Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Page 4
4 DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984. Boeing-fíugstjóri reifst við þreyttan fíugumferðarstjóra — um það leyti sem tvær Flugleiðaþotur rákust nærri saman Ekki munaöi nema nokkrum metrum að 6. september 1984 yrði einn svartasti dagur Islands- sögunnar. Þann dag voru tvær íslenskar farþegaþotur, báðar frá Flugleiðum, nærri lentar í árekstri í 10.500 feta hæð um 24 sjómílur frá Keflavíkurflugvelli, eins og fram kom í DV í gær. Alls voru 403 menn um borð í þotunum. Þarna heföi getað orðið næstmesta flugslys heimssögunnar. Mesta flugslysið varö á Tenerife árið 1977 er tvær júmbóþotur rákust saman á flugbraut með þeim af- leiöingum að 565 menn létu lífiö. I blaöinu í gær var sagt lauslega frá atburöinum. Hér á eftir verður honum lýst nánar og greint frá sér- kennilegri orðasennu sem varð milli flugstjóra annarrar þotunnar og flugumferöarstjóra. Frumorsök atviksins er sú aö þotunum var hleypt í loftiö með aðeins einnar mínútu millibili af sömu flugbraut og í sömu klifur- stefnu. DC-8 þotan TF-FIB fór í loftiö klukkan 7.31 aö morgni fimmtudagsins 6. september. Klukkan 7.32 hóf Boeing 727 þota sig á loft. Flugumferöarstjóri viröist ekki hafa áttað sig á því að Boeing-þotan klifraði mun hraðar en DC-8 þotan. Hann hélt þvert á móti að DC-8 þotan klifraði hraðar og taldi sig hafa um það upplýsingar f rá Flugleiðum. Flugstjóri Boeing- þotunnar kvartar Þremur mínútum eftir flugtak, nánar tiltekiö klukkan 7:35:35, kallar flugstjóri Boeing 727 upp flug- tuminnogsegir: „Eg er ekki sérlega sáttur með þennan clearance hjá ykkur, sé ekki betur en að við séum svona á converging course” (samliggjandi ferlar). Flugumferðarstjórinn segir flug- stjóranum að hann hafi báðar vélarnar hjá sér á radar. En flug- stjórinn er ekki sáttur: , ,Við s jáum nú vel reyndar áttuna, sko .. . en mér þykir þetta svolítið dapurlegur clearance að fá, ef aö ... við þurfum sjálfir að fara aö passa okkur á því aö lenda ekki á þeim .. . það er engin restriction (takmörkun) trúi ég hér á ... klifurhraða, er það?” segir Boeing- flugstjórinn. Flugumferðarstjórinn svarar: „Jú, þið eruð báðir á radar, enda sagöi ég RADAR CONTACT strax eftirflugtak.” Flugstjórinn: „Já, ég veit það. Viö erum báðir á radar . . . Hvað ætlarðu að gera ef radarinn bilar? . . . Ertu með eitthvað backup? ” Athyglisvert er að þeir nota báðir íslenskuna þrátt fyrir aö reglur segi að tala eigi saman á ensku á þessari flugbylgju. Árekstrarhættan mjög mikil Næsta verk flugumferðarstjórans er að kalla í DC-8 þotuna og spyrja um flughæð. Svarið er 9.500 fet. Flug- umferðarstjórinn skipar síðan Boeing-þotunni að halda sig eitt þúsund fetum undir DC-8 þotunni. Það er um þetta leyti sem DC-8 flug- mennirnir sjá Boeing-þotuna koma á ská „undan” þeim frá hægri. Bar þeim saman um að árekstrarhættan hefði verið mjög mikil. Boeing-flugstjórinn kallar upp DC-8 þotuna og segir (í hæðnistón?): „Nú verður þú, Magnús, að kalla hver þúsund fet, skilst mér, því að við eigum að vera þúsund fetum fyrirneðanþig.” DC-8 flugstjórinn svarar á ensku og segir að hann hafi veriö á 250 mílna hraða upp í 10 þúsund fet og sé aö fara upp á 300 mílna hraða. Boeing-flugstjórinn: „Jú, við getum farið að gefa þeim frí núna, þessum kontrollerum, ef við eigum að fara aö sjá um þetta sjálfir.” Flugumferöarstjórinn: „Þetta er alls ekki rétt. . . því að héma . . . það er radaraöskilnaður, þaö var . . . það eina sem er og þið getið fylgst með honum. ” Boeing-flugstjórinn: „Nei, viö skulum ræöa þetta seinna.” Sólin blindaði flugmennina DC-8 flugstjórinn: „O.K. 614, passing 110, (11 þúsund fet), 23 and pretty, pretty close to company 727.” Boeing-flugstjórinn. „Nú er ég búinn að týna þér, Magnús, af því að þú ert í sólinni.” DC-8 flugstjórinn svarar með því að segja aö hann hafi verið aö klifra í gegnum 11 þúsund fet. Boeing-flug- stjórinn segist vera að fara í gegnum 13 þúsund fet. DC-8þotan: „We had about a near-miss through 25 miles, we had a company passing through our level.” Flugumferðarstjórinn: „Iceair 232 (Boeing-þotan). You are to blimb below Iceair 614 (DC- 8).” Boeing-f lugstjórinn: „Hvernig í ósköpunum á ég að vita þaö, drengur, hvað hann klifrar. Þú veröur að gefa mér einhverja hæð. Ég held aö ég sé kominn upp fyrir hann hreinlega.” Rifrildið heldur áfram Flugumferöarstjórinn: „Hann átti að gefa hæöina til þín.” Boeing-flugstjórinn: „Atti hann að gera þaö . . . Ég heyrði þig aldrei segja það. Ég sagði þetta reyndar viö hann.” DC-8 þotan: „ . .. andpassingllOandwehave company to our left at about. .. feet and we are presently passing 130 (13 þúsundfet).” Flugumf erðarst jórinn: Iceair 232. Keflavik Approach. You are to climb below Iceair 614 and he reported levels to you. ” Boeing-f lugstjórinn: „Ja, heyrðu kallinn minn. Eg er í 140núna (14þúsundfetum),sko,áég þá að bíöa þangað til hann er kominn upp fy rir mig aftur, eöa hvað? ” Frekar rekjum við ekki þessi tal- stöövarviðskipti. I skýrslu rannsókn- arnefndarinnar segir: „Samkvæmt reglum skulu viðskipti á viðkomandi flugstjómarbylgju fara fram á ensku. Þær eru ekki vettvangur fyrir samræður eins og þær sem hér fóru fram.” Rannsóknarnefnd loftferöa- eftirlitsms, sem skipuð var þeim Skúla Jóni Siguröarsyni, rannsókn- armanni flugslysa, Magnúsi Guð- mundssyni, fyrrverandi flugstjóra, og Þóri E. Magnússyni flugum- feröarstjóra.segir í skýrslu sinni að brottfararheimild hafi veriö gefin með einnar mínútu millibili án nokkurra takmarkana. Boeing-þotan hélt óbreyttri stefnu I niðurstöðum nefndarinnar segir ennfremur að flugstjóri Boeing- þotunnar hafi haft orð á því tveimur og hálfri mínútu fyrir atvikið að hann væri ekki ánægöur með fiug- heimildina og að hann sæi ekki betur en að þeir væru „svona á converging course”. Samt hélt flugvélin óbreyttri flugstefnu og telur nefndin það meöverkandi orsök þess hvernig mál þróuöust. Nefndin segir að fullvíst verði að telja að þegar flugumferöarstjórinn fullvissaði flugmennina um að hann hefði þoturnar á radar og þar með væri lágmarksaðskilnaði haldiö, hafi þær verið mjög nálægt hvor annarri og hættuástand fyrirsjáanlegt. Það er álit nefndarinnar að óhóf- legt vinnuálag flugumferðarstjórans og uppsöfnuð þreyta hafi að verulegu leyti ráðið viöbrögðum hans. Þórir Magnússon skilaði séráliti. Hann vill skella skuldinni á Boeing- flugstjórann. Þórir segir það stór- lega vítavert og jafnframt orsök þess hversu árekstrarhættan varð mikil að Boeing-þotan skyldi halda áfram flugi í átt að DC-8 þotunni í staö þess aö beygja af leið og fara framhjá í öruggri fjarlægð, eins og almennar flugreglur segi til um að gert skuli. Skýrsla rannsóknamefndarinnar hefur verið send ríkissaksóknara. -KMU. DC-8 þotan TF-FLB. Um borð voru 258 menn. Boeing 727 þotan TF-FLI. Um borð voru 145 menn. I dag mælir Dagfari______________j dag mælir Dagfari____________í dag mælir Dagfari Fegurðarsamkeppni foringjanna Sagan segir að formenn stjórn- málaflokkanna sumir hverjir hafi ætlað að hundsa sjónvarpsþáttinn í fyrrakvöld og neitað að taka þátt í honum. Ekki er greint frá ástæðun- um, en vera má að það hafi verið af tillitssemi við þjóðina. Formennirnir hafi sem sagt viljað forða sjónvarps- áhorfendum frá þeim leiðindum að sitja uppi meö þennan þátt í hálfan annan tíma. Ef þetta er rétt er það áreiðanlega í fyrsta skipti sem það gerist að stjórnmálamenn hafi skiln- ing á því hvað fólki finnst skemmti- legt og leiöinlegt. Yfirleitt fær al- menningur engan frið fyrir uppá- þrengjandi ásjónum hrútleiðinlegra pólitikusa og þess vegna er það þroskamerki þegar stjórnmálafor- ingjarnir átta sig á þessu. En mönnum þykir gaman að koma fram í sjónvarpi, jafnvel þótt enginn Tienni að horfa á þá, og því fór svo að lokum, aö þeir mættu allir foringj- arnir í betri fötunum, Svavar ný- klipptur, Þorsteinn með vinnuveit- endaábúðina, Steingrímur meö reif- aða höndina, Stefán Bcnediktsson með alvöruna, Jón Baldvin vinstra megin við miðju og Guðrún Agnars- dóttir meö reynsluheim kvenna í far- teskinu. Þetta var nokkurs konar fegurðarsamkeppni, þar sem orðin renna inn um annað eyrað og út um hitt, en eftir situr myndin af sexappiluum sem auðvitað ræður úr- slitum þegar til kosninga kemur. Fyrir Dagfara, sem er karlkyns, hef- ur Guðrún kvennalistakona vita- skuld vinninginn, enda hafði hún vit á því að segja sem minnst í skjóli þess að hún hefði engan tíma til að segja neitt. Fyrir kvenþjóðina hlýtur valið hins vegar að vera vandasam- ara vegna þess að karlpeningurinn í beinu útsendingunni tók sig vel út og sjarmerandi eins og lög gera ráð fyrir þegar liðsoddar atkvæðasmal- anna eru annarsvegar. í raun og veru ættu stjórnmála- flokkarnir að taka upp þá reglu að velja formenn sína meö tilliti ti) út- litsins, í stað þess að gera sífellt mál út af því, hvort þeir hafi eitthvað til brunns að bera að öðru leyti. Þetta er því augljósara þegar formönnunum er stillt upp í röð í sjónvarpssal og aðalatriðið er hvernig þeir líta út en ekki hvað þeir segja. Minna má á að ungfrú alheimur er kjörin af útliti en ekki gáfnafari og það lögmál hlýtur einnig að gilda um stjómmálamenn sem vilja ganga í augun á fólki. Að því er tilsvörin varðar mátti og heyra að þau eru fabrikeruð á flokks- skrifstofunum og vel æfð í munni þeirra sem fá að vita spurningarnar fyrirfram. í heild sinni var þátturinn vel leikinn, bæði af svarendum og spyrjendum, enda voru þeir síðar- nefndu sóttir í leikskóla flokkanna þar sem menn fá kennslu í pólitísk- um spurningaleikjum á borð við þann sem fram fór í sjónvarpssal. Þegar upp var staðiö var þaö satt að segja aðeins ein spurning sem var dálítiö frumleg og scnnilega heima- tilbúin. Það var jólasvcinaspurning- in til Steingrims. Hvaö mundi for- sætisráðherra gefa ef hann væri jóla- sveinn? Að vísu verða engar sönnur lagðar á það, að Steingrímur sé alls ekki jólasveinn, þó í öðrum skilningi sé en fæðingarhátíö Krists gengur út frá. En látum það vera. Stcingrimur var tilbúinn til að bregða sér í gervi jóla- sveinsins og gott ef ekki frelsarans einnig og hafði svar á reiðum hönd- um. Hann nefndi minnkandi verð- bólgu, erlendar skuldir, en gleymdi hinsvegar aðalgjöfmni, ncfnilega ráðherrastólnum undir Þorstein, þeim sem hann ku hafa verið að smíða þegar slysið átti sér stað. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.