Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Side 7
ÖWÍAUGAÍtöAGím4:MAPm
„EG FÆDDIST MEÐ
FLUGDELLUNA”
— Gunnar Þór Ólafsson, bflasali íBflatorgi, sýnir
lesendum DV hina hliðina
„Ég lenti stundum í ævintýrum á
sjónum. Ég man sérstaklega eftir
fyrstu vertíðinni minni árið 1972. Þá
var ég skipstjóri á bát frá Isafirði sem
hét Víkingur annar. Við fengum á okk-
ur mikið brot og skipið laskaðist illa.
Veðrið var mjög slæmt og ef við hefð-
um fengið annað brot skömmu síðar
væri ég varla tll frásagnar.”
Svo mælir Gunnar Þór Olafsson bíla-
sali, fyrrverandi sjómaður og skip-
stjóri og núverandi flugdellukarl.
Gunnar rekur bílasöluna Bílatorg í
Nóatúni ásamt félaga sínum, Ragnari
Lövdahl.
„Ég byrjaði að vinna sem sölumaður
á Bílatorgi árið 1981. Eg tók síðan við
rekstrinum ásamt mági mínum um
áramótin ’81—’82. Og hér er ég enn.”
Nú hafa heyrst frekar leiðinlegar
raddir í garð ykkar bílasala í gegnum
tíðina. Sagt hefur verið að þið væruð
óheiðarlegir í viðskiptum. Er eitthvað
til í þessu?
„Því fer víðs fjarri. Þeir menn sem
ég þekki í þessum bransa eiga ekki
skilið slíkt umtal. Og rökrétt framhald
af miklum heiðarleika bílasala er
minnkandi umtal af þessu tagi, ár frá
ári.”
Flugið heillar
Þú ert þekktur meðal félaga þinna
sem mikill dellukarl um flug. Hvenær
fór flugáhugi að gera vart við sig hjá
þér?
„Eg fæddist með flugdellu. En vegna
félagslegra aðstæðna gat ég ekki byrj-
aö að læra að fljúga fyrr en ég var 32
ára gamall. Þá gat ég loks látið þennan
draum minn rætast.”
Hvað er það sem gerir flugið svona
heillandi?
„Þetta er svo spennandi. Það að
fljúga flugvél reynir gífurlega á þann
sem það gerir. Þú getur lagt bílnum
þínum út í vegarkant og hugsað málið
en þegar þú ert að fljúga gengur það
ekki. Ef ekki á ilia aö fara þarft þú á
allri einbeitingu þinni og hugsun að
halda. Þegar þú flýgur gleymir þú öllu
öðru. TUfinningin er stórkostleg. Mað-
ur svífur um loftin eins og fuglinn
frjáls.”
„Laxinn fyrir
auðkýfinga”
Er um einhver önnur áhugamál að
ræða en starfið og flugið?
„Já, ég hef gaman af því að renna
fyrir lax. Veiðimennska mín heyrir nú
sögunni til. Veiöileyfin eru orðin svo
dýr aö það er aöeins fyrir auðkýfinga
að renna fyrir lax og njóta náttúrunn-
ar.”
Rækjutogarinn
Höldum áfram með veiðiskap. Eg
heyrði því fleygt að þú hefðir fyrir
nokkrum árum veriö búinn að kaupa
rækjutogara. Er eitthvað tU í þessu?
„Þetta er rétt. Eg var búinn aö
ganga frá kaupum á rækjutogara í
Noregi. Eg fékk hins vegar ekki leyfi
yfirvalda tU að flytja hann tU landsins.
Eg gekk á mUU Heródesar og PUatus-
ar. I dag eru þeir menn sem sýndu
þessu minnstan áhuga að breyta skip-
um til rækjuveiða fyrir mikiö fé. Það
sem þessi skip eiga að gera hefði
rækjutogarinn minn getað gert fyrir
Gunuar Þór Ölafsson ásamt fjölskyldu.
mörgum árum. Eg varð að hætta við
kaupin. I kaupsamningnum var sá fyr-
irvari á gangi mála að íslensk stjórn-
völd gæfu leyfi fyrir komu togarans tU
íslands. Eg varö fyrir miklum von-
brigðum og er langt frá því að vera
feginn í dag að svona fór.”
„Verð bílasali eins
lengi og ég get”
Framtíðin, Gunnar. Ætiar þú að
starfa sem bUasali neðst í Nóatúninu
tU æviloka eða snúa þér að einhverju
öðru?
„Ég verð bílasaU eins lengi og ég
get. Þetta er skemmtUegt en erfitt
starf. Eg er menntaður frá Stýri-
mannaskólanum og menn með mína
menntun geta ekki valið úr störfum í
landi.”
Ertu þar með að segja að þú farir
ekkiafturtilsjós?
„Já, ég held það. Mig langar ekki á
sjóinn.”
Að lokum, Gunnar. Rekur þú besln bfla-
sölu á Islandi?
„Vafalaust. Eg er alveg sannfærður
um það. Ef það væri ekki hafið yfir aU-
an vafa hefði mikið starf okkar hjá
Bílatorgi verið unnið til einskis. Við
höfum einsett okkur að veita góða
þjónustu og stefnum að því að gera
góða þjónustu enn betri,” sagði Gunn-
arÞórOlafsson.
-SK.
I
1 NAFN: Gunnar Þór Olafsson.
I FÆDDUR: 11. júní 1949.
f KONA: IlseHasler.
I BÖRN: Fjögur á aldrinum eins til
Iþrettán ára.
BlLL: Buick Special árgerö 1956.
STARF: BílasaU.
LAUN: Um 30 þúsund.
IÁHUGAMÁL: Flug.
HELSTIKOSTUR: Vel gefinn.
| HELSTI VEIKLEIKI: Latur á
Imorgnana.
HVAÐ FER MEST I TAUGARNAR
IÁ ÞÉR? Oorðheldni.
UPPÁHALDSMATUR: Kaldur salt-
I fiskur.
■ UPPÁHALDSDRYKKUR: Mjólk.
I HVAÐA PERSONU LANGAR ÞIG
J MEST TIL AÐ HITTA? Ronald
I Reagan.
IUPPÁHALDSLEIKARI ISLENSK-
UR: GísU Halldórsson.
IUPPÁHALDSLEIKARI ERLEND-
UR: CUntEastwood.
I UPPÁHALDSHLJÓMSVEIT: Bítl-
* arnir.
I UPPÁHALDSSTJORNMÁLAMAÐ-
I UR: OlafurThors.
I ERT ÞÚ FYLGJANDI EÐA AND-
EVIGUR RlKISSTJÖRNINNI? Ekki
andvígur henni en orðinn áhugalaus
Igagnvart henni.
HVAR KYNNTIST ÞU KONUNNI
I ÞINNI? Á Isafirði.
Z HVAÐ VILDIR ÞÚ HELST GERA I
ELLINNI? Dunda mér uppi í sveit.
UPPÁHALDSSJÖNVARPSÞÁTT- I
UR: Stiklur.
UPPÁHALDSSJONVARPSMAÐ- I
UR: Omar Ragnarsson.
UPPÁHALDSFÉLAG I ÍÞRÓTT- |
UM: KR.
EF ÞÚ VÆRIR EKKI BlLASALI I
HVAÐ MUNDIR ÞÚ ÞÁ HELST VIUA I
GERA? Vera flugmaður. ■
UPPÁHALDSBLAÐ: Sunnudags-1
blað Moggans.
UPPÁHALDSTtMARIT: Sportveiði-1
blaðiö. ■
UPPÁHALDSSTJORNMÁLAMAÐ- I
UR ERLENDUR: Ronald Reagan. I
EF ÞÚ YRÐIR HELSTIRÁÐAMAÐ- *
UR ÞJÖÐARINNAR Á MORGUN I
HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA J
VERK? Tryggja sjálfan mig alger-1
lega sem einvald. ■
ANNAÐ VERK: Reka Island eins og I
fyrirtæki en ekki eins og leikhús.
EF ÞÚ ÆTTIR EKKI HEIMA Á ÍS- ■
LANDI HVAR VILDIR ÞÚ BÚA? I I
Þýskalandi.
VASKAR ÞÚ UPP FYRIR KONUNA I
ÞlNA? Einstaka sinnum.
MYNDIR ÞÚ TELJA ÞIG GÓÐAN |
EIGINMANN? Já.
FALLEGASTI STAÐUR Á IS- |
LANDI: Borgarfjörður eystri. ■
HVAÐ ÆTLAR ÞU AÐ GERA Á I
MORGUN?Fljúgaefveðurleyfir. I
F I AT
sölusýningI
MEST SELDI BlLL Á ÍSLANDI
ALLIR sem ætla að festa kaup á nýjum bíl ættu að kanna endursöluverð á þeim bíl er
þeir hyggjast kaupa.
ENGINN bíll hefur sannað áþreifanlega jafnhátt endursöluverð og FIAT.
ENGINN ætti að festa kaup í öðru fyrr en hann hefur kynnt sér okkar landsþekktu FIAT-KJÖR.
ENGINN fer bónleiður frá okkur með gamla bílinn, því við tökum flesta notaða bíla upp í nýja.
METSÖLUBÍLLINIM
sem alls staðar slœr í gegn.
ÚR FlAT-FJÖLSKYLDUNNISÝNUM VIÐ:
FIAT Regata
FIAT127 Panorama
FIAT PANDA 4x4
FIATUNO
OPIÐ LAUGARDAG KL. 1-5.
OPIÐ SUNNUDAG KL. 1-5.
FIAT bíHinn Þ»nn
1929
EGILL
VILHJÁLMSSON HF. / j
F I A!T
1985
Smiðjuvegi 4 Kópavogi