Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Qupperneq 3
DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR1985. 3 Um áttatíu prósent af flotanum valdi aflamark fremur an sóknarmark. Kvótaskipin gera upp hug sinn: 150 skip völdu sóknarmark „Það völdu um 80 prósent af skipun- um aflamark, hinir völdu sóknarmark. Þetta er mög svipuö útkoma og viö átt- um von á,” sagði Stefán Þórarinsson í sjávarútvegsráðuneytinu í samtali við DV. Eins og kunnugt var voru gerðar breytingar á stjórnun botnfiskveiöa í upphafi þessa árs. Meginhugmyndin að baki þeim breytingum var aö gefa þeim, sem útveginn stunda, aukinn sjálfsákvöröunarrétt um það hvernig þeir stunda veiðarnar og auka athafnafrelsi þeirra, þó þannig að heiidarafla mikilvægustu botnfiskteg- undanna verði haldiö innan tiltekinna marka. Var útvegsmönnum gefinn kostur á aö velja milli aflamarks og sóknarmarks. Aflamark er í meginatriðum byggt á þeim úthlutunarreglum sem giltu á síðasta ári og ræöur aflareynsla á árunum 1981 til '83 mestu um hlut hvers skips í aflanum. Sóknarmark er hins vegar sett nálægt 80% af venju- legri sókn til botnfiskveiða á árunum 1981 til '83 fyrir hvern stærðar- og út- gerðarflokk fiskiskipa, en er ekki bein- línis byggt á úthaldi hvers skips. „1 kvótakerfinu eru 670 skip,” sagði Stefán. „Það eru því tæp 150 þeirra sem völdu sóknarmark. Eru þessi hlut- föll mjög nálægt því sem við gerðum ráðfyrir.” KÞ. Ef neyðarástand skapaðist í landinu: Raforkuverin létu þad Iftt á sig fá Ef neyðarástand skapaöist í land- inu og samgöngur til og frá rofnuðu, hversu lengi gætu Islendingar lifað eðlilegu lífi? Þessu getur enginn svarað nákvæm- lega, að sögn viðmælenda blaðsins. Hins vegar er það ljóst að raforku- kerfið gæti gengið býsna lengi. Stærsta raforkuver landsmanna, Landsvirkjun, er til dæmis ekki háð olíu, og svo er um aðrar raforku- stöðvar, nema svokallaðar varaafl- stöðvar. Þær ganga fyrir olíu en eru aðeins settar í gang veröi biianir í hinu kerfinu. „Að þessu leyti erum við sterkir gagnvart sambandsrofi,” sagði Guö- jón Petersen hjá Almannavörnum. „Hins vegar er stöð eins og Lands- virkjun háð ákveðnu streymi vara- hluta til að halda kerfinu við. Hjá olíufélögunum er starfandi svokölluð birgðanefnd. Hennar hlutverk er að sjá til þess aö alltaf séu i landinu þriggja mánaða birgðir af oliu svo og ákveðið magn af varahlutum, ef eitt- hvaðbilar.” Guöjón sagöi að þessar birgðir væru miðaðar við óbreytta olíu- notkun. „Ef viö sæjum fram á hættu- ástand þannig aö samgöngur til og frá landinu stöðvuðust yrði að sjálf- sögðu tekin upp skömmtun á oliu og myndu þá birgðirnar endast i mun lengri tíma, kannski sex mánuði eða lengur, svo ég nefni einhverja tölu,” sagði Guðjón. I viðtölum við menn kom fram að ef þessi staða kæmi upp mætti spara olíu á mörgum sviðum. Góður maöur sagöist hafa reiknað þaö út að einn skuttogari gæti annað því að fiska ofan í þjóðina. Þannig mætti leggja öllum flotanum og treina olíudrop- ann ansi lengi. „Þá má ekki gleyma því í sam- bandi við varahluti,” sagði Guðjón Petersen, „að í stríðinu, þegar allt var af skornum skammti, kom i ljós aö tslendingar sjálfir gátu smíðað ýmsa varahluti og annað sem vant- aði er fram að því hafði verið flutt inn. Þaö gætum viö áreiöanlega gert aftur ef í harðbakka slægi. ’ ’ „Annars vil ég nefna það,” sagði Guðjón, „að mikið hefur verið rætt um það innan Almannavarna, hvern- ig bregðast ætti við sambandsrofi og i framhaldi af því, hvemig best yrði staðið að eflingu varnanna. Nú liggja fyrir lög á Alþingi þessa efnis sem vonandi verða afgreidd á þessu þingi. Þar er nýr kafli sem nefnist hagvarnir og ekki hefur áður verið inni í lögunum um almannavarnir. Þar er gert ráð fyrir ákveðnu skipu- lagi á birgðasöfnun á olíu, varahlut- um, matvæium og öðru slíku, til að halda landinu gangandi ef hættu- ástand skapast. Þar er gert ráð fyrir að við getum gripið til skammtana á þessum sviöum í tíma áður en gengiö er á forðann. Þannig gætum við tór- að miklu lengur ef slíkt ástand yrði að veruleika,” sagði Guðjón Peter- sen. -K Þ íbúar við Álfatún 1 — 15 fengu óvænt 300 þúsund króna bakreikning. DV-mynd KAE Bakreikningar hjá Byggingasamvinnufélagi Kópavogs: „Erum enn meö lægsta byggingarkostnadinn” Bæjarstjórn Kópavogs lét nýlega bera saman byggingakostnað hjá Byggingasamvinnufélagi Kópavogs, Byggung og Verkamannabústöðum. Sýndu niðurstöður lægstan bygginga- kostnað hjá Byggingasamvinnufélagi Kópavogs. Ibúðirnar sem um ræðir standa við Álfatún og afhenti félagið þær siðla árs 1984. Nú hafa íbúöareig- endum borist bakreikningar að upp- hæð ailt að 300 þúsund krónum. DV hafði samband við Kristján Kristjánsson, formann Byggingasam- vinnufélags Kópavogs, og spurði hann hvort bakreikningarnir riðluðu ekki samanburöinum. Kristján fullyrti að svo væri ekki. Gert hefði verið ráð fyrir viðbótar- greiðslunum í upplýsingum til bæjar- stjórnar Kópavogs. „Þetta eru alls ekki bakreikningar. Við gerðum ákveðna áætlun í upphafi. Það sem gerðist var að stjórnin hélt ekki nógu vel á málum og lét hjá líða að upp- reikna mánaðargreiðslurnar.” „Þetta þýðir einfaldlega að fólkið heldur áfram aö greiða mánaðarlega fram á mitt næsta ár, mismunandi eftir stærð íbúða. Samkvæmt fyrra greiðsluplani var aðeins gert ráð fyrir að mánaðarlegar greiðslur stæðu fram í ágúst á þessu ári,” sagði Kristján.EH. Ævistarfið á höggstokkinn „Það er verið að setja ævistarf eins manns á höggstokkinn, eins hæf- asta manns þjóðarinnar,” sagði Al- bert Guðmundsson fjármálaráð- herra í ræðustól efri deildar í fyrra- dag. Átti hann þar við Jóhannes Nor- dal Seölabankastjóra. Hörð orðaskipti áttu sér stað á milli hans og Eyjólfs Konráös Jóns- sonar sem flutti tillögu um hagnýt- ingu Seðlabankans en hún er á allt annan veg en ráð var fyrir gert. Fjármálaráöherra sagöist hafa barist fyrir því í sinni tíð sem banka- ráðsmaður í Útvegsbankanum að bindiskylda Seðlabankans yrði gefin frjáls. Því væru hugmyndir Eyjólfs Konráðs, sem hann hefði komiö með í umræðunni, verið frá sér komnar. Umræðan snerist almennt um stjórnun peningamála en endaöi með oröahnippingum flokksbræðranna Alberts og Eyjólfs Konráðs. -ÞG. Baráttan um forstjórastólinn hjá Aburðarverksmiðjunni: Bréfbænda var ekki /esið upp Á formannafundi Búnaöarsambands Suðurlands sem haldinn var í síöustu viku var samþykkt tillaga um að skora á stjórn Áburðarverksmiðju ríkisins að ráða Þorstein Þórðarson sem for- stjóra verksmiðjunnar. Mælti for- mannafundurinn sérstaklega með ráðningu hans þar sem hann hafi á liðnum árum reynst afburðavel í sam- skiptum við bændur og formenn búnaöarfélaganna. Steinþóri Gestssyni, stjórnarfor- manni Áburðarverksmiðjunnar, var falið að leggja bréf um þessa sam- þykkt fyrir fund hjá Áburðarverk- smiðjunni í fyrradag, en þar átti að taka ákvörðun um hver yrði ráöinn for- stjóri. Af einhverjum ástæðum las Steinþór bréfið ekki upp né lagði þaö fyrir fundinn. Er mikiil kurr í for- mönnum búnaðarsambandsins sem stóðu að samþykktinni út af því og hafa þeir krafið Steinþór um skýringar á þessari málsmeðferð. Mikil barátta er um forstjórastólinn í Áburðarverksmiðjunni. Þeir Garðar Ingvarsson og Hákon Björnsson eru þar „krónprinsar” og hafa hvor sitt pólitíska aflið bak við sig. Því þótti óþægilegt fyrir stjórnina að fá nafn Þorsteins upp með þessum hætti. Stjórnarfundur er hjá Áburðarverk- smiðjunni á morgun og má þá búast við að þetta umtalaða bréf komi loks fram. -klp-. Styrinn um sumarbústaðina á Þingvöllum: Þingvallanefnd íhugar má/ið „Viö ræddum þetta mál en tókum ekki endanlega afstöðu. Það er í undir- búningi ályktun frá okkur vegna þessa og verður hún afgreidd á næsta fundi nefndarinnar,” sagði Þórarinn Sigur- jónsson, formaður Þingvallanefndar, í samtali við DV. I vikunni hélt nefndin fund þar sem rætt var hvort leyfa ætti byggingu sumarbústaða í Mjóaneslandi í Þing- vallahreppi. Eigendur landsins og bændurnir með hreppsnefndina í broddi fylkingar hafa sótt það mjög stíft. Hingað til hafa hins vegar náttúruverndarráð, skipulagsstjóri ríkisins og Þingvallanefnd lagst gegn því. Fyrmefndi hópurinn sætti sig ekki við þá niðurstöðu og hafa því fært þá tíu hektara, sem taka á undir sumarbústaöina, fjær Þjóðgarðinum en áður var gert ráð fyrir. Á þeirri forsendu, hafa þeir beöið Þingvalianefnd að taka á ný afstöðu til málsins. „Það er ekki búið að fastsetja næsta fund Þingvallanefndar, en hann mun þó veröa í næsta mánuði, sennilega fljótlega eftir mánaöamót. Á þessu stigi get ég ekki sagt til um á hvorn veginn þetta mál verður afgreitt,” sagði Þórarinn Sigurjónsson. -KÞ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.