Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 32
44 DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRtJAR 1985. tífégp: madoimna FOREIGNER - AGENT PROVOCATEUR POPP- SMÆLKI poppararnir með hugann 'ið Kþíópíu og liefur flogið l'vrir að stra\ í næsta mán- uði \erði hljómleikar á Wemble.vleikvanginutn í I.undúnum. Bob Geldof mun hvergi koma þar nálægt heldur hefur Dave Gilmour í Pink Floyd haft veg og vanda af undirbúningi og fengið til liðs við sig Wham!, Culture Club, Paul Voung, Howard Jones og Furvthmics... Geldof mun áfram stefna á hljómleika vestan hafs og austan i sum- ar.. . F.inn þekktasti rokk- ari Svía, Thontas Ledin, er væntanlegur hingað til lands í næsta mánuði. Hann treður upp í Broadway ásamt hljómsveit sinni um miðjan mánuðinn... Eftir langa mæðu hefur Phil Coll- ins séð sér fært að koma nvrri sólóplótu á ntarkað- inn. Ilún heitir: No Jacket Required... Um þetta leyti eru líka að koma út breið- skífur með Amii Stewart, David Johansen (áður í New York Dolls) og Smiths. Plata Morrissey og félaga hefur fengið einkar flna dóma en skífan heitir: Meat is Murder... Spandau Ballet er komin í málaferli við útgáfufyrir- tæki sitt, Chrysalis, og kref- ur það um áttatíu milljónir króna fyrir handvömm við umboðsmennskuna sem hún telur að hafi skaðað fer- il sinn stórlega... Gömlu F.mmerson, Lake og Palm- er. FLP, liafa tekið upp sainstarf á nýjan leik eftir átta ára hvíld. Að sönnu er trymbillinn Palmer ekki með enda önnum kafinn með hljómsveitinni Aisu; í hans stað er kominn Cozy Powell þannig að hljóm- sveitin getur áfram kallast: FLP. Hinir tveir eru Keith Fmmerson og Greg Lake... í síðasta smælki gátum við um tvo meinta lagastuldi. Hér er nýtt mál á döfinni: þrír bræður frá Kansas hala uppi málsókn og segjast höfundar að lagi Buddy Holly: IhatTI Be The Day, en um 28 ár eru liðin frá því lagið kom út. Paul McCartney á útgáfu- réttinn á lögum Hollys og fulltrúi hans spttrði forviða: Hvar hafa þessir bræður eiginlega alið manninn í öll þessr á.r'.’... Síðustu þrjár vikurnar hefur lagið Shout með I ears for Fears setið á toppi þýska listans og er konrið í annað sætið í Hol- landi... Árleg verðlaun breska hljómplötuiðnaðar- ins voru nýlega veitt. Þar hlaut Paul Young verðlaun sem besti söngvarinn, Ali- son Moyet sem besta söng- konan, Wham! sem besta hljómsveitin og Prince fékk tvenn verðlaun: sem besta alþjóðlega poppstjarnan og fyrir mynd sína; Purple Rain. -Gsal Engin helgislepja Fyrir rúmu ári skaut upp á stjömu- himininn vestan hafs ungri stúlku sem kallaði sig Madonna. Helgimyndin bætti svo enn um betur í lok síöasta árs er hún sendi frá sér plötuna Like A Virgin sem um þessar mundir situr í efsta sætinu á breiðskífulistanum vestra. Titillag plötunnar hefur sömu- leiðis gert það gott á smáskífulistum víða um heim. Og eftir aö hafa hlýtt á plötuna Like A Virgin um skeið er ég sosum ekkert gáttaöur á þeirri velgengni sem Ma- donnan á að fagna. Tónlist hennar er mjög þægileg áheymar, frísklegt melódískt popp, sem rennur liðlega um hlustir manns án þess þó að skilja mik- iö eftir. Þetta er uppskrift sem mörgum hefur gefist vel og má í því sambandi nefna Cyndi Lauper en þær Madonna og hún eru mjög keimlíkar bæði hvað varðar tónlist og raddbeit- ingu. 1 því sambandi skiptir engu máli hvort einhver sé að stæla einhvern, það geta greinilega fleiri en einn aðili grætt á sömu uppskriftinni. Þess vegna megum við búast við því á næstu mánuöum að Madonna tíni hvert lagið á fætur öðru af þessari plötu á smáskífur sem eiga eflaust eft- ir að njóta mikillar hylii víöa um heim. FRANK SINATRA - LA. IS MY LADY ÍGÓDUFORMI FERSK TONUST FRA GOMLUM JOXLUM Hin gamalkunna hljómsveit Chicago hefur náð því sem fáar hljómsveitir hat a náð að verða vinsæl á nýjan leik eftir nokkur mögur ár. Margir héldu, þegar gítarleikari hljómsveitarinnar, Terry Kath, lést eftir voðaskot fyrir nokkrum árum, aö ferill hennar væri allur. Terry Kath var tvímælalaust lit- rikasti meðlimur hljómsveitarinnar. En meölimir Chicago eru harðir og margreyndir jaxlar í bransanum og voru ekkert á því að gefast upp þótt á móti blési á tímabili. Með sinni sex- tándu plötu, sem að sjálfsögðu hét Chi- cago 16, voru vinsældir þeirra tryggð- ar á ný. Var það ekki síst hinu gull- fallega lagi Hard To Say I’m Sorry aö þakka sem Peter Cetera söng eftir- minnilega. Chicago hefur fylgt þessum er hún aðeins númeruð. Chicago 17 er mun betri plata heldur en 16 þegar á heildina er litið. Þar úir og grúir af ágætum lögum, þótt ekkert eitt lag geti talist yfirburðalag eins og Hard To Say I’m Sorry var á 16. Eins og á síðari plötum Chicago er Peter Cetera mest áberandi. Horfin í bih að minnsta kosti eru hin miklu áhrif sem Robert Lamm hafði á tónlist Chicago á fyrstu árum hljómsveitar- innar. Tónlist Chicago er í dag mýkri og meðfærilegri og semur sig að þeim tónlistarstefnum sem vinsælastar eru í dag í Bandaríkjunum. Á Chicago 17 eru tíu lög. Lög sem þegar hafa orðið vinsæl, Hard Habit To Break og Your The Inspiration, hafa bæði komist á vinsældalista. Sér- staklega hefur síðara lagið orðið vinsælt. Það eru önnur lög sem vel gætu fylgt eftir. Lög eins og Stay The Night og hið fallega lag Remember The Feeling. Það má með sanni segja að Chicago sé á uppleið í annaö sinn. Meölimir hennar eru þeir sömu og stofnuðu hana fyrir sextán árum, Robert Lamm, James Pakow, Walter Parazaider, Lee Loughnane, Daniel' Seraphine og Peter Cetera. Allt menn) sem komnir eru hátt á fertugsaldurinn en láta lítið á sjá. Hafa raddir þeirra ótrúlega lítið breyst. Þótt Chicago 17 sé tónlistarlega séö ekki á við sumar af fyrstu plötum Chicago þá er hún hin ágætasta áheyrnar og efast ég ekki um að Chicago á eftir að eignast marga nýja aðdáendur af yngri kynslóðinni með henni. -hk. ferð sem Frank Sinatra er einn fær um að gefa þeim. Þessi ágæta útkoma á plötunni er ekki síst upptökustjóranum og hljómsveitarstjóranum Quincy Jones að þakka sem hér er í tvöföldu hlutverki. Það er sama hvort hann sér um jafnólíka listamenn og Michael Jackson og Frank Sinatra, hann nær því besta út úr þeim. Það eru ellefu lög á L.A. Is My Lady, flest gömul og kunn lög, standardar sem Frank Sinatra hefur örugglega einhvern tíma sungið áður. Að því að ég best veit er aöeins eitt nýtt lag á plötunni, titillagið L.A. Is My Lady, sem er eftir Quincy Jones. Per- sónulega er ég þeirrar skoöunar aö því lagi heföi mátt sleppa. Bæði er lagiö óaðgengilegt og passar illa fyrir Sinatra. Það er í gömlu lögunum, sérstaklega hinum þekktari þeirra, sem „Gömlu bláu augun” blómstra. Ballöður eins og Teach Me Tonight, Stormy Weather og Until The Real Thing Comes Along eru einkar hugljúfar í meðförum hans og jassfílingurinn er fyrir hendi í Mack The Knife, The Best Of Everything, After You’ve Gone og It’s All Right With Me. Frank Sinatra á ekki, þrátt fyrir aldurinn (eitthvað í kringum sjötugt), marga keppinauta þegar kemur að því að syngja meö stórhljóm- sveitum. Það hefur hann margsannað. Ekki er hægt að skilja viö plötuna án þess að minnast á hljómsveitina sem Quincy Jones stjórnar. Þar er svo sannarlega valinn maður í hverju rúmi. Meðal þeirra eru George Benson, Lionel Hampton, Bob James, Ray Brown, Steve Gadd, Joe Newman og Urbie Green, svo einhverjir séu nefndir. Fyrir alla aðdáendur Frank Sinatra er La.A. Is My Lady hin besta hlustun. Heildarútkoman er góð hvar sem á er litið. -HK. vinsældum eftir meö sautjándu plötu sinni á sextán árum og eins og all- flestar aðrar plötur hljómsveitarinnar aðir. Karlinn talinn vera búinn að missa þann sjarma sem hann hafði áöur og röddin farin að gefa sig. Platan sem fylgdi í kjölfarið, L.A. Is My iÆdy er aftur á móti vel heppnuð. Rödd F’rank Sinatra hefur að vísu aðeins fariö aftur en sjarminn er fyrir hendi og lögin fá þessa sérstöku með- Af og til á undanförnum árum hefur Frank Sinatra komið úr skel sinni og gefið út plötu og haldið nokkra konserta við misjafnar undirtektir. Einmitt þetta gerði gamli maðurinn seinni hluta síðasta árs. Konsertarnir voru víst af flestum taldir misheppn- VIÐSAMA Þaö er alveg furðulegt hvemig sumum hljómsveitum tekst að við- halda vinsældum sínum þrátt fyrir að þær hafi ekki haft neitt nýtt fram að færa svo árum skipti. Ein þessara hljómsveita er bandarísk-breska iðnaðarrokksveitin Foreigner, sem nú trónar á toppum vinsældalista umi allan heim. Ef grannt er skoðaö má með sanni segja að sú tónlist, sem hljómsveitin leikur í dag sé nákvæm- lega sama tónlistm og hún lék þegar hún var stofnuð 1976. En hvemig stendur þá á því að menn eru ekki löngu orðnir hundleiðir á hljómsveitinni? Jú, þar kemur ýmis- legt til. I fyrsta lagi eru hljómsveitar- meðlimir einkar lagnir við að klæða iönaðarrokkið í einfaldan melódiskan Ný/ar... plötur búning sem greinilega fellur mörgum vel í geð. Það eru engar óþarfa krúsi- dúllur í lögum Foreigner allt er þetta einfalt, fágað og fint. I öðru lagi og það er allra þyngst á metunum, eiga Foreigner alltaf eina gullfallega melódíu í pokahominu sem oft á tíðum gerir útslagiö hvað vin- sældir plötunnar áhrærir. Þannig er þessu varið á þessari plötu Agent Provocateur. Án melódíunnar vinsælu I Want To Know What Love Is heföi þessi plata vakiö sáralitla at- hygli. En svona getur eitt lag haft mikið aö segja. Hin lögin á plötunni eru sömu gömlu Foreigner lummumar — þær heita bara öðrum nöfnum en síö- ast. -SþS FOREIGNER HEYGARÐSHORNIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.