Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Page 12
12 DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985 Frjálst.óháö dagblað útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P.STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla,áskriftir,smáauglýsinqar,skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SÍMI 27022. Sími rifstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf., Áskriftarverö á mánuöi 360 kr. Verö i lausasölu 35 kr. Helgarblaö40kr. Vandi jafnaðarmanna Það er einkennilegt, að stofna þurfi „Félag jafnaöar- manna” í „Bandalagi jafnaðarmanna”. Þetta hefur nú gerzt. I Félagi jafnaðarmanna eru tveir af fjórum þing- mönnum Bandalags jafnaðarmanna, þær Kristín Kvaran og Kolbrún Jónsdóttir. Þetta félag er stofnað 1 andstöðu við hina þing- mennina, Guðmund Einarsson og Stefán Benediktsson, og því er stefnt gegn formanni og varaformanni lands- nefndar bandalagsins, Kristófer Má Kristinssyni og Val- gerði Bjamadóttur. Félögum í Félagi jafnaðarmanna finnst þeir, sem ráð- ið hafa ferðinni, hallast of mikið að „frjálshyggju”. Þeir hafi misst sjónar á grundvallaratriðum jafnaðarstefn- unnar. Kristófer kallar þetta uppreisnarlið „fomaldarkrata”. Bandalag jafnaðarmanna varð til með klofningi úr Alþýðuflokknum. Þessi nýi flokkur kennir sig við jafnaöarstefnu eins og Alþýðuflokkurinn, en Bandalag jafnaðarmanna hefur gengið lengra í gagnrýni á kerfið. Talsmenn Bandalagsins hafa einkum látiö til sín taka í kröfum um „stjórnkerfisbreytingu”. Þessi vandamál svonefndra jafnaðarmanna taka ekki einvörðungu til íslands. Þau eru að mörgu leyti ekki ný af nálinni. Alþýðu- flokkurinn hefur klofnað margsinnis eins og allir þekkja. Jafnaðarmenn í Evrópu lögðu löngum áherzlu á að byggja upp „velferðarþjóðfélag”. Þetta gekk lengi vel. Síðustu ár hefur „velferðarþjóö- félagið” lent í kreppu. Minna varð úr að spila, einkum eftir mikla hækkun olíuverðs, sem setti þessar þjóðir í vanda. Ekki varð lengur vinsælt að halda áfram að færa velferðarþjóðfélagiö út. Það reyndist hafa verið ofkeyrt. Skattgreiðendur þoldu ekki meira, þegar syrti í álinn. Markaðsbúskapur hefur sýnt yfirburði sína yfir ríkis- forsjá. Jafnaðarmenn minnkuðu þjóðnýtingartal sitt. Víða tóku áhrifamenn í jafnaðarmannaflokkunum að skírskota til markaðsbúskapar fremur en þjóðnýtingar. „Frjálshyggjumenn” er hvarvetna að finna í jafnaðar- mannaflokkum Vesturlanda. Menn þekkja, hvernig Verkamannaflokkurinn brezki klofnaði. Klofningsmenn stofnuðu flokk sósíaldemókrata og tóku upp samvinnu við borgaraflokk, Frjálslynda flokkinn. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður íslenzka Alþýðu- flokksins, hefur í mörgu stutt markaðsbúskap. Hann vitnar til reynslu jafnaðarmanna á Nýja-Sjálandi, sem styðjast í mörgu við markaðsbúskap. Nefna má miklu fleiri dæmi um, hvernig sósíaldemó- kratar hafa vikið frá þjóðnýtingarhjali og tekið upp raun- hæfa stefnu. Vandi jafnaðarmannanna 1 Bandalagi jafnaðarmanna er einnig þessi. Bandalag jafnaðarmanna var samansett af sundur- lynduliði. Strax og þessi „flokkur” þurfti að sýna, hvað hann vildi, að Vilmundi Gylfasyni látnum, skarst í odda innan flokksins. „Frjálshyggjumennimir” hafa ráðið ferðinni innan þings og í ræðu og riti. Nú kemur í ljós, að helmingur þingflokksins sættir sig ekki við þaö. Vissulega hefur Bandalag jafnaðarmanna einkum sótt lausafylgi sitt til Sjálfstæðisflokksins samkvæmt skoðanakönnunum. Flokkurinn má ekki viö kúvendingu nú. Haukur Helgason. „Af uppeldislegum sjónarhóli er fjármögnun skólastarfsins ekkert aðalatriði heldur er frelsi þeirra aðal- atriði." Einkaskólar og ríkisreknir skólar Þaö eru nánast trúarbrögö hjá frjálshyggjumönnum að allt skuli vera rekiö af einkaaöilum en ekki ríkinu. Meö því móti á allt aö veröa betra og ódýrara. I blaði sem frjáls- hyggjuungmenni í MR gáfu út fyrir nokkrum misserum fullyrti t.d. eitt þeirra aö islenska þjóðin tapaði ómælanlegum verömætum á því aö hafa ríkisrekiö skólakerfi. Raunar hafa sósíalistar gjama haldiö hinu gagnstæða fram, að þjóðin tapi á því aö hver og einn eigi ekki sömu tæki- færi til menntunar og talið þaö vera hlutverk rikisins aö tryggja þaö. Athyglisvert er aö báöir hóparnir nota „þjóðarhagsmuni” til aö rök- styðja „'trúarbrögð” sín. Hvernig á að fjármagna skóla? Af uppeldislegum sjónarhóli er fjármögnun skólastarfsins ekkert aöalatriöi, heldur er frelsi þeirra aöalatriöi. Þeir fáu einkaskólar sem hér starfa eru bundnir af lögum og reglugerðum á svipaðan hátt og hreinir ríkisskólar. Raunar hefur veriö bent á að þeir séu bara ríkis- reknir einkaskólar. Mestallur rekstr- arkostnaður þeirra er greiddur af ríkinu. En vissulega væri íslenskt skólakerfi fátækara ef hvorki Versl- unarskólinn, Samvinnuskólinn né lsaksskóli væru til. Fjármagnsskortur háir skólum og skólastarfi hér á landi verulega. Tækjabúnaöi er stórlega ábótavant, algengt er að skólar starfi árum saman og jafnvel áratugum saman í hálfköruöum byggingum, launakjör kennara eru meö þeim hætti aö góöir kennarar geta ekki helgaö sig skóla- starfi án óhóflegs kennsluálags og svona mætti halda lengi áfram. Talaö er um hversu skólarnir séu miðstýrðir. Aukin fjárframlög myndu bæta úr en fleira er hægt að gera til aö auka frelsi þeirra. Þaö mætti t.d. hætta að gefa út svokall- aöa viðmiöunarstundaskrá. Núver- andi menntamálaráöherra hefur gef- iö út slíka skrá sem bindur hendur skóla stórum meir en fyrri skrá. Samræmd lokapróf er ástæða til að fella niöur og auka faglega leiösögn i staöinn (þótt hægra liöið agnúist út í INGÓLFUR Á. JÓHANNESSON SAGNFRÆÐINGUR OG KENNARI allt slikt). Enn má nefna aö ríkiö get- ur séö fyrir auknu framboði af náms- efni — eða þá „frjálsi” markaðurinn ef hann viil. En ef dæma má af frammistöðu hans á framhaldsskóla- stiginu þar sem hann er einráöur er honum alls ekki treystandi. Fag- mennska í námsefnisgerö kostar peninga og útgáfufyrirtæki sjá ekki hagnaöarvon þar. Tjarnarskóli Það varö mikið fjaðrafok er þaö fréttist að búiö væri aö stofna einka- skóla og þaö ætti aö kosta 30.000 krónur á ári að hafa þar ungling. E.t.v. eru þeir ekki svo gífurlega margir sem geta alls ekki klofið að greiða slíka f járhæö fyrir eitt barn ef lagt er mikið upp úr vellíðan og menntun barnsins og skólinn reynist góöur. En gamanið fer aö kárna ef greiöa á slika upphæö fyrir fleiri böm, e.t.v. öll grunnskólaárin níu. Meö slíku fyrirkomulagi væri stigið stórt skref aftur á bak hvað varðar jafnrétti til náms, ef þaö verður út- breitt. Skólastýrur Tjarnarskóla eru ekki öfundsveröar (burtséö frá öllu fjaörafokinu og ásökunum um óeðli- lega fyrirgreiöslu o.s.frv.). Þær hafa lítiö svigrúm í viðmiðunarstunda- skránni og námsefniö sem til er og lokaprófin upp úr binda hendur þeirra. Skólinn er ekki nógu stór — aöeins 100 nemendur — tU að hinn „frjálsi markaður” sjái sér hag í aö sinna honum einum. Líklega ræðst árangur skóians mest af því hvernig til tekst með val kennara. En þeir eru ekki heldur öfundsveröir. Fastlega má búast viö því aö nemendur og foreldrar þeirra verði heimtufrekari en í öðrum skól- um. Vill fólk ekki fá eitthvað fyrir peningana? Hvemig á svo aö mæla árangur- inn? A að gera það meö heföbundn- um hætti? Foreldrar og aðrir munu bera útkomuna úr prófum mennta- málaráöuneytisins i 9. bekk saman við útkomu í öörum skólum. Nái skól- inn hins vegar þeim árangri aö verða „betri skóli” er slíkur samanburöur samt út í hött. Islenskt skólakerfi skortir mjög fagmennsku. Ef Tjarnarskóli, sem hlýtur aö nota sér bæöi sálfræðinga, uppeldisfræðinga og félagsráögjafa þrátt fyrir ímugust frjálshyggjuliös- ins, getur bætt eitthvað úr skák í þessu efni fagna ég því. Og þótt ég telji að „aukakostnaðurinn” viö „góöa skóla” eigi aö greiöast úr sam- eiginlegum sjóöum okkar en ekki úr vösum foreldra óska ég þess aö skólastarfið í Tjarnarskóla verði frjótt og öðrum skólum til eftir- breytni. Ekki veitir af. Ingólfur A. Jóhannesson. 0 „Fagmennska í námsefnisgerö kostar peninga og útgáfufyrirtæki sjá ekki hagnaðarvon þar.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.