Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 10
10
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
| Einn hinna særðu Tyrkja iiggur
á sjúkrahúsi. — Eru farandverka-
?i1 mennirnir skotspónar kynþáttahaturs
4,'\ i Frakkiandi? •
Lögleysa og
ódæðisverk
orðin pól'rtískt
hitamál í Frakklandi
Það byrjaði allt smátt i sniðum og
svo sem nógu friðsamlega, en öll
franska þjóðin átti eftir aö standa á
öndinni út af því áður en yfir lauk.
Nokkrir tyrkneskir farandverka-
menn efndu til setuverkfalls hjá
vinnuveitanda sínum, byggingar-
verktaka, því að þeir áttu inni hjá
honum vangoldin laun nokkra mán-
uöi aftur í tímann. Vinnuveitandinn
svaraði illu einu og greip til skot-
vopna. I valnum lá einn starfsmanna
hans og þrír voru fluttir særöir á
sjúkrahús.
Allsherjarverkfall
í mótmælaskyni
Þessi atburður vakti mótmæli um
gervallt Frakkland og alþýðusam-
band þeirra í Frakklandi (sem er
skammstafaö CGT og lýtur forystu
kommúnista) boðaði til fimmtán
mínútna vinnustöðvunar um allt
land. Fjölmiðlamir vísuöu til skot-
árásarinnar sem votts um vaxandi
ofbeldi í landinu. Frakklandsforseti
lagði leið sína aö líkbörum hins
myrta verkamanns, Ozgun Kemal,
til að votta hinum látna virðingu sína
og samúö Frakka. Mitterrand for-
dæmdi verknaðinn: .T'rakkarfyllast
viðbjóöi af slíku ofbeldi,” sagði Mitt-
errand forseti. „Það verður aö
stemma stigu við því.”
„Frakkland er hrætt!"
æpir Le Figaro
Síðan hefur pólitísk umræða í
Frakklandi naumast út á annaö
gengið en að betur þurfi aö vemda
lög og rétt. I þjóöþinginu kom til
oröahnippinga og frammíkalla milli
þingmanna út af umræðum um of-
beldisölduna og forsiðufyrirsögn í Le
Figaro æpti framan í landslýð:
„Frakkland erhrætt”.
Sumir telja að dráp á farandverka-
mönnum eins og Kemal sé ofstækis-
boöskap og kynþáttahatri nýnasista
að kenna. Þó vill til að morð á Tyrkj-
um eru fádæmi. Aðrir segja aö tíöari
morð séu því að kenna að yfirvöld
ákváðu 1981 aö afnema dauðarefs-
inguna. Það voru 2702 manndráp í
Frakklandi áriö 1983 og er það algert
inet.
Pólitískt hitamál
Hver sem ástæðan fýrir þessari
þróun er, þá er hún orðin pólitískt
hitamál og ámóta viðkvæmt Mitterr-
andstjórninni og efnahagsmálin og
atvinnuleysið. — „Ef stjómin fell-
ur,” sagði einn aðstoðarráöherranna
á dögunum, „þá verður það ekki út
af atvinnuleysinu og verðbólgunni,
heldur af áhyggjum fólks yfir því að
það geti ekki verið óhult um líf sitt.”
Sjö ára kjörtímabil Mitterrands er
nú hálfnað og hefur hann aldrei notið
jafn lítillar hylli sem forseti og ein-
mitt um þessar mundir. Skoðana-
kannanir gefa til kynna að það séu
ekki nema um 26% ánægð með hann
sem forseta. — Þessar kannanir hafa
verið geröar um það leyti sem at-
hygli almennings hefur beinst mest
aö óvanalega tíðum illverkum.
„Þoli ekki útlendinga"
Daginn eftir að Tyrkinn Kemal var
drepinn labbaði einn atvinnulaus
Frakki sig að kaffihúsi einu í Bret-
agne með haglabyssu undir hendi.
Hann hrópaöi ,jSieg Heil!” og lét
byssuna þruma sjö sinnum inn um
glugga kaffihússins. Inni fyrir sátu
nokkrir farandverkamenn tyrknesk-
ir og spiluðu á spil. Tveir Tyrkj-
anna létu lífið, en fimm særðust., jEg
þoli ekki útlendinga,” sagði sá með
byssuna síðar við lögregluna.
Skammt milli illverka
Sérstakan hrylling vakti málið um
fjögurra ára drenginn sem fannst
dauður, bundinn á höndum og fótum,
í uppþomuöum árfarvegi í austur-
hluta Frakklands. Föðurbróðir
drengsins var handtekinn fyrir
morðið.
öryggisverðir í peningaflutning-
um háðu meiriháttar skotbardaga
við tvo ræningja í einni af vinsælli
stórverslunum Parísar þegar hún
var troðin af fólki á aðalannatíma
laugardags. Einn varðanna og annar
ræningjanna lágu eftir í valnum.
Níu aldraðar konur einstæöar, sem
allar bjuggu í Montmartre-hverfinu í
Paris, voru rændar og drepnar á
heimilum sínum á f jórum vikum.
Óhugnanleg fólska
Einna óhugnanlegast þótti kannski
mál ungu konunnar sem lagðist inn á
Poitiers-sjúkrahúsiö til minniháttar
uppskurðar og er talin hafa verið
myrt af svæfingarlæknum sínum. Þeir
voru handteknir og ákærðir fyrir að
hafa af ráðnum hug komið í kring bil-
un í öndunartækjum. Ástæðan átti að
vera sú aö þeim væri í nöp við fram-
kvæmdastjóm sjúkrahússins og
vildu gera henni á einhvem máta
bÖlvun.
Það er hryllileg fólskan í þessum
illverkum sem frekar hefur vakið
óhugnaöinn en hitt aö þau séu svo tíð.
Fjöldi morða í Frakklandi þykir
hreint ekki mikill í viðmiöun viö það
sem þekkist annars staðar. Og þótt
búist sé við að morðum fjölgi um 1%
á ári, þá þykir það í sjálfu sér ekki
sannaö að morð séu orðin meira
vandamál síðan dauöarefsing var af-
lögð. Staðreyndin mun raunar sú aö
morðum fjölgaði örar áður en fallöx-
in var lögð niður heldur en eftir.
Heiftarsenna í þinginu
Samt kvöddu sér hljóðs í þjóðþing-
inu í síöustu viku raddir sem krefjast
þess að dauðarefsing verði tekin upp
aftur. Spunnust út af því einhverjar
hatrömmustu orðasennur sem þar
hafa heyrst í mörg ár. I þeim orða-
skiptum, þar sem gekk á með
persónulegum ávirðingum og heilir
hópar gengu út af þingfundi, sökuðu
stjómarandstæðingar Mitterrand-
stjórnina um vanhæfni í stjómun lög-
gæslunnar og manndómsleysi. Ráð-
herrar svöruðu fyrir sig með því að
saka stjórnarandstæðinga um að
gera sér pólitískan mat úr óhæfu-
verkunum. Svo heitt varö í kdunum
aö þingheimur gat ekki einu sinni
komið sér saman um að hafa mínútu-
þögn í virðingarskyni við fómar-
lömbin. Ekki saman heldur var höfð
sín hvor mínútuþögnin fyrir hvorn
hópinn.
Róttækir hægrimenn
áfelldir
i fyrir kynþáttahatur
Uppnámið út af þessum málum
virðist þó hafa brunnið haröast á
Jean-Marie Le Pen sem er leiðtogi
hins róttæka hægriflokks, Þjóðernis-
fylkingarinnar. Morðin á Tyrkjunum
urðu til þess aö margir spurðu hvort
kynþáttahaturskenndar yfirlýsingar
Le Pen hefðu veriö morðingjunum
kveikjan til ódæðanna. Til að undir-
strika þær vangaveltur endurbirtu
blöðin fyrri viðtöl við Le Pen, þar
sem hann lýsti því yfir að „farand-
verkamenn væra versta hörmungin
sem hefði duniö yfir land, þar sem
fólksfjölgunarvandanum hefði verið
haldið niðri með lágri fæðingartíðni”
og bætti síðan við: „Við erum reiðu-
búin aö grípa til vopna til þess að af-
stýra tortímingu Frakklands.” — Le
Pen bar f jölmiðlunum á brýn að hafa
slitiö orð sín út úr ööru samhengi.
Chirac til framdráttar
Þessi umræða gæti helst orðið
Jacques Chirac, borgarstjóra
Parísar og leiðtoga Gaullista, til póli-
tísks framdráttar. I dag er hann álit-
inn einn líklegasti mótframbjóðandi
Mitterrand í forsetakosningunum
1988. Það sem hrynja kann af 12%
fylgi Þjóðernisfylkingarinnar í kosn-
ingum er líklegast til þess að falla í
skaut Chirac og hægristuðnings-
mönnum hans. Samtímis hefur
Chirac notað löggæsluumræðuna til
enn frekari gagnrýni á stjórn
Mitterrands. „Þessir hörmulegu
atburðir sýna ljóslega það
örvæntingar-, lögleysis- og óöryggis-
ástand sem ríkir,” sagöi Chirac núna
á dögunum. „Það er ljósara með
hverjum deginum að löghlýðni er
beint tengd efnahagsástandinu.”
Þetta tvennt: Efnahagsmálin og
öryggismálin gætu því orðið afdrifa-
rík kosningamál 1988.
Umsjón: Guðmundur Pétursson
JÓLAGETRAUN DV, 6. HLUTI
Hvað heitir ormurinn?
Hér er eitt goðið í Valhöll
komið í hörkuslagsmál
við risaorm. Líklega
stærsta orm í heimi því
hann hringar sig um-
hverfis jörðina alla og
bítur sjálfan sig í aftur-
endann. Á myndinni læt-
ur hann sér aftur á móti
nægja að bíta í jóla-
sveinahúfu goðsins,
kannski í von um að ná
einhverju af jólaglögg-
inni sem andstæðingur
hans var að gæða sér á.
I dag viljum viö fá að
vita nafn ormsins. Þeir
sem geta rétt eiga von
um að vinna til glæsi-
legra verðlauna en mun-
ið bara að senda allar
lausnirnar 10 í einu lagi
til DV, jólagetraun, Síðu-
múla 14, Reykjavík fyrir
2. janúar.
r------------------—------------------------1
| □ Loch Ness skrímslið
■ □ Miðgarðsormur
□ Lagarfljótsormur
I
J Nafn----------------------------------- I
| Heimilisfang_____________________________J
Sími .................................. |