Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Page 19
DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR1985.
31
þróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Mountfield og
Hansen
meiddir
• Tveir af fastamönnum efsta
liðsins i 1. deild, Everton, þeir
Graeme Sharp 09 Derek Mount-
field, eiga við meíðsli að striða frá
bikarleiknum við Telford sl. laugar-
dag. Taldar litlar likur á að þeir leiki
með Everton i Leicester á laugar-
dag. Nœr öruggt að Sharp leikur
ekki.
• Hins vegar eru allar likur á þvi
að lan Rush laiki með Liverpool á
laugardag á Anfield gegn Stoke.
Meiðsli hans á ökkla reyndust ekki
eins slæm og i fyrstu var talið. Allan
Hansen meiddist lika i bikarleikn-
um við York, haltraði af leíkvelli
undir lokin. Vafasamt að hann geti
leikið á laugardag.
• Oxford fékk i gær bakvörðinn
Tony Spearing frá Norwich sem
lánsmann i einn mánuð. Oxford á í
erfiðleikum með bakvörð vegna
meiðsla Bobby MacDonald.
• Leikur Liverpool i 6. umferð
bikarkeppninnar, annað hvort i
Southampton eða Bamsley, verður
sunnudaginn 10. marz. Verður sjón-
varpað beint á Bretlandseyjum.
-hsím.
Blak og karfa
á sama tíma
íHagaskóla
Sérkennileg uppákoma verður i
Hagaskóla á morgun, laugardag,
klukkan 14. Þá munu blakstúlkur úr
ÍS og Vikingi trúlega lenda i rifrildi
við körfuknattleiksmenn úr Fram
og Reyni um hvort leika eigi blak
eða körfu í húsinu.
Einhvers staðar hafa nefnilega
verið gerð mistök i kerfinu. í móta-
skrá Biaksambandsins er skráður
leikur i bikarkeppni kvenna í Haga-
skóla á morgun klukkan 14. i móta-
skrá Körfuknattleikssambandsins
er á sama tima og sama stað
skráður leikur í 1. deild karla.
Ekki nóg með það. Klukkan
15.1S hefur mótanefnd Blaksam-
bandsins sett á leik Fram og
Vikings i 1. deild karla. Fimmtán
mínútum síðar, klukkan 15.30,
hefur mótanefnd Körfuknattleiks-
samandsins bókað leik KR og ÍS i 1.
deild kvenna.
Margir munu fara fýluferð i
Hagaskólann á morgun. -KMU.
Leikmenn
Beerschot
íverkfalli
Frá Kristjáni Bernburg, fróttamanni
DV í Belgíu:
Neyðarástand er nú að skapast
hjá þeim liðum sem leika í 1.
deildinni i Belgiu. Ekkert hefur
verið leikið i nokkra mánuði og
flestöll félögin ramba á barmi gjald-
þrots.
Einna verst er ástandið hjá
Beerschot. Leikmenn liðsins hafa
ekki enn fengið greitt kaup fyrir
janúar og hafa farið i verkfall i
kjölfar peningaleysísins. Mæta
leikmenn á æfingar en aðhafast
ekkert sem skylt á við knattspymu.
Forráðamenn liðsins hafa rætt við
leikmenn og boðist til að útvega
þeim úttektir i matvöruverslunum
þannig að nauðsynjavörur þurfi
ekki að skorta á heimilum þeirra.
-SK.
Aðalf undur Þróttar
Aðalfundur knattspyrnufélagslns
Þróttar verður haldinn í Þróttheim-
um fimmtudaginn 28. febrúar kl. 20.
Leikur vara
mannanna
— þegar ÍS tapaði fyrirVal, 86:105.
Helgi Gústaf sson skoraði 23 stig fyrir ÍS
Varamenn í liðum Vals og ÍS i úr-
valsdeildinni i körfuknattjeik komu
mikið við sögu í gærkvöldi þegar
liðin léku i íþróttahúsi Kennarahá-
skólans. Valur vann stóran sigur,
86—105, eftir að staðan í leikhléi var
39-57.
Leikurinn var eign Valsmanna frá
byrjun til loka og voru þeir mun betri
allan leiktímann. Varamenn beggja
liða komu mikið við sögu og sumir
þeirra fóru hreinlega á kostum. Helgi
Gústafsson, IS, sem ekki hefur verið
þekktur fyrir að skora mikið á ferl-
inum, var langbesti maður IS í leikn-
um í gærkvöldi og skoraði garpurinn 23
stig og var stigahæstur Stúdenta.
Hjá Val voru þeir Jóhannes
Magnússon og Björn Zoega bestir en
Torfi þjálfari Magnússon átti einnig
mjög góðan leik. Allir leikmenn Vals
skoruðu í leiknum og þeir leikmenn
sem lengstum hafa fengið það ó-
skemmtilega hlutverk að verma vara-
mannabekk liðsins í vetur, sprungu út i
gærkvöldi eins og túlípanamir sem
hafa verið svo nálægt því að springja
út í görðum Reykvíkinga undanfama
blíöudaga.
Stig Vals: Jóhannes Magnússon 17,
Torfi Magnússon 17, Björn Zoega 16,
Kristján Ágústsson 12, Sigurður
Bjarnason 10, Leifur Gústafsson 8,
Einar Olafsson 8, Tómas Holton 7, Páll
Arnar 7 og Svah Björgvinsson skoraöi
3 stig.
Stig IS: Helgi Gústafsson 24, Ámi
Guðmundsson 22, Guðmundur
Jóhannsson 15, Valdimar Guðlaugsson
10, Eiríkur Jóhannesson 10, Jón
Indriðason 3, Bjöm Leósson 2.
Leikinn dæmdu þeir Jón Otti og Jón
Gauti og komust þokkalega frá leikn-
um. -SK.
og skorar eitt af sex mörkum sínum í leiknum i gærkvöldi.
DV-mynd Brynjar.
MISSTINIÐUR
iRKA F0RSK0T
ogVals, 17:17, íhörmulega slökum leik
rann út i sandinn, Valsmenn fengu
aukakast i lokin sem ekkert varð
úr. Leikurinn i heild var hörmulega
lélegur nema hvað markverðir
beggja liða, Einar Þorvarðarson og
Kristján Sigmundsson, vörðu mjög
vel. 12 skot hvor þannig að lið
þeirra fengu knöttinn.
Valsmenn skoruðu fjögur fyrstu
mörkin í leiknum — komust síðan í 7—1
og Víkingur skoraði sitt annað mark í
leiknum á 22. mínútu. Víkingsliðiö
hörmulega slakt án Viggós
Sigurðssonar í sóknarleiknum og t>or-
bergur Aðalsteisson alveg heillum
horfinn. Víkingar líka lánslausir. Áttu
fjögur stangarskot og Þorbergur
brenndi af víti.
Valsmenn gengu á lagið og höföu
tögl og hagldir í leiknum. Það virtist
nánast formsatriði að ljúka leiknum
þegar Valsmenn komust í 11—4 — eftir
9—4 í hálfleik. En þá fór leikur Vals
heldur betur að riðlast. Víking-
ar skoruðu fimm mörk í röð.Minnkuðu
muninn í 11—9 og spenna komst í
leikinn. Oftast þó tveggja til þriggja
marka munur þar til á 56. mín. að
Víkingur minnkaði muninn í eitt mark,
15—14. Valur skoraði en Víkingur
næstu þrjú mörk. Komst í fyrsta skipti
yfir 17—16 á 57. mín. Á lokamínútunni
tókst svo Þorbirni Guðmundssyni að
jafnafyrirVal.
Mörk Víkings í leiknum skoruðu
Einar Jóhannesson 6/2, Karl Þráins-
son 4, Steinar Birgisson 3, Guðmundur
Guðmundsson 2 og Hilmar Sigurgísla-
son og Þorbergur eitt hvor. Mörk Vals
skoruðu Geir Sveinsson 6/2, Þorbjörn
G. 3, Jakob Sigurðsson 3, Valdimar
Grímsson 2, Þorbjöm Jensson 2 og
Theódór Guðfinnsson 1.
Dómarar Olafur Haraldsson og
Stefán Arnaldsson. Víkingur fékk 3
víti, Valur 2. Þremur Víkingiui vikið
afvelli, sjöValsmönnum. -hsím.
Reiley til
Newcastle
„Þaökomméráóvarthve fljótt
þetta gekk fyrir sig. Ég hafði gert
mér vonir um aö fá Reiley en ekki
með þessum hraöa," sagði Jack
Charlton, stjóri Newcastle, eftir aö
hinn hávaxni miðherji Watford,
George Reiley, 1,93 m á hæð, haföi
skrifað undir samning hjá New-
castle í gær. Kaupverðið 200
þúsund sterlingspund. Newcastle
hefur þar með keypt tvo miðherja
á stuttum tima, áður Cunningham
frá Man. City.
„Þetta gefur mér tækifæri til að
láta Chris Wqþdle leika á
kantinum. Þar er hann bestur,"
sagði Charlton. Reiley mun leika
sinn fyrsta leik með Newcastle á
laugardag — gegn Luton í
Newcastle. -hsim.
VALSSTULKUR
ÍNAP0LÍ
Bryndís Valsdóttir og Kristín Briem hafa skr'rfað
undir eins árs samning við Giugliano
Valsstúlkurnar, Bryndís Valsdótt-
ir og Kristin Briem, hafa skrifað
undir eins árs atvinnusamning hjá
italska 1. deildar liðinu í kvenna-
knattspyrnu — Giugliano frá
Napolí. Koma þessara ungu stúlkna
til félagsins hefur vakið athygli og
fer italska blaðið Napolí Notte
lofsamlegum orðum um þær.
Blaðið segir að þær stöllur séu stærri
og grimmari heldur en félagar þeirra
hjá Giugliano. Félagið bindur miklar
vonir viö Bryndísi sem hefur yfir mikl-
um krafti og skothörku að ráða.
Bryndís var markahæsta stúlka
Valsliðsins sl. keppnistímabil —
skoraði sex mörk í 1. deildarkeppninni.
-sos.
• Bryndis Valsdóttir — sést hér (t.h.) í leik með Val gegn Akranesi í baráttu
við Ástu Benediktsdóttur.
CALCIO FEMMINUJE /AUa vigilia del via al campionata di A
H GiugUano presenta la novitá:
é Varsdottir la nuova bomber
--~ M MffifMúr .**Trm*L*.m
• Hér fyrir ofan má sjá fyrirsögn á úrklippu úr Napoli Notte sem segir frá skotkrafti Bryndísar.
þróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir