Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Síða 43
DV. MÁNUDAGUR19. ÁGUST1985 43 Þrír af aðstandendum gróðrarstöðvarinnar é Laugarbakka, (f.v.) Bjöm Hannesson, Regína Þórarinsdóttir og Kristin Sigurðardóttir. DV-mynd PK. MllJ Fyrsta „ÖNNUM „Þaö má segja aö þetta sé langtíma draumur sem er aö rætast,” sagði Bjöm Hannesson búfræðingur, en hann setti í vor á fót garðyrkjustöð á Laugarbakka, ásamt konu sinni Kristínu Sigurðardóttur, Regínu Þórarinsdóttur garðyrkjufræðingi og rarstöðin sett á fót á Laugarbakka: EKKIEFTIRSPURN” manni hennar, Víði Gissurasyni. I vetur reistu þau tvö 500 fermetra gróðurhús og hófu svo að rækta tómata, gúrkur og paprikur í byrjun sumars. „Undirtektir hafa verið mjög góðar,” sagði Björn, „við önnum ekki eftirspurn. Það er engin samkeppni hér á svæðinu og við seljum bæði í Húnavatnssýslur og á Strandir. Hita- veitan hér er góð og nóg af heitu vatni. Við vitum ekki enn um verðið á vatninu en það verður sanngjarnt.” JKH Brauðgerðin Krútt á Blönduósi: Getur bakað 20 þús. krínglur á dag „Það er erfitt að sinna neyslukröfum fólks hér á staðnum án þess að hafa verslun,” sagði Oskar Húnfjörð hjá Brauðgerðinni Krútt á Blönduósi, en fyrirtækið hefur nýlega fest kaup á húsnæði undir eigin brauðbúð. „Það hafa komið ákveðnar óskir frá Blöndu- ósingum um að við kæmum þessu á fót og við höldum að búðin komi bæði okkur og neytendum til góða.” Brauðgerðin Krútt var stofnuð árið 1968 og einskorðaðist framleiðslan við kringlur og tvíbökur til að byrja með. Nú framleiðir fyrirtækið líka brauð og kökur og selur út um allt land. Hjá því vinna á milli 15 og 20 manns og eru bakarar að störfum í vaktavinnu allan sólarhringinn. „Þetta er fjörugur og harður „bis- ness”. Samkeppnin er nánast gengin út í öfgar og nú er markaðurinn erfið- asti þátturinn í þessum rekstri,” sagði Oskar. Hann sagði afkastagetu fyrirtækisins vera mikla, til dæmis gætu þeir bakað um 20 þúsund kringlur ádag. Á döfinni hjá fyrirtækinu næst er að erum komnir með lóð þar,” sagði setja upp bakarí á Olafsfirði. „Við Oskar Húnfjörð. JKH Óskar Húnfjörð, framkvæmdastjóri Brauðgerðarinnar Krútt. DV-mynd PK. VANTAR SKÁPAPLÁSS? ACME-FATASKÁPUR undir súð Þegar byggt er undir súö, er talað um að allt að 50% af plássinu nýtist ekki vegna ónægrar lofthæðar. ACME-kerfið býður upp á fjölbreyttar lausnir á fyrirkomulagi fataskápa og það þarf ekki endilega að vera manngengt inn í fataskáp. Hafðu samband við okkur og fáðu fillögur að nýjum fataskáp sniðnum eftir þínum þörfum. midas cMMN#K Grensásvegiö (áóur Axminster) simi 84448 Raftækjaverslun Af sérstökum ástæðum er til sölu ein af hinum þekktu raftækjaverslunum á höfuðborgarsvæð- inu. Þeir sem hafa áhuga hafi samband við auglýs- ingaþjónustu DV i síma 27022 fyrir 25. ágúst. H- 7138. Byggðaþjónustan auglýsir eftir 3ja herb. íbúð fyrir tölvufræðing. íbúðin þarf aðvera á 1. hæðeða í góðu lyftuhúsi. Leigutími 1 ár, gr. fyrirfram. Nánari uppl. á skrifstofu vorri. Byggðaþjónustan, Nýbýlavegi 22, Kópavogi. Sími 41021. Andlitsböð, húðhreinsun, litun fótsnyrting, vaxmeðferð, k hand snyrting og / kvöldsnyrting. GYÐJAN, snyrtistofa og snyrtivörubúð Skipholti 70, simi 35044. DDDaaDBaaoaoaaaBDaaanaaaaoaanooaDDDDaaDDDaaD TOR FÆRUAKSTURS KEPPNI STAKKS 1. september vifl Grindavfk. Keppt verður f: 1. sérútbúnum flokki. 2. götubílaflokki. ! Þátttaka tilkynnist í síma 92-1102. aoaDaaaBBaaaBaoananaaoaoBPaaogaaoaaanBBBap

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.