Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Side 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR1985.
Útlönd
Utlönd
Útlönd
Útlönd
400þúsund
mannsmeðAIDS
Að minnsta kosti 400.000 Banda-
ríkjamenn hafa nú AIDS-vírusinn í
blóöi sínu samkvæmt skýrslu sem
birt var í fyrradag. Skýrslan segir
aö enn staerri hópi fólks sé hætt við
sýkingu. Þetta séu hinir 400.000
menn sem ánetjaðir eru heróíni og
kókaíni, sú milljón manna sem noti
þau lyf endrum og eins og hinar
átta milljónir kynvilltra karl-
manna.
Skýrslan segir aö 8.000 Banda-
ríkjamenn hafi veriö sjúkdóms-
greindir með AIDS, eöa áunna
ónæmisbæklun, og helmingur
þeirra hafi látist. Sjúkdómurinn1
uppgötvaöist fyrst fyrir fjórum
árum.
Moses faðmar konu sina af
fögnuði yfir sýknuúrskurðinum
á dögunum.
Mósessýknaður
Ölympíumeistarinn, Edwin Mos
es, var sýknaður af ákæru um aö
hafa reynt að 'kaupa sér portkonu
til skyndibrullaups. — Raunar
haföi konan reynst vera lögreglu-
kona að leggja snörur fyrir karla í
vændiskvennaleit.
Vakti J>aö mikiö hneyksli, sem
flaug um allan heim, þegar lög-
reglukonan kæröi ólympíumeistar-
ann fyrir aö hafa boöið henni 100
dollara ef hún heföi tvivegis við
hann kynmök. — Móses sagði hins
vegar aö allt hefði veriö meint í
gríni.
Kviödómendur létu þaö vega
þungt aö Móses hafði setið í bifreið
sinni viö rautt umferðarljós og kon-
an gefið sig að honum að fyrra
bragði. Hún haföi sagt honum að
beygja fyrir næsta horn og Ieggja
bílnum til frekara framhalds sam-
talinu en hann ekið beint af augum
eftir að grænt Ijós kviknaði og lög-
reglan stöövað hann nokkur hundr-
uðmetrumfjær.
Indverjardrepa
skæruliða
Indverskir hermenn hafa drepið
90 skæruliöa í Manipurfylki á
Norðaustur-Indlandi að sögn aðal-
ráðherra fylkisins. Skæruliðarnir
berjast fyrir aðskilnaði fyikisins
frá Indlandi.
Aðalráöherrann sagði að einnig
hefðu 24 óbreyttir - borgarar látið
lífið í herferð stjórnarherja gegn
skæruliðum. Hann sagöi ekki hve
lengi herferðin hefði staðið yfir.
Fyrr í þessari viku drápu skæru-
líðar 15 hermenn í Nagalandi, sem
er nálægt Manipur. Á Norðaustur-
Indlandi eru ýmsir skæruliðahópar
sem ýmist berjast fyrir sjálfstæði
eða byltingu. Þúsundir hermanna
berjastgegn þeim.
Lofa hörku gegn
barnaklámhringum
Stjómir Svíþjóöar, Hollands og Dan-
merkur hafa lofað Bandaríkjamönn-
um aö gera allt sem í þeirra valdi
stendur til aö uppræta barnaklám í
löndum sínum. I fyrrahaust vakti
frjálsleg afstaða stjómanna í þessum
löndum gagnvart bamaklámi mikla
andúð í Bandaríkjunum.
Elliott Abramson, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði að lof-
orðin hefðu fengist á fundum með full-
trúum landanna í janúar. Hann sagöist
vilja undirstrika að stjómir landanna
þriggja litu málið mjög alvarlegum
augum.
Abramson sagði einnig að mest af
því barnaklámefni sem flutt er til
Bandarikjanna komi frá þessum
þremur löndum.
Hollenskir embættismenn, sagöi
Abramson, vonast til að brátt verði
' Ww-
Lögfræflingar mótmæla stjórn Zia Ul-Haq á götum Karachi. Stjórnarand-
staflan hefur neitafl að taka þátt i kosningunum á mánudag.
Myröa gríska
hægrímenn
i nafni „bylt-
ingarinnar”
Útgefandi eins aðalmálgagns hægri-
sinna stjómarandstæðinga í Grikk-
landi var skotinn til bana í miðri AJænu
í gær. Vinstri hryðjuverkasamtök hafa
lýst morði hans á hendur sér.
Nicos Momferatos (61 árs), útgef-
andi Apoghevmatini” var á leið til
skrifstofu sinnar akandi þegar þrir
menn eltu hann í annarri bif reið og létu
kúlnahríðina dynja á bifreið hans. —
Andaðist Momferatos á staönum en
bílstjóri hans var fluttur særður á
sjúkrahús og liggur milli heims og
helju.
Lögreglan fann á vettvangi dreifi-
miöa þar sem sagt var að „byltingar-
samtökin 17. nóvember” hefðu verið
þarna aö verki. Þessi sömu neðan-
jarðarsamtök hafa síðan 1975 sagst
hafa drepið fimm menn. (17. nóvember
1973 urðu stúdentaóeirðimar sem voru
kveikjan að því að herforingjastjórn
Grikklands fór loks frá.)
Konstantín Karamanlis, forseti
Grikklands, sem var vinur
Momferatos, fordæmdi morðið.
Papandreou forsætisráðherra sagði
þennan glæp lið í morðöldu pólitískra
öfgamanna. Sagði hann hryðjuverkin
til þess ætluö aö skapa andrúmsloft of-
beldis og til þess að grafa undan lýð-
ræðislegri þróun landsins.
sett í lög ákvæði sem geri auðveldara
að sækja þá til saka sem misnota böm.
Samkvæmt núgildandi lögum í Holl-
andi er ekki hægt að finna slíka menn
seka nema hægt sé að sanna að bömin
hafi verið misnotuð gegn eigin vilja.
Formaður bandarisku þingnefndar-
innar sem fjallar um málið kallaði
þessi lög ótrúleg.
Abramson sagöi að Danir hefðu með
upplýsingar sem Bandaríkjamenn
veittu þeim, handtekiö þrjá aðila fyrir
að höndla með barnaklám. Svíar hefðu
beðið um sams konar upplýsingar.
FJOLDAHANDTOK-
UR FYRSR KOSN-
INGAR PAKISTANS
Fleiri en 800 manns hafa verið hand-
teknir í Pakistan fyrir þingkosningarn-
ar á mánudag og héraðakosningar
þrem dögum síðar. Opinberir tals-
menn segja að þeir handteknu séu
stjórnmálamenn og ofbeldisseggir
sem grunaðir séu um aö reyna að
trufla framgang kosninganna.
Asghar Khan, eini raunverulegi
stjórnarandstöðuleiðtoginn sem ekki
hefur verið handtekinn, segir aö hand-
tökumar séu mjög auösæ aðferð til að
stjórna úrslitum kosninganna.
Jafnvel Jamaat-i-Islami flokkur
harötrúarmanna, sem hefur fylgt
stjórninni í mikilvægum málum.hefur
fordæmt handtökurnar. Fomiaöur
flokksins sagði að þær drægju einungis
úrslit kosninganna í efa og byðu heim
gagnrýni á sigurvegara kosninganna.
Stjórnarandstaðan segir aö í raun
hafi miklu fleiri en 800 verið handtekn-
ir.
1.500 horfnir í Ayacucho
Mannréttindasamtökin Amnesty
Intemational sögðu í gær að fleiri en
1.500 manns hefðu horfið í Ayacucho
héraði í Perú síðan herinn þar hóf her-
ferð gegn skæruliöum Sendero
luminoso skæruliðahreyfingarinnar.
Á fréttamannafundi í Bonn sagði
aðalritari Amnesty að herinn í Perú
hefði komið upp ógnarstjóm í
Ayacucho héraði. Hún hefði nú varað í
tvö ár. Líklegt væri að raunveruleg
tala horfinna væri miklu hærri en
1.500.
Alls hafa fleiri en 4.500 látið lífið
síðan maoistahreyfingin Sandero
luminoso hóf baráttu sína gegn íhalds-
stjórn Fernando Beluande Terry for-
seta fyrir fimm árum.
Forseti nefndar ættingja þeirra
sem horfnir eru sagði á fundinum að
stjómin ásakaði Sendero um að hafa
valdið hvörfunum. Það væri hins vegar
ekki rétt. „Sendero drepur hina ríku,”
sagði hún. „Þeir skila aftur líkunum en
herinn felur sín lík.”
Þessi mynd var tekin 19821 Vœrnes af flugvól frá LOT, pólska flugfélag-
inu, og í gegnum glugga vólarinnar, sem var i gripaflutningum, má sjá
myndatökubúnafl.
MELBROSIA
FYRIR KONUR OG KARLA SEM VILJA VERA KONUR
OG KARLAR.
náttúrulækniimgabOðin
Laugavegi25,sími10262 og 10263.