Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Page 18
18 DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR1985. fþróttir íþróttir íþróttir íþróttir • Steve Archibald og Terry Venebl- es — hafa gert góða hluti hjá Barce- lona. „Nautabaninn frá Barcelona” - Steve Archibald er dýrlingur hjá Katalóníufélaginu Steve Archibald, eða „Nautaban- inn frá Barcelona", er orðinn algjör dýrlingur i Barcelona og miklu vin- sælli heldur en Argentinumaðurinn Diege Maradona var hjá áhangend- um félagsins. Archibald hefur farið á kostum með Barcelona og er nú markahæstur á Spáni. Þessi snjalli skoski landsliðsmaöur skoraði jöfnunarmark Barcelona, 2—2, gegn Atletico Madrid rétt fyrir leikslok í sögulegum leik á Nou Camp í Barce- lona á miðvikudagskvöldið. Barcelona skoraði fyrst í leiknum, Miguel Bern- ardo, eftir að Archibald hafði átt skot í stöng. Rétt á eftir fékk Atletico víta- spyrnu en þá gerði Urrutucoetxea, markvörður Barcelona, sér lítið fyrir og varði spyrnu Hugo Sanchez á meistaralegan hátt. Sanchez og Argentinumaðurinn Luis Mario Cabrera koinu Atletico yfir, 2— 1, en Archibald jafnaði síðan eins og fyrr segir. Þegar átta umferðir eru eftir á Spáni er Barcelona með tíu stiga forskot á Atletico Madrid þannig að meistara- titillinn virðist vera í öruggri höfn hjá Barcelona — i fyrsta skipti í 11 ár. -sos. Allt gekk vel íBláfjöllum — þráttfyrirrigningu ogrokíkeppni framhaldsskólanema Skíðakeppni framhaldsskólanna var háð i Bláfjöllum á miðvikudag og sá stjórn Skíöafélags Reykjavík- ur um framkvæmd mótsins. Einar Ólafsson mótsstjóri. Veður var slæmt til keppni, rigning og rok, en allt gekk þó vel fyrir sig. Keppendur utan af landi komu til Reykjavikur um morguninn og héldu aftur til sins heima um kvöldið. Verðlauna- afhending var eftir keppnina í Borgarskálunum. í skíðaboðgöngu sigraði sveit Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki. Gekk á 23.33 min. Gengnir voru þrisvar sinnum þrir kilómetrar. í öðru sæti varð sveit verknáms Menntaskólans á Akureyri á 23.41 mín. og þriðja sveit Fjölbrauta- skólans í Ólafsfirði á 23.51 mín. Í flokkakeppni í svigi, fimm manna sveitir, sigraði sveit verk- náms Menntaskólans á Akureyri á 88.2 mín. Sveit Menntaskólans á isafirði varð í öðru sæti á 90.3 mín. og þriðja sveit Menntaskólans við Sund í Reykjavik á 91.0 mín. Bikarglíma á sunnudag Bikarglíma Glímusambands Is- lands verður háð á sunnudag í Melaskóla og hefst kl. 14. Keppend- ur eru 13 og meðal þeirra eru Ólafur H. Ólafsson, Helgi Bjarnason og Kristján Ingvarsson. „Hafa styrkt Cam- pinense verulega” skrifa portúgölsku blöðin um um Sigurjón og Trausta „Það eru verulegar likur á þvi að ungu islensku landsliðsmennirnir, Sigurjón Kristjánsson, 21 árs, og Trausti Ómarsson, 22 ára, sem nú leika með Campinense i 2. deild, gerist leikmenn með Farense í 1. deild eftir að keppnistímabilinu lýk- ur. Ferando Mendes, þjálfari Far- ense, hefur fylgst vel með þeim i leikjum Campinense," var nýlega skrifað í grein á iþróttasíðu dag- blaðsins i Faro i Algarve í Portúgal. Þeir Sigurjón og Trausti hafa verið í Faro frá því í september. Byrjuðu að leika með Campinense í desember. Liðið var þá neðst í 2. deild með aðeins tvö stig úr fyrstu 12 leikjunum. Þeir hafa leikið sjö leiki með Campinense og í þeim leikjum hefur liðið fengið sjö stig. Gerði jafntefli, 0—0, sl. sunnudag. Sigurjón komst þá tvívegis í gegn að marki mótherjanna en markvörður varði vel frá honum. I þeim sjö leikjum sem Sigurjón og Trausti hafa leikið hefur liðið tapað tveimur. Þeim fyrsta, sem var í Lissa- bon, og svo fyrir þremur vikum þegar liðiö fékk skell á Madeira, tapaði þar 4—0. Madeira er eitt af efstu liðum 2. deildar. • Trausti Ómarsson. • Sigurjón Kristjánsson. ' I portúgalska íþróttablaðinu, sem nefnist „Off-side,-match”, hefur tals- vert verið skrifað um íslensku Breiða- bliksstrákana. Þeir fengið góða dóma þar og sagt að þeir hafi styrkt lið Campinense verulega. Þar eru gefnar einkunnir eftir leiki sem hafa verið þeim hagstæðar. Enginn leikmaöur Campinense hefur fengið hærri ein- kunn þar. Sjálfir eru þeir mjög ánægðir með dvölina í Algarve. Þeir hafa lært mikið „enda æfingar hér miklu meiri og betri en við áttum að venjast heima”, sögðu þeir í viðtali við DV nú í vikunni. hsím. Unglingamót ífimleikum Unglingamót FSÍ verður haldið i Laugardalshöll á morgun, laugar- dag 23. febrúar. Mótið fer fram i tveimur hópum, fyrri hópurinn hefur keppni kl. 13.30 en hinn siðari kl. 16.00. Keppt verður eftir íslenskum fimleikastiga og er það í fyrsta sinn á mótum FSÍ. VÖLLER SK0RAÐI FJÖGIIR í ALV0R0 — Rummenigge er orðinn góður af flensunni og leikur með gegn Portúgal i HM Karl-Heinz Rummenigge, fyrirliði V-Þýskalands, var með flensu þeg- ar hann kom til Portúgal á mánu- daginn. Rummenigge æfði ekkert með v-þýska liðinu til að byrja með en hann lék þó æfingaleik með þvi i gærkvöldi gegn 2. deildar liðinu Torralta í Alvoro. V-þýska landsliðið vann öruggan sig- ur, 9—0. Rummenigge skoraði tvö mörk, Rudi Völler 4, Pierre Littbarski 2 og Lothar Matthaus eitt. Franz „keisari” Beckenbauer, landsliðseinvaldur V-Þýskalands, hef- ur valið lið sitt sem leikur gegn Portú- gal í HM í Lissabon á sunnudaginn. Það er þannig skipaö: Schumacher, Köln, Berthold, Frankfurt, Briegel, Verona, Karl-Heinz Förster, Stuttgart, Jakobs, Hamburger, Thon, Schalke, Magath, Hamburger, Herget, Uerd- ingen, Matthaus, Bayern, Rummen- igge, Inter Milanó, og VöUer, Bremen. Portúgalar tefla fram átta leikmönn- um frá Porto gegn V-Þjóðverjum. -sos Geir Sveinsson svífur inn í teiginn i VALUR SJO Mfl —jafntefli Víkings Valsmenn virtust stefna i stórsigur á Víkingi f Laugar- dalshöllinni i gærkvöld í 1. deild þegar þeir náðu sjö marka forskoti, 11—4, snemma i síðari hálfleik en það var eitthvað annað. Valur komst meira að segja í taphættu undir lokin. Vikingur komst yfir, 17—16, en Valur jafnaði á ioka- minútunni. Síðasta sókn Vikings Viku Framarar af fundinum? opið bréf til stjómar Körfuknattleikssambands íslands frá körfuknattleiksdeild Þórs á Akureyri DV hefur borist opið bréf frá körfuknattleiksdeild Þórs á Akur- eyri og fer það hér á eftir: „Stjórn Körfuknattleikssambands Islands hefur nú loksins, með bréfi þann 6. febrúar, svaraö bréfi körfu- knattleiksdeildar Þórs frá 30. október á sl. ári en í því bréfi setti Þór fram fjárkröfur (húsaleiga og beint fjár- hagstap) gegn Fram vegna viðskipta liöanna á síðastliðnu keppnistímabili. Það tók KKI því rúma þrjá mánuði að setja saman svar við bréfi okkar og það verður að segjast eins og er að svarið er í samræmi við þau vinnu- brögð. Þór fór fram á aö Fram greiddi lágmarks leigu á íþróttahöllinni á Akureyri 23. febrúar 1984 en þá mættu Framarar ekki til leiks þó flugveður væri. Þór varð því að greiða húsaleigu í íþróttahöllinni. Fram átti aftur að koma til Akureyr- ar 28. febrúar og þá komst heimingur leikmanna norður en hinn helmingur- inn gat ekki lent á Akureyrarflugvelli. Hefðu Framarar farið frá Reykjavík á réttum tíma, en ekki verið að bíða eftir einum leikmanna sinna, sem var að þreyta meirapróf, hefði allt liðið getað komist norður og leikurinn hafist á réttum tíma. Þeir fimm leikmenn sem komust neituðu að hef ja leikinn þó að ótvírætt sé að þeim bar að gera það. Þórsarar máttu því endurgreiða áhorfendum sem mættu á leikinn vegna þessa. Var því ekki talið að ósanngjarnt væri aö Fram bæri að greiða Þór þetta tekju- tap, auk þess sem Fram tapaði leikn- um að sjálfsögöu, en það kemur þessu máli ekki við. Því er það furðulegt að í bréfi KKl 6. febrúar sl. skuli standa: „Það er skoðun stjórnarinnar, að þar sem Fram tapaði stigunum í leiknum, sé ekki rétt að þeir greiði endurgreiddan aðgangseyri." Þetta er með því furðulegra af mörgu furðulegu sem Þór hefur verið boðiö upp á frá KKl og er þó af ýmsu aö taka í þeim efnum á undanförnum árum. Hvað hefur það með tekjutap Þórsara að gera að Fram tapaði stig- unum? Það er hrein móðgun að bera slíkt og annað eins á borð og ekki sæm- andi þeim sem „stjórna” málum körfuknattleiksins í dag. Það er í sjálfu sér skiljanlegt að reynt hafi verið að svæfa þetta mál hjá KKI, að það taki stjórnina þrjá mánuöi aö setja saman slíkt yfirklór. Er það illskiljanlegt nema í ljósi þess, að Fram mun eiga þrjá menn af fimm í stjórn KKl og væri fróðlegt að fá að vita hvort þeir hafi vikið af fundi og varamenn verið kallaðir til þegar málið var afgreitt. Við teljum okkur vera nokkuð þolin- móöa menn, en þaö fer að verða ansi þreytandi þegar ekki líður eitt einasta keppnistímabil án þess aö við þurfum að eiga í útistöðum við þá sem „stjórna” málum körfuboltans hér á landi og eru til þess kjörnir á ársþingi. Svo virðist að þeir sem sitja í stjórn núna hafi ekki skilning á einföldustu hlutum eins og til dæmis þeim að ef eitt félag verður fyrir beinu fjárhagstapi af völdum annars, eins og við máttum þola vegna framkomu Framara, þá sé skylt að hinn brotlegi bæti fyrir það. Er það ekki furða að það hvarfli að okkur, sem búum við mestan ferðakostnað allra liöa sem iðka körfuknattleik á Is- landi í dag, að unniö sé markvisst að því að drepa körfuboltann á lands- byggðinni niður. Hitt er svo annað að menn sem ekki geta sinnt störfum fyr- ir félög sín þannig að aðrir hljóti ekki skaða af ættu ekki aö sitja í stjórn í samtökum eins og Körfuknattleiks- sambandi Islands. Ástæða þess að við sendum KKl opið bréf en skrifum þeim ekki beint er aug- ljós. Eftir þrjá mánuði verður nefni- lega kominn maí og allir hættir aö hugsa um körfuknattleik í bili. Við von- umst til að stjóm KKI taki þetta erindi til endurskoöunar. Framarar í stjórn- inni víki er málið verður tekið fyrir og fundin verði lausn á málinu sem sé réttlát og skynsamleg. Hvort staða Fram á stigatöflunni er góö eða slæm þegar það verður gert skiptir vonandi ekkimáli. Meðþökkfyrir birtinguna. Fyrir hönd körfuknattleiksdeildar Þórs, Eiríkur Sigurösson. ” íþróttir íþrótt íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.