Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Page 12
12
DV. LAUGARDAGUR 4. MAI1985.
Uppboð
Eftir beiöni iögreglustjórans i Reykjavik, fer fram opinbert uppboð að
Borgartúni 7 (baklóö) laugardaginn 11. mai 1985 og hefst þaö kl. 13.30.
Seldir verða margs konar óskilamunir, sem eru I vörslu lögreglunnar,
svo sem: reiöhjól, úr, skrautmunir, fatnaöur og margt fleira. Greiösla
viö hamarshögg.
Uppboöshaldarinn I Reykjavik.
Bæjarritari
Staða bæjarritara hjá Ólafsvíkurkaupstað er laus til um-
sóknar. Æskilegt er að umsækjendur hafi viðskipta-
menntun og eða starfsreynslu á sviði viðskipta. Laun skv.
samningum BSRB.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 1985.
Bæjarstjórinn f Ólafsvfk.
,....... ,M ------------------
Í.B.R. _________________ K.R.R.
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKURi
SUNNUDAGSKVÖLD KL. 20.30
ÞRÓTTUR - FYLKIR
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
J
SLYSAVARIMADEILD
LÁGAFELLSSÓKNAR —
BJÖRGUNARSVEITIN
kyndill
270 Varmá - Box 52 - Sími 666850
Aðalfundur Slysavarnadeildar Lágafellssóknar verður
haldinn þriðjudaginn 7. maí í Hlégarði kl.'20.00. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
ti&PvANm
7 EfTIRTAUN 01
HVERFI•
Bárugötu, Barónsstfg,
Garðastræti, Eiríksgötu,
Rónargötu, Fjölnisvag,
Stýrimannastfg, Mfmisveg.
HAftÐ SAMBAND VIÐ AfOREIOStUNA 0G SKRIflÐ YKKUR A BI0USTA.
mjm
TILBOÐ
Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar í því ástandi sem þær eru í. Bifreiðarnar hafa skemmst í
umferðaróhöppum.
Mazd <626 1982
Datsu Laurell 1984
Lada Sport 1980
Mazda 323 1984
Daihatsu Charade 1980
Chevrolet Nova 1978
Mercedes Benz 280 1973
Mltsubishi Sapparo 1982
Bifreiðarnar verða til sýnis mánud. 6. maí 1985 í Skipholti
35 (kjallara) frá kl. 9.30-12 og 13-16.30. Tilboðum
óskast skilað fyrir kl. 17.00 sama dag til bifreiðadeildar
Tryggingar hf., Laugavegi 178, Reykjavík.
DV-mynd: Brynjar Gauti.
Það tók sig ekki
upp gamalt bros
Tjaldiö er falliö. Handknattleikn-
um er lokiö að sinni. Þegar tjaldiö
veröur dregiö upp á ný næsta vetur
veröa margir snjallir kappar af sviö-
inu —hættir eöa famir til útlanda til
leiks. Flestir eru sammála um að
enn eitt misheppnaö leiktímabil sé
liöiö, vetur meöalmennskunnar, vet-
ur „áhorfendafælunnar”.
Þrátt fyrir góöan árangur íslenska
landsliösins, FH og Vikings í
Evrópukeppni má lengi finna aö.
Fyrirkomulag Islandsmótsins er
ekki í eins góðu horfi og vera skyldi.
Stjóm HSf verður að gera stórátak í
þeim efnum. Breytingar á fyrir-
komulagi 1. deildar keppninnar, sem
áttu aö vera lyftistöng fyrir hand-
knattleikinn á sinum tíma, hafa
skaðað hann. Færri áhorfendur hafa
komið á leiki, sem hefur kostaö þaö
aö áhugi leikmanna og metnaöur er
minni. Hvað er leiöinlegra en aö etja
kappi viö mótherjana fyrir tómum
keppnishöllum? Enginn leikari
þrífst, ef áhorfandi er enginn.
Það er ljóst að öllum ráöum veröur
aö beita til aö gera handknattleikinn
áhugaveröari og skemmtilegri held-
ur en undanfarin ár. Taka t.d. gamla
fyrirkomulagiö upp. Sleppa mislukk-
aðri úrslitakeppni. Eða er of seint í
rassinn tekiö? Er nú þegar búiö aö
fæia stóran áhorfendahóp frá?
Bestu handknattleiksmenn Islands
em farnir til útlanda eöa éru á för-
um. 1 fljótu bragöi koma menn ekki
auga á marga leikmenn sem koma til
með að fyila skörö þeirra.
1. deildar keppnin, eða réttara sagt
margra mánaða æfingamót fyrir úr-
slitakeppni, hefur verið misheppnuð.
Urslitakeppnin sjálf hefur verið út í
hött. Ahuginn var enginn undir lokin.
FH-ingar byrjuöu meö gott forskot
og þeir vom búnir að tryggja sér
meistaratitilinn fyrir síöustu um-
ferðina. Samtals komu 113 áhorfend-
ur á síðustu sex leikina, flestir vom
böm. Meðaltal var því 18,8 áhorfend-
uráhvemleik.
Lágkúraní
hámarki
Lágkúran, sem hefur einkennt bar-
áttuna um lslandsmeistaratitilinn,
náði hámariri í Laugardalshöllinni
sL mánudag þar sem aðeins 60 áhorf-
endur sáu FH-inga taka á móti ls-
landsbikamum.
Eg var þar viðstaddur og mig rak í
rogastans þegar ég sá sjálfan Is-
landsbikarinn. Honum var stillt upp
brotnum og subbulegum. Silfurbik-
arinn glæsilegi var þama kominn,
mattur og ljótur, meö óteljandi
fingraför. Menn höföu ekki haft fyrir
ÍÞRÓTTIR
ÍVIKUL0KIN
SigmundurÓ.
Steinarsson skrifar
því að þrífa hann fyrir afhending-
una.
Já, hér á árum áður var þaö stór
stund þegar okkar bestu handknatt-
leiksmenn handléku vel fægðan bik-
arinn frammi fyrir fullu húsi áhorf-
enda. En nú? Þaö tók sig varla upp
gamalt bros hjá leikmönnum eöa
hinum fáu áhorfendum. Þaö er af
sem áður var. Eg gat þó ekki annað
en brosað.
Minnkandi tekjur
Samhliöa fækkandi áhorfenda-
fjölda veröa tekjurnar minni hjá fé-
lögunum. Mér hefur veriö tjáð að 1.
deildar liðin hafi aöeins fengiö þetta
80—100 þús. krónur í kassann í tekjur
af leikjum sínum í vetur. Þessi litla
tekjuöflun hefur kallaö á meira
„betl” forráöamanna félaganna til
aö láta enda nó saman. Mér skilst þó
aö það hafi alls ekki tekist, síður en
svo. Það er ekki lengur spennandi
verk aö vera í stjórnum félaganna.
Menn eru búnir aö fá sig f ulisadda af
„betli” ár eftir ár. Góöir starfskraft-
ar róa á önnur mið. Handknattleikur-
inn verður því fátækari í tvennum
skilningi — vantar peninga og góða
menn.
Það er nú orðið svo aö áhætta er
fyrir félög að tryggja sér 1. deildar
sæti. Því aö þaö kallar á meiri pen-
ingaútgjöld og aukinn kostnaö viö
þjálfun og aðhald leikmanna.
Austurbæjarrisarnir
Þaö er ekki langt þangað tU aö vin-
sælasta íþróttagreinin á Islandi, bar-
áttan um IslandsmeistaratitUinn í
knattspymu, hefst. Boltinn er þegar
byrjaður aö rúUa. A sama tíma og 60
áhorfendur sáu FH-inga taka við
Islandsmeistaratitlinum i hand-
knattleik voru yfir 400 áhorfendur
að sjá leik í Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu, sem fór fram aðeins 50
m frá LaugardalshölUnni.
Að sjálfsögöu eru menn byrjaðir
aö spá og velta fyrir sér hverjir
hreppa IslandsmeistaratitUinn í
knattspyrnu 1985. Skagamenn hafa
veriö óstöövandi tvö sL ór — unnið
bæði dedd og bikar, eöa tvöfalt. Þeir
verða tU aUs Uklegir í ár, þrátt fyrir
að hafa misst Guöbjöm Tryggvason
og Bjama Sigurðsson tU Noregs, Sig-
urö Jónsson til Sheffield Wed. og Sig-
urö Halldórsson tU Húsavíkur.
Reykjavikurmótinu er aö ljúka. TU
úrsUta leika Austurbæjarrisarnir
Valur og Fram. Bæði þessi Uð eru
mjög öflug og það er mál manna aö
þau komi tU meö aö berjast um Is-
landsmeistaratitiUnn. Verður
Reykjavíkurár í ór? Stöðva þessi fé-
lög Skagamenn? Valsmenn urðu síð-
ast meistarar 1980, en Framarar
þurfa að renna huganum aftur til
ársins 1972. Bæöi liðin hafa f engiö liö-
styrk. Valur: Sævar Jónsson, Magna
Pétursson og Kristin Bjömsson.
Fram: Pétur Ormslev, Omar Torfa-
son, Ásgeir Elíasson, Friðrik Friö-
riksson og Ormarr örlygsson.
Gervigras —
lyftistöng
Gervigrasvöllurinn í Laugardal
hefur verið geysileg lyftistöng fyrir
knattspyrnuna í Reykjavik. Þaö hef-
ur sést á knattspyrnunni aö und-
anfömu sem er betri heldur en oftast
áður á þessum tima.
Það hefur verið rætt um aö gervi-
grasvöUurinn sé slysagildra. Svo
er þó ekki. Mikiö hefur veriö æft á
velUnum — myrkranna á mUU í vet-
ur. Slysatiðnin hefur oröiö minni
heldur en á malarvöUum. Fimmtán
leikmenn hafa farið á slysavarðstof-
una. Átta slysanna hefur mátt rekja
til gervigrasmottunnar, en sjö hafa
verið smávægileg. Eins og fingur-
brot og smá höfuðáverkar vegna
samstuös.
Hólmbert ákveðinn
Að lokum stutt saga frá Keflavík.
Hólmbert Friöþjónsson, þjólfari
Keflavikurliösins, er ákveöinn að
vanda. Hann gerir miklar kröfur til
leikmanna sinna, eins og góðum
þjálfara sæmir. LandsUösmaðurinn
Ragnar Margeirsson átti dapran dag
gegn FH á dögunum. Hólmbert
kippti honum út af. Lét hann síðan
vera varamann i næsta leik, gegn
Víöi í GaröL 1 þeim leik setti Hólm-
bert Ragnar inn á sem varamann.
Ragnar þakkaöi fyrir sig meö þvi að
skorafjögurmörk.
Þetta Utla dæmi sýnir að íþrótta-
menn þurfa aöhald. Það er enginn
sjálfkjörinn i flokkaíþróttaliö. Þeir
þurfa aö berjast fyrir sæti sínu.
Sanna að þeir séu verðugir aö halda
því. Nöfn manna skipta ekki máU
heldur geta þeirra hverju sinni.
Sigmundur Ó. Steinarsson