Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Qupperneq 4
4 DV. MÁNUDAGUR19. ÁGOST1985 Flugleiðir reyna að fá hljóðdeyf a í tæka tíð: Leita til annars framleiðanda *« • DC-8 þotur Flugleiða mega ekki lenda i New York eftir 1. desember nœstkomandi nema hafa hljóðdeyfa ó gömlu hreyflunum eða nýja hreyfla. „Það eru allar líkur á því að við fá- um hljóðdeyfa á eina vél fyrir 1. des- ember, eöa um það bil þá, þegar und- anþágan til New York fellur niður,” sagði Leifur Magnússon, fram- kvæmdastjóri stjómunarsviðs Flug- leiða. „Við höfum á leigu eina vél sem full- nægir hávaðareglum, DC-8-71 vél. Samningurinn um hana fellur úr gildi 14. desember. Þannig að þaö virðist aö þetta dæmi geti gengið upp.” — Nægir að hafa eina vél á New York? „Yfir vetrartímann eru það fáar ferðir að ein vél dugar alveg. Það eina sem okkur vantar þá er einhver samn- ingur við New York í því tilviki ef sú vél myndi bila eða tefjast eitthvað þannig að við gætum sett inn varavél í staðinn. En þetta er bara spurning um örfáa daga þannig að við höfum ekki miklar áhyggjur af þessu,” sagði Leif- ur. Hann sagði að þrjú fyrirtæki væru að vinna að þróun hljóðdeyfa. Eitt þeirra, ADC, hefði þegar fengiö viðurkenningu bandarísku flugmálastjómarinnar og væri byrjað að framleiða hljóödeyfa og afhenda þá flugfélögum. „Við stöndum í samningum við þetta félag um að komast inn í þeirra röð og það eru allar líkur á þvi að þeim samn- ingum verði lokið núna upp úr helg- inni,” sagði Leifur Magnússon. „Annað félag, sem heitir The Nacell Corporation, er að byrja á hávaðamæl- ingum þessa dagana. Þeir búast við að verða búnir með allar mælingar kannski í næstu viku. Það gæti farið svo að þeir yrðu búnir að fá sína viður- kenningu um mánaöamótin. Þriðja fyrirtækið, AATI, sem við sömdum við á sinum tíma, hefur bara ekki komist almennilega í gang og það er töluvert í að það fái sína viðurkenn- ingu. I samningum okkar við það félag eru ákvæði þess efnis að ef þeir verða ekki búnir aö fá opinbera viöurkenningu á sínum hljóðdeyfi fyrir lok október þá fellur samningurinn úr gildi. Það er augljóst að samningurinn kemur til með að falla þá úr gildi. Þaö er ástæð- an fyrir því að við erum að semja við annað fyrirtæki,” sagöi Leifur Magn- ússon. -KMU. * Kaffibrennsla Akureyrar greiðir 14 milljónir króna i tekjuskatt i ór. DV-mynd: JBH. Brotist inn í fjóra báta I Hafnarfirði var brotist inn í fjóra báta aöfaranótt laugardagsins. Engar skemmdir voru unnar á bátunum nema þær að hurðir stýrishúsa voru brotnar upp og teknar þaðan talstöðv- ar. Þarna hafa verið á ferðinni fingra- langir áhugamenn um fjarskipti því allt annað var látiö óhreyft og greini- lega ekki lyfjaleit á dagskrá. Að öðru leyti voru Hafnfirðingar í hvíld sem aðrir landsmenn um þessa helgi. Inn- brotin í bátana eru óupplýst. baj y Afleiðing kaffibaunamálsins: HAR TEKJUSKATTUR KAFFIBRENNSLUNNAR Kaffibrennsla Akureyrar greiðir í ár langhæsta tekjuskatt allra fyrirtækja á Norðurlandi, um 14 milljónir króna. Kaffibrennslan er jafnframt í hópi hæstu tekjuskattsgreiðenda á landinu. I sköttum alls kemst aðeins Kaupfélag Eyfirðinga upp fyrir Kaffibrennsluna af norðlenskum fyrirtækjum. „Þetta er ekki vegna rekstursins heldur er þetta vegna endurgreiðsln- anna margumtöluðu sem við fengum frá Sambandinu,” sagði Gunnar Karls- son, framkvæmdastjóri Kaffibrennsl- unnar. „Endurgreiðslumar voru að stofni til átján milljónir króna. Svo var þetta vaxtareiknað þannig að þetta varð samtals 40 milljónir króna. Nú þurfum við sem sagt að borga skattinn af því. Þessar endurgreiðslur ásamt vöxt- um komu allar til tekna hjá okkur á einu ári. Þannig að þetta er afskaplega sérstakt tekju- og skattár hvernig sem á það er litið. Eg á ekki von á því að við komum til með að sjá eitthvaö svipað fyrr eða síðar,” sagði Gunnar Karls- son. Stjóm Sambands íslenskra sam- vinnufélaga ákvað að endurgreiða Kaffibrennslu Akureyrar, sem er dótt- urfyrirtæki SlS og KEA, fyrrgreindar fjárupphæðir eftir að svokallað kaffi- baunamál kom upp. Það mál er nú hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. Ekki voru allir sem sóttu Breiðhylt- inga heim á laugardagskvöld jafnvel- komnir og var lögreglan í Arbænum' kölluð á staðinn til að fjarlægja þá óboðnustu. Ibúar við Stapasel létu smala flokki fjórfættra gesta til síns heima þar sem talið var að skraut- garöar á staðnum myndu vart bera sitt barr eftir gestaganginn. Þarna var á Alls ber Kaffibrennslunni að greiða í skatta í ár 15,9 milljónir króna. Til samanburðar má geta þess að Kísil- iðjan við Mývatn greiðir 11,8 milljónir króna. Aðeins þrjú fyrirtæki í Reykjavík greiöa hærri tekjuskatt en Kaffi- brennslan. Þaö eru Húsasmiðjan, IBM og Olíuverslun Islands. ferð kindahópur í leit að auknum fall- þunga og var vörslumaður borgar- landsins beðinn um aðstoð. Atburður sem þessi er að verða ár- viss að sumarlagi vegna girðinga sem ekki eru f járheldar og hafa Breiðhylt- ingar krafist þess að komið verði í veg fyrir frekari skrautgarðaskoðun fer- fætlingaúrnágrenninu. baj -KMU. Grasbítar í borgarferð I dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Siðgæðisvörðurinn í Sjálfstæðisf lokknum Morgunblaðið hefur staöið í stór- ræðum að undanförnu. Það hefur tekið forystumenn Sjálfstæðisflokks- ins á beinið. Ekki aðeins Albert Guð- mundsson, sem hefur alla tíð verið i ónáð hjá ritstjórninni, heldur einnig Þorstein Pálsson og Sverri Her- mannsson. Nú er það i sjálfu sér ekkert nýtt að Mbl. gerist sjálfskipaður siðgæð- isvörður Sjálfstæðisflokksins. Blaöið hefur um áratugi reist varnarmúr um vildarvini sína og þá fiokksgæð- inga sem það hefur velþóknun á. Þannig hefur blaðið og flokksforyst- an verið eins og flís við rass og rödd Morgunblaðsins veriö búktal foryst- unnar og öfugt. Flokksforingjar fyrri ára bafa haft þá reglu að tjá sig ekki annars staðar en í blaðinu og þannig hefur hvert orð verið ritskoöað og þaulhugsað af alvitrum og alsjáandi ritstjórum á blaði allra landsmanna. Nú upp á síðkastið hefur þetta breyst. Forystumenn Sjáifstæðis- flokksins eru hættir að hugsa í gegn- um Morgunblaðið og eru með meld- ingar út og suður aö Morgunblaöinu forspuröu. Að því er fo. mann flokks- ins, Þorstein Pálsson, varðar kemar þetta til af þvl að Morgunblaðið hafði útnefnt Þorstein sem biaðafull- trúa Sjálfstæðisflokksins og ríkis- stjórnarinnar. Og af því að Þorsteinn vUl taka þetta hlutverk sitt alvarlega hagar hann sér eins og almennilegir blaðafulltrúar gera og lætur aðra f jölmiðla hafa eitt og annað eftir sér. Eftir höfðinu dansa limirnir og ráðherrar flokksins, það er að segja þeir sem mega vera að því að mæta í ráðuneytunum, hafa leyft sér að tala f ritt um menn og málefni. Ef frá er talinn Albert, sem aldrei hefur þurft að biðja um leyfi á Mogga til að hafa skoðun, hefur Sverrir Hermannsson verið óspar á yfirlýsingar og melningar um þau málefni sem undir hann heyra. Þetta hefur Morgunblaðinu líkaö illa en látið kyrrt liggja af því að Sverrir er gamall Morgunblaðsvinur og ekki er allt heilagt sem hann seglr. Hins veg- ar var ráðberrann svo óheppinn á dögunum að standa í útistöðum við Náttúruverndarráð út af einhverjum tittlingaskit og gat þess í framhjá- hlaupi að honum stæði á satna hvað sá sértrúarsöfnuður tæki sér fyrir hendur. Nú vill svo til að varafor- maður Náttúruvemdarráðs er jafn- framt blaðamaður á Mogganum og nú reiddust goðin. Samanlögð rit- stjómin móðgaðist fyrir hönd vara- formannsins og tók fram gamla sið- gæðisvöndinn og áminnti hxstvirtan ráðherrann fyrir dónaskap og ónot út í bláókunnugt fólk. Hér efíir er eins gott fyrir blessaða ráðherrana að gæta tungu sinnar og sýna fyllstu háttvísi gagnvart ókunnugu fólki, ekki sist ef það á innangengt á Morg- unblaðinu. Af Þorsteini formanni og blaðafull- trúa er það að segja að hann hefur gengið svo langt að svara spurning- um Mbl. með því að segja: „Nú svara ég ekki.” Sá dónaskapur getur kostað formanninn æruna þvíblaða- menn á Mogganum, sem sérhæfa sig í leynilögreglusögum, hafa komist að þeirri niðurstöðu að Þorsteinn Páls- son og enginn annar bafi „leikið” í hlutabréfaútboðinu. Verður formað- urinn að senda málgagninu stuttar athugasemdir til að bera af sér æru- meiðingamar. Fer nú flestum að verða ljóst hverjir ráða ferðinni í pólitikinni þegar Mogglnn er annars vegar. Ráðherrann er búinn að fá tvö gul spjöld fyrir ókurteisi og formað- urinn settur í skammarkrók á fjórðu síðu. Svona fer fyrir mönnum sem skilja ekki siðgæðismóralinn á Mogg- anum. Hann er fólginn í þvi að hlýða þvi sem blaðið segir. Það kunni Geir. Þess vegna var hann svona góður formaður. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.