Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Page 44
FRETTASKOTIÐ
(6?) • (78)*(58)
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
efla vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greifl-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fulirar nafnleyndar
er gœtt. Vifl tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1985.
Játaði á sig
þriðju
árásina
Annar karlmaðurinn, sem var
dæmdur í gæsluvarðhald í lok apríl
fyrir likamsárósir og þjófnað, hefur
viðurkennt þriðju árásina. Maðurinn
réðst á ungan mann fyrir utan Domus
Medica sunnudagskvöldiö 21. apríl.
Stúlkur tóku þátt í verknaðinum með
því að lokka piltinn út af skemmtun
sem var þar. Fyrir utan beið árásar-
maðurinn og réðst að piltinum,
skallaði hann niður og stal frá honum
sex þús. krónum.
Arásarmaðurinn var þar með búinn
að gera sina þriöju árás á aðeins 48
klukkustundum því að hann réðst að
eldri mönnum og rændi þá, fyrst á
r Lindargötu og síðan á Freyjugötu.
Þess má geta að félagi árásar-
mannsins, sem einnig var dæmdur í
gæsluvarðhald, hefur verið látinn laus.
Hann var ekki aðili að líkams-
árásunum.
-sos
Veski með
36.400 kr.
var skilað
Maður nokkur varö fyrir því óhappi í
miðbænum í gær aö hann týndi veski
sínu. Maðurinn var nýbúinn aö taka út
orlofið sitt og var með 36.400 krónur í
veskinu. Hann lét lögregluna vita. Rétt
á eftir kom skilvís kona með veski
mannsins á lögreglustöðina í
miðbænum þannig að maðurinn tók
gleði sína á ný í góða veðrinu.
-SOS
Beðið oddamanns
Vonir standa til að samanburðar-
íefnd sem á að bera saman launakjör
élaga í BHMR og á almennum mark-
iði hef ji störf eftir helgi.
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra sagði í samtali við DV að
verið væri aö ræða við ókveðinn aðila
sem aðilar væru sammála um að gæti
oröið oddamaður nefndarinnar.
PAPILLON
ilmefnalaust
hárlakk
frá
LOKI
Eftir blóðbaðið að
undanförnu eru sumir
farnir að kalla NT
Nátímann. . .
Strax farið að gera við Borgarf jarðarbrúna:
TÆRINGIST0PLUM
Tæring hefur komið fram á yfir-
borði stöpla í Borgarfjarðarbrúnni.
Mest ber á tæringu í þeim stöplum
sem sjaldan koma upp úr sjó. Gert
verður við tvo stöplanna um helgina.
„Þaö er aðeins allra ysta yfirborð-
ið sem hefur eyðst úr,” sagöi Guð-
mundur Arason, deildarstjóri brúar-
deildar hjá Vegagerð ríkisins, í gær.
Hann sagði ennfremur að eyðing-
arinnar gætti í öllum stöplum brúar-
innar, þó mismikiö. „Það er mest á
þeim svæðum sem sjaldan koma upp
úrsjó.”
Um orsakimar sagði Guðmundur
að þær lægju ekki fyrir. „Við vitum
ekki nákvæmlega um orsakirnar, en
brúin er á erfiðu svæði, í saltvatni
þar sem mikils íss gætir.”
Þau efni sem borin verða á yfir-
borð stöplanna tveggja sem gert
verður við um helgina . líkjast
blöndu af málningu og pússningu.
„Við erum að prófa okkur ófram,
athuga hvernig eigi aö halda brúnni
við,” sagði Guðmundur. „Okkur er
nauðsyn á að ljúka viögerðinni um
helgina, klára hana á þessum
straumi.”
Guðmundur lagði í lokin áherslu á
að um eðlilegt viðhald væri að ræða
og aðeins á ysta yfirborði stöplanna.
„Brúin er á mjög erfiðum stað og við
áttum alltaf von á viðhaldi sem
þessu.”
-JGH
örvæntingarf ull kona á þingpalli:
Varpaði blóðugum
tref li í þingsal
Sá óvenjulegi atburður átti sér stað í
Alþingishúsinu í gærdag aö ung kona,
sem stödd var á þingpöllum, stóð upp
og öskraði að þingheimi. Hún henti
blóðugum trefli ofan af þingpalli en
hún var blóðug um hendur.
Þingverðir komu til skjalanna og
tókst að róa konuna í einu herbe.gi
þinghússins.
Þessi unga kona lagði leið sína í
Alþingishúsið eftir að hafa rekið erindi
á Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar við Vonarstræti. Þar braut hún
rúðu og blóðgaði hendur sinar. Það tók
enginn eftir neinu óeðlilegu í fari
konunnar þegar hún gekk inn í þing-
húsið og upp á pallana. En greinilegt
var síðar að örvænting konu þessarar
var mikil. Hún sagðist hafa verið á
hrakhólum með barn sitt á þriðja ár.
-ÞG
Sakadómur Reykjavíkur:
Fasteignasali
dæmdur f sektir
Kveöinn hefur verið upp í Sakadómi
Reykjavíkur dómur í máli Péturs
Einarssonar fasteignasala. Hann var
djemdur til að greiða 30.000 króna sekt
til ríkissjóðs, einnig til að greiða þrem
aðilum öðrum misháar f járhæðir, svo
og þriöja hluta sakarkostnaðar.
Pétur var ákærður fyrir fjársvik.
Hann hafði í maí 1982 fengið Emmu
Blomsterberg, Breiðvangi 4, Hafnar-
firði, til að samþykkja og afhenda sér
þrjá víxla aö f járhæð 350.000 krónur.
Taldi hann henni trú um að hún væri
þar með að inna af hendi gildar
greiðslur upp í kaupsamning um 4ra
herbergja íbúð sem fasteignasala
Péturs hafði milligöngu um sölu á.
Pétur gaf síðan sjálfur út vbclana og
seldi þá í Otvegsbankanum og hagnýtti
sér andvirði þeirra. Emma var svo
aftur krafin um þessar sömu greiðslur
af lögmanni seljanda.
Þá var Pétur einnig ákærður fyrir
sölu á vöru sem hann hafði ekki hand-
bæra nema að hluta. Fékk hann
söluverðiö, kr. 51.596,40, greitt í formi
víxla viðsamning.
r
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Sakadómur dæmdi Pétur Einarsson
til aö greiða 30.000 króna sekt til ríkis-
sjóðs, ella sæti hann 30 daga varðhaldi,
greiði hann sektina ekki innan fjögurra
vikna frá birtingu dómsins. Hann
greiði Arnmundi Backman hdl. kr.
13.806, auk dráttarvaxta, og Otvegs-
banka Islands kr. 71.000, auk dráttar-
vaxta. Einnig greiði ákærði Jóni
Ingólfssyni hdl. kr. 15.305 ósamt
dráttarvöxtum, svo og þriðja hluta
vaxtakostnaðar. -JSS
DV-mynd: GVA
Bamabam Guðmundar J. fæddist fyrsta maí:
„VIÐ ERUM NAUÐALIK”
.Auðvitað sé ég svip. Þótt ég sé
örlítið stærri en barnið sé ég ekki
betur en við séum nauöalik,” sagði
verkalýðsforinginn Guðmundur J.
Guðmundsson þar sem hann hamp-
aði nýfæddu barnabami sínu sem
fæddist 1. maí síðastliðinn, á sjálfum
baráttudegi verkalýðsins.
Það verður ekki annaö sagt um
verkalýðsforingjann en hann velji
dagana til slikra hluta með tilliti til
ævistarfs síns. Sonur Guðmundar,
faðir litlu nýfæddu hnátunnar, er
einnig fæddur 1. maí. „Eg skal segja
þér að ég fór tvær 1. maígöngur þann
daginn. Þegar ég kom á fæðingar-
deildina að sjá son minn var mér
sagt að þaö væri stærsta barn sem
hefði fæðst það árið, 24 merkur. Og
ekki nóg með það. Hann var rauö-
hærður I þokkabót. Það var aga-
legt,” sagði Guðmundur og brosti 1
kampinn.
Guömundur og kona hans, Elín
Torfadóttir, eiga fjögur börn. Sá elsti
er fæddur á ASI-þingi, það næsta í
verkfallinu mikla ’56, svo er það sá
rauðhærði 1. maí, og yngsta barnið
er fætt i harðri kosningabaráttu sem
var fyrir allmörgum árum í Dags-
brún.
„Eg var einhverju sinni spurður
hvers vegna ég veldi þessa daga. Eg
spurði þá bara sisvona á móti, hvaða
dagar eru aðrir dagar? ”
Þetta er sjötta bamabarn
Guðmundar og Elínar. „Við vomm á
Norðfirði þegar við fréttum að
tengdadóttir okkar væri lögst inn til
að fæða þetta bam. Þetta var rétt
áður en ég átti að ganga i salinn til að
halda ræðu yfir Norðfirðingum. Mér
þótti endirinn á ræðunni fullharður
svo ég breytti niðurlaginu í snarheit-
um því ég vildi setja inn eitthvað
ljúft í lokin. Eg bað því menn að
muna að nú væri „ylur í lofti/ilmur í
vori”, sem er úr kvæði eftir Sigurð
Einarsson í Holti,” sagði Guðmund-
ur J. þar sem hann hampaði „maí-
sólinni” sinni, eins og hann kallaði
þá stuttu.
Foreldrar bamsins em Guðmund-
ur H. Guðmundsson og Jónína Jóns-
dóttir og er þetta annað bam þeirra.
-KÞ.
14
4
5
14
4
4
4
4
4
4