Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 28
40 DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR1985. Peningamarkaður í gærkvöldi í gærkvöldi Fyndið mál, gott mál Sigurður G. Tómasson er í stöðugri sókn í Daglegu máli og eru þetta orönir hreinustu skemmtiþættir hjá honum í viöbót við að veita mál- og skrifglööum landsmönnum öflugt aðhald. Alltaf herpist nú litli maginn þeg- ar umsjónarmaður Daglegs máls fer aö tala um eitthvaö sem hann hafi heyrt eða lesið í fjölmiðlum. 1 þetta skipti heyröist mér það vera Mogginn og rás tvö sem fengu á lúðurinn. Þátturinn Þriðji maðurinn var sendur út í fyrsta skipti í gærkvöldi og gestur þeirra Árna Þórarinssonar og Ingólfs Margeirssonar var Davíð Oddsson. Er skemmst frá því að segja að Davíð brilleraði. Það verður áreiöanlega erfitt að vera gestur þáttarins á eftir honum. — Sigurður G. Valgeirsson. Innlán með sórkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innistæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65—75 ára geta losað innistæður með 6 mánaða fyrirvara. 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikning- arnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu relknlngar eru með hvert inniegg bundið í tvö ár. Reikningarnir eru verðtryggðir og með 9% vöxtum. Lífeyrlsbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá líf- eyrissjóðum eða almannatryggingum. Innistæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Vextir eru 31% og ársávöxtun 31%. Sérbók fær strax 31% nafnvextí 2% bætast stðan viö eftir hvei ja þrjá mánuði sem innistæða er óhreyfð, upp í 36% eftir níu mánuði. Ársávöxtun getur órðið 37.31% ínnistæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Búnaðarbanklnn: Sparibók með sérvöxtum er óbundin 35% nafnvöxtun og 35% árs- ávöxtun sé innistæða óhreyfð. Vextir eru færðir um áramót og þá bornir saman við vexti af þriggja mánaða verðtryggðum reikn- ingum. Reynist ávöxtun þar betri er mismun bætt við. Af hverri úttekt dragast 1.8% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Sparibókin skilar hærri ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða lengur. Iðnaðarbanklnn: A tvo reikninga í bankanum fæst IB-bónus. Overðtryggðan 6 mánaða reikning sem ber þannig 36% nafnvexti og getur náð 39.24% ársávöxtun. Og verðtryggðan 6 mánaða reikning sem ber 3.5% vexti. Vextir á reikningunum eru bornir saman mánaðarlega og sú ávöxtun valin sem reynist betri. Vextir eru færðir misserislega. 30. júní og 31. desember. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin meö 35% nafnvöxtum. Vextir eru færðir um ára- mót. Eftir hvern ársfjórðung eru þeir hins vegar bomir saman við ávöxtun á 3ja mánaða verðtryggðum reikningum. Reynist hún betri gildir hún umræddan ársf jórðung. Af hverri úttekt dragast 2.1% i svonefnda vaxtaleiðréttingu. Kjörbókin skilar hærri ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða lengur. Samvinnubankinn: Innlegg á Hávaxta- reikntag ber stighækkandi vexti. 24% fyrstu 2 mánuðina, 3. mánuðinn 25.5%, 4. mánuðinn 27%, 5. mánuðinn 28.5%, 6. mánuðinn 30%. Eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12 mánuði 32.5%. Sé tekið út standa vextir þess tímabils það næsta einnig. Hæsta ársávöxtun er 35.14%. Vextir eru bomir saman við vexti á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum sparireikningum. Sé ávöxtun þar betri er munurinn færður á Há-, vaxtareikninginn. Vextir færast misseris- lega. ■' Otvegsbankinn: Vextir á reikningi með Ábét er annaðhvort 2,75% og full verðtrygg- ing, eins og á 3ja mánaða verðtryggðum sparireikningi, eða ná 34,6% ársávöxtun, án1 verðtryggingar. Samanburður er gerður mánaðarlega, en vextir færðir í ársiok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 24%, þann almanaksmánuð. Verslunarbtnkinn: Kaskó-reikningurinn er óbundinn. Um hann gilda fjögur vaxtatímabil á ári, janúar—mars, apríl—júní, júlí— september, október—desember. I lok hvers þeirra fær óhreyfður Kaskó-reikningur vaxta- uppbót sem miðast við mánaðarlegan út- reikning á vaxtakjörum bankans og hag- stæöasta ávöxtun látin gilda. Hún er nú ýmist á óverðtryggðum 6 mán. reikningum með 30% nafnvöxtum og 33.5% ársávöxtun eða á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 2% vöxtum. Sé lagt inn á miðju tímabili og innistæða látin óhreyfö næsta tímabil á eftir reiknast iuppbót allan sparnaðartímann. Við úttekt ifellur vaxtauppbót niður það tímabil og vextir : reiknast þá 24%, án verðtryggingar. tbúðalánareikningur er óbundinn og með kaskó-kjörum. Hann tengist rétti til lántöku. Sparnaður er 2—5 ár, lánshlutfaU 150—200% miðað við sparnað með vöxtum og verðbótum. Endurgreiðslutimi 3—10 ár. Utlán eru með hæstu vöxtum bankans á hverjum tíma. Sparnaður er ekki bundinn við fastar upphæðir á mánuði. Bankinn ákveður hámarkslán eftir hvert sparnaðartimabil. Sú ákvörðun er endurskoðuð tvisvar á ári. Sparlsjóðlr: Vextir á Trompreikningi eru stighækkandi. 24% fyrstu þrjá mánuðina, 4.— 6. mánuð 27%, eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12 mánuði 32.5%. Arsávöxtun 35.1%. Sé tekið út af reikningi á einhverju vaxtatimabUinu, standa vextir þess næsta timabU. Sé ■ innistæða óhreyfð í 6 mánuði frá innleggsdegi er ávöxtun borin saman við ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings. Sú gildir sem betri reynist. Ríkissjóöur: Spariskirteinl, 1. flokkur A 1985, eru bundin i 3 ár, til 10. janúar 1988. Þau eru verðtryggð og með 7% vöxtum, óbreytanlegum. Upphæðir eru 5.000,10.000 og 100.000 krónur. Spariskírtetni með vaxtamiðum, 1. flokkur B 1985, eru bundin í 5 ár, til 10. janúar 1990. Þau eru verötryggð og með 6.71 vöxtum. Vextir greiðast misserislega á tímabUinu, fyrst 10. júlí næstkomandi. Upphæðir eru 5, 10 og 100 þúsund krónur. Spariskírteini með hreyfanlegum vöxtum og vaxtaauka, 1. flokkur C1985, eru bundin til 10. júlí 1986, í 18 mánuði. Vextir eru hreyfanlegir, meðaltai vaxta af 6 mánaða verðtryggðum reikningum banka með 50% álagi, vaxtaauka. Samtals 5.14% nú. Upphæðir eru 5,10 og 100 þúsund krónur. Gengistryggð spariskirtelni, 1. flokkur SDR 1985, eru bundin til 10. janúar eða 9. apríl 1990. Gengistrygging miðast við SDR-reiknimynt. Vextir eru 9% og óbreytanlegir. Upphæðir eru 5.000,10.000 og 100.000 krónur. Spariskírteini rikissjóðs fást í Seðla- bankanum, hjá viðskíptabönkum, spari- sjóðum og verðbréfasölum. Útlán Iffeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lána- upphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30—60 mánuöir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 144.000—600.000 eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggð og með 5—8% vöxtum. Lánstími er 15—35 ár eftir sjóðum og lánsrétti. Bíðtími eftir lánum er mjög misjafn, breytilegur milii sjóða og hjá hverjum sjóði eftiraðstæðum. Hægt er að færa lánsrétt þegar viðkomandi skiptir um Ufeyrissjóð eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir i eitt ar og reiknaðir í einu lagi yfir jtann tíma. Reiknist vextir oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verðurþá hærri en nafnvextirnir. Ef 1.000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 24,0% nafnvöxtum verður innistæðan í lok þess tíma 1.240 krónur og 24,0% ársávöxtun í því tilviki. Liggi 1.000 krónur inni í 6+6 mánuði á 24,0% vöxtum reiknast fyrst 12% vextir eftir sex mánuðina. Þá er innistæðan komin í 1.120 krónur og á þá upphæö reiknast 12% vextir seinni sex mánuðina. Lokatalan veröur þannig kr. 1.254.40 og ársávöxtunin 25,4%. Dráttarvextir I febrúar, eins og var í janúar, geta gilt tvenns konar dráttarvextir. Annars vegar 3,75% á mánuði og 45% á ári. Mánaðarvextir talla þá að fullu á skuld á eindaga. Hins vegar geta gilt dagvextir. Eiga þeir að gilda ein- göngu frá og með 1. mars. Dagvextir eru reiknaðir hjá Seðla- bankanum fyrirfram vegna hvers mánaðar. I febrúar miðast þeir viö 39% á heilu ári eða 3,25% á mánuði. Vextir á dag veröa þá 0,10833%. Dagvextir eru gjaldfærðir á skuldir mánaðarlega. Strax á öðrum mánuði frá ein- daga koma því til vaxtavextir. Ársávöxtun febrúarvaxtanna verður þannig 46,8%. Vnitölur Lánskjaravisitala fyrir febrúar 1985 er 1050 stig. Hún var 1006 stig í janúar. Miðaö er við 100 íjúní1979. Byggingarvísltalan fyrir fyrsta ársfjórðung 1985 er 185 stig en var 168 stig síöasta árs- fjórðung 1984. Miðað er við 100 í janúar 1983. Andlát Hjörtur Hjartarson kaupmaöur lést 15. febrúar sl. Hann fæddist í Reykja- vík 31. október 1901, sonur hjónanna Margrétar Sveinsdóttur og Hjartar Jónssonar. Hjörtur rak verslun á Bræöraborgarstíg 1 frá 1926 til 1982. Eftirlifandi eiginkona hans er Ásta Björnsdóttir. Þau hjónin eignuðust fimm börn. Útför Hjartar var gerð frá Dómkirkjunni í morgun kl. 10.30. Ragnheiður Bogadóttir, Frakkastíg 6a,erlátin. Ásgeir Halldór Jónsson, fyrrverandi bóndi á Valshamri á Skógarströnd, Vesturbergi 144, andaöist í öldrunar- deild Landspítalans, Hátúni lOb, 21. febrúar. Björn Ársælsson, Bólstaöarhlíö 30, lést 20. febrúar. Edvin Ámason, andaöist í Landspítal- anum aö kvöldi 19. febrúar. Marteinn M. Skaftfells kennari, Hamrahlíð 5, lést að morgní 20. febrúar. Sigurkarl Fjólar Ólafsson, Kópa- vogsbraut 105 Kópavogi, andaöist í Landspítalanum miðvikudaginn 20. febrúar sl. Amalia Jónsdóttir, Oöinsgötu 13 Reykjavík, veröur jarðsungin frá Villingaholtskírkju laugardaginn 23. febrúar kl. 13. Áætlunarferö frá BSI. Hafdis Halldórsdóttir, Tjarnargötu 33 Keflavík, verður jarösungin frá Keflavíkurkirkju í dag, 22. febrúar, kl. 14. Rannveig Jónsdóttir veröur jarö- sungin frá Stóra-Núpskirkju laugar- daginn 23. febrúar kl. 14. Ferð verður frá Umferðarmiöstööinni kl. 11. Finnbogi Einarsson, Neöri-Prests- húsum Mýrdal, veröur jarösunginn frá Reyniskirkju laugardaginn 23. febrúar kl. 14. Númi Erlendsson trésmíðameistari, frá Þjóðólfshaga Holtahreppi, veröur jarðsunginn frá Marteinstungukirkju laugardaginn 23. febrúar kl. 14. Ferö verður frá BSI kl. 12. SiaurAur Sjcc.-’^OT:, GúrUVSugÍ Garði, veröur jarösunginn frá Utskála- kirkju laugardaginn 23. febrúar kl. 14. Valdimar Einarsson, Blikabraut 9 Keflavík, verður jarösunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 23. febrúar kl. 14. Fundir Aðalfundur Leigjendasam- takanna veröur haldinn laugardaginn 2. mars nk. í Hamragörðum viö Hofsvallagötu og hefst kl. 14.30. Auk aöalfundar- starfa mun formaður Búseta í Reykja- vík, Jón Rúnar Sveinsson, fjalla um efnið: Fyrir hverja byggir Búsetl? Allir áhugamenn um málefni leigjenda velkomnir. Leigjendasamtökin. Tilkynningar Hið íslenska sjóréttarfélag Fræðslufundur verður haldinn í Hinu íslenska sjóréttarfélagi miðvikudaginn 27. febrúar 1985 og hefst hann kl. 17 í stofu 101 í Lögbergi, húsi lagadeildar Háskólans. Fundarefni: Garðar Bríem, löggiltur niður- jöfnunarmaður sjótjóna, flytur eríndi er hann nefnir: Sjótjón. Fundurinn er öllum opinn og eru félags- menn og aðrir áhugamenn um sjórétt og sjó- vátryggingarétt hvattir til að f jölmenna. Félags einstæðra foreldra Bamagrimuball verður haldið sunnudaginn 24. febrúar á Hótel Esju frá kl. 14—17. Til- kynnið þátttöku til skrifstofunnar fyrir 21. febrúar í síma 11822. Arshátið fyrir stóra fólkið verður föstudaginn 1. mars í Broad- way og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Látið vita á skrifstofuna fyrir 26. febrúar. Borgfirðingafélagið í Reykjavík heldur árshátíð sína í Fóstbræðraheimilinu, Langholtsvegi 109—111, laugardaginn 2. mars og hefst hún með borðhaldi kl. 19. Allar upplýsingar í símum 12322,38174 og 35847. Breiðfirðingafélagið ■ Reykjavík Spila- og skemmtikvöld verður föstudagbui 22. febrúar kl. 20.30. Angóraköttur týndur Dökkbröndóttur angóraköttur með hvítum blettum tapaöist frá Hafnarfiröi. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 54968. Samtök gegn astma og ofnæmi halda félagsfund í Norðurbrún 1, laugar- daginn 23. febrúarkl. 14. Á dagskrá eru félagsmál og lagabreytingar. I fundarlok verður spilað bingó. Allir velkomnir. Stjómin. íslensk fyrirtæki 1985 komin út Frjálst framtak hf. hefur sent frá sér bókina Islensk fyrirtæki 1985, en bókin er uppsláttar- rit yfir fyrirtæki, félög og stofnanir. Er þetta í fimmtánda sinn sem Frjálst framtak gefur slíka fyrirtækjabók út en allt frá upphafí hefur verið lögð á það áhersla að auka upplýs- ingar sem fram koma i bókinni, að hafa þær nýjar og réttar. A sfðustu árum hefur full- komin tölvutækni verið notuð við það starf. Bókin skiptist í fjóra meginkafla: Fyrir- tækjaskrá; Vöm- og þjónustuskrá; Urnboða- skrá og Skipaskrá. 1 fyrirtækjaskránni er að finna nafn, heimilisfang og símanúmer allra starfræktra fyrirtæk^ * .. aui ^ em fyllri upplýsingar um starfssvið fyrir- tækjanna, stjómendur þeirra og fl. Skráin er i stafrófsröð innan hvers staðar á landinu, byrjað er á Reykjavik og nágrenni og síðan er landsbyggðin í stafrófsröð þar fyrir aftan. 1 vöru- og þjónustuskránni er að finna upplýs- ingar um hvaða aðilar hafa á boðstólum til- tekna vöm eða þjónustu. Em um tvö þúsund flokkar vörutegunda og þjónustu í skránni. I umboðaskránni em skráð eriend umboð og upplýsingar um hver er umboðsmaður á Is- landi. I skipaskránni er að finna upplýsingar um islensk skip, einkennisstafi þeirra, eig- endur eða útgerðarmenn og fl. I bókinni er sérkafli á ensku þar sem fram koma upplýsingar um Island og viðskiptalif á lslandi, auk þess sem skýrt er hvernig unnt er að nota bókina, en það hefur færst verulega í vaxt á undanfömum árum að erlendir aðilar noti bókina til þess að komast í viðskiptasam- bönd á Islandi. Þá er einnig i bókinni skrá um islensk sendiráð og ræðismannsskrifstofur erlendis, skrá yfir islenska útflytjendur, yfir helstu vörusýningar og fl. Ritstjóri Islensk fyrirtæki 1985 er Erla Einarsdóttir og er þetta annað árið sem hún gegnir því starfi. Islensk fyrirtæki 1985 er 1.175 bls. Bókin er prentunin í Prentstofu G. Benediktssonar og bundin hjá Bókfeili hf. Sossa úr Kópavoginum týnd Sossa týndist fyrir viku úr Hrauntungu 60 í Kópavogi. Hún er hvít meö svörtum og brúnum flekkjum. Þeir sem hafa orðið henn- ar varir em vinsamlegast beðnir að hringja í sima 44576 eða 41061. Kettir í óskilum hjá Kattavinafélaginu Hjá Kattavinafélaginu eru í óskilum ung læöa, bröndótt, með hvita bringu og hosur, skottlaus, svört læöa og hvit ómerkt með orangelitaða hálsói og tveir fresskettir. Sími Kattavinafélagsins er 14594. Afmæli Á morgun, laugardag, er Bjöm Guðmundsson fyrrum bóndi í Reyn- hólum í Miöfirði 100 ára. Hann er vel hress og ætlar aö taka á móti gestum i félagsheimilinu. I dag, 22. þ.m., er 80 ára Diðrik Jónsson húsasmiður frá Einholti í Biskupstungum, Hofteigi 20 hér í Reykjavík. Hann verður að heiman. 60 ára verður á morgun, 23. febrúar, Páll Janus Þórðarson frá Súganda- firði, Álftamýri 8. Páll er verkstjóri á vörulager Sölumiðstöövar hraðfrystihúsanna, Héðinsgötu 2 Reykjavík. Hann tekur á móti gestum í Síðumúla 35, húsakynnum Skag- firðingafélagsins, milli kl. 15 og 18 á afmælisdaginn. VEXTIR BANKA OG SPARISJÚOA (%) INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM SJA sérlista Í| i 11 i 4i 1 i! 3 5 II «f ! i ,6 11 I 6 II % l lí ii ú INNLAN ÚVERDTRYGGÐ SPARISJÖOSBÆKUR Obtndn imst»Aa 24,0 24,0 24.0 24.0 24,0 24.0 24.0 24.0 24.0 24.0 SPARIREIKNINGAR 3fa mánaóa uppsogn 27.0 28.B 273) 27.0 27.0 27.0 27.0 273) 27.0 27.0 6 mánaða uppsögn 36.0 39.2 30.0 31.5 36.0 31.5 31.5 30.0 31.5 12 mánaða uppsogn 32.0 34.6 32,0 31.5 3231 18 minaóa uppsogn 37.0 40.4 373) SPARNAOUR LANSRÉTTUR Sparað 3-5 mánuðt 27.0 27.0 27.0 27.0 273) 27.0 27.0 Sparað 6 mán. og meáa 31.5 30,0 27.0 27.0 31.5 30.0 30.0 innlAnsskIrteini Ti 6 mánaða 32.0 34.6 30.0 31,5 31.5 31.5 323) 31.5 TÉKKAREIKNINGAR Avisanarnérangar 22.0 22.0 18.0 19.0 19.0 19.0 19.0 19.0 18.0 Htauparaðiningar 19.0 16.0 18.0 19.0 19,0 12.0 19.0 19.0 1B.0 innlAn verotryggð SPARIREIKNINGAR 3fa mánaða uppsogn 4.0 M 2,5 0.0 2.5 1.0 2.75 1.0 1,0 6 mánaða uppsögn 6.5 6.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 2.0 3.5 INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALOEYRISREIKNINGAR Bandariltfadolarar 9.5 9.5 83) 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 8.0 Sterimgspund 10,0 9.5 10,0 8.5 10.0 B.O 10.0 103) 8.5 Vestur þýsk mork 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4,0 Danskar krönur 10.0 9.5 10.0 8.5 10.0 B.5 10.0 103) 8.5 útlAn óverðtryggð ALMENNIR VlXUR Iforvextirl 31.0 31.0 31.0 31.0 31.0 31.0 31.0 31.0 31.0 VRtSKIPIRVlXUfl Iforvexta) 32,0 32.0 32,0 32,0 32.0 32,0 3231 32,0 32.0 ALMENN SKULDABRÉF 34.0 34.0 34,0 34,0 34,0 34.0 34.0 34.0 34.0 VIOSKIPTASKULDABRÉF 35,0 35.0 35.0 35.0 35.0 35.0 HLAUPAREIKNINGAR Yft drátlur 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 UTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Að 2 1/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengri en 2 1/2 ár 53) 5.0 53) 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLÁN TIL FRÁNILEIDSLÚ VEGNA INNANLANOSS0LU 24,0 24.0 24,0 24.0 24.0 24,0 24.0 24,0 24,0 VEGNA UTFLUTNINGS SOR reénanym 9,5 9.5 9.5 9.5 9,5 9,5 9.5 9.5 9,5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.