yfirheyrslu:
VILL Þ0RSTEIN 0G
HELST KRATA MEÐ
Forsætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, segir í DV-yfir-
heyrslu í blaöinu í dag að hann telji
mjög mikilvægt að fá Þorstein Páls-
son, formann Sjálfstæðisflokksins, í
ríkisstjórnina. Jafnframt segir hann
að Alþýðuflokknum hafi verið boðin
stjómarþátttaka viö myndun
stjórnarinnar og aftur nú. Hann
heldur að hin opinbera umræða um
þetta nú hafi drepið málið í fæðingu.
Steingrímur segist hafa verið
mjög áhugasamur um að fá krata
með I stjórnina og sama sé að segja
um varaformann Framsóknar-
flokksins, Halldór Ásgrimsson. „Því
miður treystu þeir sér ekki þá en ég
er enn sama sinnis,” segir forsætis-
ráðherra í yfirheyrslunni. Og hann
segir að báðir flokkar hafi verið
tilbúnir nú til þess að rýma sæti fyrir
alþýðuflokksráðherrum.
Þá telur forsætisráðherra ýmsar
breytingar á skiptingu ráðuneyta
koma til greina, jafnvel að Þorsteinn
Pálsson taki viö af honum í brúnni
þótt engin ósk hafi komið fram um
það. Loks má nefna að Steingrímur
segir þá framsóknarmenn hreint
ekki eins óánægða meö samstarfið
við sjálfstæðismenn og ýmsir vilji
vera láta. -HERB.
- sjá bls. 2
Albert Guðmundsson f jármálaráðherra:
„NÆR AÐ GEFA STJÓRN-
INNISTARFSFRH)”
„Það er ekki til neins annars en að
spUIa fyrir góðum árangri og tefja
fyrir æskUegri þróun mála að vera
sifellt með þær hugleiðingar á lofti að
breytingar á ríkisstjórninni séu eitt-
hvert höfuðatriöi. Það væri nær að
gefa stjórnlnni starfsfrið,” segir
Albert Guðmundsson fjármóla-
ráðherra um hugsanlegar breyting-
ar á rikisstjóminni.
„Þessi ríkisstjórn hefur náð
miklum árangri við erflðar
aðstæður. Jafnvel þótt okkur miði
aftur á bak í augnablikinu hefur þó
tekist að ná veröbólgunni á skömm-
um tíma niöur úr 130% um að
minnsta kosti 100%. Það segir að
mínum dómi meira en allt annað.
Það er ekki venja að segja
mönnum upp störfum fyrir góðan
árangur heldur slæman og ég sé ekki
að nein ástæða sé til mannaskipta i
stjóminni ef þau snúast aöeins um
mannanöfn og engin málefni.”.HERB.
Páll Pétursson,
formadur þingf lokks
framsóknarmanna:
„Ennþá
ákveðnirí
þessari
ríkisstjóm”
„Eg hef enga trú á því að nokkur
alvara sé í þátttöku lítils flokks, þriðja
flokksins, í rikisstjórninni. Við fram-
sóknarmenn erum ágætlega ánægöir
meö okkar ráðherra og ennþá ákveðnir
í að halda í þessa ríkisstjóm,” sagði
Páll Pétursson, formaður þingflokks
Framsóknarflokksins, um hugsanleg-
ar breytingar á ríkisstjórninni.
„Þótt stjómina hafi borið aðeins af
leið í bili hef ég fulla trú á því að hún
geti náð aftur góðum tökum á
málunum. Þar skiptir öllu að halda
kaupmætti hjá almenningi og skera
annað en kaupið. En ef samstarfs-
flokkurinn er í vandræðum með eitt-
hvað af sínum ráðuneytum getum við
alveg bætt við okkur.”
— Ekki virðast allir jafnánægöir og
þú með stjómina. Til dæmis hvetur NT
til kosninga.
„NT er kannski ekki aðalspíkerinn
fyrir okkur núna og ég hef svo sem
engar sérstakar áhyggjur af því sem
þarstendur.” -HERB.
Ólympíumótið:
Góður
árangur
Islenska bridgesveitin á ólympíu-
mótinu í Seattle náði ágætisárangri
þegar hún endaði í 9. sæti í B-riðli sem
þótti af flestum skipaður sterkari þátt-
tökuþjóðum en A-riðillinn. Má jafna
það til þess aö hún hafi endað í 15.—17.
sæti af 54 þátttakendum.
Síðasta mótsdaginn spilaði hún við
Bandaríkin og fékk 7 stig á móti 23 en
vann Marokkó í síðustu umferðinni,
25—2, og hlaut alls 456 stig. — Varð hún
hálfu stigi á eftir Argentínu, sem var í
8. sæti og einu stigi á eftir Astralíu í 7.
sætinu.
I B-riðli urðu þessar þjóðir efstar:
Indónesía 531 stig, USA 509, Italía 508,
Pakistan 482, Svíþjóð 479. I A-riðli:
Pólland 532 stig, Danmörk 520, Austur-
ríki 508, Frakkland 502, Indland 480.
Fjórar efstu þjóðir úr hvorum riðli
spila til úrslita.
I kvennaflokki urðu Holland, USA,
FrakklandogBretlandefst. -GP.
Leitarf lokkar, sporhundur og þyrla leita að manni:
Sat á hóteli og
hafði það náðugt
Mikil leit var gerð að manni sem nóttina. Björgunarsveitir voru Leitaði hún ásamt mönnum og
var gestkomandi í sumarhúsi í kallaðar út, sporhundur fenginn alla hundi fram að hádegi er tilkynning
Þrastalundi um siðastliðna helgi. leið úr Hafnarfirði og um klukkan 10 barst frá stjómstöð um aö maöurinn
á sunnudagsmorgni hóf hin nýja, væri fundinn heill á húfi. Sat hann þá
Maðurinn yfirgaf bústað sinn rétt franska þyrla Landhelgisgæslunnar á hóteli á Selfossi og hafði þaö huggu-
fyrir miðnætti á laugardag og fóru sig til flugs í Reykjavik og tók legt.
menn að óttast um hann er líða tók á stefnuna á Þrastalund. -EIR.