Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Qupperneq 18
18
DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985
Sjólastöðin:
Unnið nokkr-
um sinnum
um helgar
— undanþágur hafa fengist í sumar frá
helgarvinnubanni
„Þaö er rétt aö hér hefur þurft að
vinna nokkrum sinnum á laugardögum
í sumar en viö höfum fengiö til þess
leyfi frá verkalýösfélaginu með því
fororði að þeir sem vilja geta sleppt
því, sagöi Oskar Karlsson, verkstjóri í
Sjólastöðinni Hafnarfiröi, í samtali viö
DV. Gagnrýniraddir hafa veriö uppi
um helgarvinnu frystihússins á þeirri
forsendu aðhelgarvinnubann sé í gildi.
Aö sögn Oskars hafa veriö góöar
heimtur á fólki þessa laugardaga og
hefur þá jafnan verið unniö frá 7 til 5 í
snyrtingunni. Síðustu tvo daga fyrir
verslunarmannahelgi vann fólk af sér
með því aö byrja klukkan 5 árdegis.
Mikið hráefni hefur borist til Sjóla-
stöövarinnar í sumar en reynt er aö
hafa frí á laugardögum, nema nauðsyn
krefji. Hingaö til hefur verkalýðsfé-
lagið Hlíf ekki neitaö um leyfi til
helgarvinnu en reynt er aö komast af
meö jafnfátt fólk og hægt er.
-pá.
• Ari Björnsson er ánægöur meö lífið og ráðleggur öllum að fá sér trillu og
róa. DV-mynd PK
„Vigdís hefði
áttaðfara
á skak”
—segir Ari trillusjómaður
„Maöur heföi bara átt aö bjóöa Vig-
dísi á skak. Hún heföi örugglega haft
gaman af því,” sagöi Ari Bjömsson
trillusjómaður viö DV er hann var aö
koma úr róöri með 320 kíló af fiski og
forsetinn nýbúinn að vera í heimsókn.
I sumar hefur hann gert út frá Borgar-
firöi eystra. Annars eru fiskveiöarnar
tómstundagaman hjá Ara. Á vetuma
gegnir hann sínu aðalstarfi sem hús-
vöröur í Menntaskólanum á Egilsstöð-
um.
„Það hafa örugglega allir gott af því
að róa. Þetta er mjög hressandi og svo
ræður maður sér alveg sjálfur,” segir
Ari og er greinilega, svo ekki veröur
um villst, ánægður með lífið og tilver-
una.
Frá Borgarfiröi eru gerðar út um 20
trillur og algengast er aö einn sé á. Ef
fleiri eru á hverjum bát verður að fara
út í aö greiða tryggingar og því um
líkt. „Eg er búinn að gera út
héöan í þrjú sumur. Eg er að þessu
svona einn og hálfan mánuö á hverju
sumri. Áður hef ég verið með bátinn á
Eskifirði og Seyðisfirði. Hér kann ég
ákaflega vel viö mig,” segir Ari. -APH.
Vinna við kennslu- og rannsóknaskipið var vel á veg komin þegar blaðamenn DV litu á það Kjá Trésmiðju
Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd fyrir skömmu.
Líffræðisfofnun, Fiskifélagið og Haf rannsóknastof nun:
Taka sig saman um rekstur
kennslu- og rannsóknaskips
„Það hefur veriö ákaflega brýn þörf
fyrir skip af þessu tæi og þaö kemur til
með aö hafa mikil áhrif á aðstööu til
verklegrar kennslu á sjó og rannsókna
á lífríki sjávar,” sögöu þeir Þorleifur
Valdimarsson og Jörundur Svavars-
son. Þeir sitja í rekstrarstjóm kennslu-
og rannsóknaskips sem nú er í smíðum
fyrir Fiskifélag Islands, Hafrann-
sóknastofnun og Líffræðistofnun Há-
skólans.
„Þessar þrjár stofnanir hafa lengi
barist fyrir því að eignast bát fyrir
starfsemi sína, hver í sínu lagi. Við
geröum okkur grein fyrir því að með
samvinnu gengi þessi barátta betur,
betri nýting fengist á skipinu auk þess
sem af þessu hlytist stór sparnaður. ’ ’
Að sögn þeirra félaga ætlar Fiskifé-
lagiö að nota skipiö til sjóvinnukennslu
fyrir nemendur í efstu bekkjum grunn-
skóla. Þessi kennsla hefur veriö í um-
sjá félagsins frá upphafi i samráöi viö
menntamálaráöuneytiö.
Hafrannsóknastofnun hefur átt í erf-
iðleikum meö aö sinna innfjaröa- og
grunnsjávarrannsóknum tU þessa
vegna þess hve stór skip hún hefur til
umráða. Með tilkomu hins nýja fleys
rætist úr þessu. Stofnunin mun einkum
nota þaö til rannsókna á seiðum, þara
og grásleppu og tilraunaveiöa á
krabba og skelfiski.
Líffræöistofnun hyggst nota kennslu-
og rannsóknaskipið í þrennum til-
gangi. I fyrsta lagi verður það nýtt við
kennslu í sjávarliffræðigreinum, til
dæmis við öflun sýna og kynningu á
rannsóknaaðferöum á lifríki sjávar. I
ööru lagi verða sérfræðingar með
rannsóknir um borð í bátnum og loks
mun stofnunin nota bátinn í þjónustu-
verkefni fyrir ýmsa aðila.
Hingað til hafa þau verkefni, sem að
framan eru talin, veriö leyst með leigu-
bátum. Það er rikissjóður sem kaupir
skipið en sjávarútvegsráðuneytið
verður rekstraraöili þess í nánu sam-
ráði viö stofnanirnar sem nota það.
Trésmiðja Guðmundar Lárussonar á
Skagaströnd sér um smíöina á
kennslu- og rannsóknaskipinu en þaö
er 15 tonna plastbátur, búinn helstu
siglingatækjum og veiðarfærum. Full-
frágenginn kostar hann 7,5 milljónir og
verður afhentur 15. október næstkom-
andi. -JKH
Bréf aðeins af hent
réttum viðtakendum
Skýrar reglur eru í gildi um afhend-
ingu póstsendinga. Þar segir m.a. að
sendingar megi afhenda viötakendum
með eftirfarandi hætti:
Á póststööinni þegar þær eru sóttar.
Með útburði af póstsins hálfu á heim-
ili viðtakanda og með því aö láta þær í
pósthólf er viðtakendur leigja á póst-
stöövum.
Frá þessu er greint í fréttatilkynn-
ingu frá Póst- og símamálastofnun í til-
efni blaöaskrifa að undanförnu um
óskilabréf sem innihéldu hættuleg eit-
urlyf og skilin væru eftir ofan á póst-
kassa í anddyri f jölbýlishúss.
Þegar viðtakandi finnst ekki að al-
mennri póstsendingu á að gera aöra
tilraun til aö finna réttan viðtakanda í
næsta póstútburði. Ef þaö tekst ekki þá
skal fara meö póstsendinguna eins og
óskilasendingar og þær geymdar á viö-
komandi pósthúsi. Bréfið er síðan af-
hent viðtakanda sem um hana spyr og
getur skýrt nákvæmlega frá hvernig
utanáskriftinni er hagað. Ef margir
gera kröfu til slíkrar sendingar og geta
skýrt utanáskriftina nákvæmlega er
sendingin ekki afhent heldur fariö með
hana sem óskilasendingu.
Þá eru einnig til ákvæði í reglugerð
um að póstkassar eða bréfarifur, ræki-
lega merktar, séu við íbúðarhús. Þar
sem eru fleiri en þr jár íbúðir með sam-
eiginlegan inngang eiga húseigendur
að set ja upp póstkassasamstæður.
A.Bj.
JC Reykjavík með ræðunámskeið fyrir almenning:
„Það námskeið sem er
vinsælast innan JC”
— segir Jakob Kristjánsson, forseti JC
„Þetta er það námskeið sem er vin-
sælast innan JC og þvi ákváðum viö að
gefa fleirum en JC-félögum kost á að
sækja þaö,” sagöi Jakob Kristjánsson,
forseti JC Reykjavíkur, um athyglis-
veröa auglýsingu félagsins nýlega en í
henni er boðið upp á námskeiö i ræöu-
mennsku og mannlegum samskiptum.
Jakob sagði að námskeiöiö tæki átta
kvöld og á því yrði kennd ræðu-
mennska, mannleg samskipti, fundar-
stjóm og fundarsköp. Fyrsta náim-
skeiðið byr jar í kvöld og það er þegar
fullbókað á það.
Þaö mun vera nýbreytni hjá JC aö
auglýsa námskeið sérstaklega til sölu
en undanfarin ár hafa nokkur JC-félög
haldið ræðunámskeiö fyrir einstakl-
inga utan hreyfingarinnar.
„Hugmyndin að auglýsa námskeiðið
meö þessum hætti kviknaði í sumar
þegar við vorum að undirbúa starfsár-
ið,”sagðiJakob.
„Þaö byrjar annaö námskeiö seinna
í vikunni. Og ef þessi fyrstu námskeiö
gefast vel, eíns og allt bendir til, þá tel
ég öruggt aö við verðum með fleiri í
vetur.”
JC hefur á að skipa mörgum góðum
leiðbeinendum í ræðumennsku, fólki
sem hefur kennt í mörg ár. „Okkar
ágæti félagi, Gisli Blöndal, mun ríða á
vaðið og halda fyrsta námskeiðið,”
sagðiJakobKristjánsson. -JGH
Jakob Kristjánsson, forseti JC
Reykjavikur.
DV-mynd: VHV.