Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Qupperneq 29
DV. MANUDAGUR19. AGOST1985 29 Smábátahöfn á Seyðisfirði: „Tileinkaði þetta trillu- , — segir nýútskrif aður arkitekt „Ég tileinkaöi trillukörlunum verkefniö. Mér fannst aö þeir ættu þaö fyllilega skilið,” segir Þóra Guömundsdóttir, arkitekt á Seyðis- firði, við DV. Þóra hefur nýlokið arkitektanámi í Danmörku. Hún er Seyöfiröingur í húð og hár og valdi því lokaverkefni sitt frá heimaslóðum. Fyrir valinu varö smá- bátahöfn og tilheyrandi byggingar sem tengdar eru henni. Ekki er þó líklegt aö verkefniö veröi aö veruleika í nánustu framtíð. Það var sýnt bæjarbúum 17. júní og leist öllum vel á þessa hug- mynd Þóru. „Þarna á að vera veiðarfæra- verslun, sjómannaheimili, sjómanna- kaffi, þar sem gömlu dansarnir veröa dansaöir, fiskbúð og úti á bryggu- endanum veröur veitingahús sem ég hef kallað „Hrognkelsið”, segir Þóra. Margt fleira verður í þessum bygg- ingum sem Þóra hefur teiknaö. Þar veröur m.a. aðstaöa fyrir trillu- karlana. Þóra arkitekt vinnur þessa stundina sem kokkur á hóteli staðarins og svo rekur hún einnig farfuglaheimilið. En • Þóra Guðmundsdóttir arkitekt stendur hér við teikningar af loka- verkefni sínu. er eitthvað aö gera fyrir arkitekt é Seyðisfirði? „Já, það er margt sem þarf aö gera hérna og ég er ekki hrædd um aö ég verði aögerðalaus,” segir Þórt Guðmundsdóttir. APH Hluti af þeim húsum sem Þóra teiknaði við smábátahöfnina á Seyðisfirði. DV-myndir PK • Hjónin Þráinn Skarphéðinsson og Gunnhildur Ingvarsdóttir i prentsmiðju sinni og virða fyrir sér nýút- komið eintak af fréttablaðinu Austra. DV-mynd PK Furðutjald á Selfossi Frá Kristjáni Einarssyni, Selfossi: Hér á Selfossi hefur verið starfrækt þjónusta fyrir ferðafólk af ýmsu tagi undanfarin ár. Helst ber að nefna tjaldstæðið. Þar hefur aðstaðan verið að lagast með hverju árinu. Þeir sem hafa fylgst með umferðinni á stæðinu hafa í gegnum tíðina séð furðulegustu tjöld rísa þar. Oftast eru það erlendir ferðamenn sem eru með útbúnað sem vekur at- hygli. Það er þó ekki einhlítt. Einn dag- inn fyrir stuttu átti ég leið framhjá tjaldsvæðinu og sá nokkuð furðulegt. Hjón, sem búa hér á staðnum og hafa gert lengi, höfðu ekið bíl sínum inn á svæðið og tjaldað. Þetta varð að at- huga betur. Jeppatjald Mér var tekið með kostum. Fékk bæði kaffi og meðlæti því þarna fór fram vígsla á nýju tjaldi þeirra hjóna. Kunningi þeirra hafði saumað það og var verið aö prófa gripinn í fyrsta skipti. Tjaldið var einkennilega útbúið. Því var rennt aftan á jeppa hjónanna. Afturhleri bílsins var opnaður og verö ur þá bíllinn og tjaldið ein heild. Ekk er heldur nauðsynlegt að hafa bílinn 0{ tjaldið fasttengt. Hægt er að rennt tjaldinu frá bílnum og er þá dulu rent opið. Stendur þá tjaldið sjálfstætt Yfirbygging jeppans er unnin af hjón unum og var tjaldiö þeirra hugmynd. -EH Mikið að gera í prentverkinu fyrir austan: Gunnhildur lýsir vel nálægö vinnu- staöarins við heimilið og hversu mikið er að gera þegar hún segir: „Þráinn rennir sér niður handriðið á morgnana en skríður upp stigann seint á kvöldin.” Þaö eru 14 ár síðan þau hjón byrjuðu með prentsmiðjurekstur á Egils- stöðum. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið stöðugt. Verkefnin eru fjölþætt. Prentun af nær öllu tagi. Þá má geta þess að þarna er prentaö fréttablaðið Austri sem gefið er út á Egilsstööum. „Það er nóg að gera hérna á Egils- stööum. Þegar ég flutti hingað fyrir 14 * r' (iii • Ásgeir Long við BARCO öryggisleiðara. RENNIR SER NIÐUR HAND- RIÐIÐ Á MORGNANA - SKRÍÐUR UPP Á KVÖLDIN „Viö byr juðum með prentsmiðjuna í litlum bílskúr og nú erum við komin í 280 fermetra húsnæði,” segir Þráinn Skarphéöinsson, prentsmiðjueigandi á Egilsstöðum, við DV. Hann og kona hans, Gunnhildur Ingvarsdóttir, eiga prentsmiðjuna Héraðsprent. Rekstur- inn hefur gengið vel og nóg að gera að sögn þeirra. Nýlega fluttu þau í nýtt húsnæði. Þaö er myndarlegt hús á tveimur hæðum. A neðri hæðinni er prentsmiðjan og á þeirri efri búa þau hjón og þeirra börn. Þau segja að það sé ákaflega heppilegt að hafa vinnu- staðinn svona nálægt heimilinu. Kosturinn er að sjálfsögðu að það er stutt aö fara í vinnu. árum spurðu menn mig á hverju ég ætlaöi mér að lifa hérna fyrir austan. Það væri ekkert fyrir prentara að gera hérna. En reyndin hefur orðið önnur,” segir Þráinn, prentari í Héraðsprenti. APH Nýrbúnaðuríbáta: ÖRYGGIS- LEIBARI Hafin hefur verið framleiðsla á öryggisbúnaði sem svarar kröfum norrænna reglna um björgunarstiga í bátum. Búnaðurinn hefur verið nefndur BARCO öryggisleiðari og er 3 m langur stigi úr áli og næloni sem komið er fyrir í litlu plasthylki. Hylkinu á að koma fyrir í bátnum þannig að handfang sem tengist því lafi annaðhvort út fyrir borðstokk eða út um lensport ef um þilfarsbát er að ræða. Falli maöur útbyrðis þarf hann að toga snöggt í handfangiö, en við það brestur svonefnt slitauga. Getur maðurinn þá dregið öryggisleiðarann til sín og fetað sig upp eftir honum um borð. Búnaður þessi hefur verið prófaður af Siglingamálastofnun og SVFI og er viðurkenndur af fyrrnefndu stofnun- inni. Hönnuður er Ásgeir Long, eigandi fyrirtækisins BARCO sem framleiðir öryggisleiðarann. Hefur Ásgeir sótt um einkaleyfi á honum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.