Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Blaðsíða 23
DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985
23
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Óvæntur sigur FH á Akranesi í 1. deild:
Halldór markvörður
ofjarl Skagamanna
Frá Sigþór Eiríkssyni, fréttamanni DV
á Akranesi.
Skagamenn byrjuðu mjög vel í leikn-
um við FH í 1. deild hér á Skipaskaga á
laugardag og þá var fátt sem benti til
þeirra óvæntu úrslita sem urðu i leikn-
um. FH sigraði, 3—2, eftir að hafa
skorað þrjú fyrstu mörkin — öll í fyrri
hálfleik — en í þeim síðari mlnnkaði fA
muninn í 3—2. Tókst hins vegar ekki að
jafna vegna frábærrar frammistöðu
Halldórs Halldórssonar í marki FH
sem varði hreint stórkostlega og
Skagamenn urðu af þýðingarmiklum
stigum í toppbaráttunni. Hins vegar
komu stigin sér vel fyrir FH í fallbar-
áttunni.
Fyrsta stundarfjórðunginn léku
Skagamenn oft glæsilega. Á 7. mín.
kom fyrsta marktækifærið og var vel
að því staðið. Hörður Jóhannesson og
Arni Sveinsson prjónuðu sig í gegnum
“vörn FH og Ámi átti gott skot á markið
frá vítateig. Halldór Halldórsson varði
mjög vel. Á 14. mín. komst Sveinbjörn
Hákonarson í dauðafæri eftir fyrirgjöf
Áma á markteigshominu. Var of seinn
að átta sig og Halldóri tókst aö kasta
sér á boltann.
Selfoss
í 2. deild
Selfoss tryggði sér sæti i 2. deild þeg-
ar liðið gerði jafntefli við Ármann á
Selfossvelli á laugardag, 2—2, og
þurftu Selfyssingar talsvert að hafa
fyrir jafnteflinu.
Ármann hafði yfir eftir fyrri hálf-
leikinn, 2—1, og skoruöu bræðumir
Ivar og Smári Jósafatssynir mörk
Reykjavíkurliðsins, Gunnar Garðars-
son fyrir Selfoss. I síðari hálfleiknum
tókst Þórarni Ingólfssyni að jafna í
2—2 fyrir Selfoss.
Fjórir leikir voru í A-riðli 3. deildar á
laugardag og urðu úrslit þessi:
Grindavík —Víkingur.Ol. 1—1
IK — Reynir, Sandgerði 6—3
Selfoss — Ármann 2—2
Stjarnan — HV 1—2
Mikið markaregn í Kópavogi og það
merkilega var að þegar tuttugu mínút-
ur voru til leiksloka stóð 3—1 fyrir
Sandgerðinga. Þá tóku strákarnir í
Iþróttafélagi Kópavogs heldur betur
við sér og skoruðu fimm sinnum. Mörk
IK skoruðu: Guðjón Guðmundsson,
leikmaður og þjálfari, þrjú, Jón Hersir
Elíasson tvö og Þórir Gislason eitt.
Fyrir Reyni skoruöu Jón BG Jónsson,
Ari Haukur Arason og Sigurður Guðna-
son.
Steinþór Helgason náði forustu fyriri
Grindavík um miðjan fyrri hálfleikinn
en Halldór Gíslason jafnaöi fyrir Olafs-
víkur-Víkinga úr vítaspyrnu á 41. mín.
1 síöari hálfleik var einum leikmanni
Grindavíkur vikið af velli, Hjálmari
Halldórssyni.
Staðan í riðlinum er nú þannig:
Selfoss 12 8 4 0 31- -11 28
Grindavík 13 6 4 3 24- -16 22
Reynir, S 13 5 4 4 26- -19 19
IK 13 4 6 3 25- -22 18
Ármann 13 4 4 5 19- -17 16
Stjarnan 12 4 4 4 12- -18 16
HV 13 4 2 7 20- -23 14
Víkingur, O. 13 1 2 10 10-40 5
-hsím.
FH skoraði
Á 19. mín. skoraði FH mjög gegn
gangi leiksins. Langt innkast í vítateig
— Magnús Pálsson stökk upp og
spyrnti síðan aftur fyrir sig, hjólhesta-
spyrna, og knötturinn sveif í stórum
boga yfir Birki markvörð og datt í
markið við stöngina. Fallegt mark.
Eftir þetta áfall hrundi leikur Skaga-
manna og var ekki heil brú í leik þeirra
fram að leikhléinu. FH gekk á lagið og
sótti stíft og uppskeran var tvö mörk.
Gátu jafnvel orðið fleiri. Fyrst komst
Jón Erling Ragnarsson einn inn fyrir
en Birkir varöi mjög vel frá honum.
Mark lá í loftinu og á 37. mín. skoraði
FH annaö mark sitt eftir mjög góðan
undirbúning Harðar Magnússonar.
Hann óð upp með boltann upp að enda-
mörkum, lék á Guðjón Þórðarson og
sendi síðan vel fyrir markið. Þar kom
Ingi Bjöm Albertsson á fleygiferð og
fékk nægan tíma til að taka knöttinn
niður á brjóstinu og skora af öryggi.
Steinsofandi varnarmenn lA horfðu á.
Á 43. mín. komst FH í 3—0 með heppn-
ismarki. Skagamönnum tókst að
hreinsa frá eftir sókn FH. Boltinn
barst til Jóns Erlings, sem átti skot á
mark IA, og knötturinn stefndi að nær-
stönginni. Birkir kastaði sér til að
verja en boltinn fór í öxl Sigurðar Lár-
ussonar, breytti um stefnu og stefndi
nú að fjærstönginni. Birki hafði tekist
að komast á fætur og kastaði sér í hitt
—varðioft
frábærlegavel
—FHskoraði
þrjúfyrstumörkin
Halldór Halldórsson
markvarsla.
— frábær
homið, hafði hendur á knettinum en
knötturinn var þá kominn yfir mark-
línuna, að minnsta kosti dæmdi dómar-
inn öli Olsen, sem var vel staðsettur,
þegar mark. 0—3 og áhorfendur á
Skipaskaga trúðu vart sínum eigin
augum.
Halldór frábær
Hörður Helgason, þjálfari Skaga-
manna, hefur heldur betur lesið yfir
mönnum sínum i leikhléinu því þeir
komu mjög ákveðnir til leiks í síðari
hálfleik. Hófu strax stórsókn og skor-
uöu eftir aðeins tvær mínútur. Hörður
átti skot á markið — knötturinn hrökk í
varnarmann FH og til baka út í teig-
inn. Þar kom Ámi og skoraði með
þrumuskoti sem Halldór átti ekki
möguleika að verja. Skagamenn lögðu
allt í sóknina og það varö til þess að
vöm þeirra opnaðist stundum illa eftir
skyndisóknir FH. Á 60. mín. komst Ingi
Bjöm einn í gegn, átti aöeins Birki eft-
ir en markvöröurinn sá við honum og
varði glæsilega hörkuskot Inga.
Á 68. mín. skoraði IA aftur og spenn-
an komst í hámark. Það var eins og
endurtekning á marki Árna en nú var
það Aðalsteinn Víglundsson, sem rétt
áður hafði komið inn sem varamaður,
sem skoraði. Hann fékk knöttinn rétt
utan vítateigs og spyrnti viðstöðulaust
upp í þaknetið á markinu. Fallegt
mark og 20 mínútur eftir.
En þá kom að glæsilegum þætti Hall-
dórs Halldórssonar, markvarðar FH.
Varði hreint ótrúlega vel — fyrst
skalla frá Herði, síðan aukaspyrnu frá
Áma og þar á eftir hörkuskot Aðal-
steins. Glæsileg tilþrif og hann hélt FH
algjörlega á floti.
SIGURGANGA PARIS
SG HELDUR ÁFRAM
— sigraðí á útivelli í 7. umferð
Parísar-liðið Saint Germain heldur
áfram sigurgöngu sinni i 1. deildinni
frönsku í knattspyraunni. Hefur lelkið
sjö leiki án taps og vann þýðingar-
mikinn sigur á föstudagskvöld. Sigraði
þá Auxerre, 0—1, á útivelli. Fabrice
Poullain, sem keyptur var frá Nantes i
sumar, skoraði eina mark leiksins eftir
snjalla samvinnu við júgóslavneska
landsliðsmanninn Safet Susic. Það var
á60. min.
Nantes er í öðru sæti og vann einnig
góðan sigur á útivelli. Jose Toure
skoraði eina markið í Lille eftir góðan
undirbúning Vahil Halilhodzic, marka-
skorarans mikla hjá Nantes, og hefur
verið valinn í franska landsliðiö gegn
Uruguay á miðvikudag.
Meistarar Bordeaux urðu fyrir enn
einu áfallinu gegn Rennes þegar
Patrick Battiston, landsliðsmaðurinn
kunni, varð að yfirgefa völlinn vegna
meiösla á 52. min. Hann hafði áður
sent knöttinn í eigið mark á 35. min —
jöfnunarmark Rennes í 1—1 eftir að
Marc Pascal hafði náð forustu fyrir
Bordeaux á 14. mín. Þjóðverjinn Uwe
Reinders kom Bordeaux í 2—1 með
skalla á 44. mín. og síðan komust
meistararnir í 3—1 með marki Alain
Giresse á 74. mín. Oscar Miiller
minnkaði muninn í 3—2 á 77. mín.
Fleiri urðu mörkin ekki. Portúgalinn
Fernando Chalana kom inn sem vara-
maöur hjá Bordeaux í síðari hálfleik í
stað Bernard Lacombe sem lék á ný
eftirmeiðsli. Urslit.
Auxerre—Paris SG 0-1
Nice—Lens 1-1
Lille—Nantes 0—1
Bordeaux—Rennes 3-2
Toulouse—Toulon 4—0
Bastia—Monaco 0-0
Laval—Sochaux 3-1
Marsettles—Nancy 2-0
Le Havre—Brest 2-0
Metz—Strasbourg 0-0
Nokkrir ísl. ríkisstarfsmenn í
sumarfríi fylgdust með leiknum í Nice.
Þar bar helst til tíöinda að markvöröur
Lens (frb. Lans) — Geatan Huard —
var fluttur á sjúkrahús eftir samstuð
við miðherja Nice, Argentínumanninn
Jorge Domingues. -hsim
Staðan er
Paris S.G.
Nantes
Bordeaux
Lens
Monaco
Nancy
Toulon
Toulouse
Sochaux
Metz
Rennes
Laval
Nice
LeHavre
Lttle
Strasbourg
Brest
Auxerre
Marseilles
Bastia
nú þannig.
7 6 1 0 16- 5 13
7 4 3 0 7— 2 11
7 2 2 3
7 3 0 4
7 2 2 3
7 2 2 3
7 13 3
7 115
7 115
9-11
9—11
6— 8
6— 9
7— 8
8— 14
4-17
Síöasta marktækifæri leiksins fékk
FH hins vegar. Ingi Bjöm komst einn í
gegn, spyrnti knettinum framhjá Birki
en Siggi Lár. kom á fleygiferð og tókst
aö bjarga á marklínu. Lokakafla leiks-
ins sótti IA stíft en fékk ekki afgerandi
færi.
Mikil kaflaskipti
Það voru mikil kaflaskipti í leik
Skagamanna að þessu sinni, góð byrj-
un, hrun eftir fyrsta mark FH en stíft
sótt í s.h. Birkir var langbestur þeirra.
Bjargaði oft vel í skyndisóknum FH og
þeir Ámi, Olafur Þórðarson og Guðjón
áttu góða spretti. Hjá FH var Halldór
yfirburðamaður, Dýri Guðmundsson
sterkur í vöminni og Janus Guðlaugs-
son mjög drjúgur. Mikill styrkur fyrir
FH að hafa fengið hann á ný. Liðin
voru þannig skipuð:
Akranes. Birkir, Guðjón, Olafur, Sig-
urður, Jón Áskelsson, Hörður, Svein-
bjöm, Július Ingólfsson (Heimir Guð-
mundsson), Karl Þórðarson, Valgeir
Barðason (Aðalsteinn) og Ámi.
FH. Halldór, Viðar Halldórsson,
Dýri, Þórður Sveinsson, Henning
Henningsson, Guöm. Hilmarsson
(Kristján Gíslason), Magnús, Janus,
Ingi Bjöm, Hörður, Jón Erling.
Áhorfendur 720.
Maður leiksins: Halldór Halldórs-
son, FH.
SE/hsim.
Einherji
enn ef stur
— íB-riðli 3- deildar
Mikil spenna er enn í B-riðli þriðju
deildar og þrjú lið berjast enn um að
komast í 2. deild. Einherji i Vopnafirði
stendur best að vigi. Hefur þremur
stigum meira en Magni og Tindastóll.
Næstkomandi laugardag leikur Ein-
her ji við Tindastól á Vopnaf irði.
011 efstu liðin sigruðu í leikjum sín-
um á laugardag en úrslit urðu þá þessi.
Austri—Huginn 3—4
Magni—Þróttur, N. 4—0
HSÞ—Einherji 1—2
Tindastóll—Valur, Rf. 2—0
Hart var barist í fyrri hálfleik í leikn-
um í Grindavík. Magni skoraði þá eitt
mark en í síðari hálfleiknum urðu
mörk liðsins þrjú og öruggur sigur í
höfn. Hringur Hreinsson skoraði þrjú
af mörkum Magna, Jón Ingólfsson eitt.
Norðfirðingar fengu ekki teljandi færi í
leiknum.
Á Sauðárkróki vann Tindastóll
öruggan sigur á Valsmönnum frá
Reyðarfirði. Þeir Guðbrandur Guð-
brandsson og Eyjólfur Sverrisson
skoruöu mörk Tindastóls.
En Einherji hélt forystu sinni í riðlin-
um með því aö hljóta þrjú stig í Mý-
vatnssveit. Hefur því þriggja stiga for-
ustu áfram. Kristján Davíðsson var
betri en enginn fyrir Vopnfirðinga í
leiknum. Skoraöi bæði mörk Ein-
hverja.
Staðan í riðlinum er nú þannig.
19 11 3— 9 11 7 4 2 1 19— 9 10 Einherji 14 10 2 2 30-15 32
7 2 4 1 5—4 8 Magni 14 9 2 3 29—16 29
7 4 0 3 10—10 8 Tindastóll 14 8 5 1 19-6 29
7 3 2 2 7—8 8 Leiknir, F. 14 8 1 5 20-19 25
7 3 0 4 14—12 6 Austri 14 4 6 4 24-20 18
7 2 2 3 10^-10 7 1 4 2 5—5 6 6 Þróttur, N. 15 4 4 7 20-21 16
7 2 2 3 8-9 6 Huginn 14 3 2 9 16-23 11
7 1 4 2 6-7 6 Valur, Rf. 13 3 2 8 19-27 11
7 1 4 2 6—7 6 HSÞ 14 1 2 11 17-39 5
Eins og áður segir mætast Einherji
og Tindastóll á Vopnafirði nk. laugar-
dag en Magni leikur þá við Val á
Reyðarf jarðarvelli. Tvær umferöir eru
eftir.
hsím.
FRAM-VÍÐIR
á aðalleikvangi Laugar-
dalsvallar í kvöld kl. 19.00.