Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Síða 18
18
DV. LAUGARDAGUR 4. MAI1985.
Glaflir Bretar.
Mannfjöldi vifl danska sandiráflifl.
Forsíðan
fynr fjoruttu
arum
Olafur Jensson
verkf ræðingur var á ferfli
með myndavélina
„Þaö hafði legið í loftinu í alllangan
tíma að stríöinu var að Ijúka. Það er
óhætt að segja aö öllum létti stórlega
þegar þeir fréttu af þvi þennan dag,”
sagöi Olafur Jensson verkfræðingur
sem tók margar skemmtilegar myndir
daginn sem heimsstyrjöldinni síöari
lauk, meðal annars af nokkrum
verkfræöingsefnum sem hömpuðu for-
síðu Vísis meö stríöslokafrétt í fimm-
dálk á forsíðu.
— Hvar varstu þegar þú heyrðir að
stríðinu værí lokið?
„Eg hef sjálfsagt heyrt tilkynning-
una í útvarpi. Það sem maður ekki
vissi var hvenær þetta myndi gerast
nákvæmlega.” sagði Olafur.
„Hringurinn var þannig að ljúkast um
leifar þýska hersins að það var spurn-
ing hvenær kæmi að endalokum. Það
sem mönnum var efst í huga var
fögnuöur yfir því að striðinu var lokið
og hugsunin um hvemig umhorfs væri
í Evrópu, hvemig stæði á hjá fólki sem
bjó við niöurníðslu og ringulreið með
samgöngur, borgir og fleira í rústum.”
I sambandi viö þessa mynd af
stúdentunum með Vísi þá lýsir hún í og
með fögnuði okkar yfir því að geta
komist út á eðlilegum tíma sem reynd-
ar varð. Við fóram allir út um haustið
nema einn sem kom ári á eftir. Við
fórum til Danmerkur og hófum nám
við Verkfræðiskólann í Kaupmanna-
höfn.”
Fðtæklegt i Höfn
— Hvemig var umhorfs í Kaup-
mannahöfn á þeim tíma?
„Það var að ýmsu leyti fátæklegt
þar. Danir höföu nóg að borða en
annað var af skomum skammti,
fatnaður lélegur og eldsneyti. Þeir
urðu aö búa mikið að sínu, bjuggu sér
meðal annars til tóbak úr einhverju
rusli.
Sumir vissu ekki hvafl þeir áttu afl
gera. Þessir tveir enduflu úti i
tjðm.
Gengisskráning var þannig á
þessum tíma að hún var okkur
Islendingum mjög hagstæð. Þó við
hefðum ekki úr miklu að moða hér
heima vorum við vel settir miöað við
okkar skólafélaga.
Ástandið lagaðist svo mjög þau þrjú
ár sem ég var við nám í Kaupmanna-
höfn. En byggingar og samgöngukerfi
Dana var yfirleitt í mjög góðu lagi eftir
strið.
Það var fyrst og fremst sunnar, í
Þýskalandi, að ástandiö var verra. En
i Danmörku var þaö vissulega líka
slæmt og ég held að Danir hafi þegiö
meö þökkum þær gjafir sem bárust
héðan. Þær komu í góðar þarfir,” sagði
Olafur. sgv