Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 36
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsinqar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-56. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i OV, greið- ast 1.000 krénur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið í hverri- viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1985. íslendingar vandamál fær- eyskra félagsmálastofnana Fré Eðvarð T. Jónssyni, fréttarit- ara DV i Færeyjum: Islendingar í Færeyjum hafa oftar en aörar þjóðir misnotaö greiðvikni færeyskra yfirvalda og ágangur þeirra á færeysku félagsmálastofn- unina er alvaríegt vandamál að sögn félagsráðgjafa í Þórshöfn. Nú í vetur hefur ungum Islendingi tekist að hafa yfir 50 þúsund krónur íslenskar út úr færeysku félagsmálastofnun- inni á þriggja mánaða tímabili með því að gefa rangar upplýsingar um aðstæðursínar. Islendingafélagið í Færeyjum hef- ur af þessum orsökum hafið sam- starf við færeysk félagsmálayfirvöld og rannsóknarlögregluna meö það fyrir augum að verja æru Islands og Islendinga sem búsettir eru í Fær- eyjum. I samtali við fréttamann DV sagði Guðmundur Steinsson, formað- ur Islendingafélagsins, að mjög mik- il brögð væru orðin aö þvi að íslensk ungmenni, sem kæmu til Færeyja, byrjuðu á því að fara til félagsráð- gjafa og biðja um uppihaldsstyrk. Væri þetta ennþá meira áberandi með Islendinga en meö Grænlend- inga og Dani. Sérstaklega er þetta al- gengt á sumrin þegar Islendingar verða uppiskroppa meö skotsilfur og vilja komast heim. Guðmundur sagði að sú tíð væri liðin að Islending- ar væru aufúsugestir í Færeyjum og væri áberandi tortryggni gagnvart þeim á hótelum, bílaleigum, bílasöl- um og í verslunum sem selja raf- magnstæki með afborgunum. Brögð hafa verið að þvi að íslensk ung- menni, sem dvaiiö hafa í Færeyjum, kaupi hljómtæki, sjónvörp og fleira með afborgunum og stingi síðan af með allt saman. Guömundur sagði að Islendingafé- lagið vildi ekki una því lengur að slæpingjar og misyndismenn frá Is- landi spilltu fyrir venjulegum ís- lenskum borgurum sem ynnu fyrir sér á heiðarlegan hátt í Færeyjum og vænti félagið sér góðs af samstarfinu við félagsmálayfirvöld og lögreglu. -KÞ Nýfallið snjóföl setur svip sinn á höfuðborgina þessa dagana og gefur henni friðsælan svip. Daglegt argaþras, svo sem sjómannaverkföll og vinnustöðvanir kennara, gleymast um stund. Og áreiðanlega er hrafn- inn, sem sveimar yfir byggð, að hugleiða eitthvað allt annað en það hvort flytja eigi Reykjavikurflugvöll eða ekki. DV-mynd KAE „RÆTT UM GREIÐSL- UR FYRIR STUÐN- INGSKENNSLU” — segir Gísli Baldvinsson, kennari íHólabrekkuskóla Bílstjórarnir aðstoða sznDiBíuisTöÐin „Það er alls ekki rétt að foreldramir ætli að greiöa mér eitthvert álag eða bónus á laun mín. Hins vegar hafði komið upp sú hugmynd meðal þeirra að greiða mér fyrir stuðningskennslu. En það hefur ekki verið gert neitt sam- komulag þar um.” Þetta sagði Gísli Baldvinsson, kenn- ari í Hólabrekkuskóla, vegna fréttar um að foreldrar barna sem hann kenn- ir muni greiöa honum aukalega gegn þvi að hann drægi uppsögn sína til baka. Gisli sagði upp starfi sínu í Hóla- brekkuskóla um miðjan nóvember sl. Hætti hann störfum 15. febrúar sl. Þann 18. sama mánaöar hóf Gísli svo aftur störf við skólann. „Eg tók þessa ákvörðun í framhaldi af áskorun frá foreldrum um að ég drægi umsókn mína til baka,” sagöi hann. „Eg hafði þá ekki ráðið mig í annað starf og var því á lausu. Að visu á ég von í annað starf en það verður ekkifyrrenívor.” Sagði Gísli ennfremur að hann vissi til þess að foreldrar hefðu rætt þá hug- mynd sín á meðal að greiða honum sér- staklega fyrir stuðningskennslu. I við- komandi bekk væru valin bestu börnin úr árganginum. Talið væri að þau þyrftu ekki slika aukakennslu. Oánægja væri ríkjandi með þetta fyrir- komulag þvi foreldrar vildu að börnin væru sem best búin undir 9. bekk sem væri erfiðasti bekkurinn. Þvi hefði ofangreind hugmynd komið upp. „En ég hef ekkert heyrt frekar frá foreldunum varðandi þetta,” sagði Gisli. „Eg geri ekki ráð fyrir að það verði neitt meira úr þessu úr því að máliötókþessastefnu.” -JSS Fíkniefnauppljóstrara kastað út af stöðinnl: Löggan vildi ekki hassið Tveír strákar um tvítugt reyndu í vikunni að koma upp um fíkniefna- sala í Reykjavik en var hent út af lögreglustöðinni með valdi. Strák- arnir höfðu stuttu áður verið stöðv- aðir af fjórum mönnum ofarlega á Hverfisgötu. Buðu mennirnir þeim hass til sölu. „Þeir spurðu eitthvað á þá leið hvort við viidum fá okkur í pípu, þeir ættu nóg af hassi,” sagði annar strákurinn í samtali viö DV. „Siðan sýndu þeir okkur plastpoka fullan af hassi. Við afþökkuöum boðið en héld- um í humátt á eftir mönnunum. Við sáum á eftir þeim inn í hús á hominu við hliðina á lögreglustöðinni og fór- um inn á stöð til að láta lögregluna vita. Annar okkar varð eftir úti á tröppum og fylgdist með húsinu. Sá hann brátt hvar ljós kviknaði í einni íbúðinni.” „Víð báðum lögguna endilega aö athuga þetta en hún brást hin versta við. Ságðist ekki taka mark á okkur þar sem viö værum undir áhrifum áfengis. Þetta endaði meö þvi að öðr- um okkar var hent út með valdi. Þetta er í síðasta sinn sem ég legg mig fram um að aöstoða lögregluna, svo mikið er víst,” sagöi strákurinn. „Þetta er geymt en ekki gleymt þó að strákamir hafi ekki oröið vitni að framhaldinu,” sagði Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn í samtali við DV. „Eg hef ekki heyrt um að þeim hafi verið hent út en auðvitað tökum við minna mark á þeim sem koma til okkarölvaöir.” -EH. LEIKIÐÁ HIGHBURY Knattspyrnuunnendur þurfa ekk- ert að óttast að leik Arsenal og Manchester United, sem á að sýna beint í íslenska sjónvarpinu á morg- un kl. 15, verði frestað. — Eg hafði samband við ITV i Englandi í gær og sögðu þeir mér að veður væri mjög gott í London og það yrði leikiö á Highbury, sagði Bjarni Felixson, iþróttafréttamaöur sjónvarpsins. -sos A Æ . é I I á w ■íí:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.