Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Blaðsíða 12
12 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIDLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjórl: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍDUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla.áskriftir.smáauglýsingar.skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf. . Áskriftarverð á mánuði 310 kr. Verð í lausasölu 30 kr. Helgarblað 35 kr. Beðið um ófölsuö fjárlög Umræður innan og utan Alþingis um niðurstöður fjár- lagafrumvarps ríkisstjórnarinnar eru að mestu leyti marklausar. Enn hefur ríkisstjórnin ekki lagt fram neina fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir næsta ár. Og slík áætlun á einmitt að vera í föruneyti f járlagafrumvarps. Kominn er 13. desember og gert ráð fyrir, að önnur og næstsíöasta umræöa um fjárlagafrumvarpiö verði á Alþingi í dag. Samkvæmt venju má gera ráð fyrir, að þetta frumvarp verði að lögum eftir viku, í síðasta lagi á föstudaginn í næstu viku, daginn fyrir jólafrí Alþingis. I fyrra var fjárfestingar- og lánsfjáráætlun þessa árs lögö fram 25. október. Og í hittifyrra var áætlunin lögö fram 17. október. I báöum tilvikum gerðist þetta aöeins einni til tveimur vikum eftir aö fjárlagafrumvarp viö- komandi árs hafði veriö lagt fram. I inngangi áætlunarinnar í fyrra var sagt, aö þá hafi mikið kapp verið lagt á, að'hún fylgdi fjárlagafrumvarpi ,,án tafar” og „áður en fyrsta umræöa fer fram um það á Alþingi”, þar sem slíkt sparaöi vinnu og gæfi betri yfir- sýn. Góð áform af þessu tagi hafa nú alveg gleymzt. I ljósi þessa er ekki auðvelt að meta, hvort sé fyndiö eða sorglegt rifrildiö um svokallað gat á fjárlagafrumvarp- inu í þetta sinn. Menn leika sér að tölum um, hvort gatiö sé einn eöa hálfur milljarður. Og menn leika sér aö tölum um, hvernig megi fylla þetta gat. Samt vita menn, ef þeir vilja vita, að gatiö á ríkisfjár- málunum er miklu stærra en þetta. Það vantar nefnilega í myndina gatiö á fjárfestingar- og lánsfjáráætluninni, sem enn hefur ekki litiö dagsins ljós. Og allir vita, aö það gat verður mun stærra. I eftirmála fjárlagafrumvarpsins er raunar gerð til- raun til að gera þaö upp að alþjóðlegum hætti í stað hinn- ar séríslenzku fölsunarleiöar. Þar er sagt, að greiðslu- halli ríkissjóðs sé rétt reiknaður upp á þrjá milljarða króna í stað hins hálfa milljarðs í frumvarpinu. Þótt ríkisstjórnin hafi þannig lagt fram marklaust f jár- lagafrumvarp með niðurstöðum út í bláinn, er samt fróð- legt að skoða einstaka liði þess og skýringar þeirra. Slíkt leiðir ýmislegt í ljós, sem stjórnvöld kæra sig ekki um, að haldiösé á lofti. Lífeyrissjóður bænda hefur þá sérstöðu að vera alger- lega á bakinu á skattgreiðendum. 30,6 milljón króna gjöf til sjóðsins er falin í liðnum „Stofnlánadeild landbúnaöar- ins” og 80 milljón króna gjöf til hans er sett á viöskipta- ráðuneytið í liðnum „Niðurgreiðslur”. Bætur fyrir niðurskurð á sjúku fé eru faldar í liönum „Sauðfjárveikivarnir”, sem hefur rúmlega tvöfaldazt upp í 18,1 milljón króna. Niðurgreiðslur á lánsfé til land- búnaðar eru í frumvarpinu kallaöar „Lántökukostnaður” og eiga að nema 81,4 milljónum á næsta ári. Otal kostnaðarliðir, þar á meðal sumir fastir liðir á borð við milljónir í styrki til flokkspólitískra málgagna, eru utan viö niðurstöðutölur fjárlagafrumvarpsins. Þaö er gert með því aö hafa þá í sérstakri heimildargrein aft- an við sjálft frumvarpiö. A sumu þessu ber stjórnarandstaðan nokkra ábyrgð frá valdaskeiði fyrri ríkisstjórna. Það er sennilega skýringin á, að á Alþingi fæst engin vitræn umræða um raunveru- legar tölur ríkisfjármála og engin markviss krafa um, að þær séu settar fram eftir alþjóðlegum og ófölsuðum staðli. Jónas Kristjánsson. DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984. Síðan ég skrifaði síðustu grein mina hafa tvær fréttir vakið mesta athygli mína. Mjög eru þær þó ólíkar enda hafa þær vakið mjög misjafna al- menna athygli. Segja má raunar að ef báðar eru teknar alvarlega þá skipti þær mjög misjöfnu máli, því önnur tengist hvorki meira né minna en af- drifum mannkyns en hin snertir aöeins eitt af mörgum efnahagsviðundrum landsmanna. Enn arkar Arkin Sú sem ég nefni fyrr fjallar um Arkin nokkurn sem kommar og fylgisfiskar þeirra í gönguklúbbnum góða fcngu til að koma hingað til aö hrista upp í um- ræðunni um Nató og herstöðvarnar sem er komin á svo alvarlegt stig að meira að segja heiðarlegustu alþýðu- bandalagssálir eru farnar að ryðga í trúnni ef marka má skoöanakannanir. Var látið mikiö meö Arkin þennan áður en hann kom hingað og tekið fram að hann væri mjög svo virtur vísindamað- ur sem stjórnaði einhverri heims- þekktri pólitískri rannsóknarstofnun í Bandaríkjunum. Var þess getiö í bak og fyrir í rauðu pressunni að þennan mann væri ekki nokkur leið að rengja, svo mikils trausts nyti hann. Allt fór eftir settum reglum, Arkin kom í sjónvarpiö og lýsti því fyrir MAGNÚS BJARNFREÐSSON skelfingu lostnum ögmundi að hann hefði fullngæjandi sannanir fyrir því að Bandaríkjastjórn myndi senda hingað kjamorkusprengjur ef til ófrið- ar drægi, hann hefði bréf upp á það. Svo vel vildi til að Þjóðviljinn fór ekki mjög snemma í pressuna þetta kvöld, svo hann gat dregið fram stríðsletur sitt og undirstrikað hvílík ógnartíöindi hinn virti vísindamaður hefði opinber- að Islendingum. Daginn eftir arkaði Arkin á fund for- sætis- og utanríkisráðherra og sýndi þeim ljósrit af um það bil tíu ára gömlu skjali, sem hann fullyrti að sjálfur Bandaríkjaforseti hefði undirskrifaö. Af einhverjum ástæðum hefir lítiö far- ið fyrir upplýsingum um þaö hvaða forseti átti í hlut, enda ekkert gaman að upplýsa það úr því það var ekki Reagan. Jafnframt upplýsti Arkin að hann hefði séð nýrra skjal en ekki f éng- ið af því ljósrit. Væri efni þess nauða- líkt hinu eldra. I skjölunum stæði • „Trúir því virkilega einhver í alvöru að ef til kjarnorkustyrjaldar dregur þá verði einhver íslensk ríkisstjórn spurð að því hvaða vopn megi vera hérlendis?” Skólaskylda og skólakostn- aður í 9. bekk • „Haldgóð rök er hægt að færa fyrir því að skólaskylda sé ekki lengur nauðsynleg. Næstum öll böm muni koma í skóla ef samfé- lagið bjóði upp á kennslu foreldrum að kostnað- arlausu.” Þegar frumvarp til laga um grunn- skóla var fyrst lagt fram á Alþingi í kringum 1970 var ætlunin aö gera nemendur í 9. bekk skólaskylda. Átti meö þeim hætti að jafna aðstööu ungl- inga í dreifbýli og þéttbýli til menntun- ar. Rikissjóöi var þá ætlað að greiða allan mötuneytis- og bókakostnaö 9. bekkinga eins og annarra grunnskóla- nema. Þegar lögin voru loks samþykkt vorið 1974 var ákveðiö að fresta gildis- töku þessa ák væðis til a .m.k. 1980. Er skólaskylda nauösynleg? Með fræðslulögum, sem sett voru 1907, voru börn gerö fræðsluskyld, þ.e. ákveðin fræðsla var lögboöin og skyldu hreppar landsins sjá fyrir skólum eða fræðslu meö öðrum hætti til handa börnum á aldrinum 10—14 ára. Ottast var aö skammsýni lítt menntaös almúgans gæti komið í veg fyrir að böm nytu nægilegrar fræðslu ef hún væriekkilögboöin. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og skólaskylda verið lengd í átta ár. Sú lenging var ákveöin með lögum 1946 (fyrr í þéttbýli í sjö ár) en komst þó ekki að fullu til framkvæmda fyrr en eftir 1970. Nú njóta langflest böm tíu ára skólagöngu í grunnskóla að meðtöldum forskólabekk (6-ára bekk) og9. bekk. Haldgóð rök er hægt að færa fyrir því aö skólaskyida sé ekki lengur nauð- synleg. Næstum öll böm muni koma í skóla ef samfélagiö bjóði upp á kennslu, foreldrum að kostnaðarlausu. Bent er á aösókn aö forskólanum í því sambandi. Unnt sé að auki að próf- skylda böm og unglinga eöa láta heimafræðslu fara fram undir eftirliti og leiðsögn. Verulegur hluti fræðslu til sveita fyrstu tvo áratugina eftir setn- ingu fræðslulaganna 1907 fór þannig fram. Almenningur nú er margfalt betur undirbúinn að fræða börn sín en þá var og völ er á hæfari leiðbeinend- um. „. . . enda mun. . . fráfall nemenda milli 8. og 9. bekkjar vera mest i þeim sveitarfólögum sem bjóöa ekki upp á 9. bekkjar nám i sveitarfálaginu sjálfu. . . "

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.