Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1984, Qupperneq 58
102
Jólagjafahandbók
DV. FIMMTUDAGUR13. DESEMBER1984.
JÓLIN KOSTA ÞIG MINNA OG ENDAST LENGUR
Hjá okkur ríkir engin
kreppa og hér fer enginn
í jólaköttinn, það er alveg
vfst. Lítið inn og
heimsækið okkur og við
getum lofað því að þið
verðið furðu lostin yfir úr-
valinu. Og það gæti nú
bara liðið yfir ykkur við
að sjá hve (framhald í
neðsta horni á næstu
síðu)
Málshættir á tréspjöldum
í Gjafahúsinu eru hátt íþrjátíu mismunandi máls-
hættir á íslensku og annað eins á ensku. Máls-
hættirnir eru allir á tréspjöldum þannig að auðvelt
ér að hengja þá upp og þeir eru einnig til í mis-
munandi litum. Þú ættir að koma vinnufélaga þín-
um á óvart — málshættirnir kosta aðeins 52
krónur.
Kistur úr basti
Bastkisturnar í Gjafa-
húsinu eru til margra
hluta nytsamlegar.
Sumir vilja hafa þær
fyrír símaborð, aörir
vilja hafa þær í her-
bergjum og enn aðrir í
stofunni. Bastkisturnar
eiga það sameiginlegt
hvar sem þær eru
notaðar að vera góðar
geymslur. Útlitiö er
líka smekklegt og
kisturnar mjög vand-
aðar. Minni kistan
kostar 2.850 krónur og
sú stærri 3.250 krónur.
Þær eru í dökkum lit.
Skemmtilegar f ígúrur
Já, þau eru bráðsmellin, kokkurinn, ræstingakon-
an og húsmóöirin. Þaö skrýtna viö þetta fólk er
það að þaö er búið til úr viskastykkjum, afþurrk-
unarklútum og borðtuskum. Þau þrjú sóma sér
líka alveg sérlega vel í eldhúsinu og vilja helst
hvergi annars staðar eiga heima. Þau fást íGjafa-
húsinu og kosta 295 krónur stykkið.
Splunkunýjar körfur
Þessar dökku bastkörfur eru alveg glænýjar hjá
Gjafahúsinu og þær eru með annarri áferð en
áöur hefur tíökast. Bastkörfur er alltaf hægt aö
nota og flestir hafa gaman af að eiga slíkar körfur.
í Gjafahúsinu er alveg ótrúlega mikiö til af falleg-
um körfum. Þessar kosta 1.550 og 1.660 krónur.
Sparibaukar
Þetta eru svolítiö öðruvísi baukar og dálítiö
skemmtilegir. Jólasveinarnir ættu eiginlega að
kíkja inn hjá Gjafahúsinu og sjá hvort þessir væru
ekki sniöugir handa góðum börnum. Síminn er al-
veg sérstakur en á hann má skrifa meötússi og þó
kostar hann aðeins 295 kr. Fuglarnir kosta 165 og
325 krónur, bókin kostar 155 krónur og taskan 195
krónur.
Það verður gaman aö koma á óvart gestunum
sem koma í áramótapartíið og bjóða þeim drykk-
inn í stuðglasi frá Gjafahúsinu. Það verður þá
brjálað stuð, segja þær hressu í Gjafahúsinu. Stuð-
glas kostar 265 kr. og rör, sem ekki er síður
vinsælt, kostar 49 krónur.
Sólhlífar
Sólhlífarnar f Gjafahúsinu eru alltaf jafnvinsælar
hjá unga fólkinu. Þær eru líka mjög fallegar og
skemmtilegar. Krakkarnir geta til dæmis útbúiö
Ijós í þær eða látið þær hanga f einu horni her-
bergisins til skrauts — þær eru sannarlega
skemmtilegar. Sólhlífarnar kosta frá 395 krónum.
Svuntur fyrir
hana og hann
í Gjafahúsinu er geysilega
mikiö til af skemmtileg-
um svuntum með alls
kyns myndum á. Þær
kosta aöeins 295 krónur og
henta alveg eins vel á
pabba og mömmu. Þó
getur verið ansi skemmti-
legt aö lauma einni slíkri í
pakkann hjá afa. Svunt-
urnar f Gjafahúsinu hafa
alltaf vakið mikla kátfnu.
Saumakörf ur með loki
Nú þegar flestar húsmæður eru farnar að spara
og sauma sjálfar og prjóna er gott að eiga vísan
stað fyrir slíkt dót. Þessar bráöfallegu saumakörf-
ur, sem fást í Gjafahúsinu, eru til á verði frá 1.295
krónum. Þær sóma sér alveg jafnvel í stofunni og
í vinnuherberginu.
Körfustólar fyrir börn og unglinga
Krakkarnir verða alltaf jafnhrifnir er þeir koma í
Gjafahúsið og sjá litlu, fallegu körfustólana.
Stólarnir eru einmitt passlegir fyrir þau litlu og
svo eru til stærri fyrir unglingana. Þetta eru
upplagðir stólar í barnaherbergið og mjög góð
jólagjöf.
Könnur með slagorðum
Hér kemur enn ein sniðug jólagjöf handa vinkon-
unni eða vininum: kanna með slagoröi eins og t.d.
„Kiss me, l'm sexy" eða „I Love You" eða „I
Need You" eða hvað þetta nú allt heitir. Nú fást
könnurnar einnig með íslenskum slagorðum sem
hitta beint f mark. Könnur með loki kosta 365 kr.
og án loks 189 kr.
Ekkert partí án stuðglasa