Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR 45. TBL. -75. og 11. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985. Uppskipun í verkfalti. Æ fækkar þeim skipum sem eru á hafi úti og æ fleiri hlýða kalli Sjómannasam- bandsins og Farmannasambandsins um að sigla í land. Ottó Þorláksson, einn fjögurra togara Bæjarút- gerðar Reykjavíkur, lagðist að bryggju í gær og var þegar hafin uppskipun. Tveir aðrir togarar BÚR komu inn i gær en sá þriðji er væntanlegur eftir helgi. -KÞ/DV-mynd S 1. MARS ENG- mLOHADAGUR Á fundi sem samninganefnd ríkis- ins og launamálaráð BHM hélt í gær var ákveðið að hefja samningavið- ræður við öll aðildarfélögin í næstu viku. Gert er ráð fyrir að félögin verði tilbúin meö sínar kröfugerðir strax eftirhelgina. Kennarar eru ekki ánægðir með þessa tilhögun og telja að nú stefni í óefni. „Það er engu líkara en samninga- nefnd ríkisins stefni að því að kenn- arar gangi út þann fyrsta mars,” sagöi Gunnlaugur Astgeirsson, vara- formaöur HlK, í viðtali við DV.” „Þeir stefna að því að öll aðildarfé- lögin skili inn kröfugerðum áður en samningaviðræðurnar hefjast. Við höfum þegar lagt fram okkar kröfur en ekki fengið svar frá ríkinu um hvaða umræðugrundvöll þaö viU. Okkur finnst þetta vera heldur mikill seinagangur.” Indriði H. Þorláksson, formaöur samninganefndar rikisins, segir að skilyrði fyrir væntanlegum samn- ingaviðræðum sé samræming á kröfugerðum. „Við vorum með fund meö launa- málaráði og þar var ákveöið að sam- ræma vinnubrögð. Það kom engin at- hugasemd við þetta frá kennurum. Það var ákveðið að byrja fundarhöld með félögunum eftir helgina.” Verður samið við kennara fyrir 1. mars? „Við munum reyna aö semja við öll aðildarfélögin eins fljótt og unnt er. Fyrsti mars er enginn lokadagur í samningagerðinni. Við höfum ekki sett upp þessa dagsetningu,” sagði Indriði. APH. SJOMANNADEILAN: „Það varð lítill ef nokkur árangur á þessum fundi en þeir eru að athuga málin,” sagði Öskar Vigfússon, for- maöur Sjómannasambandsins, í samtali við DV. Síðdegis í gær áttu Oskar og Guöjón Kristjánsson, for- maður Farmannasambandsins, stutt- an fund með Steingrími Hermannssyni og Halldóri Ásgrímssyni. Oskar sagði að á þessum hálftima fundi hefðu þeir rætt stöðuna eins og hún er nú og óskir þeirra sjómanna til lausnar þessu máli. — Verður annar fundur með ráðherrunum um helgina? „Já, ég á von á öðrum fundi, kannski um helgina, enda verða þessir menn að fara að athuga sinn gang þar sem allur flotinn er í höfn,” sagði Oskar. Stuttur fundur var í sjómanna- deiiunni hjá ríkissáttasemjara eftir hádegið í gær. Ræddust deiluaðilar ekki við en ríkissáttasemjari ræddi við samninganefndirnar hvora fyrir sig. Aö sögn viðmælenda blaðsins er málið í algerum hnút og alls óvíst um lausn á næstunni. Nýr fundur deilu- aöila hefur veriö boðaður eftir hádegi í dag. „Ef sá fundur verður eins og í gær, þegar menn töluðust ekki við, þá á ég ekki von á góöu,” sagði Oskar Vigfús- son. -KÞ. Vinnuslys í togara Vinnuslys varð um borð í togar- anum Ásgeiri RE 60 í gærmorgun. Verið var að landa karfa við Norður- garð í Reykjavíkurhöfn þar sem skipið liggur. Brustu höldur á fiskkassa með þeim afleiðingum að þrír kassar féllu ofan í lestina. Fjórir menn voru í lestinni. Kass- arnir sem hífðir eru upp þrír og þrír í einu, lentu á höföi eins og baki annars skipverjanna. Mennirnir voru umsvifalaust fluttir á sjúkra- hús. Þegar síðast fréttist voru meiðslin ekki talin lífshættuleg. -EH. Árekstraalda í höfuðborginni Árekstramet var sett í Reykjavik í gær og í nótt. Fjörutíu árekstrar uröu á aðeins átján tímum í borglnni. Aðeins í tveimur tilfellum urðu slys á mönnum. Maöur á bifhjóli lenti undir bíl á Vesturlandsvegi í gærdag og tveir slösuðust i árekstri við Miklatorg snemma i morgun. MeiðsU voru ekki alvarleg. Að sögn lögreglu var færð slæm í gær og i nótt. Mikið eignatjón varð í árekstraröldunni í gær. -EH. Flugvöllurinn verðiáfram „Ég túlka þessi úrsUt þannig að það sé vilji meirihluta borgarstjórn- ar fyrir því aö Reykjavíkurflug- völlur verði áfram á sama staö aö minnsta kosti til aldamóta og trúlega um alla framtíð,” sagði Sigurjón Pétursson, oddviti Alþýðubanda- lagsins i borgarstjórn. Tillaga alþýðubandalagsmanna um ítarlega könnun á nýju flug- • vaUarstæði hlaut ekki tilskildan stuðning í borgarstjórn í gærkvöldi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Fram- sóknarflokks og Alþýðuflokks sátu allirhjá. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.