Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Qupperneq 44
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu
efia vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjalst, oháö dagblað
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1984.
Scotland-Yard-maður kannar
íslenskar myndbandaleigur
Percy Brown með ólögleg myndbönd sem hann fann í reykvískum myndbanda-
leigum í gær: — Þyrfti að dæma 2—3 menn, þá myndi þróunin snúast við.
________________________________ ________________ DV-mynd KAE
„Astandið hér á landi er ekkert
verra en annars staðar en gæti
auöveldlega versnað til muna. Hætt-
an liggur í því aö menn sem stunda
heiðarleg myndbandaviðskipti hætti
því einfaldlega vegna þess aö þeir
sjá óheiðarleg viðskipti allt í kring-
um sig; menn sem stórgræða án þess
að nokkuð sé að gert,” sagði Percy
Brown sem starfað hefur hjá Scot-
land Yard í 33 ár og undanfarin 5 ár
hjá Motion Pictures Association of
America sem sérlegur ráögjafi í bar-
áttunni gegn ólöglegum myndbönd-
um.
Percy Brown er staddur hér á
landi í boði Samtaka rétthafa mynd-
banda og hefur þegar rætt við lög-
regluyfirvöld og ríkissaksóknara um
hvað sé til ráða í myndbandamálum
hérlendis. Talið er að um 60 þúsund
myndbönd séu i stöðugum útlánum
hér á landi, þar af 60—70% ólögleg.
Þrátt fyrir þá gífurlegu fjármuni
sem hér eru í húfi hefur enn sem
komið er engin myndbandaleiga ver-
ið dæmd fyrir lögbrot og veldur þar
mestu að yfirvöld vita ekki alveg
hvernig þau eiga að snúa sér í mál-
inu.
„Það þyrfti ekki að dæma nema
2—3 menn þá myndi þróunin snúast
við. A meðan ekkert er að gert sjá æ
fleiri sér leik á borði; gróðinn bíður á
næsta götuhomi,” sagði Percy. „Eg
hef þegar farið í 6 myndbandaleigur í
Reykjavík. Fimm voru góðar, ein
fyrir neðan allar hellur. Þar var flest
ólöglegt.”
Percy Brown segist reiðubúinn til
að koma aftur hingað til lands hið
fyrsta. Hann ætlar ekki að taka að
sér störf lögreglunnar heldur vera
henni innan handar viö lausn þess-
ara nýstárlegu afbrota sem kosta
ríkissjóð milljónir.
-EIR.
Blóömiklir
Kefk
víkingar
Keflvíkiugar slógu Islandsmet á
þriðjudagiun. Því fylgdi mikið
blóðstreymf sem dælt var ofan í
poka og síðan flutt úr bænum. Alls
um 110 lítrar af Suðurnes jablóði.
Málavextir voru þeir að blóðsöfn-
unarbfll Rauða krossins var í
Keflavík að safna blóði. Skipti það
engum togum, 221 maður mætti við
bflinn, hver og einn reiðubúinn tii
að gefa hálfan lítra af blóði og er
það Islandsmet.
Keflvikingar áttu einnig fyrra
metið en það var tæpir 90 lítrar.
Ekkert bæjarfélag hefur komist
með tæmar þar sem Keflvíkingar
hafa hælana í þessum efnum nema
hvað að þegar unnið var sem mest
við Sigölduvirkjun tókst starfs-
mönnum þar að safna 85 lítrum af
blóði. Það Islandsmet stóð i citt ár.
-EIR
Brjóst-
mylkingar
áþing-
pöllum
Það var mikið drukkiö í efri deild
Alþingis síðdegis í gær. A meðan
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir af
Kvennalista mælti fyrir frumvarpi
sínu um lengingu fæðingarorlofs sátu
20 ungböm á hnjám mæöra sinna á
þingpöllum og sugu brjóst þeirra.
Þarna voru á ferðinni meðlimir í
Ahugafélagi um brjóstamjólk í
Kópavogi. Mæðurnar hlýddu á Sig-
ríði Dúnu en börnin létu sér fátt um
finnast og nutu veitinganna.
-EIR/DV-mynd Bjamleifur
'&r'"
Mildöfyrirlítiö
yyx
ÆIKUG4RDUR
LOKI
Samþykkir Sel/an þessa
drykkju á þingpöllum?
Bruni frystihússins á Raufarhöf n:
Margar athugasemdir
gerðar við rafkerfíð
Unnið er að rannsókn á upptökum
brunans í hraðfrystihúsi Jökuls f yrr í
vikunni. Upptök eldsins eru talin
vera í 2 kw rafmagnsofni í verk-
stjóraherbergi við hlið vélarsalarins
en eldurinn virðist hafa blossað upp
á mjög skömmum tíma, svona 3—4
mínútur viröast líða frá því að allt er
í lagi þar til herbergið er alelda.
Samkvæmt upplýsingum frá Raf-
magnseftirliti rikisins var rafkerfi
hússins tekið út árið 1979. Þá var
mikill f jöldi athugasemda gerður við
rafkerfið, einar fjórar vélritaðar síð-
ur. Uttektin fór fram í júli og fengu
forráðamenn hússins frest þar til í
nóvember sama ár til að koma mál-
unum í lag. Ef þaö er ekki gert er
heimilt samkvæmt reglugerð að láta
loka húsinu.
Svipuð úttekt var gerð á húsinu í .
fyrra en þar mun að mestu hafa ver-
ið um að ræða ítrekun á fyrri skýrslu
Skemmdir eftir brunann i frysti-
húsinu. DV-mynd: AP-Raufarhöfn.
samkvæmt upplýsingum frá Sig-
mundi Þórissyni rafmagnseftirlits-
manni á Akureyri. Hann fór á Rauf-
arhöfn til að kanna eldsupptök og
sagði hann að í því herbergi sem
eldurinn kom upp hafi rafkerfið ver-
ið í lagi.
Hvaö varðar það reglugerðar-
ákvæði sem heimilar að loka t.d.
frystihúsum ef rafkerfið er ekki í lagi
sagði Arni Guömundsson hjá Raf-
magnseftirlitinu að það heyrði til
undantekninga að því væri beitt.
„Við reynum að hliðra til eins og
mögulegt er,” sagði hann. Sigmund-
ur sagði í þessu sambandi að senni-
íega væru þeir alltof linir við að
ganga eftir því að húsum væri lokað í
svona t'lfellum. -FRI
Norskt sjónvarpsefni: W
Jarðstöðin aðal-
kostnaðurinn
„Mér virðist líklegt að Nordsatmál-
ið sé að sigla í strand,” sagði Ragn-
hildur Helgadóttir sem nýkomin er
heim af vinnufundi menntamálaráð-
herra Norðurlandanna.
Annar valkostur fyrir Islendinga,
sem er einfaldari og ódýrari, er aö
Islendingar nýti sér sjónvarpsefni
frá norska sjónvarpinu. Utsendingar
til Svalbarða hefjast núna 22. des. í
gegnum ESC2 gervihnött. „Ég vona
að það geti gerst með því að greiðsl-
ur flutningsrétthafa veröi i lágmarki
vegna þess að hér yrði um tilrauna-
starfsemi að ræða,” sagði ráðherr-
ann og sagði að norski menntamála-
ráðherrann hefði tjáö sér að svo yrði.
Aðalkostnaður okkar yrði, að sögn
Ragnhildar, aö byggja jarðstöð hér á
landi.
„Kostnaðaráætlun fyrir jarðstöð-
ina er mismunandi eftir því hver ger-
ir hana,” sagði Ragnhildur.
Áætlun rikisútvarpsins er lægri en
Pósts og síma. Sagði ráðherrann að
ekki væri búið að semja um málið en
leiðin væri opin. -ÞG
i
i
í
i
i
i
í