Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Side 40
40
DV: MÁNUDAGUR19. ÁGÚST1985
Andlát
Þorgerður Hanna Haraldsdóttir, sem
lést á Landakotsspítala 12. ágúst,
verður jarðsungin í dag, mánudag 19.
ágúst, kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Hanna var fædd að Syðri-Rauðamel 21.
apríl 1926, dóttir hjónanna Haralds Líf-
gjarnssonar og Ulfhildar Hannes-
dóttur er þar bjuggu. önnur börn
þeirra voru Lífgjarn Ingi, Hrafnhildur
og Sigurður Bjarni. Er þau slitu sam-
vistum, hóf Ulfhildur búskap með
Andrési Jónssyni frá Eyrarbakka og
áttu þau tvo syni, Kristján og Hilmar.
Hanna var tekin í fóstur til þeirra
Þorleifs Jónssonar og Jóhönnu Olafs-
dóttur en þá bjuggu á Syðri-Rauðamel.
1951 giftist hún Gunnlaugi Jónssyni
veggfóðrameistara, og eignuðust þau
þrjú börn, Hrafnhildi, Þorleif og önnu
Sigríði.
Helga Jónsdóttir frá Sílalæk, Boða-
granda 7 Reykjavík, lést 8. ágúst í
Landakotsspítala.
Baldur Jónsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri, Blöndubakka 5 Reykja-
vík, lést 14. ágúst. Otförin fer fram frá
nýju kapellunni í Fossvogi miðviku-
daginn21. ágúst.
Sarnuel Stewart Ritchie, Þórsgötu 29
Reykjavík, sem lést 13. ágúst sl.,
verður jarðsunginn þriðjudaginn 20.
ágúst kl. 15 í Háteigskirkju.
Christa Jóhannsson, Oöinsgötu 9
Reykjavík, sem lést 12. ágúst sl.,
verður jarösungin frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 20. ágúst kl. 13.30.
Umhelgina Um helgina
Margt gott leyndist þar
Það var ýmislegt gott sem leyndist
í útvarps- og sjónvarpsdagskránni
þessa helgi. Drög að dagbók vikunn-
ar sem Páll Heiðar sér um er jafnan
töluvert tilhlökkunarefni. Þátturinn
er mjög fagmannlega saman settur,
alvarleg málefni og léttara hjal
renna saman í góða heild. Margur
blaöaskríbentinn fær áreiðanlega að-
eins í magann þegar kemur að skop-
inu í lokin, af ótta við að eiga eitt-
hvaö af fjólunum sem þar eru tíndar
til.
Tylftarþraut, spurningaþáttur út-
varpsins á sunnudagskvöldum, veld-
ur sjálfsagt mörgum heilabrotum og
það í meira en einum skilningi. Fyr-
irkomulagið á honum er frámuna-
lega flókið og lýsi ég hér með eftir
þeim hlustanda sem kann skil á því.
Spurningarnar eru þó yfirleitt ágæt-
ar og óneitanlega gaman að spreyta
sig á þeim.
Af sjónvarpsefni þessara daga
nefni ég hér þýska flokkinn um Hitl-
ersæskuna, Blut und Ehre. Enn eitt
afsprengi af uppgjörinu viö nasism-
ann, vel gerðir þættir. Nú ætti sjón-
varpið að drífa í því að fá þættina
sem slógu rækilega í gegn í Þýska-
landi i fyrra, Heimat, þar sem fylgst
er með þorpinu Hiinsriick og fólkinu
þar gegnum þrengingar aldarinnar.
David Lean, hinn aldni breski leik-
stjóri, var svo viðfangsefni mjög
fróðlegrar heimildarmyndar sama
kvöld. Þaö er ótrúlegt hvað sá maður
hefur afrekaö á sviði stórmynda, og
enn virðist hann eiga mikið þrek eft-
ir, þó orðinn sé hálfáttræður. Glefs-
umar úr gömlu svarthvítu myndun-
um sem hann gerði í Bretlandi voru
skemmtilegar og væri gaman að sjá
eitthvað af þessum myndum á skján-
umhér.
Notalegheitin sátu í fyrirrúmi und-
ir lok útvarpsins á sunnudagskvöld,
Tómas R. Einarsson sneri djassskíf-
um og var það góð tilbreyting frá
rokkdynjandanum alla daga. Það er
sáluhjálparatriði að heyra viö og við
í órafmögnuðum og ótölvustýrðum
hljóðfærum. Stefán Jökulsson lauk
svo deginum á sinn þægileg hátt. Það
er góð ráðstöfun að hafa slíkan þátt
sem nær fram yfir miðnætti, því þeir
eru margir nátthrafnarnir á Islandi.
PéturAstvaldsson.
Happdrætti
Happdrætti Lögregiu-
félags Reykjavíkur
Dregið hefur verið í byggingahappdrætti
Lögreglufélags Reykjavíkur og komu
vinningar á eftirtalin númer:
1. Sharpmyndbandstækiánúmer9804.
2. Fimm daga ferð til Amsterdam fyrir tvo á
númer 10545.
3. Fimm daga ferð til Amsterdam fyrir tvo á
númer 10951.
4. Pioneerhljómflutningstækiánúmer5729.
5. Sharplitasjónvarpánúmerll42.
6. Sharpheimilistölvaánúmer5139.
7. Sharp ferðatæki á númer 8044.
8. Sharpferðatækiánúmer 10017.
9. Sharp ferðatæki á númer 746.
Handhafar vinningsmiða eru vinsamlegast
beðnir að snúa sér til Jóns Amars Guðmunds-
sonar, lögreglustöðinni, Hverfisgötu 113, eða í
síma 10200.
Vinninga skal vitjað innan eins árs.
Þökk fyrir stuðninginn.
Hestamanna-
féiagið Hörður
Þann 15. ágúst var dregið í happdrætti
íþróttadeildar hestamannafélagsins Harðar.
Eftirtalin númer hlutu vinning:
1. Reiðhestur undan Ofeigi 818 frá Hvann-
eyri, nr. 3224.
2. Reiöhestur undan Kolbaki 925 frá Egils-
stöðum, nr. 3271.
3. Einn farmiði til Kaupmannahafnar með
leiguflugi sumarið ’85 hjá Samvinnuferð-
um/I.andsýn, nr. 7662.
4. Málverk eftir Pétur Behrens, nr. 8432.
5. Hljómtæki frá Radíóbúðinni, nr. 574.
6. Tamning frá tamningastöðinni í Helga-
dal, nr. 7834.
7. Hnakkur frá heimilisvörudeild SlS, nr.
3285.
8. Vöruúttekt frá Hagkaupi, nr. 6192.
9. Reiðhestablanda frá fóðurvörudeild SIS,
nr. 472.
10. Folatollur: Adam 978 frá Meðalfelli, nr.
1857.
11. Folatollur: Blakkur 977 frá Reykjum, nr.
3379.
12. FolatollUr: Dreyri 834 frá Alfsnesi, nr.
1104.
13. Folatollur: Feykir 962 frá Hafsteinsstöð-
um, nr. 552.
14. Folatollur: Hervar 963 frá Sauðárkróki,
nr. 7114.
15. Folatollur: Kolbakur 730 frá Gufunesi, nr.
6184.
16. Folatollur: Máni 949 frá Ketilsstöðum, nr.
1467.
17. Folatollur: Náttfari 776 frá Ytra Dals-
gerði, nr. 8445.
18. Folatollur: Ofeigur 818 frá Hvanneyri, nr.
7247.
19. Folatoilur: Skór823fráFlateyri, nr. 1413.
20. FolatoUur: Sörli 653 frá Sauöárkróki, nr.
3745.
21. Folatollur: Viðar 979 frá Viðvík, nr. 542.
22. Folatollur: Þáttur 722 frá Kirkjubæ, nr.
1203.
23. 5 graskögglapokar frá Brautarholti, nr.
7075.
24. 6 járningar. Valdimar Kristinsson, nr. 87.
25. Sodastreamtæki frá Sól hf., nr. 7172.
26. Beisli frá Hestamanninum Armúla, nr.
1174.
27. Málsverður fyrir 2 í veitingahúsinu 1
Kvosinni, nr. 3249.
28. Lamb frá Helgafelli, nr. 8480.
29. KjúklingarfráMóum, nr. 7440.
Vinningshafar hringi í síma 29099 eða 666753
eftir 25. ágúst nk.
Ath. Vinningar skulu sóttir innan árs frá því
dráttur fór fram.
Birt án ábyrgðar.
Tilkynningar
Yfiriitssýning
í læknisfræði
Menningarstofnun Bandaríkjanna stendur
fyrir sýningu á nýjungum í læknisfræði
(Medicine Today USA) dagana 26. ágúst til
10. september í húsakynnum Domus Medica
við Eiriksgötu í Reykjavík. Verður hún öUum
opin daglega frá kl. 14—22 og einnig um helg-
ar. Er starfsfólk heilbrigðisstofnana sérstak-
lega hvatt tU að koma á sýninguna en allar
nánari upplýsingar eru veittar í síma 621020.
Fyrstir með fréttirnar
umuN
alla vikuna
Urval
vid allra hœfi
<
Q
D
FÁST
Á BLAÐSÖLU^
Góða ferð!
=>
KR—INIýtt félagsheimili
Knattspyrnufélag Reykjavíkur mun taka nýtt
félagsheimiU í notkun 24. ágúst nk. Þann
sama dag verður haldinn „KR-dagurinn
1985”. Mikið verður því um að vera vestur í
FrostaskjóU á laugardaginn og býður KR
öUum áhugamönnum um íþrótta- og æsku-
lýðsmál í heimsókn, tU að skoða hið nýja
félagsheimiU og kynnast hinu góskumikla
starfi innan félagsins af eigin raun.
Geðhjálp
Geðhjálp er félag fólks með geðræn vanda-
mál, aðstandenda þess og velunnara. Félags-
miðstöðin er að Veltusundi 3 B (við Hallæris-
plan). Sími 25990. Opiðhús tU 1. september:
Mánudaga kl. 14 tU 17.
Föstudaga kl. 14 tU 17.
Laugard. kl. 14 tU 18.
Símaþjónusta alla miðvikudaga kl. 16 til 18.
Símsvari allan sólarhringinn sem gefur upp-
lýsingar um starfsemi félagsins.
Vetrarstarfið hefst 1. september og verður
það auglýst síðar. AUir velkomnir í opið hús.
Hússtjórnin.
Afmæli
75 ára
Sjötíu og fimm ára er í dag,
mánudaginn 19. ágúst, Sigurður Sv.
Guðmundsson frá Árbakka í Hnifsdal.
Sigurður hefur starfaö i Hnífsdal alla
tíð og rekið þar Rækjuverksmiðjuna
hf. Kona hans er Aðalheiður Tryggva-
dóttir og verða þau hjón í Reykjanesi
við ísaf jarðardj úp á afmælisdaginn.