Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 7
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
HVAÐ KOSTAR
JÓLAKLIPPINGIN?
Margrétá nýju rakarastofunnisinniá horniMikiubrautar og Lönguhliðar.
DV-mynd Bjarnleifur.
Eitt af því sem þarf aö sinna fyrir
jólin er að koma börnunum í jólaklipp-
inguna. Við hringdum í nokkrar
rakarastofur fyrir helgina og spuröum
um verö á barnaklippingu. Var okkur
tjóð aö jólaösin væri ekki byrjuð enn. A
flestum stöðum var frekar rólegt en
annars staðar nægileg verkefni. Pétur
rakari sagöi að nú væri ekki jólaös í
þeim skilningi sem var í gamla daga.
Það hefði ekki verið að ástæðulausu að
rakarar auglýstu „Krakkar ekki
klipptir 3 síöustu daga fyrir jól”. Þaö
var nauðsynlegt til þess að gefa full-
orðna fólkinu tækifæri til þess aö
komast aö.
Rakarast. Péturs Undir 10 ára Herrakl. Dömukl.
Guðjónss., Skólavst. 10 Hársnyrting Villa 230 (eðaminna) 250 290
Þór, Síðumúla 26 Rakarast. Sig. Úlafss., 230 290 340
Pósthússtræti 1 Rakarast. Vilhelms Ingólfss., Miklubr. 68 250 (6-12 ára) 275 275
(Margrét Hallgrd.) Rakarast. Guðjóns 240 265 290
Jónass., Veltusundi 1 Rakarastofan 250 275 300
Klapparstíg 260 290 340
Jólatrjáa-sala er nú hafin á öllum
þeim stöðum sem munu selja jólatré í,
ár og er veröhækkun 40—50 prósent frá
því sem var í fyrra á öllum tegundum
nema á norðmannsþini.
Landgræðslusjóður flytur inn tré frá
Danmörku en auk þess er hann með ís-
lensk tré að hluta. Álagning á jólatré
er frjáls, en þrátt fyrir það eru jóla-
trjáa-sölur flestar meö sama verð á
öllum tegundum. Norömannsþinur,
öðru nafni eðalgreni, undantekning.
Blómaval hefur ekkert hækkað verð á
norðmannsþini frá því sem var í fyrra,
en aðrar sölur hafa hækkað hann um 10
prósent.
Kristinn Skæringsson hjá Land-
græðslusjóði sagði að jólatrjáa-sölur
yfirleitt styddust við verðlag Land-
græöslusjóös. Kristinn sagði að verð-
lag og útreikningar væru allir sendir
Undir 1 metra 1,00—1,25 1,25-1,50 1,50-1,75 1,75—2,00
Rauðgreni 275.- 475.- 735.- 840,- 1015
Stafafura 360,- 620.- 960,- 1085.- 1315.-
Norðmannsþinur 685.- 835.- 1010.- 1275.- 1875.-
Blágreni 675,- 830.- 990.- 1255.- 1835.-
Omarika Fast verð 890.- 960.-
Verðlagsstofnun, eiginlega af gömlum
vana þótt þaö sé ekki skylda þeirra.
„Viö höfum gert þetta í ein 30 ár og er
Verðlagsstofnun frekar leiðbeinandi
fyrir okkur og aðrar jólatrjáa-sölur.
Verðlag miðast við innfluttu trén sem
Landgræðslusjóður flytur inn. Sama
verö er á þeim islensku.”
I Blómavali fengust þær upplýsingar
aö stafafuran og norömannsþinurinn
væru svipuð að gæðum. Þau falla ekk-
ert. Næst kemur ómarikan og blágren-
iö sem fellur mjög lítið. Rauögreniö
hins vegar fellur mest og er það ódýr
ast miöaö við hinar tegundirnar.
I verötöflunni hér sem fylgir er norð-
mannsþinurinn á veröi Blómavals. Á
öðrum stööum er norðmannsþinurinn
10 prósentum hærri í verði.
Algengustu jólatrés-stærðirnar eru
frá éinum metra og upp í 1,50 metra
Fast verð er á ómariku. Stærð hennar
er allt frá 1,50 metra og fer hún vel yfir
tvo metra. I Blómavali er verð á ómar-
iku 890 krónur, en til dæmis hjá Land
græöslusjóðierveröiö960krónur. ji
Það tekur öll fjölskyldan þátt i jólatrés-kaupunum. Myndin er tekin við Blómaval er ein fjölskyldan var að
velja sér jólatréð i ár. DVIMynd GVA
Verðlag svipað
hjá jólatrjáasölum
Ný rakarastofa
„Eg hafði hreinlega meiri áhuga á
því að klippa hár heldur en að leggja,”
sagði Margrét Hallgrímsdóttir sem
fékk meistararéttindi í hárskurði
snemma á þessu ári. Hún hefur nýlega
keypt rakarastofu Vilhelms Ingólfs-
sonar á Miklubraut 68 og mun reka
stofuna undir því nafni í eitt ár.
„Annars er það mikið það samasem
við gerum, hárgreiðslukonur og
rakarar, nema hvaö þær mega ekki
raka og við megum ekki setja í rúllur,”
sagði Margrét. Hún lærði hjá Skúla
Nielsen og Þorbergi Olafssyni, Lauga-
vegi 178, og fékk meistararéttindi í
febrúar sl. Enn sem komið er er Mar-
grét ein síns liðs á stofunni en fær til
sín góöa stúlku eftir áramótin.
— Er mikið um að beöið sé um
rakstur í dag?
„Ja, í þessar tvær vikur sem ég er
búin að hafa opiö hef ég þrisvar
sinnum verið beðin um aö snyrta
skegg,” sagði Margrét.
Jólaösin var ekki byrjuð hjá henni en
Margrét er með í verðkönnun okkar á
jólaklippingunni.
-A.Bj.
í ÚRVALI
STÆRÐIR 38-46
VERÐ AÐEINS KR.
790,1185,1285 og 1385
SKÚVERSLUN
ÞÚRÐAR PÉTURSSONAR
LAUGAVEGI95. SIMI 13570. KIRKJUSTRÆTI8. SIM11418 W>
POSTSENDUM