Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR1985.
5
Loðnuveiðar hafa lagst af um sinn vegna sjómannaverkfallsins. Rauðsey
frá Akranesi var sennilega siðasti loðnubáturinn sem kom til hafnar.
Myndin var tekin er báturinn lagðist að bryggju með fullfermi í Reykjavik.
Hluti loðnubátanna landar erlendis. DV-mynd: S.
Verst atvinnu-
ástand á Norð-
uriandi eystra
— atvinnuleysi á öllu landinu í janúar jaf ngildir því að
2600 manns hafi verið án atvinnu allan mánuðinn
Atvinnuástand í landinu í janúar-
mánuöi var einna verst á Norðurlandi
eystra. Fjöldi atvinnuleysisdaga þar í
janúar jafngildir aö um 4,7% af
mannafla á vinnumarkaði í kjördæm-
inu hafi verið án atvinnu.
I heild voru skráöir 57 þúsund at-
vinnuleysisdagar á öllu landinu í janú-
ar. Það jafngildir því að um 2600
manns hafi verið án atvinnu allan
mánuðinn samkvæmt spá Þjóðhags-
stofnunar inn mannafla á vinnu-
markaði. Þetta er talsvert meira at-
vinnuleysi en skráð var í desember-
mánuði síðastliðnum en þá voru
skráöir 40 þúsund atvinnuleysisdagar.
Þetta er hins vegar minna en var í
janúarmánuði 1984 þegar skráðir voru
rúmlega 84 þúsund atvinnuleysisdag-
ar.
Atvinnuleysið í janúarmánuði skipt-
ist hins vegar mjög misjafnt milli kjör-
dæma. Atvinnuástandið hefur verið
skást á Vestfjörðum ef miðað er við
fjölda atvinnuleysisdaga sem hlutfall
af mannafla á vinnumarkaði í því kjör-
dæmi. Þaö er í samræmi við atvinnu-
ástandið þar allt síðastliðið ár eins og
meðfylgjandi tafla ber með sér. 1
janúarmánuði jafngilti atvinnuleysi
þar að 0,9% af mannafla hefði verið án
atvinnu í mánuðinum. I Reykjavík var
þetta hlutfall 1,1% en annars staðar á
landinu var það talsvert hærra.
Sem fyrr segir var atvinnuleysi í
janúar sem hlutfall af mannafla mest
á Norðurlandi eystra. Þar var hlutfall-
ið 4,7%. Á Vesturlandi var hlutfallið
3,5% og sama hlutfall var á Norður-
landi vestra. Á Suðurlandi var hlutfall-
ið 3,2%, í Reykjaneskjördæmi 2,8% og
á Austfjörðum 2,6%.
Atvinnuástand er að jafnaði verst í
janúarmánuði á öllu iandinu, að
Reykjavík ef til vill undanskilinni.
Þessar hlutfallstölur eru því hærri
þann mánuð en að meðaltali yfir árið.
Hins vegar virðist það gilda allt árið að
atvinnuástand sé að jafnaði verst á
Norðurlandi og Vesturlandi en skást í
Reykjavík og á Vestfjöröum. Þetta má
sjá á meðfylgjandi töflu sem fengin er
hjá Framkvæmdastofnun ríkisins.
-ÓEF.
Atvinnuleysi 1984
sem hlutfall af ársverkum 1983
Kjördœmi Hlutfall
Reykjavík 0,8%
Reykjanes 1,3%
Vesturland 1,6%
Vestfirðir 0,6%
Norðurland vestra 2,1%
Norðurland eystra 2,8%
Austurland 1,9%
Suðurland 1,5%
Landiðallt 1,3%
1230 húsnæðis-
lán greidd út
Húsnæðisstofnun ríkisins mun á
næstu vikum greiða lán til þeirra hús-
byggjenda sem beðið hafa hvað lengst
eftir sinum lánum. Verða greidd út alls
1230 lán. Sto&iuninni er gert mögulegt
að greiða þessi lán út nú þar sem ríkis-
sjóður hefur ákveðið að greiða til
stofnunarinnar nú þegar 150 milljónir
króna af heildarframlagi sínu á þessu
ári.
Fyrst kemur til greiðslu seinni hluti
láns til þeirra sem fengu fyrri hluta
láns eftir 10. júlí 1984. Það kemur til
greiðslu eftir 25. febrúar.
Eftir 26. febrúar koma til greiðslu
fyrri hlutar lána til þeirra sem gerðu
fokhelt í október 1984 og eru að eignast
sína fyrstu íbúð. Þar er um að ræða 80
lán, samtals að upphæð 27,5 milljónir
króna eða um 343 þúsund að meðaltali.
Svonefnd G-lán, til kaupa á eldri
íbúðum, koma til greiðslu eftir 5. mars
til þeirra sem sóttu um lán fyrir 1. júlí
1984. Þar er um að ræða 530 lán, sam-
tals aö upphæð 90 milijónir króna eða
um 170 þúsund að meðaltali.
Eftir 5. mars kemur einnig til
greiðslu 3. hluti lána til þeirra sem
fengu 1. hluta greiddan eftir 5. desem-
ber 1983.
Eftir 10. mars kemur til greiðslu 1.
hluti lána til þeirra sem gerðu fokhelt í
ágúst og september 1984 og eiga íbúð
fyrir. Þar er um að ræða 233 lán að
upphæð 52 milljónir króna eöa 223
þúsund að meðaltali. Eftir 10. mars
koma einnig til greiðslu lán til þeirra
sem byggja einingahús og gerðu þau
fokheld í nóvember eða desember á
síöasta ári. Það eru 76 lán er nema 250
þúsund krónum að meðaltali.
Lán til viðbygginga og endurbóta
koma til greiðslu eftir 15. mars til
þeirra sem lögðu inn fullgildar um-
sóknir fyrir síðustu áramót enda hafi
framkvæmdum einnig verið lokið fyrir
áramótin. Það eru 80 lán að upphæð 225
þúsund að meðaltali. -ÓEF.
Olíuhækkunin:
160 milljón kr.
útgjaldaauki
— segir Kristján Ragnarsson
„Þetta þýðir 160 miiljón króna út-
gjaldaaukningu fyrir útgerðina. Það
er hverjum manni ljóst að olían er
okkar stærsti kostnaðarliður. Um
leið og hún hækkar versnar út-
koman,” sagði Kristján Ragnarsson,
formaður LlU, í samtali við DV,
aðspuröur um hver áhrif olíu-
hækkunin hefði á útgerðina.
Á fundi verðlagsráðs nýverið var
tekin fyrir beiðni olíufélaganna um
hækkun á gas- og svartolíu. Var
ákveðið að gasolía yrði hækkuð úr
10,70 lítrinn í 11,10 eða um 3,7% og
tonnið af svartoliu úr 10.400 krónum í
11.800 eða um 13,5%. Er með þessari
hækkun reiknað með að innkaupa-
reikningar olíufélaganna jafnist á 6
mánuðum í stað 3ja eins og félögin
fóru fram á. Bensínverð er hins
vegar óbreytt.
„Það sem er athyglisverðast við
hækkun þessa er að svartolían, er
öllu átti að bjarga, er nú orðin jafn-
dýr gasolíunni. Sennilega snúa því
skipin sér aftur að henni,” sagði
Kristján.
— Hvað um þá hugmynd að þið
stofnið ykkar eigin olíuverslun? Fær
sú hugmynd nú byr undir báða
vængi?
„Þótt við höfum gagnrýnt olíu-
verslunina hefur aldrei verið um það
rætt að við stofnuðum okkar eigin fé-
lag enda finnst okkur nóg fyrir af
slíku,” sagði Kristján Ragnarsson.
„Spillir fyrir
friðsamlegri lausn”
— LÍÚ mótmælir áskorun sjómannatil skipstjóra um að sigla í land
Samninganefnd LIÚ hefur mótmælt
harðlega áskorun Sjómannasam-
bandsins og Farmannasambandsins er
þau beindu þeirri ósk til skipstjóra og
áhafna fiskiskipa að þær sigldu til
hafnar.
Eins og kunnugt er beindu
samninganefndir SSI og FFSI þessari
ósk til skipstjóranna og áhafnanna
síðastliöinn þriðjudag. Tóku fjölmarg-
ir skipstjórar þessari áskorun og
sigldu til hafnar.
„Með þessu hafa heildarsamtök sjó-
manna átt frumkvæðið að því, að
brotið er sameiginlegt ákvæði í kjara-
samningum aðila um veiðar í verk-
fölluin, sem heimilar skipum að ljúka
veiðiferð þeirri, er þau voru komin í,
þegar verkfall hófst,” segir orðrétt í
mótmælaskjali Kristjáns Ragnars-
sonar fyrir hönd LlÚ.
Þá segir og, að öllum ásökunum í
garö útgerðarmanna, að þeir hafi beitt
sér fyrir verkfallsbrotum og hafi verið
með undirróður og þrýsting við sjó-
menn, sé mótmælt sem staðhæfu-
lausum.
„LlÚ áskilur sér allan rétt fyrir sig
og félagsmenn sína vegna þessara
ólögmætu aðgerða, sem valdið hafa út-
gerðarmönnum gífurlegu fjártjóni og
spillt verulega fyrir friðsamlegri lausn
á yfirstandandi kjaradeilu,” segir í
niðurlagi bréfs þessa. -KÞ.
slýja Pastell-línan frá Kalmar, ný eldhús fyrir
nútímafólk. Alveg nýtt útlit í 5 pastellitum
og hvítu.
Kalmar eldhúsin eru fáanleg í hæð 210, 240
og þar yfir, með öllum þeim þægindum sem
nútimaeldhús hjóða.
Nú býðst 15% kynningarafsfi
Pastell innréttingunum.
Ennfremur hjóðum við 15% afslátt af
innréttingum í furu og hvítu.
Tryggðu þér Kalmar eldhús og bað
í tíma.
Sökiumboð:
VorskmÉi Carol Vestmamaeyjum
Bynor byggmgaiþjAnusta Akurayn,
sfmi 26449.
Kaimar
SKEIFAN 8 - 108 REYKJAVlK - SlMI 82011
Opið
kl. 10-16.