Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Page 45
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
Jólagjafahandbók
89
Canon T—70
Þetta er ein glæsilegasta vélin á markaðnum,
refleksvél sem er nánast fullkomin. Canon-
vélarnar hafa verið lengi á vinsældalistanum yfir
myndavélar og eru þaö ennþá. Canon T—70 án
linsu kostar 15.498 kr. og með standardlinsu kostar
hún 20.525 krónur. Canon fæst í Týli, Austurstræti
31
Hið sínvinsæla Vivitar
Þeir segja hjá Fókus, Lækjargötu 6b, sími 15555,
að atvinnuljósmyndarar taki Vivitar-flössin fram
yfir önnur. Vivitar-flöss eru til á allar gerðir
myndavéla og er auk þess, ef menn vilja, hægt að
fá sérstakan tengil sem lætur flassið vinna eins og
flöss frá framleiöendum viðkomandi véla. Vivitar-
flöss kosta 1.235—13.860 krónur. í Fókus færðu
einnig Vivitarlinsur í miklu úrvali og sjónauka af
öllum gerðum og stærðum.
Ég hef opnað snyrtistofu
Svo segir Barbiedúkkan á jólunum er stúlkurnar
taka snyrtistofuna hennar úr jólapakkanum.
Snyrtistofan hennar Barbie er engin venjuleg
snyrtistofa, hún ekki bara snyrtir heldur leggur
hárið og klippir fyrir viðskiptavinina. Snyrtistofan
hennar Barbie er á sérstöku kynningarverði nú
fyrir jólin, aðeins 980 krónur. Hún fæst í Leikbæ,
Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði, og í Liverpool,
Laugavegi 18.
Lundby húsið upplýsta
Þau eru frábær, sænsku Lundby-dúkkuhúsin. Þú
getur byrjað með að kaupa hús á tveimur hæðum
og síðan er alltaf hægt að byggja við. Bílskúrinn
getur til dæmis beðið þangað til efnahagur hús
byggjandans batnar en á meðan getur hann
dundað við að kaupa húsgögnin sem eru ekki af
verra taginu og að sjálfsögðu eru öll Ijós fáanleg
því Lundby-húsiö er upplýst þó dimmt sé úti. Það
er sama hvort þú ætlar að kaupa teppi eöa gar-
dínur — þú færð allar vörurnar í Liverpool,
Laugavegi 18, og í Leikbæ, Reykjavíkurvegi 50
Hafnarfiröi. ..Þaö «ru a»t»i jai i