Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Qupperneq 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR1985. ÞESSIR VORU Það var fulit út úr dyrum á Hótel Loftlelðum I gær þegir 8. umferð afmælis- vkákmóts Skáksambandslns var tefld. Þeirra i meðal voru: Mimlr Arnórsson kennarl, HJörtur Gunnarsson blaða- maður, Magnúa V. Pétursson knsttspyrnu- dómari, Halldór BlondaJ alþlngismaður, Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur, Garðar H. Svavarsson fyrrverandi kaupmaður, Haraldur Blöndal lögfræðingur, Eglll Valgeirsson rakari, Kristjin Jónsson loft- skeytamaður, Ingvar Ásmundsson, skóla- stjóri Iönskólans, Helgi Pétursson, fyrrverandi skipstjóri, Þórhailur VUmund- arson, forstöðumaöur örnefna- stofnunar, Guðmundur Ómar Þriinsson lögreglumaöur, Gunnar Gunnarsson, fyrrverandi forseti Skáksambandsins, Ólafur BJarnl Guðnason blaðamaður, HaUdór Jónsson, skikmeistari i Akureyri, Guðmundur Arason, fyrrver- andl forseti Skiksambandsins, Hrelnn Hrafnsson, skikmaður i Akureyri, BJarni Þjóðlelfsson lœknir, Davið Gislason læknir, Sigurgeir Glslason, skikmaöur i Hafnarfirði, Jón Þorstelnsson skik- maður, Eiríkur Ketilsson heitdsaH, Frlðjón Slgurðsson, fyrrverandl skrif- stofustjóri Aiþlngis, Ásgeir Friðjónsson flkniefnadómari, Tómas Árnason, banka- stjóri Seðlabankans, HaUdór Karlsson smiöur, Jón Sigurbjörnsson ieikari, Guð- mundur BenedUttsson faji flkniefnadóm- stóinum, Geir Rögnvaidsson fram- kvæmdastjóri, Friðþjófur Max Karlsson, formaður Taflföags ReykjavStur, Garðar Sigurðsson alþlngismaöur, BJörn Sigurðsson, forstööumaður ótiinadettdar *$is-i9es SKAKSAMBAND ÍSLANDS 60 ÁR^ Búnaðarbankans, Ómar Krlstjinsson framkvæmdastjóri, Sverrir Norðfjörð arkitekt, Jón Baldursson, Íslandsmeistari I bridge, Jón Þ. Þór sagnfræðlngur, Högni tsleifsson viðskiptafræðingur, EUas Kristjánsson verslunarmaður, Bragi HaUdórsson, aðstoðarskólameistari i Sauðirkróki, Einar Matthiasson verslunarmaður, BenedUtt HaUdórsson sölumaöur, Slgmundur Böövarsson lög- fræðingur, GisU B. BJörnsson, auglýslnga- telknari, Sólon Sigurösson, aöstoöar- bankastjóri B&naðarbankans, séra Grimur Grimsson, Árnl B. EmUsson, útib&sstjóri Búnaðarbankans i Grundar- flrði, Axei Jónsson, fyrrverandi alþingis- maður, Guðmundur Kristjinsson, bæjar- stjóri I Bolungarvik, Kristjin HaUdórs- son, orkubússtjóri Vestfjarða, Ingi Ingi- mundarson hæstaréttarlögmaður, Þórir Bergsson tryggingastærðfræðingur, EgUl Egilsson rithöfundur, Höskuldur Ólafs- 9on, bankastjóri Vcrsiinarbankam, Júius Kr. Magnússon bæjarfógetafuUtrúi, Bjarnl Bragi Jónsson, aðstoðarbanka- stjóri Seðlabankans, Höskuldur Þriins- son prófessor og flelri. -KÞ. Alveg frábært Áttunda umferð afmælismóts Skáksambands Islands sló öll fyrri aðsóknarmet. Hvert sæti var skipað og vel það, bæði í taflsalnum og skák- skýrendasalnum. Menn hlupu á milli salanna sitt á hvað, ýmist til að sjá skákmennina að tafli eða hlusta á skýrendurna. „Þetta er alveg frábært,” sagði lítill snáði við pabba sinn og tyllti sér á tá. „Þetta er þá hann Bent Larsen. Ég verö að sjá hann betur.” Sá litli klifraði upp á stól til aö sjá betur. I þann mund vann Larsen andstæðing sinn. „Eg vissi þetta, ég vissi þetta,” hrópaði sá litli og klappaði ákaft. „Uss,” sagði feitlaginn maður fyrir framan og leit á stráksa. Margir fóru þó að dæmi þess litla og klöppuðu ákaft. Maöurinn stóð upp. Hann var eldrauður í framan. „Hald- iði, að þið séuö að horfa á Halla og Ladda? ” spurði hann stundarhátt. Nærstaddir hlógu lágt. Andartaki síðar mátti heyra saumnál detta í salnum. Svo hélt skákin áfram. -KÞ. AfmælismótSÍ LARSEN 0ST0ÐVANDI — Hillir undir stórmeistaraáfanga hjá Margeiri? Danski súperstórmeistarinn Bent Larsen er gersamlega óstöðvandi á Hótel Loftleiðum þessa dagana. I gærkvöldi, þegar tefld var 8. umferð á afmælismóti Skáksambands Is- lands, vann hann sovéska stórmeist- arann Artur Jusupov í vel útfærðri skák og hefur nú vinnings forystu í mótinu. Tveir næstu keppendur, Boris Spassky og Margeir Pétursson, fylgja honum þó sem skugginn. Spassky vann Islandsmeistarann Jó- hann Hjartarson í gamaldags sóknarskák og Margeir stendur til vinnings í biðskák gegn Jóni L. í skák þar sem hann var manni undir á tímabili. Larsen — Jusupov, 1/2-1/2 Að þessu sinni sýndi Larsen á sér nýja hlið hérlendis. Hann fékk örlítið þægilegra tafl eftir byrjunina og sovétmaöurinn virkaði ekki nógu ákveðinn í miðtaflinu heldur stýrði taflinu strax inn í heldur lakara endatafl. Sennilega í þeirri von aö Larsen myndi ekki freista þess að ganga til atlögu. En þetta voru mis- tök hjá honum því Larsen bætti stöðu sína jafnt og þétt og þar kom að Sovétmaðurinn neyddist til þess að gefa peð og var þar meö öll von hans útí. Hvitt: Bent Larsen (Danmörku) Svart: Artur Jusupov (Sovótrikjunum) Semi-Tarrasch vörn I. c4 Rf6 2. Rc3 c5 3. g3 e6 4. Rf3 d5 5. cxd5 Rxd5 6. Bg2 Rc6 7. 0—0 Be7 8. Rxd5 exd5 9. d4 0-0 10. dxc5 Bxc5 Þar með hefur Larsen lagt línum- ar um þróun skákarinnar. Hann hefur myndað stakt peð á mið- borðinu og hyggst í framhaldinu vinna það. II. Bg5f6? Textaleikur hvíts miðaði að sjálf- sögðu að því að skapa þessa veikingu í herbúðum svarts. Til athugunar kom að gefa strax d5 peöið og leika 11. — Db6I? og eltir 12. Dxd5 Be€ 13. Dd2 h6 14. Bf4 (14. Bxh6 gxh6 15. Dxh6 Dxb2 og svarta drottningin skundar í vömina á g7) Hed8 og svartur hefur greinilega bætur fyrir peðið. 12. Bd2 Larsen teflir eftir forskrift Nimzovisch varðandi staka peðið. Biskupi þessum er ætlað það hlut- verk að fara til c3 og valda þar með reitinn fyrir framan peöið. Reyndar las ég einhvers staðar haft eftir Larsen að kenning Nimzovisch væri röng vegna þess að menn ættu að set ja á þetta peð og vinna það! 12. - Be6 13. e3 d4 Svartur heldur sig viö gamalþekkt þema. Leikur staka peði sínu fram til uppskipta en verður þess í staö eftir í liðskipan. 14. exd4 Rxd4 15. Be3 Rxf3+ 16. Dxf3 Db617. Hel Bxe3? 17. — Bf7 kom til álita því eftir 18. Bxc5 Dxc5 19. Dxb7 getur svartur leikið 19. — Hab8 ásamt Hxb2. Nú fær svartur hins vegar vont endatafl. 18. Dxe3l Dxe3 19. Hxe3 Kf7 20. b3l Allt er jafnt nema staðanl eins og kellingin sagði. Er hór var komið sögu lagðist Sovétmaður- inn í þunga þanka og só að hann varð að gefa peð. 20. - Had8 Ef svartur hefði leikið hér: 20. — Hb8, til þess að valda peðiö, þá hefði Larsen unniö stórglæsilega: 21. Hael Hfe8 (Ef biskup svarts hörfar kemst hrókurinn inn á 7. línu) 22. Hxe6! Hxe6 23. Bd5 He8 24. f4 f5 25. g4 g6 26. g5!! og svartur er í leikþröng. Hvítur tekur ekki hrókinn á e6, fyrr en eftir að hann hefur leikiö He5 og kóngnum yfir á drottningarvæng og hefur þá unnið peðsendatafl. Athugið að ekki gekk i leiknum fyrr hjá hvítum að leika 20. Hael vegna Bxa2 og svartur heldur taflinu eftir 21. He7+ Kg8 22. Bxb7 Hb8 ásamt Hf7. 21. Hael Bd7 22. Bd5+ Kg6 23. Bxb7 Hxe3 24. Hxe3 Hb8 Eftirleikurinn er auöveldur fyrir Larsen. Hann er peði yfir og verður að sjálfsgöðu ekki fótaskortur i þeirri tæknilegu úrvinnslu sem fram- undan er. Larsen stefnir á biskusendatafl fremur en hróksendatafl en svartur á hugsanlega varair i því síðar- nefnda. 25. Ba6 Hb6 26. Bc4a5? Frekari veiking svörtu stöðunnar. Hún var engu að síður töpuð. 27. a4 Hd6 28. Kf1 Hd2 29. Kei Hd4 30. Hd3! Hxd3 31. Bxd3+ Kxf7 32. Kd2 Afleikur væri 32. Bxh7 vegna 32. — g6 og biskup hvíts lokast inni. 32. - h6 33. Kc3 Ke6 34. b4 Bxa4 35. bxa5 Kd6 36. Kc4 Bc6 37. a6 Hér gafst svartur upp. Vinnings- áætlun hvíts byggist á því að þvinga svartan með kóng sinn upp að hvíta peðinu og þegar svartur nær að drepa það með biskup sínum verða biskupakaup og hvítur verður á undan með kóng sinn að peðum svarts á kóngsvæng. Jóhann — Spassky, 0-1 Þó Jóhann hafi haft hvítt í skákinni virtist hann aldrei sjá til sólar. Þeir tefldu Katalan byrjun þar sem fyrr- verandi heimsmeistari fór út í af- brigði sem minnti mikið á hollenska vöm. Spassky geystist fram með peð sín á kóngsvæng og var snemma kominn meö alvarlegar hótanir í kring um kóng Jóhanns. Á sama tíma lenti okkar maður í hinu mesta basli með uppstillingu manna sinna og lék m.a. drottning- unni fram og aftur. Heimsmeistarinn fyrrverandi geymdi hins vegar drottningu sína að baki víglínunnar fyrsta kastiö en renndi henni síðan i ógnandi stöðu fyrir framan rústaða kóngsstöðu Jóhanns, sem þá var nóg boðið og gafst upp. Eftir skákina þakkaöi Jóhann síð- an prúðmannlega fyrrverandi heimsmeistara fyrir kennslustund- ina. Margeir — Jón L. biðskák Einhver undarlegasta skák afmælismótsins til þessa. Byrjunar- taflmennska Margeirs mistókst herfilega og eftir u.þ.b. tuttugu leiki hafði hún kostað hann einn léttan mann. Margeir barðist þó eins og ljón og sýndi enginn svipbrigði og í staö þess að leita eftir uppskiptum og einfalda taflið sér í vil, lét Jón blekkjast af sóknarfærum á kóngsvæng, og lék drottningunni inn í herbúðir hvíts. Þetta kallaði á óróleika á borðinu og Margeir skellti taflinu strax í flækjur meðbiskupsleik. Taflið var enn unnið hjá Jóni en hann svaraði með hörmulegum riddaraleik. Hreinlega gleymdi vald- leysi hans í framhaldinu og Margeir sneri taflinu sér í hag í einu vetf angi. Eftir nokkra tímahraksleiki kom upp hróksendatafl þar sem Margeir stendur til vinnings í biðstöðunni en hún er þessi, svartur Jón L. lék bið- leik. Vinni Margeir skákina, sem allt útlit er fyrir, virðist hann enn eiga góða möguleika á að krækja sér í sinn fyrsta áfanga að stórmeistara- titli. Nægir honum þá jafntefli í þeim þrem skákum sem eftir eru á mótinu en þær eru við Hort, Van der Wiel og Jusupov. Skák Ásgeir Þ. Árnason Karl — Van der Wiel, 0-1 Hollendingurinn Van der Wiel skemmtir áhorfendum. Nú gaf hann riddara í upphafi skákarinnar fyrir tvö miðborðspeð. Sýndist sitt hverj- um um stöðuna lengi framan af en þegar hollensku peðin fylktu liði á miöboröinu fóru islensku áhorfend- umir aö ókyrrast. Upp á sýningartaflið var síðan komin undarleg biðstaða þegar lát- unum var lokið í skák Margeirs og Jóns L. og um hana upphófust miklar deilur meðal áhorfenda. Hollend- ingurinn hafði tvö hættuleg frípeð en Karl riddara sem stoppaði þau. Einhver áhorfandinn kom þá auga á óhugnanlega hrókshótun í stöð- unni, sem Karl virtist ekki eiga svar við. Karl hugsaöi mikið um biðleikinn og var greinilega ekki sáttur við hótun svarts sem hánn hafði séð. Að lokum tók hann það til bragðs að gefa skákina — hann fann ekkert svar. Karl þarf tvo vinninga úr þremur síðustu skákum til þess að hljóta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Róðurinn verður þó þungur. Hann á eftir að tefla við: Jusupov, Spassky ogLarsen! Helgi — Hort, 1/2—1/2 Skákin var í jafnvægi frá upphafi og fyrirsjáanlegt tafl með mislitum biskupum þegar samið var. Báðir gerðu þeir Hort og Helgi jafntefli í sínum fyrstu þrem skák- um, töpuðu þeirri fjórðu og hafa nú gert f jögur jafntefli í röð. Hansen — Guðmundur, biðskák Daninn ungi hafði frá upphafi undirtökin í mikilli undirölduskák. Teflt var drottningarbragð og bið- staðan er lakari hjá Guðmundi þó hann sé ekki liði undir. Hann hefur tvær peðaeyjur á móti einni hjá Dananum unga. Hansen lék biöleik og er staðan þessi. Biðskákir úr 7. umferð voru tefldar í gærdag. Hort bauð Karli jafntefli án frekari taflmennsku þar sem rannsóknir hans höfðu leitt jafntefli í ljós. Jusupov og Spassky sömdu sömuleiöis um jafntefli án frekari taflmennsku en þeir rannsökuöu bið- stööuna saman til þess að komast að jafnteflisniðurstöðu. Hansen og Jóhann tefldu hins vegar í botn og lauk viðureigninni með jafntefli eftir flókið riddaraendatafl. Staðan er nú þessi hjá efstu mönn- um: 1. Larsen með 61/2,2. Spassky 5 1/2 3. Margeir 4 1/2 og biðskák, 4. Van der Wiel 41/2 og 5. Guðmundur 4 og biðskák. 9. umferð verður tefld kl. 17íkvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.