Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 4
4 DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR1985. örvingluð með sprautu i hendi. Litlar likur eru á að þetta verði algeng sjón við Laugaveginn ef marka skal orð yfirmanns fíkni- efnalögreglunnar. Er hass áSúða- vík? „Mér þykir þaö gleðilegt hversu margir lögreglmnenn utan af landi eru famir aö koma til Reykjavíkur og kynnast starfi okkar. Fram aö þessu hefur landsbyggðin verið af- skipt í fíkniefnavörnum,” sagði Ás- geir Friöjónsson, dómari í ávana- og fíkniefnamálum, í samtali við DV. „Það getur verið erfiðara að upplýsa mál er upp koma í smá- plássum úti á landi þar sem allir þekkja alla. En vandamálið er til staðar á f jölmörgum stöðum. Hvað getur ekki gerst ef klíkuforingi í smáplássi fer allt í einu að reykja hass og bjóða félögum sínum tott úr pipu undir kaupfélagsveggnum? Þar gætu börnin komist á bragðið þó svo langt sé til höfuðborgarinn- ar.” — Er þá hass á Súöavík? „Það er ekki ástæða til að nefna einn stað öörum fremur. Hættan er alls staöar og því nauðsynlegt að kynna lögreglumönnum utan af landi hvað hér er á feröinni. Það starf er þegar hafið og lofar góðu,” sagði Asgeir Friðjónsson. -EIR. EITUR ÁEYJU ÁRÆSKUNNAR 1985 Heróín nær tæpast fótfestu á íslandi segir yfirmaður fíkniefnalögreglunnar „Ég dreg stórlega í efa að heróín gæti náö fótfestu hér á landi. Eigin- lega væri það með ólikindum ef það gerðist miðað við núverandi aðstæð- ur,” sagði Arnar Jensson, yfirmaður fíkniefnalögreglunnar. Undir orö hans tekur Ásgeir Frið- jónsson, dómari í ávana- og fíkni- efnamálum: „Hvemig ættu heróín- istar að geta falið sig í Reykjavík? Eg dreg í efa aö þeir gætu lifað hér í marga daga.” Að sögn Arnars Jenssonar þurfa viss skilyrði að vera til staðar ef heróínistar eiga að þrífast. Heróín- markaðurinn þarf að vera stöðugur. Efnið þarf alltaf að vera til staðar, „... og ég sé ekki hvernig það gæti gerst hér í fámenninu,” sagði Amar Jensson. „Menn hafa verið með spá- dóma um að heróínbylgja skelli hér yfir innan skamms. Hassið hafi verið hér nógu lengi og aukning á smygli á amfetamíni og sterkari efnum áber- andi. Ef marka skyldi reynslu ann- arra þjóöa væri ekki langt í þessa bylgju og þau glæpa- og skemmdar- verk sem henni væru samfara. Það er einfaldlega staðreynd að sérstaða Islands sem fámenns eyríkis er slik aö útilokað er að heimfæra þróun fíkniefnamála í nágrannalöndum okkar upp á ástandið hér heima. En við erum á varðbergi. Nóg er af eit- urefnunum samt,” sagði yfirmaður fíkniefnalögreglunnar. Sérstaða íslands ífíkniefnamálum mikil: Velta fíkniefnasalar einu einbýlishúsi á dag? „Ef nota ætti reikningskúnstir erlendra fíkniefnasérfræöinga þá er niðurstaöan sú að íslenskir fíkniefna- salar velti í peningum andvirði eins einbýlishúss á dag. Og þaö er af og frá,” sagði Ásgeir Friðjónsson, dóm- ari í ávana- og fíkniefnamálum. „Hvaðan ættu allir þeir peningar að koma.” 3 milljónir á dag Á meginlandi Evrópu, þar sem fíkniefni og eiturlyf flæða likt og bjór úr krönum, er sú regla í hávegum höfð að yfirvöld leggi aðeins hald á um 5—7 prósent af því magni sem í umferð er. Ef sömu forsendur eru notaðar hér á landi ætti íslenski fíkniefnamarkaöurinn að velta um 3 milljónum króna dag hvern — árið um kring. Þó svo þetta hlutfall væri hækkað upp í 10 prósent er ástandiö nógu ískyggilegt. Amfetamín fyrir 300 milljónir Á siöasta ári lagði fíkniefnalög- reglan hald á rúmlega 7 kíló af hassi. Samkvæmt reikningskúnstum út- lendinga hefðu þá átt að vera í um- ferð hér á landi rúmlega 70 kíló árið 1984 að verðmæti um 40 milljónir króna. Lagt var hald á 1,3 kíló af amfetamíni. Þá hefðu 13 kíló átt að vera á markaðnum sem venjulega er drýgð sexfalt með blöndun. Andvirði þessa magns í smásölu væri þá um 300 milljónir króna. Og svona mætti lengi reikna. íslensk sérstaða „Fólk gerir sér almennt ekki grein fyrir sérstöðu Islands þegar fíkniefni eru annars vegar,” sagði Ásgeir Friðjónsson fíkniefnadómari. „Þó einhver þróun verði í þessum málum erlendis þýöir það alls ekki að það sama verði upp á teningnum hér á landi. Skiptir þar mestu að við búum á eyju og svo hefur fámenniö sitt að segja. Þaö segir sitt um sér- stöðuna að verö á fíkniefnum hér- lendis er tífalt hærra en á meginland- inu.” Eitt gramm borgar flugfar Þrátt fyrir allt vita þeir sem vilja vita að alltaf er nægilegt framboð á fíkniefnum hérlendis. Það þarf aðeins að bera sig eftir þeim — og borga. Þau koma að mestum hluta frá Amsterdam og Kaupmannahöfn og það er ábatasöm iðja að leggjast í smygl. I Hollandi kostar eitt gramm af hassi um 100 krónur. Selt í Reykjavík er verðið aftur á móti komið upp í 600 krónur. 1 Amsterdam kostar eitt gramm af amfetamíni um 400 krónur. I Reykjavík 4000 krónur. Skal þá tekið með i reikninginn aö eftir er að blanda efnið sexfalt með alls kyns aukaefnum. Sex sinnum 4000 krónur er 24.000 krónur. Gróðinn af einu grammi af amfetamíni á leið- inni Amsterdam-Reykjavík er því 23.000 krónur. Fargjald með Flug- leiðum á Saga-class, þar sem veit- ingar eru ókeypis, er þar með greitt. Vandinn getur aftur á móti oröið meiri á KeflavíkurflugveUi þegar heim er snúið. Starfsmenn fíkniefna- lögreglunnar vita sem er að leiðimar til landsins eru aðeins tvær. Með flugi eða skipi. Maður þekkir mann „Við leggjum aðaláhersluna á KeflavíkurflugvöU, á því er engin launung,” sagði Ásgeir Friöjónsson. „einnig væri fræðilega mögulegt að vakta allar hafnir landsins ef mann- skapur væri fyrir hendi. Af þessu sést að aðstæður hér á landi við að upplýsa fíkniefnamál eru aUt aðrar en erlendis. Það er staðreynd að hér heima selur fikniefnasaU helst ekki Þannig var síðasta dópár Starf fíkniefnalögreglunnar var bera með sér. Innan sviga tölur frá árangursríkt á síðasta ári eins og 1983: eftirfarandi tölur um upptæk efni Rúmlega 7 kg af hassi (21)/ 600 kr. grammið. 0,065 kg af maríjúana (3,3)/ 350 kr. grammið. 0,43kgafhassolíu (0,29)/2000kr. grammið. 112 stk. kannabisplöntur (0)/ verð óþekkt. 1,3 kg af amfetamíni (0,6)/4000 kr. grammið x 6. Á undanfömum sex árum hefur lagt hald á heróín hér á landi. Það^ fíkniefnalögreglan aðeins einu sinni var árið 1983; samtals 3 miUigrömm. öðrum án þess að þekkja nafn hans. ur að rekja slóðina. Þetta er nær því Þannig verður auðveldara fyrir okk- óþekkt í útlöndum.” í Reykjavik kostar hassið 600 krónur. í Amsterdam kostar hassið 100 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.