Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Page 14
14 DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985 Menning Menning Menning Menning ORTVAXANDI VEFJARUST — norræni textílþríæringurinn að Kjarvalsstöðum Norræni textílþríæringurinn, sem nú gistir Kjarvalsstaöi, er meö ánægju- legri uppákomum sem norrænir lista- menn standa að. í staö þess aö reiöa sig á opinbera aöila, listasöfn og stjórnskipaða ráögjafa, sem oft glutra niöur góöum tækifærum í skrifræöi og málamiölunum, tóku veflistamenn sig sjálfir til og sköpuðu sér samnorrænan vettvang meö gæöi og fjöibreytni aö leiöarljósi. Sjóðir og listasöfn hafa vissulega hlaupiö undir bagga meö þeim en framkvæmdin hefur alla tíö veriö í höndum þeirra sjálfra. Frá því fyrsti textílþríæringurinn var haldinn árið 1974 hefur vefjarlist á Norðurlöndum tekiö ýmsum breyting- um, e.t.v. fyrir áhrif þríæringsins. Fyrstu sýningarnar innihéldu talsvert mikiö af myndvefnaöi, og var sumt af honum ætlaö aö miöla boöskap um þjóðfélagsmál og tengslin milli manns og náttúru. Tilraunastarfsemi Smátt og smátt hefur boöskapurinn vikið fyrir einstaklingsbundinni til- raunastarfsemi með efni og form, sennilaga vegna aukinnar meðvitund- ar veflistarmanna á Noröurlöndum um þróun vefjarlistar í Austur-Evrópu og Bandaríkjunum. Tauþrykk hefur t.d. losnað úr viöjum skreytilistar og fengið sjálfstætt hlutverk. En hefö- bundinn vefnaöur, t.a.m. góbelín, hef- ur engu að síöur haldið velli og þá í myndvefnaði sem afstrakt veftum. En um þetta, og margt fleira, má fræðast í ágætri sýningarskrá sem fylgir fjóröa textílþríæringnum aö Kjarvalsstöðum. Mér skilst á skránni að innsend verk hafi aldrei verið fleiri og ef ég man rétt hafa verk á þríæringnum aldrei verið færri, eða 80 talsins. Hinar ströngu kröfur dómnefndar hafa ekki rýrt þennan þríæring heldur þvert á móti. Eg man satt aö segja ekki eftir fjölbreyttari og skemmti- legri textílþríæringi og ekki sakar aö hvert og eitt einasta verk fær aö njóta síntil fullnustu. Myndlist Kirsti Rantanen — Skugginn Hi í, 1985 ( nr. 7). Aðalsteinn Ingólfsson Þriðja víddin Ef nefna ætti einhver séreinkenni á þessum þríæringi þá er þaö sennilega mikil notkun veflistarmanna á öllum Norðurlöndum á þriöju víddinni, en u.þ.b. helmingur verkanna grundvall- ast á svipuöum forsendum og fram- sækinn nútímaskúlptúr. Sum þeirra eru frístandandi eöa hangandi, önnur mundu flokkast undir lágmyndir. Mörg þeirra mundu taka sig vel út á „venjulegum” myndlistarsýningum sem er til marks um þann samruna handíöa og frjálsra myndlista sem orö- iö hefur á síðastliönum áratug. Heföbundinn efniviður nægir nú nor- rænum veflistarmönnum ekki lengur. Verkin eru t.d. gerö úr tjöru, plastefn- um, málmi, tágum, pappa, blýi og steyptum einingum. Velta má fyrir sér hvort ekki sé tími til kominn aö endur- skoða forsendur þessa þríærings og kenna hann viö „mjúkan efnivið” eöa víxlverkan ýmissa efna, eins og að- standendur „Stoffwechsel” sýningar- innar í Kassel hafa gert. Hugtakið „textíll” er auösjáanlega oröiö of þröngt. Uppruni verka Leiða má getum að því að textíl- þríæringurinn hafi að einhverju marki afmáð séreinkenni á textíl á Norður- löndunum fimm. Nú er a.m.k. erfiðara en áður aö geta sér til um uppruna hinna ýmsu verka er maður gengur um sýningarsalina. Á fyrstu þríæring- unum var ströng formskipun t.d. sterkt einkenni á finnskum veftum. Finnskir veflistarmenn hafa aö vísu ekki gefiö slíka formgerð alveg upp á bátinn en hún er alls ekki jafnáberandi og fyrr. Vistfræðilegar ígrundanir og róman- tík einkennir heldur ekki danskar veft- ir í sama mæli og á fyrri sýningum. E.t.v. hefur þríæringurinn einnig haft hvetjandi áhrif á norska vefjarlist. Norömenn voru fremur aftarlega á merinni á fyrstu tveimur þríæringun- um en nú blómstra þeir í ótrúlega fjöl- breyttum og mögnuðum verkum. Ef einhverjir eru „sigurvegarar” þessa fjórða þríærings þá eru þaö norskir veflistarmenn. Tilbreyting Islenskir veflistarmenn eru hér færri en oft áöur en verk þeirra standa fyrir sínu. Hólmfríður Árnadóttir sýnir verk úr pappír og taui í fyrsta sinn á þessum vettvangi og er ört vaxandi á sínu sviði. Guðrún Marínósdóttir sýnir þrí- víddarverk sem tekur sig vel út í víð- áttu vestursalarins og Sigurlaug Jó- hannesdóttir heldur áfram aö þróa blandaða tækni af miklu öryggi. Guö- rún Gunnarsdóttir er ein Islending- anna um tiltölulega heföbundinn veggjar-vef, voldugt verk og áhrifa- mikiö. Skemmtileg tilbreyting er einn- ig aö útiverki Þórdísar Sigurðardóttur, „Appelsínugulur morgunn”, sem stendur á grasinu fyrir utan Kjarvals- staði. Hvaö erlendu veflistarmennina snertir er allt of erfitt að gera upp á milliþeirra. AI Guðrún Marínósdóttir — Form, 1984 (nr. 19). Sirkka Könonen — Purje 1,1985 (nr. 43). Gítarsnillingar halda námskeið Austurríski gítarleikarinn Siegfried Kobilza efnir í lok þessa mánaöar til námskeiös í gítarleik á vegum Tón- skóla Sigursveins D. Kristinssonar. Á námskeiðinu nýtur hann aöstoöar Símonar H. Ivarssonar, gítarleikara og kennara viö Tónskóíann. Þeir félagar eru Islendingum aö góöu kunnir fyrir gítarleik og kynningu á gítartónlist á síðustu árum. Er þar skemmst að minnast tónleikaferöar um landið fyrr í sumar. Siegfried Kobilza er nú einn fremsti fulltrúi klassískrar gítartónlistar í Austurríki. Hann ferðast víöa og heldur tónleika og leiðbeinir á námskeiöum. Á námskeiðinu gefst þátttakendum kostur á aö leika verk sín fyrir leiö- beinandann. Einnig veröa fluttir fyrir- lestrar um gítarleik og gítarkennslu. Umsóknareyöublöö um þátttöku í námskeiðinu liggja frammi á skrif- stofu Tónskólans, Hellusundi 7. Skrif- stofan er opin frá 14.00—16.00 alla virka daga. Námskeiöiö stendur frá 30. ágúst til 1. sept. m-------------► Siegfried Kobilza og Símon H. ivarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.